Þjóðviljinn - 19.06.1982, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 19.06.1982, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 19.-20. júní 1982 stjórnmál á sunnudegí Hvar er sósíalisminn? Þeir sem taka til máls um sós- ialisma hafa gjarna tilhneigingu til að finna honum stað i timanum og á landabréfinu. Til eru þeir sem segja að sósialisminn sé vel- ferðarþjóðfélagið sænska og láta þar við sitja. Sovétmenn taka ekki annað i mál en að sósialism- inn sé hjá þeim — og ýmsir rammir ihaldsmenn eru alveg til i að taka undir slika staðhæfingu og segja að sósialismi geti ekki mikið öðruvisi verið en það þjóð- félag sem þar eystra hefur þró- ast. Enn eru þeir sem láta sér fátt um bæði norðurlandakratisma og sovétkommúnisma finnast og segja að sósialisminn sé það sem siðarkemur. Framtiðarriki frels- is jafnaðar og hamingju, samfé- lag þar sem öll meiriháttar Árni Bergmann skrifar: stýring, sem getur i vanþróuðu landi haft jákvæð áhrif i' þá átt að ýta af stað íræðslubyltingu og iðnbyltingu, snýst innan tiðar gegn sjálfum hinum efnahags- legum framförum. Valdaeinok- unin gerir efnahagskerfið illa virkt og vanbúið til að sinna ekki aðeins fjölbreyttum þörfum nú- timamanns heldur og sjálf- sögðum þörfum íyrir mjólk, kjöt og smjör. Hugsa á ný til ferða Hinn vesturevrópski sósiai- demokratismi og hið sovéska flokksræði eru þvi bæöi i kreppu — siðarnefndi aðilinn er þó verr settur vegna þess hve rækilega hann virðist hafa lokað leiðum út úr ógöngum. Af þessum sökum hefur eflst mjög á undanförnum megindrættir i þeim viðfangs- efnum sem Þriðjuleiðarmenn setja á oddinn. Og eru eitthvað á þessa leið: Efst á baugi — Þeir hafa hug á að ráðast á þær taugastöðvar kapitalismans sem eignarhaldi hans á fram- leiðslutækjum myndar — ekki sist það vald sem safnast hefur á hendur auðhringa. — Þetta skuli gert i nafni dreif- ingar valds i efnahagslifinu, i nafni aukinna áhrifa verkafólks á fjárfestingar og skipulag fram- leiðslunnar, sem og á þaö hvernig ný tækni er upp tekin og notuð. Það sem siðast var nefnt lýtur að sjálfsögðu að þeirri nauösyn að sósialistar eigi sem skýrust svör við tölvubyltingunni, sem nú er að Sósíalistar og þriðja leiðin mannleg vandamál hafa verið leyst — að meðtöidum áfengis- málum og ástarmálum. Alltfram streymir Skynsamlegra miklu er að lita á sósialisma sem margþætta hreyfingu, þróun, íeril, en ekki eitthvað tiltekiö ástand sem hægt er að segja um: þarna er hann! hér er hvorki slaöur né stund til að rekja þessa þróun, hvernig gamlir og nýir draumar alþýðu um réttlæti á jörðunni, draumar sem höfðu sett sinn svip bæði á kristindóm og gyðingdóm, tvinn- ast saman við þarfir verkafólks iðnbyltinganna fyrir samstööu og aílgjafa i baráttu þess við hörm- ungar hins kapitaliska aröráns. Siðan hafa hinir ýmsu straumar. og flokkar sósialiskrar hreyfing- ar breytt heiminum og ekki látið neitt samfélag ósnortið. Þessi hreyfing hefur i rikara mæli en nokkurt afl annað ögraö mann- legu félagi til að færa út mann- réttindakröfur og lýðræðiskröfur i þá veru að þær snúist lika um rétt til brauðs og vinnu, til mennt- unarogalhliða þroska. Við sjáum áhrif hennar i allri þeirri félags- legu þjónustu sem virkar til auk- ins jafnréttis þegnanna og i gjör- breyttri stöðu verkafólks i all- stórum hluta heimsins, ekki sist hið næsta okkur sjálfum. Hin só- sialiska hreyfing hefur einnig verið hugmyndabanki hverrar nýrrar hreyfingar sem siðustu áratugir þekkja — jafn uppreisn- ar æskunnar gegn forræðiskerf- um sem kvennahreyfingar og umhverfishreyfingar. En hún hefur lika lent i ýmsum ógöngum. Kratakreppa Ýmislegt af þvi jákvæðasta i sósialiskum áhrifum er tengt starfi verkalýðsflokka i Evrópu. Ef við tökum dæmi af hinum öfl- ugu jafnaðarmannaflokkum þessara landa, þá hafa ávinning- ar þeirra orðið margir og merkir. En þeir flokkar hafa eins og tæmt möguleika sina, þeir hafa rekið sig á þann vegg, aö þeir komast ekki mikið lengra i félagslegri þjónustu og viðleitni til tekju- dreifingar. Þetta kemur skýrar fram nú á krepputimum en tim- um verulegs hagvaxtar, þegar hin fræga stækkun kökunnar gaf öllum eitthvað fyrir þeirra snúð og faldi það að tekjustiginn breyttist ekki mikið. Þessi angi sósialiskrar hreyfingar stendur undir skothrið frá hægriöflum, sem kenna honum um dýrt og svifaseint rikisbákn og frá vinstrisinnum, sem gagnrýna kratismann fyrir að eiga engin úrræði þegar hagvexti sleppir. Og fyrir aö þora ekki að ráðast til nýrra verkefna eins og t.d. að sækja aö taugamiðstöðvum kapi- talismans eins og hinir róttækari meðal franskra sósialista orða það. En taugamiðstöðvar þessar eru vald auðhringanna, vald einkafjármagnsins yfir vinnu- stöðvum. Kommakreppa Hinni kommúniski armur hreyfingarinnar lifði lengi á trú á hina sovésku tilraun og ýmsir vinstrisósialistar fylgdu með — með nokkrum fyrirvörum og efa- semdum að visu. Sovéska bylt- ingin hafði reyndar mikil alþjóð- leg áhrif — bæði meö þvi að auka verkafólki sjálfstraust og hleypa skrekk i kapitalista. Sá skrekkur hefur meðal annars haft þau áhrif, að það var auðveldara en ella fyrir verkalýðshreyfingu á Vesturlöndum að knýja á um fé- lagslegar lausnir i húsnæðismál- um, uppeldi og menntun, svo nokkuð sé nefnt. Þvi á þessum sviðum og ýmsum öðrum skoraöi sovéska byltingin nokkur ágæt mörk, þrátt fyrir vanþróun hins rússneska samíelags. En það flokksræði sovéskt, sem byggir á þvi, það hefur eftir þvi sem lengra liður hrakið þjóðfélög af sovéskri gerð burt frá sósialisk- um markmiðum. Frumkvöðlar sósialismans, þeir Marx og Eng- els, vildu með sósialisma opna leiðir út úr nauðung og inn i frelsi, skapá það þjóðfelag, þar sem „frjáls þroski einstaklingsins er forsenda fyrir frjálsum þroska heildarinnar”. Sovéskt þjóöfélag er andstæða við þá kröfu sem kemur fram i fyrrgreindum orð- um — vegna forréttinda sem ráð- andi öfl njóta, vegna skerðinga á mannréttindum, vegna hernaðar- ihlutunar i Tékkóslóvakiu, Afgan- istan og viðar. Hér við bætist efnahagsleg kreppa skipulagsins — sú mið- árum i löndum Vestur-Evrópu umræðan um hina svokölluðu þriðju leið. Ög er þá átt við nýjan áfanga i þróun sósialiskra hreyfinga, sem vinnur bug á fyrri skiptingu i krata og komma. Fyrsta skrefið til að svo verði er blátt áfram að hafna bæði hinni sovésku fyrirmynd og svo hægri- kratisma. Hér er um að ræða einstakl- inga, hópa og hreyfingar sem eru um margt ólik: unglingahreyf- ingar sósialdemókrataflokka, vinstrisósialista á Norðurlöndum, sósialistaflokka Miðjarðarhafs- landa, Kommúnistaflokk ítaliu og fleiri má til nefna. Það er ljóst að mörgum spurningum eiga þessir aðilar ósvarað um forgangsmál, um verkalýðsmál og margt fleira — þótt þeir svo allir játi áhuga á þvi að tryggja sem best traustar ástir lýðræðis og sósialisma, maka sem þeir telja að megi ekki hvor án hins vera. En þegar horft er yfir umræðuna sýnist forvitn- um, að það hafi þegar mótast bryöja i sig miljómr starfsmögu- leika. — Margir Þriðjuleiðarmanna hafa virkan áhuga á tilraunum með nýja framleiðsluhætti, með sjálfsstjórn verkamanna. Bæði meðauknu valdi fulltrúa þeirra i „venjulegum” fyrirtækjum og þá ekki sist i opinbera geiranum — og svo i samvinnufélögum fram- leiðenda, sem til þessa hafa náð einna mestri útbreiðslu á ítaliu. — Valddreifing á sviði stjórn- sýslu er lika ofarlega á dagskrá, viðleitni til að draga úr ofstjórn og miðstýringu. Þeir hlutir eru t.d. mjög til umfjöllunar hjá franskri vinstristjórn og verka- lýðsflokkarnir ítölsku hafa náð á þessu sviði merkum árangri (i baráttu fyrir héraðsstjórnum og hverfastjórnum). — Þriðjuleiðarmenn leitast við aðefla alþjóðahyggjumeð nýjum hætti. Þetta getur komið fram i samvinnu sem gengur þvert á fyrri skiptingu sósialista i krata og komma eða þaöan af smærri hópa. Sem og i viðleitni til að skapa forsendur fyrir nýjum teg- undum samskipta við lönd þriðja heimsins. Margir hafa og áhuga á auknu sjálfstæði Evrópurikja gagnvart risaveldunum tveim. — Þriðja leiðin krefst þess einnig að krafan um manneskju- legt umhverfisé tekin alvarlega i allri umfjöllun um mannleg kjör. Þessari kröfu fylgir, bæði hörð gagnrýni á þá miklu sóun á auð- lindum sem fylgir kapitaliskum framleiðsluháttum og gagnrýnin afstaða til hagvaxtar sem alls- herjar mælikvarða á framfarir og sæmilegt mannlif. Nóg að gera Svo mætti áfram telja. 011 þau atriði sem nú voru nefnd benda til eins veigamikils einkennis Þriðju leiðar: Hún gerir ráð fyrir áfangaþróun.enekki hinum stóru byltingarstökkum, fyrir langri göngu en ekki áhlaupum á Vetrarhallir. Hún vill forðast þá sjálfsánægju sem segir „við höfum aldrei lifað betur” og upp- gjöfina sem telur að ekki verði lengur við neitt ráðið á erfiðum timum. Hún vill lika forðast freistingar sælurikishugsunar- háttarins, sem gerir ráð fyrir þvi að fullkomið þjóðfélag sé mögu- legt (það er það ekki) — og kyndir undir það að menn vilji stytta sér leið i sæluna með vafasömu bylt- ingaróþoli. Milli þessara tveggja skauta sem nú voru nefnd hafa sósialistar við meira en nóg af þörfum verkefnum og skemmti- legum að glima.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.