Þjóðviljinn - 19.06.1982, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 19.06.1982, Blaðsíða 30
30,SIÐA — ÞJÓÐVJLJIiyN Helgin 19.:20. júní 1982 Lausar stöður heilsugæslulækna Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður heilsugæslulækna sem hér segir: 1. Ólafsvik H2, önnur staða læknis frá og með 1. september 1982. 2. ísafjörður H2, ein staða læknis frá og með 1. janúar 1983. 3. Þingeyri Hl, staða læknis frá og með 1. september 1982. 4. Ólafsfjörður Hl, staða læknis frá og með 1. september 1982. 5. Vopnafjörður Hl, staða læknis frá og með 1. nóvember 1982. 6. Vik i Mýrdal Hl, staða læknis frá og með 1. nóvember 1982. 7. Hella Hl, staða læknis frá og með 1. desember 1982. 8. Vestmannaeyjar H2, ein staða læknis frá og með 1. október 1982. 9. Keflavik H2, staða læknis frá og með 1. september 1982. Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf sendist ráðuneytinu á þar til gerðum eyðublöðum sem fást i ráðuneytinu og hjá landlækni fyrir 15. júli n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 16. júni 1982. Frá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur Nokkrar stöður sérfræðinga við sálfræði- deildir skóla i Reykjavik eru lausar til umsókna. Til greina kemur að ráða fé- lagsráðgjafa, sálfræðinga og sérkennara. Ennfremur eru lausar stöður talkennara við grunnskóla Reykjavikur. Umsóknir skal senda til Fræðsluskrifstofu Reykja- vikur fyrir 1. ágúst n.k. Fræðslustjórinn i Reykjavik. Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum i lagningu 4. áfanga fjarvarmaveitu á Isafirði. Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi 1 ísafirði simi 94-3211 og kostar kr. 100 eintakið. Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 1. júli kl. 14.00 og þurfa tilboð að hafa borist fyrir þann tima. Orkubú Vestfjarða tæknideild. Blaðberabíó! i Regnboganum laugardag kl. 1.00: Hyllið hetjuna Mynd i litum Isl. texti Miðinn gildir fyrir tvo DiOOVIUINN s. 81333. Auglýsið í Þjóðviljanum ____________-___________' Nýtt í kjaradeilunni: Málbein VSÍ-manna liðkast Sáttafundur i kjaradeilunni hófst hjá rikissáttasemjara i gær kl. 16 og var honum ekki lokið þegar blaðið fór i prentun. Búist er við löngum og ströngum fund- um næstu daga og kvaðst Guð- laugur Þorvaldsson rikissátta-- semjari gera sér góðar vonir um að eitthvað þokaðist um helgina. í Karphúsinu i gær var á mönn- um að heyra að Vinnuveitenda- sambandið væri með tillögu i burðarliðnum til lausnar deil- unni. Var jafnvel búist við að hún yrði lögð fram i nótt ellegar i dag. Ekki vildu menn tjá sig um efni þessarar tillögu,en út af fyrir sig er hún vitni um að þeir VSl-menn virðast nú vera að vakna til vit- undar um nauðsyn þess að báðir tali þegar tveir deila. Einn nefndarmanna viðræðu- nefndar ASl kvaðst i gær vera þess fullviss að hættan af yfirvof- andi verkföllum hefði liðkað um málbein þeirra VSI manna. — v. Ólafur Davíðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar: Útlitið er dökkt! samdrætti í framleiðslu sjávarafurða Búast má við 12-20% Útlit er fyrir að samdráttur i þjóðarframleiðslu á þessu ári verði mun meiri en þjóðhagsspá frá þvi I mars gerði ráð fyrir sem var 1%. Astæðan er aflabrestur- inn, sem getur að mati Ólafs Dav- iðssonar, forstjóra Þjóðhags- stofnunar, leitt til 3 - 6% sam- dráttar i þjóðarframleiðslu og þjóðartekjum. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar skýrði frá þvi i gær aö aflabrest- urinn gæti leitt til þess að fram- leiðsla sjávarafurða drægist saman um 12 - 20% i ár miðað við árið 1981. Lægri talan er við það miðuð að heildarþorskafli á árinu verði 400 þúsund tonn (460 þúsund 1981) og að i haust verði veidd 200 þúsund tonn af loðnu. Afleiðingar þessa yrðu að heildarframleiðsla sjávarafurða drægist saman um 12%. Hærri talan, 20% samdráttur i framleiðslu sjávarafurða er mið- uð við að þorskaflinn i ár verði 350 þúsund tonn og að engin loðnu- veiði verði i haust. Sem fyrr segir dregst þjóðar- framleiðslan saman um 3% i fyrra tilvikinu en 6% i þvi siðara, en spá Þjóöhagsstofnunar frá þvi I mars gerði ráð fyrir 1% sam- drætti. Aö sögn Ólafs er hér þó ekki um eiginlega spá að ræða, aðeinsdæmi sem varpað geti ljósi á það hvert stefnir I efnahags- málum þjóðarinnar á næstu miss- erum ef aflinn heldur áfram að minnka. — AI Fyrsta ræða Reagans hjá Sameinuðu þjóðunum áróður Innantómur Ekki orði vikið að skuldbindingum Sovétmanna um að beita ekki kjarnorkuvopnum að fyrra bragði Ræða Ronalds Reagans Banda- rikjaforseta á afvopnunarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna i New York I fyrradag olli vonbrigðum og hefur verið harðlega gagnrýnd m.a. af New York Times. Forset- inn vék ekki einu orði að skuld- bindingu Sovétmanna um að verða ekki fyrstir til þess að beita kjarnorkuvopnum en endurtók aðeins helstu áróðursfrasa bandariskra stjórnvalda. A sama tima lýstu talsmenn bandariska utanrikisráðuneytisins yfir þvi að stefna NATO um að áskilja sér rétt til þess að beita atómvopnum að fyrra bragði stæði óhögguð. Bernard Rogers yíirhershöfðingi NATO sagði i viðtali við New York Times I gær að hann myndi mæla með þvi að NATO yrði fyrri til að beita kjarnorkuvopnum ef að hallaði á herafla þess i átökum með hefðbundin vopn. „Á dagskrá afvopnunarráð- stefnunnar hafði allur morguninn 17. júni verið ætlaður þessari einu ræðu forsetans. Þegar henni lauk eftir hálftima og án þess ab nokk- uð nýtt kæmi fram varð ákaflega sérkennileg og hálf vandræðaleg stemning i salnum og litlar undir- tektir. Mönnum var ljóst að eina erindi Reagans til að flytja sina fyrstu ræðu hjá Sameinuöu þjóð- NATO og Bandarikin munu á- fram áskilja sér rétt til þess að beita kjarnorkuvopnum að fyrra bragði, var boðskapur Reagans og yfirhershöfðingja NATO. unum var að endurtaka helstu á- róðursplötur gegn Sovétrikjun- um. Hann var með minniháttar hugmyndir um að stórveldin skiptust á nánari upplýsingum en að öðru leyti virtist ræðan fyrst og fremst beinast að kjósendum hans i Texas”, sagði Ólafur Ragnar Grimsson alþm. m.a. er Þjóðviljinn hafði samband við hann i New Yorl: i gær. Einn helsti stjórnmálaskýrandi New York Times, Tom Wicker, gagnrýndi Bandarikjastjórn harðlega i gær fyrir að vera ekki tilbúin að lýsa þvi yfir að hún ætli sér ekki að beita kjarnorkuvopn- um að fyrra bragði. Wicker vikur sérstaklega að ummælum Rogers yfirhershöfðingja og telur þær hreina fásinnu. Um sé að ræða að gefa pólitiska skuldbindingu varðandi stefnu af þessu tagi og það geti Bandarikin gert eins og Kina og Sovétríkin. Eftir árásir Israelsmanna á Libanon megi og glöggt sjá að bandarisk vopn af hefðbundnu tagi hafi tæknilega yfirburði yfir sovésk. Israeis- menn berjast með bandariskum vopnum en Sýrlendingar með sovéskum og um tækniyfirburði hinna fyrrnefndu þarf ekki að ef- ast. Röksemdin um að NATO sé nauðugur einn kostur að beita kjarnorkuvopnum gegn stórárás- um Sovétmanna á meginlandi Evrópu eða i Mið-Austurlöndum hljómar ekki sennilega i ljósi at- burðanna i Libanon, og er nú mjög á þetta atriði bent i Banda- rikjunum. —ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.