Þjóðviljinn - 19.06.1982, Blaðsíða 31
Helfein 19Í-2Ó.' jiíiíi 1982 ÞJóbVÍLjlNf>i — SIÐA 31
Greinilegur
árangur í orku-
sparnaðarmálum
Bensíneyðsla
á bfl hefur
mínnkað
25%
70% minni olía til
húshitunar
Sala á gasolíu til húshit-
unar hefur dregist saman
um tæp70% á síðustu 12 ár-
um og á sama tíma hefur
bensíneyðsla á hverja bif-
reið minnkað úr 1800 lítr-
um áári 1973 í 1400 lítra ár-
ið 1981, eða um fjórðung.
Þessar upplýsingar
koma fram í gögnum sem
orkusparnaðarnefnd iðn-
aðarráðuneytisins hefur
tekið saman um áhrif ým-
issa aðgerða sem gripið
hef ur verið til á síðustu ár-
um til að bregðast við
hækkandi olíuverði.
Sala á eldsneyti hefur
lítillega aukistá síðastliðn-
um áratug en hins vegar
hefur verðmæti þess í inn-
flutningi vaxið úr6.7% árið
1972 í 15,3% 1981.
í árslok 1980 brenndu 99
fiski- og f lutningaskip
svartolíu og hefur sala á
svartolíu liðlega tvöfaldast
á síðustu 10 árum.
Orkusparnaðarnefnd
telur að talsvert haf i áunn-
ist með þeim aðgerðum
sem gripið hefur verið til
vegna síhækkandi olíu-
verðs. Nefndin vill þó
leggja áherslu á að hraðað
verði framkvæmdum til
nýtingar innlendra orku-
gjafa til húshitunar með
hitaveitum, fjarvarma-
veitum og beinni rafhitun.
Einnig verði nýting inn-
lendra orkugjafa í at-
vinnugreinum aukin og
áhersla lögð á hagkvæmari
orkunýtingu. Þar má
nefna sem dæmi að allt að
helmings munur er í olíu-
notkun á hráefnistonn milli
bestu og verstu fiskimjöls-
verksmiðjanna. Einnig er
Ijóst að mikill munur er á
milli olíunotkunar ein-
stakra húsa og stafar sá
munur fyrst og fremst af
lélegri einangrun, van-
stilltum hitakerfum, olíu-
kynditækjum og ýmsu
fleira, eins og segir í frétt
frá orkusparnaðarnefnd.
— Ig.
Þetta er þaö eina sem stendur uppi af gömlu kirkjunni I Heydölum. t baksýn er nýja kirkjan sem tekin
var i notkun áriö 1975. A innfelldu myndinni er gamla kirkjan eins og hún leit út fyrir brunann. Mynd —
AÞJ.
Brann til kaldra kola
Gamla kirkjan I Heydölum i
Breiödal bránn til kaldra kola siö-
degis á 17. júni, og er taliö nokkuö
vist aö um ikveikju hafi veriö aö
ræöa.
Tilkynnt var um eld i kirkjunni,
um kl. 13.15, og var kirkjan alelda
þegar slökkviliöiö á Breiödalsvik
kom á staöinn og fékk ekkert viö
ráöiö.
Prestshjönin voru aö heiman
þegar eldurinn kom upp, en bróö-
ir prestsins, Helgi Hóseasson
smiöur úr Reykjavik, var einn
heimaviö. Þar sem ekkert raf-
Bróðir prestsins
handtekinn en
látinn laus aftur
magn er tengt kirkjunni, beindist
fljótt grunur aö þvi, aö Helgi ætti
hlut aö eldsvoöanum. Var hann
fluttur suöur til yfirheyrslu hjá
Rannsóknarlögreglu rikisins. Aö
sögn Arnars Guömundssonar
deildarstjóra hefur Helgi ekki
sagt eitt orö I yfirheyrslum, og
hefur honum veriö sleppt úr
haldi. „A þessu stigi gerum viö
ekki kröfu um gæsluvaröhald”,
sagöi Arnar.
Gamla kirkjan i Heydölum var
smiöuö 1856, en var farin aö láta
nokkuö á sjá. Hún haföi nýlega
veriö sett á fornleifaskrá og
ákveöiö aö gera hana upp og
flytja inn á Noröfjörö. Bæöi altari
og predikunarstóll voru jafngöm-
ul kirkjunni auk þess sem tvær
merkar klukkur frá 17. öld voru i
kirkjunni. A annarri þeirra er
áletrunin: „Hans Knutzen 1678
deo, sole deo gloria.”
AÞJ/ — lg.
Guðbjörg ÍS með
210 tonn af þorski
eftir 8 daga
Mikil
karfa-
veiði
á Fjalla-
svæðinu
„Þetta er ekkert umtalsvert,
þaö er búið að vera reitingur á
Halanum frá þvi um mánaða -
mót”, sagði Guðbjartur Asgeirs-
son skipstjóri á skuttogaranum
Guðbjörgu frá Isafirði, sem land-
aði 210 tonnum af þorski i heima-
höfn i vikunni eftir 8 sólahringa
úthald.
Aðrir togarar af Vestfjörðum
hafa landað siðustu daga um
80—100 tonnum hver.
Mokveiði hefur verið á karfa á
Fjallasvæðinu úti fyrir Vestfjörð-
um undanfarna viku. Engey og
Ingólfur Arnarson komu til
Reykjavikur á þriðjudag bæöi
með yfir 300 tonn af karfa og ufsa,
og sigldu áleiðis til Þýskalands
þar sem aflinn verður seldur i
Cuxhaven.
Jón Baldvinsson seldi i Hull á
dögunum 140 tonn, mestmegnis
þorsk og fékk ágætisverð fyrir
aflann.
Allir togarar Bæjarútgerðar
Reykjavikur eru komnir aftur á
miöin eftir að ljóst var að ekki
yrði af verkföllum i bráð.
-lg
0,3%
atvinnu-
leysi í maí
Skráöir atvinnuleysisdagar i
siöasta mánuöi voru 7.457 á land-
inu öllu sem svarar til þess 344
landsmenn hafi veriö án atvinnu
allan mánuöinn. Þaö er um 0.3%
af áætluöum mannafla á vinnu-
markaöi sem er sama hlutfall og
fyrir ári siöan.
Frá þvi i april haföi atvinnu-
leysisdögum fækkaö um 813, en
þá voru skráöir atvinnuleysis-
dagar 8.270. Um 59% af skráöu at-
vinnuleysi i maimánuöi féll til hjá
konum.
Mest aukning á atvinnuleysi I
mai miöaö viö siöasta ár var i
Noröurlandi vestra en þar fjölg-
aöi skráöum dögum um 1.639.
Hins vegar fækkaöi þeim i Norð-
urlandi eystra um fjórðung.
Ljóst er aö vegna óvissu um
gerö kjarasamninga hefur vinnu-
framboð verið nokkru minna á
þessu vori, og hefur það komiö
haröast niöur á skólafólki, eink-
um i Reykjavik.
-lg-
Fíkniefnasendingin
„Tiltekna fyrirtækið” var Eimskip
Einsog kunnugt er boðuðu toll-
stjóri, lögreglan i Reykjavik og
dómari i ávana og fikniefna-
málum til blaðamannafundar i
miðri þessari viku. Þar var frétt
Þjóðviljans um stærstu fikniefna-
sendingu sem borist hefur hingað
til lands staðfest. Hins vegar er
nokkrum spurningum um þetta
mál enn ósvarað.
Sendingin var einsog kunnugt
er stiluð á „tiltekið fyrirtæki”
sem af einhverjum ástæðum var
ekki nafngreint þó hart væri
knúið á um svar hjá blaðamanna-
fundum. Þó engin ástæða sé i
sjálfu sér til að gruna fyrirtækið,
sem sendingin var stíluð á, þá er
það eftirtektarvert að nafnsins
skuli ekki getið þegar embættin
opinbera málið. Þessu tiltekna
fyrirtæki er að sjálfsögðu enginn
greiði gerður, m.a. vegna þess að
nafn þess sem Þjóðviljinn fékk
staðfest i gær fer nú sem logi um
akur: Eimskip.
A blaðamannafundinum var
birt fréttatilkynning þar sem
segir að lögreglumenn frá um-
ferðarlögreglunni hafi verið
sendir á vettvang i Keflavik
þegar sendingin barst til landsins
til að fylgjast með flutningi hans
til Reykjavikur. Astæða þess að
lögregluþjónarnir voru einmitt
frá þeirri deild lögreglunnar var
tilgreind sú, að aðrir væru of
þekktir. „Var þvi talið óheppilegt
að láta starfsmenn rannsóknar-
deildar sem vinna að fikniefna-
málum, vera nærri þessum þætti
aðgerðanna,” segir i fréttatil-
kynningunni.
Eftir þeim heimildum sem
Þjóðviljinn hefur aflað sér, þá
mun það hafa verið sjálfur Bjarki
Eliasson yfirlögregluþjónn sem
fór upp á völl og geta menn svo
spurt, hvort ekki hefði mátt finna
minna þekktan mann til þess að
nálgast þessi efni.
Var farið með efnin beint i
vöruskemmuna i Bildshöfða eftir
að skipt hafði verið á efnunum og
voru kassarnir tómir eins og
haldið var fram á blaðamanna-
fundinum'?
Eftir þvi sem heimildir herma
var kössum þessum ekið niður á
lögreglustöð. Þar var hóað i
mann sem kom akandi inn i port
lögreglunnar með hey i kerru.
Skipt var á heyi og fikniefnum og
siðan var kössunum komið fyrir i
vörugeymslu Flugleiða á Bilds-
höfða. Þess skal getið að maður-
inn meö heyið mun ekki hafa
vitað um tilgang þessa heyflutn-
ings og þvi hafi aðflutningurinn
ekki farið sérlega leynt,- hól/óg