Þjóðviljinn - 24.07.1982, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 24.07.1982, Qupperneq 15
Helgin 24.-25. júli 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 Verið er að útbúa geysimikla bað- strönd með tilheyrandi lónum. Kvenfólk og karlmenn verða að- skilin. öll hús i hinni nýju borg eru gerð úr húseiningum og eru i þeim öll nýjustu þægindi. Þeim fórst þetta vel úr hendi og litlir árekstrar urðu með þeim og hinum innfæddu verkamönnum. Það jók mjög álit þeirra i Austur- löndum. Nýlega tók Bechtel-fyrirtækið að sér að teikna og leggja nýjan alþjóðlegan flugvöll við Riyadh. Talið er að hann með öllum mannvirkjum muni kosta um 3.2 miljarða dollara og sú kostnaðar- áætlun muni standast i einu og öllu. Annað bandariskt fyrirtæki tók að sér svipað fyrirtæki i Jidda en þar fóru kostnaðaráætlanir langt fram úr áætlun. Jubail-áœtlunin Upphafið að Jubail-áætluninni má rekja til ársins 1973. Þá áttu þeir Stephen Bechtel eldri og Faisal konungur, sonur Ibn Saud, fund með sér i Intercontinental hótelinu i Genf (það var reyndar byggt af Bechtel). Konungurinn bar þá upp það vandamál að jarð- gas að verðmæti 1 miljarður doll- ara brynni árlega i Saudi-Arabiu af þvi að ekki væri hægt að nýta það á nógu ódýran hátt. Bechtel stakk þá upp á þvi að reistar yrðu nokkrar efnaverk- smiðjur nálægt oliusvæðunum til þess að nýta þetta gas. Þarna yrðu ekki aðeins framleidd hrá- efni fyrir oliuefnaiðnaðinn heldur einnig margs konar vörur svo sem plast, stál, ál og áburður. Faisal konungur féllst á þetta og Bechtel-fyrirtækið útfærði siðan hugmyndina og árið 1976 var á- kveðið að fyrirtækið tæki að sér þetta verkefni. Jafnvel fyrir félag á borð við Bechtel var ekki ráðist i neitt smáræði. Þar sem stæði hinnar nýju borgar var ákveðið var ekk- ert nema sandur og einnig litið fiskiþorp við persneska flóann. Flugvöllur með yfir 4 km löngum brautum var gerður og þar gátu stærstu flugvélar lent. Japanskt fyrirtæki sá um aö reisa eiming- arstöð viö Persneska flóann og árið 1980 kom 5 miljón gallon af vatni á dag úr stöðinni. Núna er allt þetta eyðimerkur- svæði undirlagt jarðýtum, krön- um og trukkum. Gifurlegu magni af grjóti og jarðvegi er ekið i hafnarbakka sem er hátt á hálfan km á breidd og verður um 10 km á lengd þegar hann verður fullgerð- ur árið 1985. Þar munu geta lagst 18 stór flutningaskip i röð og á enda hans verður geysistór hrá- oliuafgreiðsla fyrir skip allt að 500 þúsund tonn að stærð. Húseiningaborg Vegna þess hve Jubaii er af- skekkt er öll borgin reist úr hús- einingum, bæði verksmiðjur og önnur hús. Þannig er t.d. A1 Hu- waylat spitalinn, sem hefur 205 rúm fluttur i fullkomnum eining- um frá San Antonio. M.a.s. bæna- rúmið með sinum moskutjöldum er búið til i Alabama og flutt sjó- leiðis. tbúðarhúsin sem reist eru fyrir þá, sem koma til með að búa i borginni, eru með öllum þægind- um. Algeng eru þriggja herbergja hús og stillinn er einhvers konar sambland arabisks og s-kali- forniustils. t húsunum er loftræst- ingy parketgólf og rafmagnstæki frá General Electric og Kitchen- aid. Verð þessara húsa er allt að 300 þúsund dollurum en einnig eru byggðar mun ódýrari ibúðir, t.d. i blokkum. Þá er verið að útbúa fullkomna baðströnd þar sem karlar og kon- ur verða aðskilin og einnig 'oá'ta- höfn. Draugaborg? Bygging Jubail hefur gengið eftir áætlun en talið er að erfið- leikar geti oröið á þvi aö láta borgina „fúnkera” þegar þar að kemur. Surnir sérfræðingar telja að þar verði frramleiddar vörur sem heimurinn hafi nú þegar nóg af. Þá benda sumir á að hröð iðn- væðing af þessu tagi hafi einmitt velt keisaranum af tran og sama geti hent i hinu ihaldssama þjóð- félagi i Saudi-Arabiu. Þó er margt ólikt með þessum þjóð- um. Saudi-arabar eru ein menn- ingar- og trúarheild og konungs- fjölskyldan I mjög nánum tengslum við trúarleiðtoga þjóð- arinnar. Þá er ekki til i landinu uppreisnargjörn öreigastétt i borgum eins og i tran. Verðbólg- an hefur ekki farið yfir 8% og ekki er hægt að tala um atvinnuleysi i landinu. Hitt er annað mál að ekki er vist að hinir ihaldssömu saudi-ar- abar vilji flytja til Jubail fyrst um sinn. Menntamenn landsins kjósa örugglega frekar að búa i auðug- um rótgrónum borgum eins og JiddaRiyadh og Dharan þar sem nóg er af peningum og störfum við þerra hæfi. Og að mennta hina fátækari ibúa landsins til iðn- væddra starfa i Jubail tekur ör- uugglega mörg ár. t þjóðfélagi sem hefur tekið stökkbreytingu frá kamedýrum til kádiljáka á nokkrum áratugum er vel hugs- anlegt að Jubail henti alls ekki i- búunum og veröi þegar allt kem- ur til alls draugaborg. Og yfirvöld i Saudi-Arabiu hafa ekki i hug að þvinga neinn til aö flytja þangað. Ef Jubailáætlunin mistekst að þessu leyti er hætt við að orðstir Bechtel-fyrirtækisins verði fyrir miklu áfalli. Þaö er ekki aðeins framkvæmdaaðili, heldur átti hugmyndina að þessari borg. ( Byggt á Time — GFr) Árbók Ferðafélags íslands 1982 Ofrausn? Helgi Hjörvar skrifaði á sinum tima lýsingu á Snæfellsnesi fyrir Ferðafélag lslands, er birtist i Árbók þess 1932. Fleiri lögðu þar hönd að verki, s.s. Olafur Lárus- son, Jón Eyþórsson og Guðmundur G. Bárðarson. Þarna voru engir aukvisar á ferð, enda bjuggu ferðamenn lengi að leið- sögn þeirra, fróöleik og ritleikni. Svo liðu ár, eða til ársins 1970. Þá birti Árbókin lýsingu á a.m.k. þremur austustu hreppum Snæfellsness og Hnappadals- sýslu, eftir Guðlaug Jónsson lög- regluþjón, sannfróðan mann og þaulkunnugan á þeim slóðum. Og nú, að 12 árum liðnum, flytur Ar- bókin lýsingu á þessu margróm- aða tröllvaxna nesi, eftir Einar Hauk Kristjánsson skrifstofú- stjóra, lipran rithöfund Snæfell- ing að ætt. Hann hefur tekið viö þar sem Guðlaugur endaði sitt verk, en ekki komist yfir meira en þrjá ystu hreppa nessins, endar sina lexiu i Olafsvikurenni. Auk þess hefur hann kilfrað á Snæfellsnesjökul, sem ég veit ekki hver af þessum hreppum eignar sér. Er það að visu ærið verk, þvi löngum hefur jökullinn þótt erfiður þeim sem á hann sækja. Enn er þvi ærið efni eftir fyrir þá sem að þessari umferð um nesið standa, þar sem eru: Ólafsvikurhreppur, Fróðár- hreppur, Eyrarsveit, Stykkis- hólmur og Skógarströnd. Þær sveitir eru sist ómerkari en þær sem Einar Haukur hefur afgreitt i þessari bók, frá hvaða sjónar- horni sem á þær er litið. Þess má og vænta, að þeim verði gerð skil i næstu Arbókum, svo þráöurinn slitni ekki, og nesinu hafi þá verið gerð þau skil sem dugi næstu ára- tugina. — Einar Haukur er ekki einn um hituna i þessari Arbók. Haukur jarðfræðingur Jóhannesson skrifar skilmerkilega grein um jaröfræði nessins. Er hún góðra gjalda verö. Hefði bókin gjarnan mátt hefjast á henni. Ekkert verður sagt eöa gert án þess að hafa jörð undir fótum, hvernig svo sem hún hefur orðiö til. Snæfellsnesið er alls góös mak- legt frá Ferðafélagi tslands. Öviða mun þvi gefast betra tæki- færi á að sýna feröamönnum fjöl- breyttara landslag og hrikalegri fegurð til lands og sjávar. En er þarna ekki um ofrausn að ræða, þegar haft er i huga hve óumræðilega mikið verkefni félagiö getur átt fyrir höndum, að kynna land og lýð, innlendum og erlendum feröamönnum? Varla þarf að taka fram, að ytri frágangur Arbókarinnar er hinn prýðilegasti: málfariö gott og myndirnar, sem eru margar hinar fegurstu sem ég hef séð af þessum slóðum. Bergsveinn Skúlason. Aldarafmæli Jónasar frá Hriflu: Útgáfa bréfabókar Jónas Jónsson frá llriflu var sá stjórnmálamaður fslenskur, sem mestan svip setti á pólitíska samtið sina á meðan hann tók beinan þátt i baráttunni. Hug- kvæmni hans, áræði og vlgfimi I ræðu jafnt sem riti var mcð ólík- indum. Hann sat i ráöherrastóli aðeins örfá ár. En á þvi árabili varð bylting á lslandi. Nú liður óðum að aldarafmæli Jónasar, en hann var fæddur 1. mai' 1885. t tilefni af afmælinu hefursú hugmynd skotiðupp kolli að gefa út úrval af sendibréfum hans. Jónas skrifaði óhemju ósköp af sendibréfum, enda stóð hann, svo áratugum skipti, i bréfasambandi við fjölda manns viðsvegar um landið. Enginn vafi er á þvi að i þessum bréfum, mörgum hverjum a.m.k., eru ýmsar merkar heimildir fólgnar um Jónassjálfanog samtið hans. Nú er timi sendibréfanna liðinn og þar meö vissrar „bókmennta- greinar”. Margir, kannski flestir, hirða li'tt um gömul bréf, og með glötun margra þeirra hafa mikil fémætifariðforgörðum. Ætla má, að komið sé fram á eUeftu stund með að safna saman bréfum Jón- asar. Þvi ernú til þess mælst við alla þá, sem eiga i fórum sinum bréf frá honum, að tilkynna það einhverjum þessara manna: Aðalgeiri Kristjánssyni, Þjóð- skjalasafninu við Hverfisgötu, Jónasi Kristjánssvni, Arnastofn- un, eða Sigurði Steinþórssyni, KaplaskjóLsvegi 53, 107 Reykja- vík. —mhg Jnnas frá Hriflu. 137 hafa slasast í umferðaslysum í Reykjavík á fyrri helmingi árs Á fyrri helmingi þessa árs hafa slasast i umferðarslysum i Reykjavik 137 manns, þar af 67 litið, en 70 mikið, en þar af eru tvö dauðaslys, að þvi er kom fram i upplýsingum, sem Þjóðviljinn aflaði sér hjá Óskari ólafssyni, yfirlögregluþjóni i Reykjavik. Slysatilvikin á sama tima voru 110, en á sama tima i fyrra slös- uðust nokkru færri, eða 114 i 86 slysatilvikum, en þá voru dauða- slys jafnmörg. A þessu ári skiptist þessi fjöldi þannig, að gangandi vegfarendur eru 48, 16 börn, 16 konur og 16 karlar. Vélhjólamenn hafa slas- ast alls 10, þar af þrir litið en 7 mikið, hjólreiðamenn hafa slas- ast sex, fjórir litið slasaðir, en tveir mikið. Það hefur slasast 41 ökumaður i umferðaróhöppum, þar af 26 litið en 15 mikið, en farþegar hafa alls slasast 32, 21 litið en 11 mikið. Slysin gerast helst á anna- timum, að þvi er fram kom i máli Óskars Ólafssonar, en þaö er á morgnana, og svo á bilinu frá 16—18 siðdegis. Slysin dreifast mjög jafnt yfir allt timabilið, og kvað Óskar næstum þvi hægt að gera áætlun fram i timann yfir slysin, þvi miður. Hann sagði þó, að jafnan bæri mikið á þvi, að fólk færi varlegar i umferðinni, ef nýlega hefði verið greint frá alvarlegum slysum i fréttum, en siðan vildi sækja i farið 4—5 dögum seinna. ,,Ef fólk fer að hugsa um þessi mál i raun og veru, og er þröngvað til þess af fréttaflutningi af slysum, þá hefur það áhrif. Það sést á lækk- aðri árekstrartiðni og i radar- mælingum okkar”, sagöi Óskar Ólafsson að lokum. — jsj

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.