Þjóðviljinn - 31.07.1982, Síða 3
Helgin 31. júli—I. ágúst 1982. ÞÍÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Reisa torfbæ
í Árbæjarsafni
Áhugafólki kennd torfhleðsla
Borgarbúum sem ekki leggja
land undir fót um verslunar-
mannahelgina stendur til boða i
dag laugardag, og næstu daga að
rölta upp i Arbæjarsafn og fræð-
ast um allt sem snýr að torfi, torf-
skurði og hleðslu, jafnt úr grjóti
sem torfi.
Uppi i Arbæ ætla 5—6 gallvaskir
menn að hefjast handa við að
reisa eftirlikingu af torfbæ sem
stóð i Eiðaþinghá um og uppúr
aldamótum og hét Klappargerði.
Forgangsmaður þessara fram-
kvæmda er Sveinn Einarsson frá
Hrjót.sá landskunni hleðslukappi
og torfið i þessar framkvæmdir
fæst i mýrunum i kringum Arbæj-
arsafnið.
Framkvæmdir hefjast kl. 10 á
laugardag og til að standa straum
af ýmsum kostnaði verður fólki
boðiö uppá kennslu i torfhleðslu
og er allt áhugafólk hvatt til að
mæta á staðinn og leggja gjörva
höndáplóg. —áþj
Erlendar kartöflur niðurgreiddar
Hef ekki tölur
um kostnaðinn
segir landbúnaðarráðherra
„Innfluttu kartöflurnar hafa
ekki verið niðurgreiddar á þessu
ári fyrren nú”, sagði Pálmi Jóns-
son, landbúnaðarráðherra, þegar
Þjóðviljinn hafði samband við
hann vegna nýtilkominna niður-
greiðslna á kartöflum, en hiö nýja
verð sem cr 5.98 krónum lægra á
kiló cn áður var, tók gildi frá deg-
inum i gær að teija.
Innfluttar kartöflur hafa, að þvi
er kom fram i máli ráðherrans,
verið niðurgreiddar áður m.a. á
siðasta ári.
„Það var ákveðið að niöur-
greiðslurnar yrðu þær sömu og
var á innlendum kartöflum og
eins, að kaupmönnum yrði gefinn
kostur á að láta telja hjá sér, ef
ske kynni, að einhverjir þeirra
sætu uppi með einhvern lager af
kartöflum. Það hefði þýtt, að þeir
heföu orðið af þessum verðmis-
mun, ef þessi háttur hefði ekki
verið hafður á”, sagði Pálmi, og
gat þess, að annað hefði varla
verið fært, vegna þess verðmun-
ar, sem niðurgreiðslurnar fela i
sér.
— Er þetta skyndiákvörðun,
tekin I þvi skyni að lagfæra visi-
tölureikninginn um næstu mánað-
armót?
„Það er nú ekki hægt að segja
það, þetta var t.d. gert á siðasta
ári, að greiða niður innfluttar
kartöflur. En auðvitað er þetta
gert meðfram til þess að hafa
áhrif á visitölumálin. En það er
samt ekkert nýtt við það.”
— Ilvað reiknar þú með að
þetta muni kosta rikissjóð?
„Ég hef nú engar tölur um það.
En það eru ekki stórar fjárhæöir,
vegna þess að i næsta mánuði
koma væntanlega nýjar innlend-
ar kartöflur á markaðinn. Þær
verða á sumarverði, sem hefur
aldrei verið tekið með i visitölu-
reikninginn.”
— Nú hefur verið haldið fram,
að þessar niðurgreiðslur kosti
rikissjóð rúmar þrjár miijónir
króna.
„Það er ekkert ótrúlegt, að þær
verði á þvi bilinu, svona á milli
3—5 miljóna króna”, sagði Pálmi
Jónsson, landbúnaðarráðherra að
lokum.
—jsj.
Framkvæmdastjóri framleiösluráös:
Erlendar kartöflur
eru niðurgreiddar
vegna vísitölunnar
„Þessar niðurgreiðslur á
erlendum kartöflum koma fyrst
og fremst til vegna visitöluút-
reikningsins nú um mánaðarmót-
in”, sagði Gunnar Guðbjartsson,
Þeim var
ekki boðið
Heldur varö undirrituöum
blaðamanni á i messunni, þegar
hann skrifaði frétt um 1000 ára
landnámsafmæli Grænlendinga,
sem birtistá baksiðu Þjóðviljans
i gær.
Þar er greint frá þvi, að Islend-
ingunum Asa i Bæ og Einari
Braga, rithöfundum. hafi verið
sérstaklega boðið að taka þátt i
þessum hátiðarhöldum, og hafði
blaðamaður það frá heimild, sem
hann taldi trausta og sá þvi ekki
ástæðu til að leita staðfestingar á
þeirri „frétt”.
Það hefði hann þó betur gert,
enda reyndist þegar til kom eng-
inn fótur fyrir þessu. Þvi miður.
Biður hér með undirritaður
blaðamaður alla hlutaðeigandi
velvirðingar á þessari hand-
vömm sinni. —jsj.
framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, I samtali
við Þjóðviljann vegna fregna um,
að rikisstjórnin hefði ákveðið nið-
urgreiðslur á erlendum kartöfl-
um, er nema kr. 5.98 á hvert kfló.
„Þessi tilkynning var eiginlega
send út eftir að allir voru búnir að
vinna I fyrrakvöld”, sagði Gunn-
ar efnnfremur, „þetta verður
gjarnan svona, þegar líður að þvi
að þarf að fara að reikna út vlsi-
töluna, og menn átta sig á þvi i
stjórnarráðinu, að það er hægt að
hafa áhrif á visitöluna með
breyttum niðurgreiðslum”.
Að sögn Gunnars er hér i raun
um að ræða þær niðurgreiöslur
sem voru i gildi, þegar islenskar
kartöflur hefðu verið á markaön-
um, en þær féllu niður þegar þær
voru búnar og fariö var að flytja
inn kartöflur erlendis frá.
Aðspurður kvaðst Gunnar ekki
treysta sér til að meta á þessu
stigi málsins, hve miklar heildar-
niðurgreiðslurnar yrðu. „Það er
háð þvi, hve salan verður mikil á
timabilinu, og eins þvi, hvenær is-
lenskar kartöflur koma aftur á
markað, en þá verður ákvörðun
um endurgreiðslur endurskoð-
uð”, sagði Gunnar Guðbjartsson
aðlokum. —jsj.
þúfinnurheiminní þúfinnurheiminn í þúfinnurheiminní
mmmm hourndi^ hourndi^
Málverkaheimurinn. Ríkislistasafniö (Rembrandt, Vermeer og ótal fleiri snillingar)
og van Gogh safnið eru aðeins tvö af 50 málverkasöfnum í Amsterdam.
Tónlistarheimurinn. Hollenska óperan, fræg kirkjuorgel, klassískir tónleikar, popptón-
leikar, útitónleikar og ekki má gleyma Concertgebouw tónlistarhöllinni.
Sýningaheimurinn. (Amsterdam eru 65 sýningasalir, þar sem sjá má allt það nýjasta (
myndlist. Kvikmyndahúsin eru 40 talsins, listasöfnin nær óteljandi og ekki má láta
ballettinn fram hjá sér fara.
Demantaheimurinn. Hollenskir demantaslíparar eru taldir í fremstu röð
í þessari listgrein.
Amsterdam - alla miðvikudaga og sunnudaga
KANADA" Radial dekk
Eigum á lager hin margumtöluðu og
vinsælu kanadisku radial dekk.
Margra ára reynsla, frábært slitþol,
algeng ending 60.000 km.
Mýkt í sérflokki. Stór hluti atvinnubíl-
stjóra ekur á Kanadadekkjum
Lágt verð og miklir kostir Kanadadekkjanna
skapa hina miklu eftirspurn. Trúlega mest seldu
radialdekk á íslandi í dag.
Útsölustaðir: Gúmmívinnustofan h.f. Skipholti 35 Reykjavík
Hjólbarðastöðin Skeifunni 5 Reykjavik.
Hjólbarðahúsið Skeifunni 11 Reykjavík.
Hjólbarðaþjónustan Fellsmúla 24 Reykjavík (Hreyfilshúsinu)
Sólning h.f. Smiðjuvegi 32-34 Kópavogi.
Hjólbarðaþjónustan Hvannavöllum 14 Akureyri.
Smurstöð Olis & Shell Fjölnisgötu 4a Akureyri.
G UMM/V/NNUS TOFAN
Skipholti 36 Sinii 31055