Þjóðviljinn - 31.07.1982, Page 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. jiill—1. ágúst 1982.
Enska knattspyrnustórveldið Man-
chester United er væntanlegt hingað
til lands eftir helgina og leikur tvo
leiki hér i vikunni. Gegn Val á Laug-
ardalsvelli á miðvikudagskvöldið og
gegn KA á Akureyri kvöldið eftir. Un-
ited á marga dygga áhangendur hér á
landi og fyrir þá og aðra sem áhuga
hafa ætlum við að kynna liðið. Stutt
ágrip af sögu þess og smápistlar um
einstaka leikmenn verða að duga, en
vonandi verða einhverjir nær um
þessa verðandi gesti okkar.
MANCHESTER UNITED 1878 — 1982:
Félag sem ekki er ánægt
Manchester United er
að koma til islands!
,,The Red Devils”, eða
rauðu djöflarnir eins og
liðiö er oft kallað er tvi-
mælalaust eitt þekkt-
asta knattspyrnulið
heims og fá geta státað
af jafnmiklum vinsæld-
um innan sins heima-
lands sem utan. í ára-
tugi hefur viss ævintýra-
Ijómi leikið um nafn
Manchester United og
með þvi hafa gert garð-
inn frægan margar af
stórstjörnum breskrar
knattspyrnu.
Manchester United var stofnaö
áriö 1878, þá undir nafninu New-
ton Heath. Félagið tók upp at-
vinnumennsku áriö 1885 og þegar
enska deildakeppnin var stofnuö
árið 1888 sótti það um inngöngu.
bað gekk ekki, Newton Heath
fékk aðeins eitt atkvæði i kosn-
ingu um hvaða 12 lið fengju sæti i
deildinni. Liðið tók siðan þátt i
,,Football Alliance”, deild fyrir
neðan sjálfa „Football League”,
eða deildakeppnina sem viö
þekkjum i dag. Loks árið 1892
fékk Newton Heath inngöngu i 1.
deild og slapp naumlega, þvi 2.
deild var stofnuð sama ár.
Newton Heathhéltsér uppi með
aukaleik eftir að hafa hafnað i
neðsta sæti 1. deildar fyrsta árið
en tapaði samsvarandi leik næsta
ár og féll þá i 2. deild. Dvölin þar
var löng og árið 1902 rambaði fé-
lagið á barmi gjaldþrots. Þá
keypti auðmaðurinn John Henry
Davis sig inn i stjórn, kom fótun-
að
vera
það
næst
besta
um undir félagið og breytti nafni
þess i Manchester United.
Nú fór hlutirnir aö gerast. Arið
1906 vann United sig upp i 1. deild
og varð enskur meistari árið eft-
ir. Siðan hefur tæpast verið litið
til baka og United hefur siðan
verið lengst af i hópi bestu knatt-
spyrnuliða Englands. Fjórum
sinnum hefur það þó fallið i 2.
deild, siðast 1974, en dvölin þar
hefur aldrei verið löng. Enski
meistaratitillinn hefur unnist 7
sinnum, siðast árið 1967, og bikar-
Ray Wilkins — lykilmaður i enskalandsliðinu.
Ron Atkinson —
framkvæindastjóri
United.
hinn litriki
Manchester
Arnold Muhren — Hollendingur-
innsem kom frá Ipswich i sumar.
Steve Coppell.
inn fjórum sinnum, siðast 1977.
Evrópumeistari varð United 1968
eftir frækinn sigur á portúgalska
stórliðinu Benfica i úrslitaleik,
4:1.
En áhangendur Manchester
United hafa ekki fengið mikið til
að gleðjast yfir á þeirra mæli-
kvarðasiðsutu 14 árin. Siðan Evr-
ópubikarinn vannst hefur félagið
aðeins borið sigur úr býtum i
einni stórkeppni, enska bikarinn
1977 eins og áður sagði. United
vann að visu 2. deildina 1975, árið
eftir fallið úr 1. deild, en það þótti
svo sjálfsagt að allt annað hefði
veriö talið til stórslysa.
Talandi um stórslys, þá hefur
Manchester United lent i mesta
harmleik sem hent hefur breskt
knattspyrnulið. Þann 6. febrúar
1958 var liðið á heimleið frá Bel-
grad i Júgóslaviu þar sem liðið
hafði tryggt sér sæti i undanúr-
slitum Evrópukeppni meistara-
liða með 3:3 jafntefli gegn hinu
fræga liði Rauðu Stjörnunni.
Flugvélin sem flutti United milli-
lenti i Manchen i Vestur-Þýska-
landi en flugtakið þar mistókst á
hroðalegan hátt með þeim afleið-
ingum að átta leikmenn United
fórust og einir 15 farþegar aðrir.
Margir frægir knattspyrnu-
snillingar hafa klæðst hinum
rauða og hvita búningi Manchest-
er United. A siðari árum má
nefna George Best, Bobby Charl-
ton, Denis Law, Pat Crerand og
Billy Foulkes. Þekktar stjörnur á
fyrri árum voru Wilf McGuinnes,
Danny Blanchflower, Jack Row-
ley, John Carey og siðast en ekki
sist.DuncanEdwards.Hann fórst
i Miinchen-slysinu aðeins 21 árs
gamall og er talið eitt mesta
knattspyrnumannsefni sem fram
hefur komið.
—vs
Landsliðsmennirnir eru
sumir meðal varamanna!
Eftir endurkomu Manchester
United i 1. deild árið 1975 hefur
liðið smám saman verið aö
styrkjast og nú er mál manna að
það sé reiðubúið af alvöru i slag-
inn um sjálfan Englandsmeist-
aratitilinn. Að visu náðist annað
sætið 1980, aðeins tveimur stigum
á eftir meisturum Liverpooi og
þriðja sætið 1976 og á siðasta
keppnistimabili,en þá þótti vanta
þennan fræga herslumun sem liö
þarf að hafa til að bera sigur úr
j býtum i jafn erfiöri keppni og
| enska 1. deildin er.
j Hinir fjölmörgu islensku
áhugamenn um enska knatt-
I spyrnu þekkja vafalitið flesta nú-
verandi leikmenn Manchester
United með nafni og þeir áhuga-
sömustu hafa á hreinu hæð og
þyngd viökomandi, vita hvernig
bil hann á og hver sé uppáhalds
leikkonan hans. En samt er ekki
úr vegi aö renna aöeins yfir liðiö
og gefa örlitlar upplýsingar um
viðkomandi leikmenn.
Gary Baily —ungur markvörð-
ur sem af mörgum er talinn verð-
andi landsliðsmarkmaöur Eng-
lands. Var i 40 manna landsliðs-
hópnum fyrir HM i sumar.
John Gidman — bakvörður.
Keyptur frá Everton 1981 og lék
einn landsleik fyrir England 1977.
Landsliðsframi hans varö
skemmri en spáð haföi verið.
Arthur Albiston — bakvöröur,
sem hefur verið einn traustasti
leikmaöur liðsins undanfarin ár.
Enn ungur aö árum og gæti átt
framtið fyrir sér hjá skoska
landsliöinu.
Martin Buchan — miðvörður
sem hefur leikiö meö United i
rúm 10 ár en var þá keyptur frá
Aberdeen. Margreyndur skoskur
landsliðamaður en er orðinn 33ja
ára gamall.
Gordon McQueen — ljóshærði
risinn i miðvarðarstööunni sem
skorar mikið með skalla eftir
hornspyrnur. Skoskur landsliðs-
maöur sem kom frá Leeds 1978.
Kevin Moran —litill miðvalla-
spilari frá trlandi sem einnig skil-
ar miðvaröarstöðunni með prýði.
Skoraði þýöingarmikil mörk á
siöasta keppnistimabili fyrir
United og Irland.
Nicky Jovanovic — miðvörður
sem lék með Júgóslaviu i HM i
sumar. Kom frá Rauðu Stjörn-
unni i sinu heimalandi 1980.
Bryan Robson — stjarna Eng-
lands i HM á Spáni og hefur skor-
að mikiö fyrir landsliðið þó hann
leiki aftarlega á miðjunni. Aðeins
25 ára og á mikla framtiö fyrir
sér. Kom frá WBA sl. vetur.
Remi Moses —varnartengilið-
ur, ungur að árum, sem kom frá
WBA sl. vetur eftir aö hafa slegiö
þar i gegn árið áður.
Ray Wilkins — teneiliður sem
er fastamaður i enska landslið-
inu og meö yfir 50 landsleiki aö
baki og þó ekki nema 26 ára. Kom
frá Chelsea 1979.
Arnold Muhren —tengiliður og
hollenskur landsliðsmaður. Var
keyptur frá Ipswich nú i sumar og
var dýrlingur þar á bæ. Með hann
á miðjunni gæti United hafa fund-
ið siðasta hlekkinn i meistaralið-
iö.
Mike Duxbury —ungur miðju-
maöur sem hefur leikið alls staö-
ar á vellinum i forföllum
stjarnanna, nema i markinu.
Tom Sloan —miöjumaöur sem
er fastamaður i norður-irska
landsliöshópnum þó hann leiki yf-
irleitt með varaliðinu hjá United.
Ashley Grimes — rauöhæröur
Iri sem missti að mestu af siöasta
keppnistimabili vegna veikinda.
Sókndjarfur miðjumaður sem
heldur uppi fjörinu i búningsklef-
anum á keppnisferðum.
Steve Coppeil — fastamaöur i
enska landsliöinu og leikur sem
miöjumaður eöa útherji. Oft
gagnrýndur en er samt mjög
traustur leikmaöur. Kom frá
Tranmere 1975.
Norman Whiteside —17 ára og
talinn geysilega efnilegur. Lék
með N-lrlandi á HM i sumar og
hefur leikiö fleiri landsleiki en
deildarleiki. Lék i fyrsta skipti i
aðalliði United i siðasta leiknum