Þjóðviljinn - 31.07.1982, Blaðsíða 15
Helgin 31. júli—1. ágúst 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Heilsan er dýrmætasta eignin
>/Ég hef alltaf verið
heilsuhraust og það er auð-
vitað það sem bjargar.
Heilsan — hún er það dýr-
mætasta sem maður á">
svaraði Ingibjörg Gísla-
dóttir þegar ég spurði hana
hvernig hún færi að þvi að
halda sér svo vel sem raun
ber vitni.
Ingibjörg er fædd 20. desember
áriö 1891 og varö þvi niræö siöast-
liöinn vetur. Þaö er þó ekki á
henni aö sjá, hún er kvik i hreyf:
ingum og tali og friskleg i útliti.
Hár hennar er þykkt og mikiö
þrátt fyrir þennan háa aldur.
„Já, háriö. Þaö var nú einmitt
þaö sem kom mér i filmuna. Það
var einhver sem benti kvik-
myndafólkinu á mig, bæði vegna
peysufatanna og vegna hins, að
flétturnar eru ekta”, segir Ingi-
björg. En hún geröist svo fræg aö
vera fengin til þess aö leika i
kvikmynd i sumar. Viö viljum
ekki segja, hvaða kvikmynd það
er, þvi Ingibjörg vonar fastlega,
að atriðin meö henni veröi klippt
úr. Hún segist þó öngvar áhyggj-
ur hafa af filmunni og ekki búast
við að sjá hana.
Ingibjörg Gisladóttir er alin
upp f Hábæ á Akranesi til ferm-
ingaraldurs, en fór þá að bjarga
sér eins og alsiða var þá. Hún
kom hingað til Reykjavikur og
var hér i vinnumennsku. Hún
kveður vistina hafa veriö voða-
lega erfiða, ekkert vatn i húsun-
um, oliulampar og þvotturinn all-
ur borinn inn i Laugar. ,,En þetta
varsvona hjá öllum stúlkum. Það
var misjafnt meö fridagana og
svoleiðis, en vinnan var alls staö-
ar erfið.”
Ingibjörg gifti sig tvitug Gunn-
ari Gislasyni frá Hlaðgeröarkoti i
Mosfellssveit. Hann var sjómað-
ur og vann i kaupavinnu á sumrin
og „yfirleitt viö hvað sem til féll.
Það var ekki úr miklu aö velja þá
og hann greip hvert tækifæri.”
Þau Gunnar eignuöust eina
dóttur, en Ingibjörg missti siöan
manninn og baslaði siöan ein i
nokkur ár, eöa þar til hún kynnt-
ist Zófaniasi Sveinssyni frá Hæð-
arenda á Seltjarnarnesi og giftist
honum.
John
Rud
á förum
1 sumar hefur staðið yfir sýn-
ing á höggmyndum umhverfis
Norræna húsið eftir danska
höggmyndarann John Rud.
Listamaðurinn hefur i sumar
unnið að höggmyndum úr is-
lenskum efnivið, ss. gabbró,
grágrýti, hrauni, lipariti, o.fl.
Auk þess hefur hann gert högg-
mynd úr isl. stuðlabergi.
Þessar höggmyndir verða til
synis við Norræna húsið n.k.
laugardag og sunnudag og ætlar
listamaðurinn aðkynna verk sin
milli kl. 14-17, ef veður verður
ekki þvi verra.
John Rud er á förum til Dan-
merkur þar sem hann ætlar að
sýna þessar höggmyndir úr is-
lenskum steinum, en stuðla-
bergshöggmyndin mun þó á-
fram prýða umhverfi Norræna
hússins fram i september, eins
og þær höggmyndir sem fyrir
eru.
Ingibjörg
Gísladóttir
á tíræöis-
aldri segir
svolítið af
sjálfri sér
„Þá var allt breytt i bænum”
segir Ingibjörg. „Það var allt á
framfarabraut, svoleiðis. Raf-
stöðin kom fyrst og siðan hita-
veitan.”
Þau Zófanias bjuggu i 3 ár i
Gröf i Skilmannahreppi. Þaðan
fluttu þau að Stóra Býli þar sem
þau voru i 24 ár. Arið 1944 fluttu
þau til Reykjavikur þar sem
Zófanias fékk vinnu við trésmiö-
ar, en hann var trésmiður að
menntun. Arið 1947 fluttu þau inn
i húsið við Kambsveg 11, sem
Zófanias byggði. „Hér hef ég búið
lengi og vil fá að vera hér meðan
ég geri engin spjöll”, segir Ingi-
björg.
Ingibjörg segist hafa nóg fyrir
stafni. Sjónin er enn mjög góð og
hún saumar og heklar. Hún sækir
kennslu i Norðurbrún 1, sem er
skammt frá, en þar er margvis-
leg þjónusta við aldraða. Hún
prjónar einnig mikið, m.a. á
barnabörnin og barnabarnabörn-
in — „en þau vaxa hratt og ég geri
mér kannski ekki nóga grein fyrir
þvi”, segir Ingibjörg og brosir
sinu hægláta brosi. „En það gerir
ekkert — það má þá nota þetta á
næsta barn! Ingibjörg á 6 börn á
lifi og telur afkomendur sina vera
um 60 talsins. „Sei, sei, já —
löngu orðin langamma og það
margföld. Ég bið bara eftir aö
verða langa-langamma. Mér
skilst að það fari að hafa aldurinn
i það.”
Þessari háöldruðu konu finnst
allt stefna i framfaraátt. Hún
man timana tvenna og þrenna og
ýmislegt hefur á daga hennar
' drifið, en óþarfi að færa það i
dagblöðin. Hennar kynslóð lærði
aldrei aö hælast um — að vekja á
sér athygli var taliö óviðeigandi.
Og þegar ég kveð hana segir hún
við mig:: „Ætlarðu með þetta 1
blöðin? Ja, það er þokkalegt aö
verða alfæmd á gamalsaldri!”
— ast.
Pabbi baupir
liriiljjÞstoiu*. af |>vi
hann ©lsbar inig.
25 ára reynsla BRIDGESTONE á hinum misjöfnu vegum íslands
sannar-öryggi og endingu.
Kaupið viðurkennt merki sem má treysta.
Öryggið í fyrirrúmi — með BRIDGESTONE undir bílnum.
EfRIDOESTONE áislandi
BÍLABORG HF.
Smiöshöföa 23, sími 812 99.