Þjóðviljinn - 31.07.1982, Síða 19
Frá Lignano.
ferðirnar okkar, sem eru ekki
bara farnar til aö liggja i sólinni,
þvi það gefast afskaplega mörg
tækifæri til að sjá sögufræga staöi
og ótal margt fleira i skoöunar-
ferðum i tengslum viö sjálfar sól-
arlandaferðirnar”, sagöi Kristin
Aðalsteinsdóttir aö lokum.
—jsj-
eyjarnar og á milli þeirra?
,,bað verður meö öllum mög-
legum flutninga- og farartækjum.
Flugvélum, bilum og auövitaö
bátum, þessum svokölluöu
„barka” flutningabátum filipps-
eyinga, meöal annars, og þaö
veröur fariö á milli smáþorpa og
stórborga.
Eyjarnar eru býsna erfiðar
yfirferöar vegna fjalllendis og
þéttra frumskóga, en þarna er
heilsusamlegt andrúmsloft og
afar gott að vera.
Nú i lok feröarinnar veröur svo
dvaliö i Hong Kong nokkra daga,
og þaöan meðal annars farið i
skoöunarferö yfir landamærin til
Kina”.
— Hvaö kostar svo þessi ferð?
„Þaö veit ég þvi miöur ekki
ennþá, en ég held ég geti þó full-
yrt, aö það veröi mun hag-
stæðrara, en mætti halda. Og þaö
er alveg óhætt aö fullyröa, aö
Perlur Austursins, eins og Fil-
ippseyjar hafa veriö nefndar i
gömlum heimildum, eru þess
viröi að þær séu skoöaöar”, sagöi
Haraldur Jóhannsson aö lokum.
— jsj.
Islaug Aðalsteinsdóttir
hjá Ferðamiðstöðinni:
Fólk er
opnara fyrir
nýjungum
„Við verðum með ferðir
til Benidorm alveg fram í
október, en síðustu ferðir
þangað verða 14. septem-
ber og 5. október, og í þeim
ferðum verður einnig
möguleiki á því að fara
með beinu f lugi til Alicante
með viðkomu í London á
heimleiðinni, en Alicante
er um klukkutíma bílferð
frá Benidorm", sagði
Islaug Aðalsteinsdóttir hjá
Ferðamiðstöðinni í samtali
við blaðið um þær ferðir,
sem Ferðamiðstöðin hefur
á boðstólum í haust.
„En auk Benidorm-feröanna
bjóöum viö svo feröir til fjöl-
margra staöa og landa, svo sem
Bretlands, Hollands, Danmerkur
og viöar, og viö bjóöum upp á þær
feröir áfram i vetur.
Svo veröum viö lika meö feröir
til hinna ýmsu sólarstaöa frá
Luxemburg, og þær ferðir eru
farnar i samstarfi viö Luxair
Tours, og svo er lika töluvert um
það, að fólk ferðist á eigin vegum,
þannig aö við pöntum kannski
sumarbústaöi fyrir fjölskyldur
sem feröast siöan meö almennu
flugi. Slikum feröum hefur
fjölgaö til muna fá þvi sem var”.
— Eru það ekki talsvert dýrari
ferðir en t.d. sólarlandaferðir i
leiguflugi?
„Þær verða þaö yfirleitt, til-
tölulega séö. En þaö jafnar sig
hins vegar upp á þann hátt, aö
fólk fer þá frekar i styttri ferðir.
Þannig næst mjög sambærilegt
verð, þótt feröirnar séu aö ööru
leyti mjög frábrugönar hver
annarri”.
— Hefur feröamáti fólks breyst
mjög á undanförnum árum? Eru
sólarlandaferðirnar kannski á
undanhaldi?
„Mér hefur nú virst, aö fólk sé
mun opnara fyrir nýjungum
heldur en var fyrir bara fimm
árum. Og ef litið er lengra aftur,
þá var það viötekin venja og
nánast undantekningarlaust, aö
fólk varö að staldra viö Kaup-
mannahöfn, annað hvort á útleiö
eöa heimleiö, aö lita viö i Kaup-
mannahöfn, jafnvel þótt þaö
kostaði, aö fargjaldiö yröi dýrara
en ella heföi oröiö.
Kaupmannahöfn á auðvitaö
alltaf sina aödáendur, en þessi
krafa er ekki lengur viö lýöi.
Kaupmannahöfn er ekki jafn
nauðsynlegur viökomustaöur
lengur og var.
— Nú hafið þið hjá Feröamið-
stöðinni lagt töluveröa áherslu á
ráðstefnur og vörusýningar,
þ.e.a.s. hópferðir á slika við-
buröi?
„Já, þaö hefur gefist vel. Viö
erum umboösmenn allra þýsku
sýninganna, og fáum þannig allar
þær upplýsingar, sem nauðsyn-
legar eru feröalöngum, auk þess
sem viö seljum aögöngumiöa á
sýningarnar sjálfar, þannig aö
fólk, sem ferðast á okkar vegum
þarf ekki aö standa i löngum biö-
rööum til aö geta keypt sig inn.
Það er mikill kostur við þetta
fyrirkomulag, aö fólk getur
skipulagt feröir sinar, jafnvel i
smáatriðum, meö þessum hætti.
Oft vill þaö nefnilega veröa
þannig, aö menn geta flækst um á
svona vörusýningum án þess aö
nálgast það, sem menn vilja sjá.
Helgin 31. júll—1. ágúst 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
islaug Aðalsteinsdóttir hjá Ferðamiðstöðinni: ícg tel, að utanlands-
feröir séu orðnar raunverulegur hluti af Hfi almennings á islandi, og
held, að fólk reikni meö þeim sem föstum lið I neyslunni. Ljósm.: —jsj.
Þaö er hægt aö eyöa fleiri dögum i
slikt ráp.”
— Býður Feröamiðstööin upp á
einhverja þjónustu I tengslum og
samhengi við þessar ráðstefnur
og vörusýningar?
„Já.þaðer t.d. mjög algengt aö
fólk noti tækifæriö og fari i fri
eftir aö þaö hefur komið viö á
vörusýningum. Og viö getum, ef
fólk vill, skipulagt slik fri.
Nú, þaö er óskaplega erfitt aö
slá á fjöldann, sem hefur notfært
sér þessa þjónustu okkar. En
yfirleitt eru hóparnir á bilinu
30-50 manns, og viö höfum farið
þaö sem af er þessu ári á fimm
vörusýningar erlendis. Þaö hefur
sýnt sig, aö þaö er markaður fyrir
þessar feröir, enda getur fólk,
sem tekur þátt i viöskiptalifinu
ekki annað en fylgst meö nýj-
ungum á sinu sviöi”, sagöi Islaug
Aöalsteinsdóttir aö lokum.
— jsj.
Holland er meöai nýrra viökomu*
staða Ferðamiðstöðvarinnar.
Steinn Lárusson hjá ÚrvalU__
Spennandi ferðir til
Austurlanda fjær
Steinn Lárusson hjá (Jrvali: Það hefur verið mcira um styttri ferðalög
á þessu ári en áður, en mér sýnist ágætlega bókað það sem er af sumr-
inu. Ljósm. — gel—.
„Það má segja, að það
séu tvær ferðir, sem verða
hápunktar haustsins hjá
okkur", sagði Steinn Lár-
usson framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar úrval
í viðtali við Þjóðviljann.
„Önnur ferðin verður til
Thailands, þar sem dvalið
verður bæði í Bangkok og
Pattaya, en sú ferð er far-
in i samráði við ferðaskrif-
stofuna „Globetrotter" í
Kaupmannahöf n. Hin
ferðin er til Indlands og
Nepal, og það er ansi
strembin ferð, sem felur i
sér mikil ferðalög vítt og
breitt um.
Þetta er I annaö sinn, sem viö
bjóöum upp á svona ferö til Thai-
lands. Þetta er þriggja vikna
ferö, meö viökomu i Kaup-
mannahöfn bæöi viö upphaf henn-
ar og endi, og þaö er möguleiki á
aö framlengja dvölina i Kaup-
mannahöfn i restina, ef menn
vilja. En þaö veröur dvaliö fimm
daga i Bangkok og siöan háifan
mánuö I Pattaya, og þaö veröur,
eins og gefur að skilja, boöiö upp
á sérstakan skoöunarferðar-
pakka á báöum stööum.”
— Hvað kostar þessi ferö?
„Þessi ferö kostar milli
22-26.000 krónur, en þaö fer eftir
þvi hvort búið er i eins eöa
tveggja manna herbergjum.
Þetta verö miöast þó viö júnilok,
þannig aö þaö getur breyst eitt-
hvaö, þangaö til veröur fariö af
stað.”
— En hvað geturöu sagt mér frá
þessari Indlandsferð?
„Þetta er mjög spennandi og
heillandi ferö, aö mér finnst, en
það eru nú liöin um þaö bil tvö ár
siöan viö Sigurður A. Magnússon,
sem veröur fararstjóri i feröinni,
fórum aö tala um hana. Siguröur
hefur dvalið þarna, og þekkir
þarna ágætlega til, og er þvi einn
besti fararstjóri, sem völ er á.
Indlandsferðin er lika þriggja
vikna ferö, og hún er skipulögð i
samráöi viö þarlenda feröaskrif-
stofu.
Nú, eins og ég sagöi, þá er þetta
töluvert strembin ferö, en þaö
kemur til aö þvi, hvaö er ferðast
mikiö um Indland og sóttir heim
staöir eins og t.d. Aurangbad,
Pachora, Ajanta, Dehli, Agra,
Taj Mahal og Katmandú Kal-
kútta, auk ótal annarra staöa.
Þaö verður sem sagt fariö þvert
yfir Indland, og þær feröir eru ali-
ar innifaldar i þvi fargjaldi, sem
greitt er hér heima, en þessi ferð
mun kosta eitthvað nálægt 27.000
krónum”.
— Hvað verður svo fleira á döf-
inni hjá ykkur i haust?
„1 haust og fram á vetur verö-
um viö með þessar föstu ferðir til
Glasgow og London, og viö bjóö-
um i vetur eins og i sumar flug og
bil til Luxemborgar, og svo mun-
um viö áreiöanlega bjóöa upp á
helgarpakka nú i haust og vetur
eins og við geröum i fyrra.
Kanarieyjaferöirnar okkar
hefjast um mánaðamótin október
og nóvember, og veröa án efa vin-
sælar sem fyrr, og skiöaferöirnar
okkar hefjast meö jólaferö 19.
desember, en viö veröum meö
skföaferðir á eina þrjá staöi i vet-
ur.”
— Feröast fólk meira nú en áð-
ur, Steinn?
„Fystu sex mánuöi ársins ferö-
uðust 6000 fleiri Islendingar til út-
landa en áriö á undan. Þaö veröur
þó aö segjast eins og er, aö þaö
hefur verið meira um styttri
feröalög en áöur.
Hins vegar viröist mér, aö þaö
liti ágætlega út meö bókanir
þessa siöustu tvo mánuöi af sum-
artimanum hjá okkur”, sagöi
Steinn Lárusson að lokum.
—jsj.