Þjóðviljinn - 31.07.1982, Síða 21
Helgin 31. júli—1. ágúst 1982. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 21
skák
Umsjón: Helgi Ólafsson
Millisvœðamótið á Kanaríeyjum
Ribli og Smyslov
komust áfram
Ribli seig fram úr á lokasprettinum
Þrátt fyrir tap i 12. umferð fyrir
Zoltan Ribli var sæti Smyslovs i
Áskorendakeppninni ekki i neinni
hættu. í síðustu umferð nægði
honum jafntefli við einn veikasta
mann mótsins, Slim Bouaziz frá
Túnis, og það fékkst eftir aðeins
11 leiki. Á meðan gerði Ribli jafn-
tefli við Pshakis og tryggði sér
óskipt efsta sætið. Lokaniðurstað-
an varð á þessa leið: 1. Ribli 9 v.
2. Smyslov 8 1/2 v. 3. Suba 8 v. 4.
Petrosjan 7 1/2 v. 5. Tukmakov 7
v. + 1 biðskák 6. Larsen 6 1/2 v. 7.
Timman 6 v. + 1 biðskák. 8. - 10.
Pshakis, Mestel og Pinter 6 v.
hver. 11. - 12. Karlsson og Bouaziz
5 1/2 v. hver. 13. Sunye 4 1/2 v. + 1
biðskák 14. Browne 3 v. + 1 bið-
skák.
Nokkrar biðskákir voru ótefld-
ar þegar þetta er ritað, en þær
breyta lokaniðurstöðunni ekki að
neinu gagni. Aður en lengra er
haldið hlýt ég þó að leiðrétta
fremur augljósa villu úr frásögn
skákar Riblis og Smyslovs i 12.
umferð. Fréttum af þessari skák
bar ekki saman, en geta má þess
að á timabili var staðan stein-
dautt jafntefli, en Smyslov, einn
harðasti endataflsmaður sem
uppi hefur verið, gerði þau mistök
að rannsaka biðskákina með her-
skara Sovétmanna og rannsókn-
irnar fóru i hund og kött og einnig
staðan. Fyrir skákina mun
Smyslov hafa boðið jafntefli sem
Ribli hafnaði. Hann var með hvitt
og þó jafntefli gæfi honum vinn-
ingsforskot á þriðja mann þýddi
það hatramma viðureign við Sov-
étmeistarann Pshakis. Petrosjan
og Tukmakov hefðu knúið á um
vinningstilraunir Pshakis og
minnugur ófaranna frá milli-
svæðamótinu i Riga 1979 hélt
Ribli áfram. t Riga þurfti Ribli
aðeins 1/2 vinning til að komast
áfram, en tapaði fyrir Sovét-
manninum Romanishin. Hann
lenti svo i einvigi við landa sinn
Adorjan og lauk þvi með jöfnum
vinningum 3:3 eftir að Ribli hafði
leitt 2 1/2:1/2. Adorjan komst svo
áfram á betri stigum frá mótinu i
Riga! Sigur Riblis kemur ekki á
óvart. Hann hefur oft verið ná-
lægt þvi að komast áfram en
aldrei tekist það fyrr en nú. Hann
hefur um langt skeið gengið næst
Lajos Portisch að styrkleika i
Ungverjalandi og er geysilega vel
lesinn stórmeistari. Þykir það
hrein hending taki hann eitthvað
annað en skákbók i hönd þegar
lestur er á annað borð.
Allir sannir aðdáendur Vasily
Smyslovs hljóta að fagna árangri
hans. Mér sýnist mest um vert að
þessi árangur gefur þeim sem
nokkuð eru teknir að reskjast, þó
svo 61 árs aldur sé kannski ekki
svo mikill, byr undir báða vængi.
Smyslov tefldi hverja einustu
skák i botn i móti þessu og upp-
skar eftir þvi.
Undirritaður hefur i hyggju að
birta á.m.k. glefsur úr skák
Smyslovs i komandi skákþáttum,
þvi margbölvaður sé sá lélegi
fréttaflutningur sem verið hefur
af mótinu. Hér kemur þó ein
skák. Hún var tefld i 1. umferð og
er merkileg fyrir þær sakir að þar
tapaði Tigran Petrosjan sinni
þriðju skák i 7 millisvæðamótum.
Alls hefur hann teflt um 130 skák-
ir i þessum mótum og riflega
helming skáka hans hefur lyktað
með jafntefli.
Ilvitt: Vladimir Tukmakov
Svart: Tigran Petrosjan
Drottningarindversk vörn
1. C4-RÍ6 4. Rf3-b6
2. d4-e6 4. g3-Bb7
3. Rf3-b6
(4. -Ba6 er skarpari leikur og vin-
sælli. En Petrosjan kærir sig koll-
óttan. Skákin var tefld i 1. umferð
og hann hefur áreiðanlega vonast
eftir stuttu jafntefli. Það er venja
hans að gera jafntefli við sterkari
mennina og vinna siðan þá veik-
ari.)
5. Bg2-Be7
6. Rc3-Re4
(6. -0-0 þýkir ónákvæmur leikur
vegna 7. Dc2! sem tryggir hvitum
sterk yfirráð á miðborðinu. Vis-
ast þar m.a. til 21. einvigisskákar
Kortsnojs og Karpov 1974 og
skákar Karpovs og Spasski sem
tefld var i sveitakeppni ár siðar.)
7. Bd2-Bf6
8. 0-0
(8. Hcl? er hroðalegur afleikur
sem sést hefur i nokkrum skák-
um. Svartur á 8. - Bxd4! og vinnur
peð.)
8. ...-0-0
(8. -c5 er best svarað með 9. d5!
Þar má benda á glæsilega vinn-
ingsskák Kasparovs yfir Lingter-
i n k f r.
á Olympiumótinu á Möltu 1980.)
9. Hcl-d6
(9. -c5 er best svarað með 10. d5.
Þar má benda á glæsilega vinn-
insskák Kasparovs yfir Lingter-
ink frá Olympiumótinu á Möltu
1980.)
10. d5-Bxc3
11. Rxc3-Rxc3
12. Hxc3-e5
(Ég er næstum þvi handviss um
aö Petrosjan hefur boðið jafntefli
a.m.k. einu sinni i þessari skák og
ég er illa svikinn ef jafnteflistil-
boðið hefur ekki komið á þessu
augnabliki. 12 leikja jafnteflis-
skákir eru hans uppáhald. Fyrst
jafntefli ber á góma má minna á
að i augum Petrosjans er það
hreinn glæpur að tapa svo mikið
sem einni skák i móti. Það var
lika hann sem kom fram með þá
gullvægu reglu, að 3 jafntefli
væru betri en tveir sigrar og eitt
tap!)
13. Rd2-Rd7
14. f4-a5
(Það er háttur Petrosjans að
halda stöðunum sem mest lokuð-
um. Honum dettur t.a.m. ekki i
hug að leika 14. -exf4. Ekki er nóg
með að staðan opnist við þann
leik, heldur raskar hann hinu
samhverfa ivafi peðastöðunnar).
15. f5-Rf6 19. h4-Kh7
16. Re4-Bc8 20. Rxf6-Dxf6
17. Dd2-Bd7 21. Be4!
18. b3-h6
(Kosturinn við stöðu hvits er sá
að hann getur gert sér vonir um
árangursrika peðaframrás bæði á
kóngsvæng og drottningarvæng.
Biskupinn myndu margir halda
lélegan, en sannleikurinn er sá að
hann á stóran þátt í að binda
stöðu svarts niður. Svartur getur
einungis beðið eftir aðgerðum
hvits og þó Petrosjan sé þolin-
móður maður að eðlisfari, þá eru
biðlund hans altént nokkur tak-
mörk sett.)
21. ,..-h5
(Stöðvar framrás g-peösins.
Svartur gat beðið með þennan
leik, en hann heföi þó verið nauð-
synlegur fyrr eða siðar.)
22. a3-Hh8 24. Dg5!
23. Kg2-Kg8
(Svartur á úr vöndu að ráða. Eftir
t.d. 24. -Kf8 er hrókurinn á h8
bundinn við að valda h5-peðið,
þ.e. eftir 25. Dxf6-gxf6 26. Bd3
ásamt, -e4 og, -Be2. Best var
sennilega 24. -Hh6 en þá getur
hvitur i makindum undirbúið að-
gerðir á drottningarvæng, -b4,
-axb4 og loks, -c5. Svartur á
greinilega við ramman reip aö
draga i þessari stöðu, en undir
flestum kringumstæöum hefði
Petrosjan veitt harðvitugt við-
nám. Þess ber aö geta að skákin
var tefld i 1. umferð og glimu-
skjálftinn tæpast farinn úr mönn-
um. Þegar svo við bætist vond
staða koma afleikirnir.)
Helgi
Olafsson
skrifar
24. ...-Dh6?
(Svörtum yfirsést 27. leikur Tuk-
makovs. Allt til loka taflsins teflir
hvitur skákina listavel.)
25. De7!-Dd2
26. Hc2-Dd4
27. Kf3!
(Þessi einfaldi og sterki leikur
gerir aðstöðu svarts vonlausa i
einni svipan. Mönnum hættir til
að gleyma þvi að kóngurinn er
langtifrá svo galinn liösmaður
þegar úti meiriháttar átök er
komið.)
27. ...-Be8
28. f6!
(Sterkara en 28. Dxc7-Dc5 og
svartur á enn von.)
28. ...-Hh6
29. fxg7-Kxg7
30. e3!-Dc5
31. b4!-axb4
32. axb4-Dxb4
33. Kg2!
— Svartur gafst upp. Hann á enga
viðunandi vörn við hótuninni 34.
Dg5+.
Flusleiðir
tilkynnabrottför
Dusseídórf
Vegna ótrúlegs annríkis pylsugerðarmanna í Frankfurt
og vegna þess að óðum er að fyllast í allar „Frankfúrt-
araferðirnar" hafa Flugleiðir ákveðið að bjóða
sömu kjör
á flugi til Dusseldorf og bílaleigubílum þar í bæ.
Stundum er sagt að Dusseldorf sé ríkasta borg Þýska-
lands. Hún er í það minnsta rík af margs konar lysti-
semdum og sögulegum minjum. Merki borgarinnar
sýnir ungling á handahlaupum og strákarnir í Dússel-
dorf taka merkið alvarlega og fara á handahlaupum milli
borðanna á ölstofunum fyrir gestina. Þannig er Dússel-
dorf, - frjálsleg, vingjarnleg og skemmtileg borg í nota-
legu umhverfi.
Helgarferðir, verð frá kr. 3.100.-*
Vikuferðir, verð frá kr. 3.440.-*
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi
K'X;
'lnnifalið: Flugfar, VW Polo bílaleigubíll allan dvalartímann með ótakmörkuðum akstri,. miðað við fjóra i bil.