Þjóðviljinn - 31.07.1982, Síða 23
dægurtónlist
r
Reggae-hljómsveit í fyrsta sinn á Islandi:
Helgin 31. júll—1. águst 1982. ÞJÓÐVlLJINN — SIÐA 23
Babatunde Tony Ellis, söngv-
ari, gitar- og bassaleikari sam-
nefndrar reggae-hljómsveitar,
sem sögö er væntanleg hingað.
Feröaskrifstofan Laugavegi 66,
101 Reykjavík, Sími. 28633.
„Babatunde
Tony Ellis
í Laugardalshöllinni
og á Akureyri
Reggae hljómsveitin Baba-
tunde Tony Ellis er væntanleg
til hljómleikahalds á tslandi og
mun leika á tveim stöðum, i
Laugardalshöll á föstudags-
kvöld, þann 7.ágúst, og á Akur-
eyri laugardagskvöldið 8.
Babatunde Tony Ellis er
fimm manna hljómsveit: Baba-
tunde Tony Ellis sjálfur sem
syngur og leikur á gitar og
bassa, Tommy Thompson á
hljómborð, Jah Nour ásláttar-
hljóðfæri og munn hörpu og loks
eru það Sviar tveir, trommu-
leikarinn Bosse Skoglund og git-
arleikarinn Hasse Nyholm.
Hljómsveit þessi er búsett i
Kaupmannahöfn og hefur gefið
út eina breiðskifu sem ber heitið
Cliange will come (Breyting i
vændum).
Spilamennsku Babatunde
Tony Ellis á hljómleikum er
lýst þannig, að hljómlistin sé
undir áhrifum frá Bob Marley
og Jimi Hendrix og að þeir séu
mun rokkaðri á sviði en á fyrr-
nefndri hljómplötu. Eftir að
Andrea
Jónsdóttir
skrifar
hafa hlustað á hana (plötuna)
hertist undirrituð enn frekar i
þeirri framtiðaráætlun sinni, að
vera viðstödd fyrstu reggae-
hljómleika á tslandi i Laugar
dalshöllinni á föstudagskvöldið
næstkomandi.
Hljómleikarnir á Akureyri
kvöldið eftir eru lika timamót-
andi þvi að eftir þvi sem „inn-
flytjandi sveitarinnar” segir
hefur reggae-hljómsveit aldrei
leikið svo norðarlega á hnettin-
um jörð — né'annarsstaðar.
Fyrsta hljómplata Babatunde
Tony Ellis, Change willeome, er
þrælgóð. Einhver gestur og
gangandi, sem kikti við heima
hjá mér, þar sem ég var að
stressast við að gefa enn stress-
aðri ketti að éta og laga til i
kringum hann (ég vildi að það
væri gagnkvæmt...) við undir-
leik Babatunde Tony Ellis, hélt
(þið munið eftir gestinum gang-
andi) að Marley væri á fóninum.
Það ha!d mannsins er ekki út i
hött, þótt margur telji saman-
burð við það af jörðu hér horfna
goð jaðra við guðlast. En tal-
andi um guðlast ... guðshól er
töluvert áberandi hjá Baba-
tunde Tony Ellis eins og hjá, að
ég held, öllum reggae-hljóm-
sveitum. Þó kemst Tony ekki i
guðsbullsflokkinn þvi að hann er
með fæturna á jörðinni i texta-
gerðinni þótt hann sé nú ekki
mjög kjarnyrtur. Hann hvetur
fólk til aðgerða — þó ekki blóð-
ugrar byltingar — til að koma
megi betri tið, með blóm i haga
og auðvitað er Jah (guð) þar
allsstaðar á næstu grösum.
Tony Ellis er bæði góður git-
ar- og bassaleikari og á þrælgóð
gitarsóló á umræddri plötu. Þá
er Sviinn Bosse Skoglund hund-
góður trommari, ætti enda sam-
kvæmt mynd á plötuumslaginu
að hafa áratuga reynslu á bak
við sig.
Það sem maður tekur fyrst
eftir, þegar hlustað er á Change
will come, er að lögin eru meló-
diskari og ólikari innbyrðis en
oftast er hjá reggaehljómsveit-
um, en Babatunde Tony Ellis
eru ekki á neinu „diskófiippi”
t.d. eins og þvi sem mörgum
finnst vera ljóður á ráði Third
world. Kannski má segja að þeir
séu einhversstaðar á milli
Þriðja heimsins (Third world)
ogSvarts frelsis (Black Uhuru),
og þó nær þeim siðarnefndu ef
miðað er við að þeir séu óhefl-
aðri á hljómleikum en á plöt-
unni.
Það er rétt að taka fram i lok-
in að Babatunde Tony Ellis
helga þessa fyrstu breiðskifu
sina Martin Luther King og
Steve Biko, hreyfingunni The
black panthers (Svörtu hlébörð-
unum), Malcolm X og Bob Mar-
ley. Rétt er einnig að geta „inn-
flytjanda sveitarinnar” sem er
Þorsteinn Viggósson. Siðast en
ekki sist vill undirrituð firra sig
allri ábyrgð ef svo illa en þvi
miður kunnuglega fer, að ekkert
verði af fjörinu. Ég kveð þó i
trúgirni og bjartsýni með orðinu
SJAUMST!
Rokk-
þing
Þeir sem hafa verið vakandi,
og með ráði og rænu, á laugar-
dagskvöldum og haft útvarps-
tæki sin i gangi hafa varla kom-
ist hjá þvi að heyra hið marg-
umtalaða Rokkþing. Rokkþing-
ið er fyrsti tónlistarþátturinn i
háa herrans tið sem hægt er að
hlusta á með báðum eyrum.
Ýmsar sögur hafa verið i gangi
um framtið þáttarins og til að
greiða úr flækjunni var haft
samband við umsjónarmann
þáttarins Stefán Jón Hafstein.
Stefán sagði að allt væri á
huldu með framtið þáttarins.
Hann sagði að i upphafi hefði út-
varpsráð samþykkt næturút-
varpið i tilraunaskyni til
tveggja mánaða þ.e. júni og júli.
Þegar útvarpsráð fór i sumarfri
hefði gleymst að taka ákvörðun
um framhaldið, en þeir Guð-
mundur Jónsson og Hjörtur
Pálsson hefðu tekið af skariö
þannig að þingið yrði á sinum
stað út ágúst eða þangað til út-
varpsráð tæki ákvörðun um
málið. Hvort Rokkþingið lifði
vetrardagskrána væri óvist.
Stefán sagðist vera að fara i
sumarfri og sagði að ekki væri
alveg ljóst hver leysti sig af
hólmi.
Um • viðbrögðin við þættinum
sagði Stefán að þau hefðu verið
dræm framan af en siðan hefði
ræst úr og i dag væru viðbrögðin
mjög góð. Menn sem væru að
koma frá útlöndum með nýjar
plötur sinar og eins hefðu hinar
og þessar hljómsveitir sent
kassettur með tónlist sinni. Eins
kæmi það fyrir að hringt væri á
bjöllunni á útvarpshúsinu með-
an á útsendingu stæði og menn
þá gjarnan að tjá ánægju sina
eða fara fram á að fá eitthvert
óskalag leikið.
Stefán Jón verður á sinum
stað i kvöid.
Við hin sem hein.a sitjum
skulum vona að Rokkþingið
verði á sinum stað þegar vetr-
ardagskráin gengur i garð. Þvi
ef svo yrði ekki myndi hveri'a
einn besti lónlistarþáttur sem
rikisútvarpið hefur boðið uppá.
Og eru það ekki sist snældurnar
sem gera það að verkum að hér
er oft um óborganlega þætti að
ræða.
—jvs.
Jón Viðar
Sigurðsson
skrifar
3*
1
STORSPARNAÐUR
í SÖGUFERÐ
TIL AMSTERDAM
Flug og gisting
4 dagar verð frá
kr. 4.500.-
5 dagar verð frá
kr. 4.800.-
1 vika verð frá
kr. 5.600.-
Innifalið: flug og gisting
Áliar nánari upplýsingar og verð á
skrifstofu okkar.