Þjóðviljinn - 31.07.1982, Side 24
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. jiíll—1. ágúst 1982.
Ótrúiega hagstæðir
greiðsluski/málar
Al/t niður í 20%
útborgun
og eftirstöðvar a/lt að
tí mánuðum
O Flísar h reinlætistæki
• blöndunartæki baðhengi
• baðteppi baðmottur
• máiningarvörur verkfæri
• harðviður spónn
spónaplötur grindarefni viðar-
þiljur
• parkett panell
• einangrun þakjárn þakrennur
• saumur rör fittings o.fl., o.fl.
Dl
E
U| OPIÐ:
mánudaga — fimmtudaga kl. 8—18.
Föstudaga kl. 8—19. Lokað laugardaga.
ffjll BYGGlNGflVÍÍBllR l
Hrinabraut 120 — sími 28600
Hringbraut 120 — sími 28600
(aðkeyrsla frá Sólvallagötu).
1
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
verkstjóra iðnaðarmanna
að loranstöðinni Gufuskálum.
Próf i bifvélavirkjun eða vélvirkjun áskil-
ið.
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjóri
Gufuskálum simi 93-6604.
Laus staða
skjalavarðar Alþingis
Staða skjalavarðar er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu
Alþingis fyrir 15. ágúst 1982.
Skrifstofa Alþingis,
29. júlí 1982.
Blaðberi óskast
i eftirtalin hverf i:
Nökkvavog— Karfavog
Snekkjuvog — Ferjuvog
simi 81333
Siglaugur Brynleifsson skrifar:
Paul Feyerabend
Paul Feyerabend: Seience in a
Free Society. New Left Books
1978. Erkenntnis fðr freie
Menschen. Veranderte Ausgabe.
Suhrkamp Verlag 1980.
Sú bók, sem vakti langmesta
athygli, hneykslan og hrifningu
sumra, sem út kom á síðasta ára-
tug og fjallaði um stöðu visind-
anna, var rit Paul Feyerabends:
Against Method. Þessi bók kom út
1978 og fjallar um keimlik efni og
sú fyrri og um þær deilur sem hún
vakti, auk þess sem höfundur
ræðir um stöðu og stefnu visind-
anna i nútima samfélagi. Þýska
útgáfan er litillega frábrugðin
þeirri ensku, það er endurútgáfa
með breytingum og viðbótum
höfundar.
Höfundurinn segir i formála
fyrir ensku útgáfunni að þessi
skrif stefni að sama marki og
fyrriskrif (Against Method), sem
sé ,,að brjóta niður þá varnar-
múra, sem visindamenn og
kerfisþrælar hafi hlaðið upp
umhverfis heimsmynd sina og
ryðja braut fyrir kenningar og
skoðanir sem stangast á við
núverandi heimsmynd eða
paradigma visindanna”. Einnig
krefst Feyerabend þess ,,að
undirbúningur veröi hafinn að þvi
að fjarlægja sérfræðinga
(visindamenn) úr þeim lykil-
stöðum samfélagsins, þar sem
þeir hafa hreiðrað um sig i” og
eigna sér.
1 fyrsta og öðrum kafla ritsins
fjallar höfundurinn um „skyn-
semina” (rationality) og fylgj-
andi rökhyggju sem ráðandi
heimsmyndinni. Hann telur að
það sem nefnt er skynsemi og
skynsemishyggja sé eitt fleiri
kerfa og að visindaleg heims-
mynd sem byggð er á skynsemis-
hyggju sé fjarri þvi að vera ein-
hlit til skilnings og mats á lifi og
heimsmynd, og að visindatrú,
sem nú tröllriður mati manna og
skilningi, hefti dýpri skilning á
umhverfi og alheimi. Istuttu máli
telur höfundur að það séu til fleiri
mælistikur á tilveruna en
visindahyggjan, og eins og nú er
ástatt telur hann að hún hamli
framförum innan þessa „freðna”
visindakerfis.
1 öðrum kaflanum ræðir
höfundur um áhrif visindahyggju
þ.e. skynsemishyggju á mótun
samfélaganna. Með uppkomu
skynsemisstefnunnar á 18. öld og
þó einkum á siðari hluta aldar-
innar var tekið að trúa á
skynsemina sem lykil að sam-
félagi framtiðarinnar, þar sem
skynsemi skyldi ráða gjörðum
mannanna; þar með sögðu þeir
góðu menn listum, skáldskap,
imyndunarafli, tilfinningum og
mennskri hlýju að hliöra til fyrir
útreiknaðri skynsemishyggju,
þar sem allt var auðskýrt og lif
mannanna yrði likast debet -
creditsiðum i höfuðbók eða tölvu-
strimli nú á dögum. Trúarbrögð,
háspeki og mystik þurfti ekki að
ræða um. Hápunkti náði þetta i
þeirri skripamynd á dögum
frönsku stjórnarbyltingarinnar,
þegar hóra nokkur var sett i
hásæti i Notre Dame og tignuð
sem imynd skynseminnar af
sönnum sonum byltingarinnar.
Ýmsir urðu til þess að efa mjög
eða beinlinis afneita skynsemis-
stefnunni, Herder, Hamann,
Lessing (þótt hann væri skyn-
semisstefnumaöur, þá sá hann
margt varðandi stefnuna i
skýrara ljósi en aðrir) og Burke.
A þessari öld hafa margir orðið til
þess að gagnrýna oftrú manna á
skynseminni sem leiðarljósi.
Kuhn og Polányi hafa harðast
gagnrýnt visindaheimspeki þá,
sem byggir á idealisma, og
snjallast hafa þeir Horkheimer og
Adorno sýnt fram á hvert einhliða
beiting stefnunnar myndi leiða
mannkynið ef upplýsingar og
skynsemisstefnunni yrði fylgt út i
æsar og hvert hún hefur leitt
mannkynið hingað til. Bók þeirra
„Dialektik der Aufkiarung” er
meðal lykilrita 20. aldar. (Ensk
þýðing gefin út 1972 i N.Y. og 1973
i Englandi. Verso útgáfa NLB
1979, enski titillinn er „Dialeetic
of Enlightenment”).
Feyerabend gerir harða hrið að
þeim visindamönnum, „sem nota
almanna fé til þess að uppræta
allar erfðavenjur og allar þær
kenningar, sem stangast á við
hina ófrjóu skynsemi þeirra
sjálfra, eyðileggja umhverfið og
vinna að þvi að staðla alla i sama
mót” vinnu og neysludýra i
einum allsherjar þrælabúðum,
sem þessir þykkskinnungar eigin
smáskitlegrar skynsemishyggju
telja fullkomnun mennskrar við-
leitni.
. Stöðlunin, algjör nýting
mennsks vinnuafls, mengun
umhverfisins, skipulagning fri-
stunda (túrisminn), sportidiótið
sem dóp fyrir sljóvgaða sjálfsvit-
und, sporttiskan, sem er mótuð af
gróðaöflum eins og poppið og allt,
sem þvi fylgir, en þeir sem gera
út á popp, þ.e. fyrirtækin, sem
framleiða tæki, kasettur, söngv-
ara og koma upp hljómsveitum,
eru nú ábatasömustu gróðafyrir-
tæki sem starfa að undanskildum
lyfja- og vopnaframleiðslufyrir-
tækjum. Allt þetta er afsprengi
framleiðsluháttanna i háiðn-
væddum rikjum nútimans.
Framleiðsluhættirnir hafa lengi
mótað fræðslukerfið, einkum i
Bandarikjunum, en þar var stefn-
an og er mótuð af Skinner, sem er
einkar vel að sér um hátterni til-
raunarotta, sem hann hefur siðan
aðhæft mennsku hátterni og sem
atferlissálfræðin og bandarisk
félagsfræði byggir á kenningar
sinar. Kenningar Skinners eru
bundnar framleiðsluháttunum.
Ekkert kemur gróðaöflunum
betur en sú þrönga heimsmynd og
takmarkaða meðvitund og sú,
sem Skinner og fylgismenn hans
telja marktæka.
Og það er þessi takmarkaða
meðvitund, þessi þröngi og dapri
heimur atferlissálfræðinnar og
þessi skripamynd félags-
fræðinnar, bandarisk félagsfræði,
sem nú mótar fræðslukerfin
meira og minna um allan heim.
Og tilgangurinn er að gera hrá-
efnið, þ.e. nemendurna, að full-
gildum þáttakendum i nútima
lýðræðissamfélagi, sem útleggst:
hæfa starfskrafta og neytendur i
þvi kerfi sem byggist á vinnu-
þrælkun, einsýni og gerviþarfa -
kapphlaupi, sem sumir nefna
rottu-kapphlaup. Einnig er hrá-
efninu innrætt mikil virðing fyrir
gervi-trúarbrögðum nútimans,
visindunum, og þeirri tegund
skynsemi, sem þau byggja á.
Verkanirnar af þessari þröngu
heimsmynd visindanna veröa si-
fellt gleggri og gleggri; tómleiki
og tilgangsleysi leiðir til doða og
deyfðar, sem reynt er að vinna á
með dópi og daðri við framand-
legar gervi-kenningar eða með
ópi hinstu örvæntingar (sbr.
Munch: Öpið) sem fær tjáningu i
mögnuðum hljóöum poppsins.
Feyerabend lýsir komu
nokkurra svertingja, Indiána og
Mexikana i Berkeley háskólann i
Kaliforniu 1964, og þeim
aðferðum sem beittvartil þess að
uppræta úr þeim það sem enn
skrimti af erfðamenningu og
hollustu við iorna siði. Útþynntu
sálfræði- og félagsfræðigutli var
hellt yfir þá, þeim var bent á þær
góðu aðstæður, sem nútima lýð-
ræöisþjóðfélag bauð þeim og
veröldin var útskýrð fyrir þeim
samkvæmt nútima visinda-
kenningum. Þessir nemendur
voru komnir af þeim þjóðum, sem
hvitir menn höfðu rænt landi,
tungu, menningu og skilið eftir á
vonarvöl, þjóðum sem höfðu átt
merkilega menningu, trúarbrögð
og skáldskap. Nú var reynt að
neyða upp á afkomendur þessara
svivirtu þjóða gervimenningu
iðnvæddra samfélaga. Feyera-
bend segir að „á hverju ári séu
framin morð, sálarmorð og
menningarmorð i skólum,
háskólum, og á námskeiðum sem
haldin eru meðal „frumátæðra”
samfélaga vitt um heim”. Allt á
að aðhæfast og allir eiga að
gerast þátttakendur i nútima
samfélögum undir merki visinda-
hyggjunar.
Höfundurinn fjallar litillega um
„sérfræðinga”. Þeir eru eins og
allir vita framleiddir á færi-
böndum og siðan stimplaðir þess-
ari og hinni fræðigreininni. Náin
þekking á vissum atriðum og
byggingu viss likamshluta er
vitaskuld gagnleg og nauðsynleg;
stöku sinnum hafa einstaka menn
náð langt i slikri þekkingu, en um
leið hafa þeir glögga yfirsýn yfir
heildina. Nú vill það mjög brenna
við, að heildarsýnina skortir,
enda væri útilokað að þessi færi-
bandaframleiðsla gæfi af sér ein-
tóma fyrsta flokks kunnáttu-
menn. Þvi fer ekki hjá þvi, að
meginhluti þessara einstaklinga
eru nær þvi að vera fagidiótar en
kunnáttumenn i viðkomandi sér-
fræði. Feyerabend varar ein-
dregið við þeirri einfeldningslegu
trú sem almenn er á þennan
stimpil.
Feyerabend rekur litillega
minningar sinar um fjandvin sinn
Popper og fleiri, þegar hann var
við nám i Vinarborg, og á þeim
árum telur hann að efi sinn um
gildi hinna visindaleu aðferða
hafi vaknað. Hann tók þá að efast
um að visindalegar staðreyndir
hefðu absolut gildi. Og þvi lengra
sem leið, þeim mun augljósari
varð honum algjört haldleysi
vissra grundvallar-,,stað-
reynda”. Eins og áður segir vakti
bók hans Against Method mikið
fjaðrafok, og kennir þess enn. I
lok þessarar bókar fjallar hann
um nokkrar umsagnir um þá bók
og dregur þar upp mynd af
visindamönnum nútimans, sem
hann telur flestalla meira og
minna á snærum vopnasala,
lyfjasala og annarra gróðafyrir-
tækja eða fjölþjóðahringa og að
þeir séu flestir ákaflega ánægðir
með þann árangur, sem þeir telja
sig hafa náð, en mikið skorti á að
þeir séu viðræðuhæfir um þau
efni sem Feyerabend fjallar um.
Fyrst i stað dró hann þá ályktun
af ritdeilum sem hann átti i við
ýmsa, en þegar frá leið virtist
honum að þegar á heildina var
litið væru þetta mestanpart ein-
sýnar og íremur vankunnandi
persónur, sem skorti alla heildar-
sýn. Hann telur að nú sé svo
komið, að sérhæfingin hafi m.a.
stuðlað að sifellt þrengri heims-
mynd og að hæfnisskortur sé nú
orðinn einkenni þessa hóps, þeir
þyki nú hæfastir sem séu mestir
„besserwisserar” og einsýnastir
og stöðlunin gangi öll i þá átt. Það
sem Feyerabend álitur hættuleg-
ast er stöðlun þeirra sem verða að
gangast undir það fræðslukerfi,
sem nú er tiðkað allt frá upphafi
og upp i æðstu menntastofnanir,
en það virðist einkum geta af sér
fagidióta eða litilþæga starfs-
krafta nútima samfélaga.
Rafmagnsveitur
rikisins
auglýsa laust til umsóknar starf skrif-
stofumanna við innheimtudeild. Umsókn-
ir er greini menntun, aldur og fyrri störf
sendist starfsmannastjóra fyrir 15. ágúst
1982.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118, 105 Reykjavik.