Þjóðviljinn - 31.07.1982, Blaðsíða 30
30 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. júll—1. ágúst 1982.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Ráðstefna um skólamál, Hallormsstað 6.-3. ágúst.
Markmið ráðstefnunnar: 1) Upplýsingamiðlun til fílaga um skdlakerf-
ið og stöðu skólamála. 2) Umræður: Mótun skólastarfs, tilgangur og
starfshættirskóla. 3) Undirbúningur að frekara starfi að stefnumótun f
skólamálum fyrir Austurlandskjördæmi.
Dagskrá:
Föstudagur 6. ágúst kl. 20-22.30
Framsöguerindi: 1) Einar Már Sigurðarson: Valdsvið skólastjóra,
fræðslustjóra og ráðuneytis. 2) Guðmundur Þórðarson: Kennarasam-
tök og kjaramálkennara og áhrif þeirra á þróun skóla. 3) Smári Geirs-
son:Skipulag framhaldsskólans og tengsl hans við grunnskólann. 4)
Berit Johnsen: Sálfræðideild skóla.
Laugardagur 7. ágúst:
Kl. 9-12.30 Framsöguerindi: 1) Helga M.Steinson: Starfssvið og vald-
svið kennara. 2) ina Gisladóttir: Starfssvið og valdssvið nemenda. 3)
Arndis Þorvaldsdottir: Foreldrar og skóli. 4) Gerður G. óskarsdóttir:
Dulda námsskráin.
Kl. 14-17.30: Hópumræður um efni framsöguerinda. Sameiginlegur
kvöldverður og kvöldvaka.
Sunnudagur 8. ágúst kl. 9-12.:
Niðurstöður starfshópa kynntar. Umræður um frekara starf. Ráð-
stefnulok.
Gisting: Hótelpláss, svefnpokapláss eða tjald.
Þátttaka tilkynnist til: Gerðar G. óskardóttur, Neskaupstað, sími
7616/7285. Beritar Johnsen, Hallormsstað, simi um Hallormsstað.
Kjördæmisráð Alþýöubandalagsíns á Austuriandi.
Inn við Hitarvatn, Foxufell nær Tjaldbrekku innst.
SUMARFERÐ
Alþýðubandalagsins á Norður
landi vestra 7.-8. ágúst 1982
Snæfellsnes
og Hítardalur
Alþýöubandalagiö á Noröurlandi vestra efnir til fjöl-
skylduferöar um Hítardal og Snæfellsnes helgina 7.-8.
ágúst 1982. Lagt verður af staö á laugardagsmorgni 7.
ágúst.
Frá Siglufirði kl. 8.00
Frá Sauðárkróki kl. 9.30
Frá Varmaliíið kl. 10.00
Frá Blönduósi kl. 11.00
Frá Hvammstanga kl. 12.00
Siðan verður ekið sem leið liggur um Laxárdalsheiði vestur i Hitar-
dal. Tjaldaö verður að Hitarhólmi i túnfætinum hjá Birni Hitdælakappa
og siðan gengið upp á hólminn.en þaðar, er gott útsýni yfir dalinn og
vatnið. Að þvi búnu verður efnt til kvöldvöku viö varðeld. A sunnudag
verður ekið um Snæfellsnes eftir þvi sem timi leyfir og ekið heim aftur
gegnum Borgarnes. Þátttaka tilkynnist eftirtöldum, sem jafnframt
veifa nánari upplýsingar:
Elisabet Bjarnadóttir, Hvamnistanga, simi 95-1435
Arnór Arnason, Blönduósi, sirru 95-4518
Ingibjörg Kristinsdóttir, Skagaströnd, simar 95-4790 og 95-4747
Hallveig Thorlacius, Varmahlið, simi 95-6128
Ingibjörg Hafstað, Vik, Skagafirði, simi 95-5531
Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sauðárkróki, simi 95-5289
Einar Albertsson, Siglufirði, simar 96-71614 og 96-71616.
Þátttaka er öilum heimil. Undirbúningsnefnd.
Litla dóttir okkar og systir
Hrefna Björg Júliusdóttir
verður jarðsungin i Kópavogskirkju þriðjudaginn 3. ágúst
kl. 10.30.
Þeir sem vildu minnast hennar er bent á Vistheimilið Sól-
borg, Akureyri.
Fyrir hönd vandamanna,
Ilegina Þorvaldsdóttir
örn Pálsson
Ellert Þór Júlfusson
Lagt af stað i helgarferðina. — Ljósm. —eik.
Guðmundur Hafsteinsson veðurfræðingur:
Býst við góðu veðri
,,Það verður að öllum likindum
gott veður um allt land”, sagði
Guömundur Ilafsteinsson veður-
fræðingur þegar Þjóðviljinn tal-
aöi við hann i gær.
„Annars er „gott veður” nokk-
uð sem veðurfræðingar eiga ekki
að taka sér i munn, þvi gott veður
er smekksatriði,- það sem einum
kann að finnast gott veður getur
öðrum fundist vont. Annars er
það að segja um veðrið i heild, að
það verður viðast hvar hægviðri
og mjög úrkomulitið. Það verður
nokkuð skýjað um vestanvert
landið, kannski einhver súld á
næturnar og á morgnana. Um
austanvert landið verður að
mestu leyti bjart veður og þokka-
lega hlýtt. Um Suðurland er það
að segja að likurnar á sólskini
aukast þegar komið er austur fyr-
ir Mýrdalsjökul. Það verður
tryggara með þurrk, eftir þvi sem
kemur austar og innar i landið.”
— Þannig að útlitið er bara
nokkuð gott?
„Já, það er óhætt að segja það.
Fólk ætti þvi ekkert að þurfa að
vera að elta einhverja staði út um
allt land þar sem það heldur að
veður verði betra en annars stað-
ar”, sagði Guðmundur Hafsteins-
son.
—kjv.
Mesta ferðahelgi ársins
Nú er þegar hafin ein mesta
feröa-, skemmtunar- og útivistar-
helgi ársins, verslunarmanna-
helgin. Gifurlega margir munu
leggja land undir dckk og fara
eitthvaö þangað sem náttúran
býöur þeim. Sumir munu fara og
flatmaga i sumarbústöðum, aðrir
fara á útisamkomur, enn aðrir
munu tjalda þar sem böll eru
haldin og sofa á daginn en vaka á
næturnar. Útisamkomur verða að
vanda margar úti um allt land.
Það er margt sem þarf að at-
huga áður en lagt er upp i ferða-
lag nú um þessa helgi. Veðurútlit
er nokkuö gott en fólk er samt
hvatt til að búa sig vel og af
marggefnu tilefni eru unglingar
sérstaklega hvattir til þess.
Ástand vega er viðast gott en þó
er hringvegurinn lokaður milli
Skaftafells og Kviskerja.
Umferðarráð hvetur alla öku-
menn til að nota bilbelti, reyndar
þarf ekki að hvetja fólk til sliks
þvi bilbeltanotkun hefur verið
lögleidd hér á landi. Og margir
vita að þau hafa bjargað lifi
fjölda fólks.
Þjóðviljinn óskar fólki góðrar
ferðar og góðrar heimkomu.
Bjarki Elíasson:
Gott veður
og gott fólk
fylgjast að
„Við leggjum áherslu á það við
l'ólk að það búi sig vel aö öllu
lcyti. bæði að farartæki sínu og
þvi sjálfu, að það fari ekki vanbú-
ið til ferðar", sagði Bjarki Elias-
son viö Þjóðviljann i gær þegar
blaðið spurði hann um hvað þeir
Iögreglumcnn hefðu um helgina
að segja.
„Við ieggjum einnig áherslu á
að fólk sýni tillitssemi i umferð-
inni og ekki siður i umgengni
sinni við landið og annað fólk.
Fólk fer þetta til þess að njóta úti-
vistar og ánægju og við teljum að
það náist best meö þvi að vera
allsgáður i þessum ferðum og að
sem flestir skilji áfengisflöskuna
eftir heima.”
Vitið þið hvert straumurinn
liggur um þessa helgi?
„Ekki fyrir vist. Við höfum
heyrt að talsvert margir leggi leið
sina i Borgarfjörð og i Þjórsárdal
þó að þar sé ekki um að ræða
Bjarki Eliasson.
neina skipulega skemmtun.”
— Veröið þið með mikinn við-
búnað um helgina?
„Já, við erum með alla okkar
vegaeftirlitsbila, þeir eru úti og
eru dreifðir um landið. Hins veg-
ar er þetta með rólegri helgum
hjá okkur i Reykjavik, þvi það
fara svo margir út úr bænum.”
— Búist þið við góðri helgi?
„Ég verð að segja að ef veðrið
er gott, þá er yfirleitt miklu betra
ástand á fólki og allt gengur bet-
ur. Það fylgist alltaf að, gott veð-
ur og gott fólk.” — kjv.
„Markús”
við
Krossá
Ferðamönnum sem ætla i Þórs-
mörk um helgina ætti að vera
óhætt á leiðinni yfir Krossá, þvi
björgunarsveitin á Ilvolsvelli
veröur ferðalöngum til aðstoðar
auk þess sem Markús B. Þor-
geirsson hönnuður verður með
björgunarnetið sitt á staðnum i
samstarfi við björgunarsveitar-
menn.
Annars er það helst að frétta af
Markúsi að hann er nýkominn til
sins heima eftir gifturika kynn-
isferð með björgunarnetið um
Vestfiröi. Eins og vænta mátti
tóku Vestfirðingar vel á móti
hönnuðinum og efnt var til sýn-
inga á notkun björgunarnetsins i
vel flestum útgerðarplássum þar
vestra, og er talið að um 2000
manns hafi fylgst með sýningun-
um.
Útgerðarmenn á Vestfjörðum
keyptu björgunarnet i alla skut-
togara sem gerðir eru út fyrir
vestan og marga báta, bæði linu-
báta og rækjubáta.
Astand vega er víðast gott
Allir vcgir i byggð og mest eru
keyrðir.eru þokkalega góðir. Eru
flestir vegir nýheflaðir. Fjallveg-
ir cru viðast hvar komnir i eðli-
legt horf. Sprengisandur og Kjöl-
ur eru færir jeppum og stórum
bílum, þó eru vegirnir þar nokkuð
blautir.
Heiðar á Vesturlandi og á Vest-
fjörðum eru færar nema Stein-
grimsfjarðarheiði, hún er aðeins
fær jeppum. Fært er upp úr
Skagafirði og Eyjafirði inn á há-
lenáið. í Herðubreiðarlindir og
uskju er vei fært stórum bilum og
jeppum og einnig er vel fært milli
Vopnafjarðar og Héraðs um Hell-
isheiði eystri. Jeppafært er i
Mjóafjörð og um öxi. Þá er fært i
Kverkfjöll á Möðrudalsöræfum.
Einnig er á Suðurlandi öllum bil-
um fært i Landmannalaugar.
Fært er um Fjallabaksleið nyrðri
og syðri og einnig upp i Lakagiga.
Hringvegurinn er lokaður i ör-
æfum vegna vatnaskemmda og
verður hann ekki opnaður fyrr en
áþriðjudag. — kjv