Þjóðviljinn - 31.07.1982, Qupperneq 31
Helgin 31. júli—1. ágúst 1982. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 31
Af samskiptum borgarbúa við kerfið:
Lelgjandi var boriim út
„Þetta eru vægast sagt
ógeðfelld vinnubrögð og
það virðist hafa gleymst,
að i húsinu býr manneskja.
Þarna er ekki farið eftir
hefðbundnum leiðum og
mér virðast mannréttindi
vera þverbrotin", sagði
Guðrún Ágústsdóttir, borg-
arfulltrúi, er blaðið leitaði
viðbragða hennar við máli,
er upp kom hér í bæ í gær,
og varðar — ef ekki við lög
þá að minnsta kosti við al-
mennt siðgæði.
Þannig er mál með vexti, að i
Skerjafirðinum' hefur búið um
nokkurra ára bil öldruð kona i
bæjarhúsnæði, óhrjálegu. Fyrir
þremur dögum voru borgaryfir-
völd búin að brjótast inn i húsið
þegar konan kom heim til sin, og
var henni tilkynnt að hún fengi
þar ekki inngöngu framar. Kettir,
sem konan hefur séð fyrir, voru
teknir og drepnir og hafurtask
konunnar flutt á brott. ug í gær-
morgun mættu skurðgröfur á
staðinn og jöfnuðu húsið við
jörðu. Eftir stendur konan hús-
næðislaus og hefur i ekkert viðun-
andi húsnæði að hverfa.
Helgi Guðbergsson, aðstoðar-
borgarlæknir, tjáði blaðinu að i
mars 1981 hafi verið ákveðið að
banna húsnæði þetta til ibúðar i
heilbrigðisráði borgarinnar og
jafnframl var banninu þinglýst.
Hann kvað borgarlæknisembætt-
ið þrýsta á um, að slikt húsnæði
sem þetta verði tekið úr notkun
sem bæjarhúsnæði, og svo fram-
arlega sem hann vissi hefði kon-
skutu ketti konunnar inni i húsinu
og allt i kring. Siðan læstu þeir og
héldu á brott. Konunni tókst þá að
komast inn i húsiö og þar hefur
hún búið i leyfisleysi siðan — þar
til nú.
Vinir konunnar rituðu borgar-
yfirvöldum bréf eftir þessa
„hetjudáð” og höfum við fengið
heimild til að birta eftirfarandi
kafla úr bréfinu, og verður ekki
annað sagt en allt þar eigi enn vel
við:
„Við álit þessarar sögu hljóta
margir að leiða hugann að þvi að
lög fjalla stundum um einstakl-
ingsrétt, einstaklingsvernd, ein-
staklingsfrelsi, — um friöhelgi
heimilis — jafnvel um rétt ein-
staklings til að njóta lifsþurfta,
svo sem fæðu og húsaskjóls.
Margir vita einnig að til eru bálk-
ar laga um umgengni manna við
dýr og bréfritari man ekki betur
en að það sé bannað að aflifa til að
mynda sauðkind að öðrum sauð-
kindum ásjáandi.
Margir eru og þeir, sem enn
muna að fátækrayfirvöldum var
leyft að flytja umkomuleysingja
hornanna á milli i landinu án til-
lits til þess hvað flutningsþola
fannst um ráðsmennskuna.
Fyrirfinnst ennþá einhver staf-
krókur af þeim ólögum á lifi?
Mér sýnist sem hér hafi enn
komið i ljós gamalkunnur brestur
i ráðabreytni þeirra herramanna,
sem hafa laun sin af þvi að ráðsk-
ast með tilveru smælingja. Sem
sé, lyklinum er stungið i vasann
og „gerðarþoli” má láta þar
„nótt sem nemur’V’
Við látum hér tilvitnun i bréfið
lokið en spyrjum: hefði ckki mátt
fara mannúölcgar að?
— ast
Skurðgrafan mætt til leiks i Skerjafirðinum. — (Ljósm.: kjv).
unni verið margboðið að flytja i
annað húsnæði.
Sveinn Ragnarsson, félags-
málastjóri Reykjavikurborgar,
visaði málinu alveg á hendur
borgarlæknisembættinu, en við-
urkenndi þó, að Félagsmálastofn-
unin bæri ábyrgð á þessum skjól-
stæðing sinum. Stofnunin heföi
boðið konunni annað húsnæði, en
hún ekki viljað þiggja. Meðal
annars hefði henni verið boðið nú
að gista að Amtmannsstig 5, sem
er gististaður fyrir konur. bað
væri bráðabirgðalausn, meðan
unnið væri að þvi að finna heppi-
legt húsnæði.
öll þessi saga er reyndar með
eindæmum. Hún er miklu lengri
en svo, að hún verði sögð öll hér,
en þess má geta að árið 1981 var
framkvæmd „hreinsun” á heimili
þessarar konu. „Hreinsunin”
fólst i þvi, að fulltrúar Félags-
málastofnunar, ásamt fulltrúa
frá borgarlæknisembættinu með
lögreglumann og skyttu i togi
ALLXUNGT
FOLK
forréttinda,
það á okkar vegum.
Námsfólki
bjóðum við:
ISIC skírteini. Gegn framvísun þess fær námsfólk, 16 ára og eldra,
afslátt frá þjónustuverði ýmissa aðila í yfir 20 löndum. Nefna má
gististaði, matsölur, söfn og lestir. Skírteinið kostar 40 krónur.
Félögum í launþegasamtökum
bjóðum við:
IYEE skírteini. Hámarksaldur skírteinishafa er 25 ár. IYEE skírteinið
veitir aðgang að svipuðum hlunnindum sem ISIC skírteinið.
Það kostar 40 krónur.
Öllum, 25 ára og yngri
bjóðum við:
INTERRAIL járnbrautakort. Það gildir fyrir alla, 25 ára og yngri og
veitir rétt til ótakmarkaðra ferða með járnbrautum innan Evrópu í
einn mánuð. Þetta er örugglega ódýr ferðamáti fyrir ungt fólk sem
vill ferðast víða.
Ungt fólk
í þjonustu
ungs fólks
FERÐA
SKRIFSTOFA
STÚDENTA
Stúdentaheimilinu við Hringbraut. sími 16850