Þjóðviljinn - 15.12.1982, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 15. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
HVER BOKIN
ANNARRI VANDAÐRI OC BETRI!
Þorgils gjallandi
Ritsaf n l
Þorgils gjallandi er skilgetið afkvæmi
menningarbyltingar Suður-Þingeyinga i
lok 19. aldar og sögur hans framlag tii
þeirrar hugsjónar, að hamingja manna
og dýra væri innan seilingar ef umhverfi
þeirra væri bætt. Þetta er fyrsta bindið
í þriggja binda útgáfu okkar á ritum
Þorgils gjallanda og hefur að geyma
dýrasögur, erindi og greinar, auk langrar
ritgerðar Þórðar Helgasonar um skáldið,
verk hans og þær móttökur sem þau
hlutu hjá samtímamönnum.
Faöir minn —
Skólastjórinn.
Fimmtán þættir um þjóðkunna og
mikils virta skólamenn, sem hafa haft
ómetanleg og varanleg áhrif í uppeldis-
og fræðslumálum þjóðarinnar. Þættirnir
eru skráðir af börnum þeirra, og fiéttast
inn í frásögnina lýsingar á heimilisbrag
og fjölskyldulífi, sem og öðrum þáttum
í lífi þessara miklu fræðara, sem margir
voru athafnasamir og mikilvirkir á öðrum
sviðum. Áður eru komnar út hliðstæðar
bækur um lækna, bændur, skipstjóra og
presta.
HS
Benedikt Gröndal
Rit II
Gröndal var einn afkastamesti og
skemmtilegasti rithöfundur okkar. í
þessu öðru bindi rita hans er gullfalleg
Gröndalsminning eftir skáldkonuna
Huldu, ritgerðir Gröndals, blaðagreinar
og bréf. Gröndal var ólatur bréfritari og
skrifaðist á við fjölda manna, innlenda
og erlenda, og eru bréf hans full af fjöri
og gáska. Fyrsta bindi rita Gröndals kom
út í fyrra og hefur að geyma kvæði,
sögur og leikrit, en í lokabindinu verður
ævisagan Dægradvöl og Reykjavík um
aldamótin 1900.
Einar Guðmundsson
Þjóðsögur og þættir n
Einar Guðmundsson kennari er einn
afkastamesti síðari tíma manna við
söfnun og varðveizlu þjóðlegs fróðleiks.
í þessu safni hans eru sögur, ævintýri
og kveðskapur hvaðanæva að af
landinu. Einar er orðhagur vel og hefur
frábært vald á íslenzku máli og er auk
þess ágætlega snjall sögumaður. Þetta N
safn hans er góður viðauki við þjóð-
sögur og þætti annarra safna og mun
mörgum aufúsugestur.
EINAR
CUÐMUNœ
SQ\,
‘ BWBgi
HHH
Skúli Guðjónsson frá
Ljótunnarstöðum
Hver liðin stund er lögð í
sjóð
Þessir minningaþættir eru fádæma
skemmtilegir. Skúli segir frá barnaskóla-
námi sínu, en kennari hans þar var
Arndís Jónsdóttir, sem þekktari er sem
„Elskan hans Þórbergs." Hann segir frá
Samvinnuskólaárum sínum, kennurum,
nemendum og öðru gáfufólki, sem hann
kynntist, Borðeyrardeiiunni, pólitískum
hræringum heima í sveitinni á tíma
Finnagaldursins o.fl. Töfrar máls og stíls
eru með þeim hætti, að þessi bók verður
lesin aftur, aftur og aftur.
Guðmundur Jörundsson
Sýnir og sálfarir
Farsæll skipstjóri og útgerðarmaður
segir frá sérstæðum þætti ævi sinnar,
m.a. draumamanni, sem vitjaði hans
fyrst 17 ára gamals og hefur fylgt honum
æ síðan og um margt haft áhrif á líf hans
og lífsviðhorf, vísað honum á fengsæl
mið og skip í sjávarháska, veitt honum
þá lífsfyllingu og fögnuð, sem því er
samfara að bjarga lífi nauðstaddra sjó-
manna. — Atburðir, sem hér er sagt frá,
eru ekki aðeins dularfullir, mörgum mun
þykja þeir óskiljanlegir.
Gils Guðmundsson
Frá ystu nesjum m
Lokabindi þessa fróðlega og
skemmtilega safns vestfirskra þátta.
Hér eru m.a. þættir um Ögurbændur,
Bændur í Önundarfirði, Ætt Guðmundar
á Selabóli, Goðafoss-strandið 1916 og
björgunarafrek Látramanna, Útveg Arn-
firðinga á ofanverðri 19. öld, Sighvat
Borgfirðing og löng ritgerð höfundar um
Ólaf Þ. Kristjánsson. Fyrri bindi ritsins
eru enn fáanleg.
fi
S WTU
NESJUM
GIIS GUÐMUNDSSON
Einar Benediktsson
Ritgerðir
Kristján Karlsson hefur ritað inngang
að þessu safni og annazt efnlsval. Rit-
gerðirnar fjalla um þau efni er Einar lét
sig einkum varða, og þar sem sérkenni-
legur stíll hans kemur bezt í Ijós. Þar á
meðal eru greinar hans um íslenzk Ijóð-
skáld í Dagskrá, einhver fremsta gagn-
rýni, sem skrifuð hefur verið á íslenzku.
Við höfum áður gefið út Ljóðasafn
I—IV og Sögur efftir Einar Benediktsson,
en þessi 6 bindi eru vandaðasta og
handhægasta útgáfa á ritum skáldsins,
sem hór hefur verið gefin út.
Sigurður A. Friðþjófsson
Heimar
Þetta er höfundur, sem vert er að
kynnast. Þessi bók hans er ekki skáld-
saga í venjulegum hefðbundnum skiln-
ingi, — snertipunktar hennar eru jafnt í
raunveruleika og draumi, þjóðsögu og
ímyndun, — en hún mun vekja athygli.
Þetta er sagan af Ágústi, ungum
manni af hernámsárakynslóðinni. Hann
er áttavilltur í tilverunni, taidi sig geta
beygt lífið að eigin geðþótta, en er
reynslunni ríkari i sögulok.
ÆVISKRAR
SAMTÍÐARMANNA
A — H
SKUGGSJÁ
BÓKABÚD OUVERS STEINS SE
Torfi Jónsson
Æviskrár
samtíðarmanna A—H
Æviskrár samtíðarmanna verður
þriggja binda rit. Þar verða æviskrár 5-6
þúsund núlifandi íslendinga, sem gegnt
hafa eða gegna meiriháttar opinberum
störfum í þágu ríkis, höfuðborgar,
bæjar- og sveitarfélaga. Einnig athafna-
manna, forstöðumanna og sérstakra
trúnaðarmanna fyrirtækja í ýmsum
starfsgreinum, forvígismanna í félags-
málum og annarri menningarstarfsemi,
rithöfunda, listamanna og ýmissa fleiri.
Fyrsta bíndi þessa rits, með nöfnum
sem byrja á stöfunum A-H, er komið út.
Næsta bindi kemur upp úr áramótum. —
Þetta er ómissandi handbók.