Þjóðviljinn - 05.02.1983, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983
BORGARSPITALINN
LAUSAR STÖÐUR
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stööur á eftirtöldum deildum:
DEILDARSTJÓRI B-ÁLMA
Laus til umsóknar er staöa deildarstjóra á nýrri hjúkr-
unardeild fyrir aldraöa í B-álmu (B-6). Umsóknarfrest-
ur til 20. febrúar n.k.
Á sótthreinsunardeild, afleysingastaöa, vinnutími 4
klst. virka daga.
Á gjörgæsludeild, full vinna, hlutavinna.
Á skurðdeild, full vinna, hlutavinna kl. 8.00 - 14.00
virka daga.
Á svæfingadeild, full vinna, hlutavinna.
Á skurðlækningadeild A-5, full vinna, hlutavinna.
Á lyflækningadeild A-6, full vinna, hlutavinna.
Á geðdeild A-2, full vinna, hlutavinna.
Á hjúkrunar- og endurhæfingadeild Grensás, full
vinna og hlutavinna, næturvakt.
Einnig vantar hjúkrunarfræöinga og sjúkraliöa til vetr-
arafleysingja á spítalann. Umsóknir ásamt upplýsing-
um um nám og störf sendist hjúkrunarforstjóra. Nán-
ari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra í síma 81200.
Sérstök athygli er vakin á því að Borgarspítalinn
býður hjúkrunarfræðingum, sem ekki hafa verið í
starfi undanfarin ár upp á 3ja vikna starfsþjálfun.
Laun verða greidd á starfsþjálfunartíma.
SÉRFRÆÐINGUR í LUNGNALYFLÆKNINGUM
Staða sérfræöings í lungnalyflækningum viö lyflækn-
ingadeild Borgarspítalans er laus til umsóknar. Stað-
an er hlutastaða (75%) og henni fylgir ákveðin
kennslukvöð.
Staðan veitist frá 1. júní n.k. eöa eftir samkomulagi.
Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir lyflækninga-
deildar Borgarspítalans. Umsóknir um stööuna, á-
samt upplýsingum um námsferil og fyrri störf, sendist
til stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar fyrir 6.
marz n.k.
Reykjavík, 4. febr. 1983
Borgarspítalinn.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast til eins árs í hálft starf
á öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni
10B. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 1. mars
n.k.
Upplýsingar veitir yfirfélagsráðgjafi öldrunarlækn-
ingadeildar í síma 29000.
DEILDARSJÚKRAÞJÁLFARI óskast við endur-
hæfingardeild. Æskilegt aö umsækjandi hafi á-
huga á aö vinna viö endurhæfingu gigtarsjúklinga.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari endurhæfingar-
deildar í síma 29000.
VÍFILSSTAÐASPÍTALI
SJÚKRAÞJÁLFARI óskast frá 1. apríl eöa eftir
samkomulagi. Húsnæöi í boði. Upplýsingar veitir
yfirsjúkraþjálfari í síma 42800.
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa viö Vífilsstaða-
spítala.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 42800.
GÆSLUVISTARHÆLIÐ
í GUNNARSHOLTI
Staða FORSTÖÐUMANNS Gæsluvistarhælisins í
Gunnarsholti er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. apríl 1983 eöa eftir samkomu-
lagi. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir
er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist skrif-
stofu ríkissíptalanna fyrir 4. mars n.k.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 29000.
RÍKISSPÍTALAR
Reykjavík, 6. febrúar 1983.
skráargatid
Skömmu
fyrir prófkjör Alþýðubanda-
Iagsins í Reykjavík var fram-
bjóðendakynning í Þjóðviljan-
um og þar lýsti Guðmundur J.
Guðmundsson yfir andstyggð
sinni á því blaðri sem fram
kæmi í slíkum kynningum.
Sagðist hann þá heldur vilja
lesaTarzan. Hagyrðingi nokkr-
um varð að orði er hann las
þetta:
Tarzan lesa telur stoð,
tafls í dimmum krókum.
Glöggur maður Gvendur Joð
og gjörkunnugur bókum.
Prófkjör
Alþýðuflokksins í Reykjanes-
kjördæmi fór fram um síðustu
helgi. Þar stefndi Gunnlaugur
Stefánsson, fyrrv. þingmaður,
hátt. Öflug kosningavél var sett
í gang og ekkert til sparað.
Hvorki fleiri né færri en þrír
menn voru sérstaklega til kall-
aðir frá útlöndum til aðstoðar. í
þeim hópi var faðir Gunnlaugs,
Stefán fyrrv. þingmaður Gunn-
laugsson. nú viðskiptaráðu-
nautur Islands í London, og
tveir dyggir stuðningsmenn og
félagar Gunnlaugs sem báðir
erindi söngfélaganna kom að
vísu fram að þeir hefðu hlotið
ágæta dóma og því til áréttingar
fylgdi ljósrit af sænsku dag-
blaði, - frá 1968!
Utvarpið
hefur nú fengið langþráða
heimild til þess að taka upp
beint af borgarstjórnarfundum
til notkunar í fréttatíma eins og
tíðkast hefur á alþingi. Lengi
vel móaðist Albert Guðmunds-
son forseti borgarstjórnar við
þessum tilmælum Ernu Ind-
riðadóttur fréttamanns, en þeg-
ar bréf barst frá fréttastjóra út-
Guðmundur: Geir: Hluthafi
Gjörkunnugur bókum f Hval h.f.
Árni: Kratar
tryggðu
honum sætið
Ólafur: Hefur
stofnað Sjálfstæðis-
félag Kctildalahrcpps
Þeir
alþingismenn sem undir urðu í
atkvæðagreiðslunni um mót-
mæli gegn samþykkt alþjóða-
hvalveiðiráðsins um tíma-
bundna stöðvun hvalveiða hafa
margir hverjir gert mikið úr á-
hrifum þrýstihópa á niðurstöðu
Alþingis. Af þeirra hálfu hefur
ekki verið vakin athygli á nær-
veru forráðamanna Hvals h.f. í
þinghúsinu né heldur þætti
hluthafa í Hval h.f. á þingi. Til
fróðleiks skal þess getið hér að
meðal hluthafa og stofnenda
Hvals h.f. voru þeir bræður
Geir og Björn Hallgrímssynir
sem nú fara væntanlega einnig
með hlut föður síns í fyrirtæk-
inu. Þegar litið er yfir hlutha-
faskrána eins og hún var við
stofnun fyrirtækisins fer ekki
milli mála að þar fer gamla
Reykjavíkuríhaldið sameinað,
og er þar samankominn dálag-
legur þrýstihópur.
Brautin
heitir málgagn Alþýðuflokksins
í Vestmannaeyjum. í síðasta
tölublaði er það upplýst að
kratar hafi fjölmennt í prófkjör
Sjálfstæðisflokksins um daginn
til stuðnings Árna Johnsen.
Telja þeir sig þar hafa launað
íhaldinu lambið gráa frá próf-
kjöri fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingar á síðasta ári, en þá mun
íhaldið hafa haft veruleg áhrif á
skipan lista Alþýðuflokksins.
Árni Johnsen veit þá líklega
hverjum hann á að þakka ef
hann kemst á þing.
y'
1
Vestfirðingi, málgagni Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum, er
sögð sú saga úr Selárdal að þar
hefði það verið á orði haft að
ólíkt hefðust þeir að bræðurnir
Ólafur og Jón Baldvin Hanni-
balssynir, Ólafur hefði dregið
sig frá skarkala heimsins, en
Jón Baldvin fengist við vanda
alþjóðar. Þá gall Ólafur við:
Jón bróðir leysir engan vanda,
hann bara skilgreinir.
Eftir
öðrum leiðum hefur Skráargat-
ið hlerað að Ólafur Hannibals-
son hafi orðið hinn borubratt-
asti þegár hann heyrði um
klofningsframboð Sjálfstæðis-
félags Ketildalahrepps og muni
hann ætla sér nokkurn hlut í
þeim herbúðum. Það er ekki að
spyrja að þeim Hannibals-
feðgum þegar einhvers staðar
er boðið fram klofið.
eru við nám á Norðurlöndum.
En því miður dugði þetta ekki
til. Gunnlaugur náði aðeins
fjórða sæti og á ekki von á þing-
sæti í bráð - nema hann kljúfi.
Talið
er nú víst að Gunnar G. Schram
prófessor gefi kost á sér í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi og verður
hann þar sem sérstakur kandi-
dat Gunnars Thoroddsens for-
sætisráðherra.
Pólitíkin
tekur stundum á sig undarlegar
myndir. Guðmundur G. Þórar-
insson hefur verið í miklum ham
eftir upphlaup sitt í álmálinu,
og það að honum var bolað af
lista Framsóknar í Rvík. Ingi R.
Helgason hrakti röksemdir hans
í álmálinu lið fyrir lið, og því
getur Guðmundur ekki gleymt.
Til þess að hefna sín á Inga hef-
ur hann nú flutt frumvarp í
þinginu þar sem lagt er til að
einkaréttur Brunabótafélagsins
á brunatryggingum verði afn-
urninn. Ingi hefur hins vegar
upplýst að frumvarpið sé út í
hött þar sem Brunabótafélagið
hafi engan einkarétt á þessari
tegund trygginga. Aumingja
Guðmundur.
Skráargatið
hefur það eftir góðum og gegn-
um Alþýðuflokksmanni að
Framsóknarflokkurinn hafi
hótað Gunnari Thoroddsen að
ráðherrar flokksins gengju út úr
ríkisstjórninni ef sú ýrði niður-
staðan í kjördæmamálinu sem
aðrir flokkar virðast nú vera að
ná saman um. Gunnar Thor-
oddsen kvað það í stakasta lagi,
því að hann hefði tilbúna emb-
ættismenn til að setjast í við-
komandi ráðherrastóla, og
hurfu þeir þá frá þessari hótun.
Söngfélagar
Strætisvagna Reykjavíkur
duttu heldur betur í lukkupott-
inn hjá borgarráði Reykjavíkur
í síðustu viku. Þeir höfðu sótt
um styrk og viti menn, - 50 þús-
und krónur voru veittar með
þremur atkvæðum. Albert og
Magdalena sátu hjá. Það sem
vekur athygli varðandi þessa
styrkveitingu er. að þetta er ná-
kvæmlega sama upphæð og
Pólyfónkórinn fær úr borgar-
sjóði þetta árið og þykir víst
sumum ólíku saman að jafna. f
varps samþykkti borgarstjórn
að leyfa hljóðupptökurnar. Var
Albert falið að taka ákvarðanir
varðandi framkvæmd þeirra og
lýsti hann yfir miklum áhuga til
þess að gera aðstöðu frétta-
manna útvarps sfem besta í
borgarstjórn. M.a. þyrfti að
koma upp hljóðeinangruðum
klefa þar sem viðtöl gætu farið
fram. Kom skrýtinn svipur kom
á suma fréttamenn undir þess-
ari ræðu.
Guðjón
heitinn Samúelsson, hirð-
arkitekt Jónasar frá Hriflu,
teiknaði aðalbyggingu Háskóla
íslands. Þórir Kr. Þórðarson
prófessor upplýsir í síðasta
Fréttabréfi háskólans að tappi
nokkur sem hefur það hlutverk
að stöðva væng stálhurðanna í
aðaldyrum beri nafn hans og sé
nefndur „Guðjón“. Þetta nafn
hafi tappinn fengið þegar Árni
Pálsson prófessor hrasaði um
hann og varð að orði: „Ó, hann
Guðjón“. Sigurður Steinþórs-
son jarðfræðingur,dóttursonur
Jónasar frá Hriflu, tekur upp
málsvörn fyrir „Guðjón“ í sama
blaði og segir að tappi þessi
gegni mikilvægu hlutverki,
enda sé hann svo staðfastur í
stöðu sinni að sé snarpur SV-
vinur hafi það komið fyrir að
vinstri vænghurðin fjúki upp og
skekkist eða brotni þegar
„Guðjón" tekur á móti. Þessum
háska hafa starfsmenn há-
skólans reynt að bægja frá með
því að læsa framdyrunum þegar
þannig stendur á veðri. Síðan
segir Sigurður að mannlegu
hugviti séu engin takmörk sett,
og því hafi frést að bygginga-
meistarar háskólans hyggist
leysa vandann með því að
byggja bíslag framan við aðald-
yrnar, og yrði þá væntanlega
gengt inn í það frá þremur hlið-
um eftir því hvernig stæði á
vindi. Síðan segir hann: „Von-
andi er þessi saga ekki sönn, en
hvort sem hún er það eða ekki
vil ég benda á aðra lausn sem
betur hæfir umgengni siðaðra
manna við listaverk: að gera
hægri- og vinstri væng framdy-
ranna jafngilda, þannig að í SV-
roki (sem tíðast er) sé vinstri
vængurinn læstur en hinn hægri
opinn, en í norðanátt haldist
núverandi ástand. Þá þyrfti að
setja niður tappa fyrir suðurv-
ænginn, og mætti sá gjarnan
heita „Maggi“ til minningar um
bíslagið sem aldrei varð“. Þess
skal hér að lokum getið til skýr-
ingar að Maggi mun vera Maggi
Jónsson arkitekt.