Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983 um helgina „Þetta er „barnæska mín“, eins og skáldið sagði. Ég er að hugsa um að setja sykur í stað sands í kassann, því að endurminningarnar eru svo sætar“, sagði Magnús. Verkið er unnið í rauðleir. Mynd Atli. „Geng um glápandi á alla smáhluti” Magnús Kjartansson opnar sýningu á mynd- og leirmunum í Listmunahúsinu Þessi verk hef ég öll unnið í Búðardal á síðastliðnu ári. Þar var mjög gott að vera, komast út úr hraðanum, út úr bænum“, sagði Magnús Kjartansson myndlistarmaður, sem opnar í dag, laugardag, sýningu á 50 verkum í Listmunahúsinu. Magnús þarf vart að kynna fyrir lesendum Þjóðviljans, hann hefur haldið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum heima og erlendis og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Síðasta ár hefur hann búið í Búðardal, þar sem hann starfar m.a. við Búðardalsleirinn. Á sýn- ingunni eru einmitt 10 skúlptúr- verk sem eru unnin úr rauðleir úr Búðardal. „Ég hef ekki fengist við þetta áður, en hafði virkilega gaman af því. Þetta er mikil og erfið vinna, hörkustarf, en það er gaman að þessu.“ Áberandi er hversu handverk- færi og aðrir smáhlutir skipa stóran sess í myndverkum Magnúsar. „Mér þykir gaman að virða þessa smáhluti fyrir mér þar sem maður rekst á þá. Ég geng um glápandi á alla smáhluti þegar ég kem í sveitina og fólk hefur margt sjálf- sagt talið mig hálfvitlausan fyrir. Það má endalaust finna út úr smá- hlutunum“, segir Magnús, þegar við göngum með honum um sali Listmunahússins. „Næst er ég að hugsa um að snúa mér að tónlist- inni“. Við bíðum spennt eftir hvernig það verður. Sýning Magnúsar í Listmuna- húsinu er opin daglega frá kl. 10.00-18.00. Laugardaga og sunn- udaga frá 14.00-18.00 en lokað á mánudögum. Sýningin stendur fram til 20. febrúar n.k. - Ig- Haukur og Höröur sýna grafíkverk Tvíburabræðurnir Haukur og Hörður opna í dag laugardag sýn- ingu á grafíkmyndum sem þeir hal'a unnið á síðustu 6 árum. Sýningin er í Gallery Lækjartorg og gefur að líta á henni þróunar- sögu þeirra bræðra í grafíklistinni. Sum verkanna hafa ekki verið sýnd áður auk þess sem svokölluð skúlptúrgrafík er meðal verka á sýningunni. Sýningin í Gallery Lækjartorg stendur til 13. febrúar og er opin daglega frá kl. 14—18, en frá 14-22 á fimmtudögum og sunnudögum. Gangurinn númer þrjú Um þessar mundir sýnir Daði Guðbjörnsson verk sín í Gangin- um, Mávahlíð 24, Reykjavík. Þá hefur Froskurinn gefið út Ganginn númer þrjú, umslag sem inniheldur verk eftir listamennina: Þór Vigfússon, Tuma Magnússon, Örn Helgason, Eggert Pétursson, Valgarð Gunnarsson, Daða Guðbjörnsson, Ranato Micheli, Juliao Samento, Jan Mladaosky, John Van’t Slot, Helmut Federle og John M. Armleder. Umslagið er til sölu í Bókaversl- un Sigfúsar Eymundssonar, Bóka- vörðunni og Gallerí Langbrók. Einnig hefur Froskurinngefið út tvær bækur í litla bókaflokknum. 5 til 7, eftir Einar Guðmundsson og Portret of the Heártist as an old fisch, eftir Daða Guðbjörnsson. Þær eru gefnar út í 100 tölusettum og árituðum eintökum. Væntanleg er þriðja bókin, eftir Kristin Guð- brand Harðarson. Þessi mynd var tekin þegar myndlistarmenn voru að Ieggja lokahönd á verk sín fyrir síðustu helgi. Síðan hefur „Gullströndin“ andað og andað og andað.... Líf og fjör á „Gull- ströndinni” Leynihljómsveit á hátíöinni í kvöld Mikið líf hefur verið í menning- unni á listahátíðinni „Gullströndin andar“, sem hófst um síðustu helgi vestast í vesturbænum. í þessari viku hefur mikið verið um að vera í músíklífinu. Ýmsir af þekktustu hljómsveitarmönnum landsins hafa leikið og spilað ýmist einir eða í félagi, auk þess sem hverjum sem er hefur gefist tæki- færi til að troða upp. Hljóðfærin eru á staðnum... í kvöld, laugardag, hefst tónlistarhátíðin á Hringbrautinni kl. 20 með því að hljómsveitin Mögulegt óverdós leikur fyrir sjálfa sig og aðra í klukkutíma. Algert leyndarmál er enn hverjir skipa þessa hljómsveit, en samkvæmt upplýsingum frá forráðamönnum listahátíðarinnar er óhætt að segja að þar verða samankomnir nokkrir af bestu og frægustu tónlistar- mönnum þjóðarinnar. Að loknum leik þessara heiðurs- manna tekur hljómsveitin Taku við og sem á fyrri tónlistarkvöldum í vikunni munu þrjú ljóðskáld lesa úr verkum sfnum. í kvöld ríða á vaðið Benóný Ægisson, Einar Ólafsson og Hildigunnur Pálma- dóttir. Ekki er dagskráin tæmd því næst mun Sveinn Þorgeirsson „perform- era“ og þar eftir les Helgi nokkur ljóð sín. Þessa dagana er að koma út sér- stakt blað sem inniheldur ljóð flestra þeirra ljóðskálda er koma fram á „Gullströndinni", og ekki má gleyma hlut myndlistarmanna, sýning þeirra er opin alla daga frá kl. 16-22. Salamöndrurnar. F.v.: Vanja Holm, Cecelja Wennerström, Peter Jansson og Susanna Lindberg. Salamöndrurnar Sænska jazzhljómsveitin Salamöndrurnar heldur tónleika á vegum Jazzvakningar í Félags- stofnun stúdenta í kvöld, laugardag. Salamöndrurnar byrjuðu að leika saman 1979 en urðu fyrst þekktar 1981 en þá léku þær m.a. á 4 alþjóðlegum jazzhátíðinni í Kansas City og á Norðursjávar- jazzhátíðinni í Hollandi. Salamöndrurnar skipa nú: Cec- elia Wennerström sem leikur á ten- órsaxafón, Susanna Lindberg sem leikur á píanó, Vanja Holm sem leikur á trommur og trompet, og loks Peter Janson sem er bassa- leikari. Salamöndrurnar leika blöndu af frumsömdum verkum og sænskum þjóðlögum. Norræna húsið, sunnudagskvöld Runebergs- samkoma Suomi- félagsins Finnski ópcrusöngvarinn Caj Ehrstedt syngur á Runebergssam- komu sem Suomifélagið efnir til i Norræna húsinu á sunnudags- kvöldið kl. 20.30. Þá mun Sveinn Ásgeirsson hag- fræðingur sem einna fyrstur út- lendinga kom til Finnlands eftir síðari heimsstyrjöldina rifja upp kynni sín af Finnum frá þeim tíma. Óperusöngvarinn Caj Ehrstedt er tenór og hefur ekki komið til íslands áður. Hann er fæddur árið 1937 og stundaði nám bæði í Vín og Mílanó. Hann var um tíma aðaltenór Stokkhólmsóperunnar en um 1970 réðst hann til norsku óperunnar og hefur sungið þar höfuðtenórhlut- verk síðan. Að lokinni dagskránni, sem er öllum opin, verða að venju Rune- bergskökur á boðstólum, hið ljúf- fengasta sætabrauð. Aður en vakan hefst, er aðal- fundur Suonti-félagsins boðaður kl. 20.00. Vísnakvöld Vísnakvöld verður haldið á veg- um vísnavina í Þjóðleikhúskjallar- anum á mánudagskvöldið kl. 20.30. Ýmislegt verður þar á boðstóln- um, meðal annars kemur Bubbi Morthens í heimsókn, Kristín ÓI- afsdóttir lætur í sér heyra, Kvenna- sveitin tekur lagið. Bakkabræðurn- ir koma fram, Camilla Söderberg og Snorri Örn Snorrason leika á blokkflautu og lútu og ljóðskáld kvöldsins verður Böðvar Bjarki Pétursson. Kristín Á. Ólafsdóttir Vísnavinir eru ennfremur minntir á ^aðalfundinn sem verður haldinn að Fríkirkjuvegi 11, kl. 14.00 sunnu- daginn 6. febrúar. Verður þar meðal annars kosin ný stjórn. Vísnasöngkonan Trille frá Dan- Bubbi Morthens mörku kemur á vegum Norræna félagsins til íslands t lok febrúar þannig að verið getur að næsta vísnakvöld færist fram og verði í lok febrúar í stað byrjun mars. Verður þetta auglýst síðar. Kristín, Bubbiog fleiri gestir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.