Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 19
Helgin 5. — 6. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
um helgina
Lugigi (Emil Gunnar Gunnarsson) ræðir fikniefnamálin við móður sína og
afa (Margréti Ólafsdóttur og Gísla Halldórsson).
Leikfélag Reykjavíkur
„Hassið” nýtur
mikilla vinsælda
Mikil aðsókn hefur verið að
farsa Dario Fo, „Hassinu hennar
mömmu“.I gærkvöldi var auka
miðnætursýning og í kvöld kl.
23.30 er önnur miðnætursýning í
Austurbæjarbíói, en búið er að
sýna verið í yfir 40 skipti.
Þá verður í kvöld í Iðnó Skiln-
aður Kjartans Ragnarssonar á
sviðinu en þetta verk hefur hlotið
eindónta lof gagnrýnenda, þykir
bæði nýstárlegt og áhrifamikið.
Á sunnudagskvöld er það síðan
Salka Valka Halldórs Laxness, en
sýningar á þessari leikgerð eru nú
komnar á fimmta tuginn.
íslenska óperan
Þjóðleikhúsið
Ballettinn á sunnudag
Jómfrú Ragnhciður eftir Kamb-
an í uppfærslu Bríetar Héðinsdótt-
ur verður á stóra sviði
Þjóðleikhússins í kvöld. Á sunnu-
dagskvöld sýnir íslenski dans-
flokkurinn Danssmiðju sína á stóra
sviðinu, fjóra nýja íslenska ball-
etta.
Á litla sviðinu verður Tvíleikur
sýndur á sunnudagskvöld og leikrit
Nínu Bjarkar, Súkkulaði handa
Silju verður sýnt þar á þriðjudags-
kvöld.
Lína Langsokkur hefur hlotið
einróma lof leikhúsgagnrýnenda
og verða tvær sýningar á þessum
fjöruga barnaleik, í dag og sunnu-
dag kl. 15.00. Þegar er uppselt á
báðar sýningarnar.
Ungir myndlistamenn
sýna á Kjarvalsstöðum
171 verk eftir
58 listamenn
Töfraflautan nýtur mikillar hylli óperuunnenda.
Allt uppselt á
Töfraflautuna
Uppselt er nú um helgina á báðar
sýningar íslensku óperunnar á
Töfraflautunni eftir Mozart.
Nú standa yfir æfingar á næsta
verkefni óperunnar sem er Mika-
dóinn eftir Gilbert og Sullivan.
Frumsýning er áætluð í byrjun
næsta mánaðar.
Þá hefur verið ákveðið að taka
barnaóperuna Litla sótarann aftur
til sýningar nú um miðjan mán-
uðinn.
Ungir myndlistarmenn 1983 er
yfirskrift yfirgripsmikillar
sýningar á verkum ungra
listamanna sem opnuö veröur
aö Kjavalsstöðum í dag,
laugardag kl. 14.00
Á sýningunni er 171 verk eftir 58
listamenn, á aldrinum 20-30 ára.
Undirbúningur sýningarinnar
hófst í fyrrahaust með því að aug-
lýst var eftir verkum ungra lista-
manna. Alls barst stjórn Kjarvals-
staða hátt í fimm hundruð verk
eftir80 listamenn. Dómnefnd valdi
úr þar sem allt sýningarsvæði
Kjarvalsstaða rúmar ekki nema
hluta verkanna.
Meðal þeirra sem eiga verk á
sýningunni eru margir af fremstu
ungu listamönnum þjóðarinnar,
bæði starfandi hér heima og eins er
þó nokkuð af myndverkum eftir ís-
lenska myndlistarmenn sem starfa
eða eru í framhaldsnámi erlendis.
Alls kyns grasa kennir á sýning-
unni, skúlptúrverk, glermyndir, en
greinilegt er að málverkið á hug og
hjörtu ungu listamannanna. Fjöl-
breytnin er gífurleg í efnisvali og
framsetningu, allt frá nýmálverk-
inu, sem er nokkuð áberandi, allt
yfir í súperrealisma.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14.00 til 22.00 fram til 21. febr-
úar.
í næstu viku verða tónleikar
haldnir í tengslum við sýninguna í
samvinnu við Tónlistarskólann í
Reykj vík og Tónskóla Sigursveins.
Þann 14. febrúar leika nemend-
ur í Tónlistarskólanum einleik á
fiðlu, píanó, selló, flautu, auk þess
sem einsöngur verður á dagskrá.
15. febrúar verður fullnaðarpróf
nemenda úr Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar. Báðir þessi tón-
leikar hefjast kl. 20.30
Nafnlaust verk eftir Kristin G. Harðarson unnið ■ samvinnu við Helga Þ.
Friðjónsson. Kristinn býr í Kópavogi, fæddur 1955.
Pastorale í postulín og tré, eftir Kolbrúnu Björgólfsdóttur frá Búðardal,
fædda 1953.
Úlfur, úlfur, eftir Guðlaug Þór Ágústsson úr Reykja-
vík, fæddan 1960.
Flýgur fiskisagan, eftir Lýð Sigurðarson úr Reykja-
vík, fæddan 1952.