Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 7
Helgin 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Viðtal við Christopher Anstey,
en langalangafi hans hafði
Jörund hundadagakonung í vinnu
Anstey Baton í Oatlands á Tasmaníu. í þessu húsi lögðu þeir á ráðinThomasAnsteyogJörundur.
Nú er það að falli komið.
Christopher Anstey með myndirn ar af minnismerkinu og húsi langa-
langalangafa síns á Tasmaníu. Ljósm.: Atli.
svæöið. Jörgen giftist á Tasmaníu
og voru þau hjón alldrykkfelld og
fóru þau um og blönduðu geði við
alls konar fólk og urðu þá margs
vísari um þjófana. Ég minnist
þess að í fórum föður míns í
London eru dómsskjöl í nokkrum
slíkum þjófnaðarmálum frá
Tasmaníu og það verður mitt
fyrsta verk, þegar ég kem heim,
að athuga hvort undirskrift Jörg-
ensens er ekki á einhverju þeirra.
Ég mun þá taka Ijósrit af þeim og
senda Háskóla íslands.
- Var ekki Tasmanía að miklu
leyti byggð af fyrrverandi saka-
mönnum?
- Jú, og Jörgen var kallaður
„King of the Convicts“. Þegar
hann losnaði úr prísundinni var
honum gefið land, 30-40 hektarar
að stærð, en hann hafði aldrei
fjárhagslegt bolmagn til að nýta
það. En hann var mjög duglegur
og varð víst einna fyrstur til að
ferðast yfir þvera Tasmaníu.
- Gastu fundið gröf Jörundar
þarna?
- Nei, ég hafði ekki tækifæri til
þess en hann mun vera grafinn í
Hobar.
- Þú segir að hús forfeðra
þinna séu enn við lýði í Oatlands?
- Já, íbúðarhús Thomasar An-
stey er enn uppistandandi, mikið
steinhús, en er að falli komið.
Þaðan var stjórnað aðgerðum
gegn uppreisn sem svertingjar
gerðu. Jörgen Jörgensen var
mjög trúr Thomasi og ber honum
líka vel sögu í æviminningum sín-
um. Ég er hérna með mynd af
þessu húsi og eins af minnismerk-
inu þar sem Jörgens er getið. Þar
stendur ritað:
„To commemorate Jörgen
Jörgensen, once lord protector
of Iceland, participated in found-
ing of Risdon, Hobart and Port
Dalrymple 1803-1804, field
policeman and constable in Oat-
lands under Thomas Anstey pol-
ice Magistrate 1827".
- Að lokum Christophcr An-
stey. Ætlarðu að dvelja eitthvað
hér á íslandi?
- Ég er að leita mér að vinnu og
ætla nú til Vestmannaeyja og vita
hvort ég fæ ekki vinnu í fiski. Ef
einhvern, sem les þessar línur,
skyldi vanta góðan starfsmann þá
hafi hann samband.
Christopher segist hafa kynnst
íslendingi í Kenya sem hét Jan að
fornafni og vilji gjarnan komast í
samband við hann.
„Hann var lögreglu-
stjóri forfööur míns ”
Einn eftirminnilegasti atburður íslandssögunnar var þegar
Jörundur hundadagakonungur tók hér öll völd árið 1809 og lýsti
yfir sjálfstæði íslands. Hann hét reyndar Jörgen Jörgensen,
danskur úrsmiðssonur, og var margt til lista lagt. Bretar sendu
hann að lokum í sakamannanýlendu á eynni Tasmaníu við
Ástralíu og þar endaði hann sína ævidaga. Þjóðviljinn frétti af
ungum Englendingi, Christopher Anstey, sem er hér staddur
en Jörundurvannhjá langalangalangafa hans á Tasmaníu
eftir að hann varð frjáls og enn eru lifandi sagnir um þennan
danska ævintýramann í fjölskyldu hans.
Langalangalangafi Christop-
hers hét Thomas Anstey og var
hann kaupsýslumaður á Énglandi
en tók sig upp og flutti til Tasm-
aníu, eignaðist þar 5000 hektara
land og rak stórbúskap og var
einn mesti valdamaður eyjarinn-
ar. Sonur hans tók síðan við bú-
skapnum að honum látnum, en á
gamalsaldri flutti hann til Eng-
lands og hefur þessi fjölskylda
síðan haft búsetu þar. Faðir
Christophers er kaupsýslumaður
í London og í vörslu hans eru
ýmsar minjar um Ástralíukafla
fjölskyldunnar. Blaðamaður
Þjóðviljans hitti Christopher An-
stey í Farfuglaheimilinu við Lauf-
ásveg og spurði hann spjörunum
úr.
- Hvað ert þú að gera á íslandi?
- Ég hef haft þann hátt á
undanfarin ár að vinna við bú-
skap á Englandi á sumrin en á
veturna flakka ég um heiminn og
hef farið víða. Ég hef ferðast mik-
ið um Afríku og ég fór gagngert
til Tasmaníu til að forvitnast um
veru forfeðra minna þar. Þeir
höfðu búsetu í Oatlands og þar er
nafni þeirra enn haldið á lofti og
flestir íbúarnir kannast við þá.
Mér var því tekið með kostum og
kynjum. Hús þeirra eru enn upp-
istandandi og örnefni og götu-
heiti bera nafn þeirra. í héraðinu
er líka allstórt stöðuvatn sem
heitir Lake Dulverton en það
heitir eftir heimabæ Thomasar
Anstey á Englandi.
- Og hvernig kemur Jörgen
Jörgensen við sögu?
- Ég hafði oft heyrt hans getið
heima hjá mér án þess að leggja
það sérstaklega á mig hvað um
hann var sagt. Þegar ég svo kom
til Oatlands varð mér ljóst að
nafn þessa ævintýramanns er síð-
ur en svo gleymt. Ég rakst m.a.s.
á minnismerki um landnema í
Oatlands og ein hlið þess er helg-
uð Jörgen. Þar er þess m.a. get-
ið að hann hafi verið verndari Is-
lands. Ég hafði varla heyrt ís-
lands getið þá, en hér er ég nú
kominn og hef m.a. farið upp á
Landsbókasafn og aflað mér
frekari upplýsinga um Jörgen.
Og hvílík saga!
- Hvernig var samskiptum
langalangalangafa þíns og Jör-
undar háttað?
- Thomas Anstey, forfaðir
minn, var með mörg þúsund fjár
og það var mikið um sauðaþjófa á
Tasmaníu. Hann gerði Jörgen
Jörgensen að lögreglu og dómara
og varð sá síðarnefndi í essinu
sínu og bókstaflega hreinsaði
Minnismerkið þar sem Jörundar hundadagakonungs er minnst.
Ljósm.: Christopher Anstey.
tHI8 W.ÁOUC MAfiHS 'Tl«
rj THE ou* OATtMír® I
ÍH ^ ,T«
0LO8LCV AS5ÍOC1A7 el? ^ ^
COACHINO ‘vÍ'b
rr WÁS HíiÞLACeo
eX.sViNG. POUCE »»
TO COMMEMOHAT 6
*ORöÉN aOBOENSON
ONCE LORO ÞROTECTOR OF jCELANO
pabticipateo IN FOyNOtNv, of RföOOH
HOBART ANO PORT CALRV\?K.fe.
FtELO POLlCEMAN ANO . CONSTABLe.
OATLANDS UNOER TMOMAS ANSTEY.
POUCE MAGISTRATE 1S27
^4- 'V * 4* v