Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 30
30 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983 ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ Alþýðubandalagið á Vestfjörðum Forvali lýkur 6. febrúar Síðari umferð forvals vegna skipunar framboðslista Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum í komandi alþingiskosningum stendur yfir og lýkur að kvöldi sunnudagsins 6. febrúar n.k. í síðari umferð forvalsins á að velja í þrjú efstu sæti listans úr hópi þeirra sjö einstaklinga, sem í kjöri eru. Kjósandi merkir með viðeigandi tölustaf við nöfn þeirra þriggja, sem hann vill að skipi 1., 2. og3. sæti framboðslist- ans. Sé merkt við fleiri eða færri en þrjá telst seðill ógildur. Þeir Alþýðubándalagsmenn á Vestfjörðum sem taka vilja þátt í forvalinu geta snúið sér til eftirtalinna kjörstjóra: Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn, Nauteyrarhreppi N.-ÍS. Ástþór Ágústsson, Múla Nauteyrarhreppi, N-ÍS. Ari Sigurjónsson, Þúfum Reykjafjarðarhreppi, N.-ÍS. Ingibjörg Björnsdóttir, Súðavík. Þuríður Pétursdóttir, Túngötu 17, ísafirði. Kristinn H. Gunnarsson, Vitastíg 21, Bolungarvík. Sveinbjörn Jónsson, kennari Súgandafirði. Magnús Ingólfsson, Vífilsmýrum Önundarfirði. Davíð H. Kristjánsson Aðalstræti 39, Þingeyri. Haildór G. Jónsson, Lönghlíð 22, Bíldudal. Lúðvíg Th. Helgason, Miðtúni 4, Tálknafirði. Bolli Olafsson, Sigtúni 4, Patreksfirði. Gisella Halldórsdóttir, Hríshóli, Reykhólasveit. Sigmundur Sigurðsson, Steinadal, Fellshreppi, Strandasýslu. Jón Ólafsson, kennari, Hólmavík. Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Strandasýslu. Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjörðum sem dvelja í Reykjavík eða grennd geta einnig snúið sér til skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettis- götu 3, Reykjavík, og tekið þar þátt í forvalinu. Alþýðubandalagið í Reykjavík Félagsvist Spilamennskunni verður haldið áfram þriðjudagskvöldið 8. febrúar í Sóknarsalnum Freyjugötu 27 (gengið inn frá Njarðargötu), kl. 20.00 Gestur kvöldsins verður Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi, sem kemur í kaffihléinu og segir frá húsnæðismálum flokksins. Þetta er önnur lotan í þriggja kvölda keppninni sent hófst 25. janúar en fyrir þá sem ekki komust þá er ekkert því til fyrirstöðu að bætast við nú, því auk heildarverðlauna er keppt um verðlaun kvöldsins hvert kvöld. - Spilastarfshópurinn. Alþýðubandalagið á Akranesi Kaffirabb um starfshætti og skipulag Laga- og skipulagsnefnd Alþýðubandalagsins heldur vinnufund á Akra- nesi laugardaginn 5. febrúar. Af því tilefni verður efnt til rabbfundar í Rein kl. 3.30 e.h. á laugardag þ.ar sem félagsmönnum í Alþýðubandalag- inu á Akranesi og gestum þeirra gefst tækifæri á að rabba við nefndar- menn um verkefni laga- og skipulagsnefndar Alþýðubandalagsins yfir kaffibollum. Fjölmennum. - Stjórnin. Alþýðubandalagið í Kópavogi - Fundur með ungu stuðningsfólki Alþýðubandalagið í Kópavogi boðar til fundar með ungu stuðningsfólki (16 - 25 ára) miðvikudaginn 9. febrúar kl. 20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11 í Kópa- vogi. Fundarefni: Umræður um Alþýðubandalagið og staða ungs fólks innan þess. Gestur fundarins verður Ólafur Ólafsson formaður Æskulýðsnefndar Alþýðu- bandalagsins. - Stjórnin. LAUSAfí STÖÐUfí VID HEYfíNAfí- OG TALMEINASTÖÐ ÍSLANDS. Eftirtaldar stöður við Heyrnar- og talmeina- stöð íslands eru lausar til umsóknar: 1. Staða talmeinafræðings. Þarf m.a. að geta annast að einhverju leyti skipulagningu á vegum stofnunarinnar í sambandi við rannsóknir og meðferð tal- meina. Talkennaramenntun eða sambær- ileg menntun áskilin. Staðan veitist frá 1. júlí 1983. 2. Staða heyrnarfræðings (hörepædagog). Þarf að geta starfað að endurhæfingu heyrnardaufra. Staðan veitist frá 1. apríl 1983. 3. Staða hjúkrunarfræðings, sem auk hjúkrunarstarfa, á að annast heyrnarmælingar. Til greina kæmi að ráða heyrnartækni með fóstru- eða þroska- þjálfamenntun. Staðan veitist frá 1. apríl 1983. Um hálft starf er að ræða. Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um menntun og störf sendist stjórn Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands, pósthólf 5265, fyrir 10. mars 1983. Ólafur Ólafsson. hvíhmyndir Mamma - várt liv cr nu Svíþjóð 1982 Handrit: Suzanne Osten og Tove Ellefsen Stjórn: Suzanne Osten Kvikmyndun: Hans Welin Tónlist: Gunnar Edander Leikendur: Malin Ek, Etienne Glaser, Serge Giambernardini, Anne-Lise Gabold. MAMMA lífið er núna Eitt af því sem einkennir Kvik- myndahátíð 1983 er hversu marg- ar myndanna eru gerðar af kon- um. Af 32 erlendum myndum sem eru á dagskrá hátíðarinnar eru 9 sem konur hafa stjórnað. Þegar þétta er ritað hef ég séð sjö af þessum kvennamyndum, og þær fjalla allar á einhvern hátt um konur og reynslu þeirra, þótt þetta séu vissulega mjög ólíkar myndir. Seinni heimsstyrjöldin kemur mjög við sögu í flestum þessum myndum, sem er ekki óeðlilegt ef þess er gætt að kon- urnar sem gerðu myndirnar eru flestar fæddar á stríðsárunum. Tvær þeirra gera myndjr um mæður sínar - Helma Sanders- Brahms í Þýskaland náföla móðir og Suzanne Osten í Mamma - lífið er núna. Á þessari kvik- myndahátíð fáum við því býsna gott sýnishorn af þeirri kvenna- bylgju sem nú er á ferðinni í mörgum löndum og á rætur að rekja til nýju kvennahreyfingar- innar. Þessar kvikmyndir eru list- rænt framhald á umræðunni um konur, kvennamenningu og kvenleg viðfangsefni í listum. konur, kvennamenningu og nefndinni sem valdi myndir á há- tíðina fyrir að velja einmitt þessar myndir, vegna þess að ef við vilj- um fylgjast með því sem er að gerast í kvikmyndalistinni verðum við að kunna skil á þeim. Suzanne Osten er þekkt fyrir störf sín í leikhúsi, en Mamma er fyrsta kvikmynd hennar. Það er þó nokkur leikhúsbragur yfir myndinni, sem mér finnst þó fyílilega eiga rétt á sér og stuðla að framgangi þeirrar áköfu og óþvinguðu formleitar sem ein- kennir myndina. Leikhúsið sem Suzanne Östen tekur með sér inn í kvikmyndina er ekki staðnað og akademískt, heldur framsækið nútímaleikhús, þar sem gætir á- hrifa fáránleikastefnu og súrrea- lisma. Móðir Suzanne, Gerd Osten, var á sínum tíma atkvæðamikill kvikmyndaskríbent. Skrif hennar um kvikmyndir eru sögð hafa haft mikil áhrif á marga þeirra gagnrýnenda sem nú eru virkir í Svíaríki. Myndin fjallar þó ekki um þetta starf hennar, heldur um það sem hún vildi gera en fékk ekki. Draum hennar um að stjórna kvikmynd. Rétt áður en stríðið skellur á er Gerd stödd í Frakklandi ásamt manni sínum, sem er listmálari. Ingibjörg HaraldsdóttirWVj skrifar Sk 1 ___________ Hún ræðir þar m.a. við Jean Lou- is Barrault, leikhúsmanninn fræga, um kvikmyndina sem hún ætlar að gera. Síðar í myndinni talar hún við Bertolt Brecht, sem er í útlegð í Stokkhólmi. Báðir þessir frægu menn eru sýndir í nokkuð spaugilegu ljósi, en at- riðin með þeim útskýra m.a. þá ímynd sem fólk hafði af lista- manninum á þessum tímum, og sumir hafa kannski enn. Írónískt sjónarhorn Suzanne Osten kem- ur einnig afskaplega vel fram í þessum atriðum. Brecht er um- kringdur konum, sem dá hann og uppfylla allar hans þarfir áður en hann hefur orð á þeim. Hann hvetur Gerd, sem á þessum tíma er orðin einstæð móðir, til að vinna og aftur vinna, á nóttu sem degi. Hún segist fegin vildu gera það, ef hún hefði bara konu sem tæki að sér að sjá um barnið hennar og heimilið á meðan. Stríðið kemur í veg fyrir að Gerd geri myndina sína í Frakk- landi. Heima í Svíþjóð eru það karlarnir sem stjórna kvikmyndagerðinni sem hindra hana. Þeir finna henni engan stað í þeirri flokkun sem þeir hafa fundið upp, myndin hennar pass- ar ekki inn í kerfið hjá þeim. Þeir bjóða henni að byrja á byrjun- inni, læra fagið, verða skrifta. Enginn skilur hana. Gerd er lista- maður og lítur á sig þeim augum sem samtíminn leit á listamenn. Þeir voru séní. Hún lifir fyrir drauminn, sem tekur á sig mynd ungs fransks hermanns sem hún hitti í lest á leiðinni heim til Sví- þjóðar. Hann var að fara í stríðið og hvarf henni út í myrkrið við þýsku landamærin, en í huga hennar lifir hann áfram og er henni tákn þess sem hún veit að er til, sem hún þráir en fær ekki höndlað. Allt verður að víkja fyrir draumnum. Gerd skilur við mann sinn og bæði vanrækja þau dóttur sína. Stríðið dragnast áfram og þótt Svíar séu ekki í stríði er andrúmsloft þess ríkj- andi. Gerd gefst upp í baráttu sinni. Hún kynnist þýskum útlaga og finnur til samkenndar með honum, því sjálf er hún einskonar útlagi. Hún verður barnshafandi og hættir að skrifa dagbók - dag- bókina sem dóttir hennar Suz- anne byggir mynd 'sína á. Þetta gerðist árið sem Suzanne fæddist, 1944. Eftir stríð hélt Gerd áfram að skrifa um kvikmyndir í nokkur ár, en varð að lokum geðveik og dó á geðveikrahæli 1974. Draumur hennar rættist aldrei. Það kom í hlut dótturinnar að gera kvikmynd - og kannski er þetta sú kvikmynd sem Gerd Ost- en dreymdi um að gera. Öðruvísi kvikmynd um sterka konu og bar- áttu hennar. Malin Ek fer afbragðsvel með hlutverk Gerd, listamannsins sem samtíminn kvað í kútinn. Leikur hennar á stóran þátt í að gæða myndina þeirri lifandi spennu sem einkennir hana frá upphafi til enda - bæði persónan og myndin eru reknar áfram af hamslausum krafti. Mamma - lífið er núna er gjör- ólík þeim raunsæis- og vandamálamyndum sem Svíar eru frægir fyrir. Hér er greinilega á ferðinni kvikmyndastjóri sem vænta má mikils af í framtíðinni. Nýr skóli í Vesturbæ: Tillögum um sam- keppni var vísað frá Borgarfulltrúar Sjálfstæð- isfiokksins vísuðu s.l. fimmtu- dag frá tillögu um að efna til samkeppni um hönnun nýs skóla á horni Hringbrautar og Framnesvegar. Sagði borgar- stjóri að aldrei hefðu farið fram samkeppnir um einstaka skóla og engar ástæður væru til þess nú. Það var Álfheiður Ingadótt- ir sem bar tillöguna fram og' benti hún á að það væri óeðli- legt að einum fulltrúa í skipu- lagsnefnd, Ingimundi Sveinssyni, væri falið beint að „gera athugun á möguleikum til byggingar skóla“ á þessari lóð. Slík könnun væri eðli- legar komin í höndun Borgarskipulags. Þá hefði undirbúningur þessa máls gengið afar hægt en nýr skóli í Vesturbæ væri foreldrum og kennurum beggja vegna Hringbrautar mikið áhuga- mál. Ljóst væri að skólanum yrði þröngur stakkur skorinn, á þessu horni ægði saman alls konar byggingum og lóðin væri þröng. Því væri rétt að leita til samtaka arkitekta um samkeppni að hönnun skólans eftir að gengið hefði verið frá forsögn um hann. Allir full- trúar minnihlutans studdu til- löguna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.