Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 31

Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 31
Ein stærsta húsgagnasmiðja landsins:_ Hefur sagt 18-20 starfsmöimum upp Stöðugt þrengist að íslenskum húsgagnaiðnaði. Um síðustu mánaðarmót var 18-20 starfsmönnum trésmiðjunnar Meiðs í Reykjavík sagtupp störfum með löglegum fyrirvara. Segir í uppsagnarbréfum starfsmanna að ástæða uppsagnanna séu sívaxandi erfíðleikar í rekstri og vegna vaxandi hættu á að ekki verði hægt Senda þarf tilkynningar um hópuppsagnir til félagsmálaráðu neytisins að standa í skilum með iaunagreiðslur. Forstjóri fyrirtækisins, Emil Hjartarson, segir einnig í bréfi til þeirra sem sagt var upp störfum að ríkisstjórnin og stjórnarsamtök vinnandi fólks í landinu virðast ekki hafa sýnt í verki mikinn áhuga á að skapa fyrirtækjum eins og sínu viðunandi starfsmöguleika. Óskar Hallgrímsson hjá Vinnu- máladeild félagsmálaráðuneytisins kvaðst ekki hafa heyrt um þessar uppsagnir, en þarna væri vissulega um mjög stóran hóp í húsgagnaiðn- aðinum að ræða, sem sagt hefði verið upp í einu. Samkvæmt lögum ber atvinnurekanda að tilkynna Vinnumáladeildinni og viðkorn- andi verkalýðsfélögunt ef fleiri en 4 starfsmönnum væri sagt upp störf- um í einu, sagði Óskar Hallgríms- son. - v. Stundarfriður í Þýskalandi: Mjög vel tekíð „Þetta er þriðja íslenska leikrit- ið, sem sýnt er í Þýskalandi, að því er ég kemst næst. Hið fyrsta var „Fjalla-Eyvindur“, en það var sýnt árið 1912 í Berlín, annað var „Marmari“ eftir Guðmund Kamb- Guðmundur Steinsson an, en það var frumsýnt 7. febrúar 1933 í Mainz og hið þriðja er svo leikrit mitt „Stundarfriður“. Þetta sagði Guðmundur Steins- son m.a. í samtali við Þjóðviljann í gær, en hann er nýkominn heim frá Braunschweig í Þýskalandi, þar sem „Stundarfriður" var frum- sýndur hinn27. janúar sl. Leikritið er sýnt í borgarleikhúsi þeirra Braunschweig-búa en ekki kvaðst Guðmundur vita nákvæmlega hversu lengi það yrði sýnt. Leikrit í húsinu genggju í fyrirfram ákveð- inn tíma með litlum undantekning- um eða frávikum. Guðmundur var eins og áður sagði viðstaddur frumsýninguna og sagði hann leiknum hafa verið mjög vel tekið. Þá kvað hann gagn- rýnina einnig hafa verið mjög góða; blaðið „Die Welt“ hefði til að mynda hælt leikritinu mjög. ast Eitt versta óveður sem gengið hefur yfir Húsavík: „Búið aö vera alveg bllnt i bænum” sagði Hjálmar Hjámarsson lögregluþjónn - Þetta er með verstu veðrum sem hér hafa komið. Mikill skaf- renningur, reyndar búið að vera alveg blint hérna í bænum, sagði Hjálmar Hjálmarsson lögreglu- maður á Húsavík í samtali við Þjóð- viljann síðdegis í gær, en þá var aðeins farið að rofa til í bænum, og vindáttin að snúast úr SA - í NA. Ofviðrið skall á í fyrrinótt og varð fljótt ófært innanbæjar og út í sveitir. Skólahald lagðist alveg nið- ur á Húsavík og mikil röskun varð á atvinnulífi. Lögreglan hafði í miklu að snú- ast við að flytja fólk á rnilli staða, einkum starfsfólk sjúkrahússins, en reynt var að halda akveginum þangað opnum. Að öðru leyti var allt ófært, en miklum snjó kyngdi niður í ofviðrinu. Að sögn Hjálm- ars var ekki vitað til þess að nein óhöpp hefðu átt sér stað og von- uðust menn til að veðrið gengi nið- ur þegar liði fram á kvöldið. Illviðri á Patreksfirði: Elstu nemendurnir komust þó í prófiö Mikið illviðri gekk yfir Vestfirði í fyrrinótt og gærdag, og var veðrið einna mest á Patreksfirði og Tál- knafirði. Ómar Húbertsson lögreglu- jmaður á Patreksfirði sagði í samtali við Þjóðviljann að mikil ófærð hefði verið í bænum og allt skóla- hald lagst niður nema hvað elstu nemendur í grunnskólanum brutu sér leið í skólanum til að geta tekið lokapróf samræmdu prófanna sem fram fóru í gærmorgun. Atvinnulíf hefði verið í nokkuð góðu lagi, enda var veðrið farið að lagast mik- ið þegar leið á daginn. -lg- „Flóarriarkaður“ Þjóðviljans Ný þjónusta við áskrifendur Á fimmtudögum geta áskrifendur Þjóöviljans fengiö birtar smáauglýsingar sér aö kostnaðarlausu. Einu skilyröin eru aö auglýsingarnar séu stuttoröar og aö fyrirtáski eöa stofnanir standi þar ekki aö baki. Ef svo er þá kostar birtinain kr. 100- Hringiö í sima 31333 ef þiö þurfiö aö selja, kaupa, skipta, leigja, ef ykkur vantar vinnu, þið hafiö týnt einhverju eöa fundiö eitthvaö. Allt þetta og fleira til a heima á Floamarkaöi Þjööviljans. mmmmmmamrnm DJOÐVIUINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 31 Hús Krabbameinsfélagsins að Reykjanesbraut 8. Krabbameinsfélagið hættir við að byggja: Kaupir húseign við Reykjanesbraut Krabbameinsfélagið hefur fest kaup á húsinu nr. 8 við Reykjan- esbraut í Reykjavík. Húsið er keypt fyrir það fé sem safnaðist í landssöfnuninni í lok október sl. Áætlað er að húsið muni kosta full- gert nokkru minna en það hús sem Krabbameinsfélagið hafði ráðgert að reisa við Hvassaleiti. Nú stendur yfir söfnun á meðal Nýja flokksmiðstöðin: Sjálíboöaliða á sunnudag! Nú er unnið af fullum krafti við skapur fengist væri hér um fárra innréttingar á hinni nýju flokks- tíma verk að ræða. miðstöð Alþýðubandalagsins við Er skorað á þásem vettlingi geta Hverfisgötu 105. Á sunnudaginn er valdið að korna á Hverfisgötuna kl. ætlunin að flytja til timburstafla og 13 á sunnudag, skoða húsið og taka hreinsa til og sagði Sigurjón Pét- til hendinni. ursson í gær að ef nægur ntann- - ÁI Alvarleg matareitrun Tvær manneskjur úr Húnavatnssýslu liggja nú á sjúkrahúsi vegna gruns um alvarlega matareitrun. Eitrun þesi stafar oftast af neyslu matvöru sem soðin er niður í heimahúsum, og þótt niðurstöður séu ekki komnar úr sýnatöku á matvælum á heimili sjúklinganna er þó að sögn landlæknis margt sem bendir til þess, að eitrunin stafi frá heimaniðursuðu. Talið er líklegt að hér sé um að ræða Botulin-eitrun svo- nefnda, en þessa bakteríu er að finna víða í jarðvegi, m.a. hér- lendis. Það má því búast sér- staklega við að finna bakteríuna í grænmeti, en ýmis önnur mat- væli eru ekki undanskilin. ............ Talin stafa af heimaniðursoðn- um matvælum Bakterían myndar eitur við sér- stök skilyrði, t.d. í súrefnis- snauðu umhverfi, en eitrið eyðileggst við 20 mínútna suðu. Eitrið veldur lömun tauga, nánar tiltekið tauga er stjórna augnhreyfingum, kyngingu, tali og öndun. Að sögn landlæknis er lömunin ekki varanleg og sjúklingar, sem komast snemma undir læknishendur ná sér yfirleitt vel. Þeir tveir sjúk- lingar sem hér um ræðir eru á batavegi. - ast. fyrirtækja og fleiri aðila til að unnt verði að ljúka við Reykjanesbraut 8 sem fyrst. Krabbameinsfélagið mun flytja inn í hið nýja húsnæði í lok þessa árs, en það er nú tilbúið undir tréverk og fullfrágengið að utan. Heildarflatarmál hússins er 2640 fermetrar á 5 hæðum, og hef- ur félagið forkaupsrétt á þeim hluta lóðar sem ennþá hefur ekki verið byggt á.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.