Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 05.02.1983, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 5. - 6. febrúar 1983 Oddur og Símon MIÐVIKUi g skrafaöj mt >rims- tæðis- kti að æður g var í fyrir- dreg- ktanir i blað með iknar- nældu til að leggja aráðs- :ykja- il vals lista t voru áfram tin. íni að fram- ndum ifað í skoð-. AB rReykJavlk: ■ Gaðnia Hdp4ó«tr ■ Öbfur Ragnar Gnmvion. Guðrún og fólafur höfðu sætaskipti i Jí forvalinu I— Gudrún sklpar 3. sætið, en lOlafur Ragnar það 4. sem var I uppbótarþinssætl Alþýðubanda- | lasslns f þlnskosnlnsunum 19791 telur hann einn dugmesta I Pað hlýtur að vera Alþýðu- hinamimn ícUnct hanHalaffcm/tnnnm c^rctalrt flol hef ára ar i Er hví „st. „Þ: okl inu 1 vet til bai ( þir aft sig vei sjá á ób Gi öll Hi er an! unr tæ| hvr Svo er að sjá sem Oddur nokk- ur Ólafsson sé einskonar pólitísk- ur aðstoðarritstjóri Tímans og er dugandi maður við klámhöggin. I gær, miðvikudag, sá þessi siðameistari ástæðu til þess að vanda um við blaðamenn Þjóð- viljans fyrir ónákvæmni og hlut- drægni í fréttum af prófkjörum nú að undanförnu og tekur dæmi, sem hann telur styðja þessar á- sakanir sínar. Eru það fréttir Þjóðviljans af prófkjörum Framsóknarmanna í Norður- iandskjördæmi vestra og Abl. í Reykjavík og á Suðurlandi. Á hlutdrægnin m.a. að vera í því fólgin, að lengra mál sé skrifað um prófkjörið fyrir norðan en hin. Lítum nú nánar á þetta. Svartur blettur á tungunni? í fréttinni af prófkjörinu í Reykjavík er greint frá þátttöku í því, röð frambjóðenda og at- kvæðatölum allt upp í 10. sæti. Ég býst við að sá sem skrifaði frétt- ina hafi talið, að í henni væri svo glöggt greint frá úrslitunum sem verða mátti. Og annað mun henni ekki hafa verið ætlað að fela í sér. Um frétt Þjóðviljans af úrslit- unum á Suðurlandi segir Oddur: „Látið er nægja að skýra frá því í þurrpumpulegri frétt Þjóðviljans að Garðar Sigurðsson hafi orðið efstur" en „útreið Baldurs Ósk- arssonar ... er(u) ekki fréttaefni í málgagni þjóðfrelsisins". Hvern- ig er það með Odd þennan, les hann bara fyrirsagnir og leggur svo út af þeim? Það er ekkt nógu gott hjá manni, sem þykist þess umkominn að vanda um við aðra. í frétt Þjóðviljans er nefnilega skýrt frá röð frambjóðenda í fjög- ur efstu sætin og er Baldur í 4. sætinu. Hér er ekki nema tvennt til: Annað hvort les Oddur ekki það, sem hann er þó að leggja út af, eða hann falsar fréttina vísvit- andi. Mig skiptir það litlu hvort heldur er, en hvar er virðingin fyrir lesendum Tímans? Mátti vera ýtarlegri Og þá er það fréttin af próf- kjöri „fulltrúaráðsins" á Norður- landi vestra. Oddi finnst hún allt- of ýtarleg. Að mínu áliti hefðu hún þó mátt vera lengri. Eðlilegt hefði verið að rifja upp tildrög prófkjörsins. En ekki hefði Oddi batnað við það. Er skýrt hefur verið í fréttinni frá úrslitum próf- kjörsins er frá því greint, að er útslit þess lágu fyrir hafi tveir af fimm frambjóðendum neitað að taka sæti á listanum og töluverður slatti af fulltrúunum gengið af fundi. Ætli Oddi hefði ekki fund- ist þetta orðaverð tíðindi, ef þau hefðu gerst hjá einhverjum öðr- um flokki? Stórir spámenn og litlir „Engum hinna minni spá- manna á málgagninu var hleypt í að draga ályktanir af úrslitum forvalsins í Reykjavík", segir stóri spámaðurinn á Tímanum. Hvað á maðurinn við? Frétt er frétt, vangaveltur um fréttina annað, og eftir því sem ég best veit þykir það ekki góð blaða- mennska að blanda slíku saman. Ekki er ég kunnugur innanhúss hjá Tímanum á síðari árum. Þar þekkir Oddur sig auðvitað betur. Vel má vera að þar sé hinum „minni spámönnum" ekki „hleypt í að draga ályktanir" af þessu eða hinu. En ekki var það svo í gamla daga. Ég er nú búinn að starfa við Þjóðviljann á sjö- unda ár og tel mig þekkja þar til a.m.k. jafn vel og Oddur þessi. Aldrei hef ég orðið þess var, að mér sé ekki frjálst að „draga á-' lyktanir" svo sem mér sýnist, enda mundi ég ekki stundinni lengur vinna við slíkt blað. Saknar “viðtalanna“ Oddi þykir það slök frétta- mennska hjá Þjóðviljanum að birta ekki „viðtöl við fram- bjóðendur þá, sem ýmist sigruðu eða töpuðu í forvölum Alþýðubl. í þessum tveim kjördæmum", eins og hin blöðin hafi gert. Jú, ég hefi lesið þessi „viðtöl“, bæði við Alþblm. og aðra. Og hvað segja þau svo? Jú, þeir, sem telja sig hafa fengið sæmilega útkomu segjast ánægðir með sinn hlut og þakka gjarnan stuðninginn. Hin- ir, sem minna báru úr býtum en þeir æsktu, eru miður ánægðir. Fínar fréttir þetta og stórmerki- legar. Ég verð nú að segja það fyrir mitt leyti að ég tel takmörk- uðu rúmi Þjóðviljans betur varið undir annað en slíkar yfir- heyrslur. Sandur og leir Símon Dalaskáld var einu sinni settur á einskonar hressingar- hæli. Þar var hann látinn labba niður í kjallara, moka sandi í poka, bera hann upp á loft og hella þar úr honum niður í eitthvert gaphús. En Símon karl- inn fann það fljótlega út að hann var alltaf látinn bera sama sand- inn og fannst þetta fánýt og fráleit vinnubrögð. Oddur er alltaf að skrifa. Oftast eru greinar hans einhverskonar vanmáttar- geðvonskunöldur út í Þjóðvilj- ann og Alþýðubandalagið. í raun og veru er Oddur alltaf að skrifa sömu greinina líkt og Símon að bera sama sandinn. En munurinn er sá, að Símon áttaði sig fljótlega á tilgangsleysi endurtekningar- innar, en það hefur Oddur enn ekki gert. -mhg r ■ tst Jor nargrei n Áherslur munu breytast Arni Þau framboðsmál sem svo mjög eru til umfjöllunar í blöðum þessa daga minna hvern mann á það, að stutt er í kosningaslag. Og ef að líkum lætur verður sú kosningabarátta með nokkuð svo hefðbúndnum hætti. Það verður með einum eða öðrum hætti tekist á um það, hvernig megi í senn tryggja atvinriu um allt land og koma í veg fyrir óhagkvæmar fjárfesting- ar. Það verður deilt um það hvernig og í hvaða mæli sé hægt að tryggja kaupmátt launa. Margar hugmyndir munu reifaðar um það hvernig hægt sé að framleiða meira til að komast út úr kreppu (sem er reyndar al- þjóðleg). Og þótt hægrisinnar muni ekki tala opinskátt um þá leiftursókn, sem stefnt væri að því að skera niður samneyslu og félagslega þjónustu, þá mun „velferðarkerfið" verða mjög á dagskrá, árásir á það og vörn fyrir það. Vitanlega eru þetta allt meiri- háttar mál sem á landsmönnum brenna. Og sem fyrr segir: Þau munu taka til sín bróðurpartinn af athygli þeirri sem á kreiki verð- ur um kosningar. En það er rétt að minna á það í þessu samhengi, að reynsla þjóða allt um kring, sem og ýmsar raddir sem heyrast í íslenskri umræðu, benda til þess, að ýmsar nýjar spurningar og áherslur verði áleitnari í almennri umræðu hér á landi með hverju misseri sem líður. Aðrir lífshættir Við getum til dæmis búist við vaxandi vantrú á því, að tiltölu- lega efnuð þjóðfélög geti leyst sín efnahagsleg vandamál með því blátt áfram að auka framleiðni, auka afköst, framleiða sig út úr kreppu eins og það heitir. Þess í stað getum við búist við því, að þeim fjölgi mjög á næstu árum, sem telja hagvaxtartrúna löngu komna í blindgötu og að mjög brýnt sé að búa einstaklinga, stéttir og þjóðir undir þá lifnaðar- hætti sem ekki treysta á stöðugt vaxandi kaupmátt - en þurfa samt ekki að vera neitt lakari en þeir sem við höfum búið við. Nema síður væri - vegna þess að nýir Iífshættir gætu bætt verulega við frístundir manna og ýtt undir margskonar frjálsa starfsemi sem er utan við lögmál launavinnu. Nýja tœknin Við getum búist við því, að þeim fjölgi sem leggja áherslu á það, að sú öra tæknibylting sem Bergmann skrifar nú stendur yfir, breyti um margt eðli framleiðslunnar og skipulagi - og sjái í þessum breytingum möguleika á að stórbæta Íífshætti manna, ef rétt er brugðið við þró- uninni. Með öðrum orðum: Ef að hægt er að ná nýrri tækni undan þeim lögmálum auðhringa sem fyrst og fremst stækka her atvinn- uleysingja og skapa djúp á milli þeirra sem vinnu hafa og þeirra seni hefur verið úthýst af vinnu- markaði. Kynslóðir Við getum búist við aukinni spennu og átökum milli þeirra sem hafa þegar „komið sér fyrir“ í efnuðum þjóðfélögum og þeirra sem er vísað frá. Hér er einkum átt við nýja og nýja árganga æsku- manna sem koma að luktum eða mjög þröngum dyrum í starfsleit og ætlaðir eru verri kostir í hús- næðismálum en þeirri kynslóð sem nú er á miöjum aldri. Þessar and- stæður eiga vafalaust eftir að móta mjög hina pólitísku mynd næstu ára. Spurðir fyrst Andspænis þessari þróun munu allir þurfa að hugsa sitt ráð - og ekki síst flokkar sósíalista, hvar sem þeir starfa. Það eru þeirra samtök sem eru fyrst spurð að því, hvers konar framtíðarsýn þeir geti bent á, hvernig þeir vilji svara nýjum vanda með rökum sósíalískrar hefðar, þeirrar hug- sjónar sem hefur á oddi í senn jöfnuð og alhliða þroska einstak- linga. Og því er brýnt að styðja með áhuga og þátttöku hverja þá við- leitni sem upp kemur í helstu samtökum íslenskra sósíalista, Alþýðubandalaginu, til að finna nýjar og opnari leiðir í umræðu og öðru starfi. Á þeirri viðleitni veltur í nyjög ríkum mæli sjálf framtíð sósíalískra hugmynda hér á landi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.