Þjóðviljinn - 05.02.1983, Síða 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin S. - 6. febrúar 1983
Allnokkrirmöguleikarerunú
taldiráaðbreska
ríkisstjórnin rjúfi þing og
boði til nýrra kosninga innan
skamms. MargrétThatcher
hefur að vísu látið í Ijós vilja
sinntilaðsitja út
kjörtímabilið, sem rennur
ekki út fyrr en í maí 1984, en
blikur í loftum fjármála og
efnahags kunna að breyta
þeirri skoðun fyrr en varir.
Víster,aðmargir
þrautreyndir vígamenn í
herbúðum hennar vilja ólmir
boða til kosninga sem allra
fyrst og notfæra sér þannig
gengið sem íhaldsflokknum
ávannst í átökunum um
Falklandseyjar. En staðan í
breskum stjórnmálum er
flókin og erfitt að setja fram
pottþétta spádóma um
hversu flokkum myndi
Leiftursókn Thatchers
er runnin út í sandinn
Ýmsar taktfskar ástæður
valda, að Thatcher og
ráðgjaf ar hennar kunna
að leggjast gegn því að
kosningum verði flýtt
vert undir íhaldinu í skoðanakönn-
unum um fylgi flokkanna, þá sýnir
sagan að veðurskipti í breskum
stjórnmálum eru gjarnan snögg.
Þannig fóru Harold Wilson og
Verkamannaflokkurinn í kosning-
ar 1970 með 12 prósent meira fylgi
en íhaldið, en töpuðu þó laglega
þegar á hólminn kom. Mönnum
sýnist þó koma saman um, að í
þetta skipti þurfi meir en venjulegt
kraftaverk til að Verkamanna-
flokkurinn virini næstu kosningar.
En breskir fréttaspámenn eru allra
manna glámskyggnastir og ekkert
líklegra að þeir hafi rétt fyrir sér nú
en áður.
Séu niðurstöður ýmissa nýlegra
skoðanakannana skilgreindar til
hlítar, þá kemur í Ijós að Verka-
mannaflokkurinn mun að líkindum
standa sig betur en hinir bestu
menn telja. Þessi staðhæfing bygg-
ist á því, að svo virðist sem helstu
stefnumál flokksins njóti stuðnings
meirihluta kjósenda, þótt flokkur-
inn sem slíkur eigi í bili ekki uppá
pallborð nema u.þ.b. 35 prósent
þeirra. Vel skipulög kosningabar-
átta gæti því hæglega snúið þessari
viðtæku samúð með stefnu flokks-
ins upp í fyigí-
farnast í kosningahríð, þó
óneitanlega virðist sem
Verkamannaflokkurinn sigli
ekki gæfulegan byr um
þessar mundir.
Leiftursóknin runnin
út í sandinn
Margt bendir til að þeir ráðgjafa
Thatcher hafi rétt fyrir sér, sem
telja að besta tækifæri íhalds-
flokksins til að vinna þingmeiri-
iiluta á nýjan leik sé að boða til kosn
inga sem fyrst. Flokkurinn hefur
um átta mánaða skeið átt mestu
fylgi að fagna meðal kjósenda, eða
frá því í slagnum um Falklands-
eyjar. Meðan á honum stóð jukust
persónulegar vinsældir Thatchers
verulega, og í stað þess að vera tal-
in helsta fótakefli flokksins er hún
nú íhaldinu hin þarfasta kona. En
kjósendahyllin er fallvölt og því
telja margir að rétt sé að notfæra
sér vinsældir flokks og foringja
áður en þær fjara út.
Að auki horfast nú leiðtogar
íhaldsins í augu við þá óhrekjan-
legú staðreynd, að „leiftursóknin",
sefn átti að gera Bretland aftur að
efnahagslegu stórveldi, er endan-
lega runnin ut í sandinn. Um langt
skeið hafa oddvitar stjórnarinnar
prédikað að efnahagsbatinn sé al-
veg á næst leiti og Thatcher því
staglast á, að flokknum væri hollast
að sitja út kjörtímabilið á enda svo
að fólk gæti sjálft dæmt um ágæti
leiftursóknarinnar.
Vantrú á
Thatcher
En efnahagsbatinn er enn á
leiðinni og í janúar byrjun braut
óvænt á fleyi stjórnarinnar. Breska
pundið féll snögglega, glundroði
braust út í miðstöðvum fjármála-
valdsins og vantrú stórkapítalista á
„efnahagsbata" leiftursóknarinnar
sést best á því, að þeir hafa nú tekið
til við að flytja fjármagn í stórum
Össur
Skarp-
héðinsson
skrifar frá
Bretlandi
stíl útúr landinu. Hvorki meira né
minna en ein biljón sterlingspunda
á mánuði er flutt úr landinu um
þessar mundir. Þessi gífurlegi fjár-
magnsflótti kom Thatcher og spek-
ingum hennar í opna skjöldu og
kollvarpar öllum vonum um snögg-
an bata. Af hans sökum mun gildi
pundsins rýrna enn frekar, verð-
bólgan er byrjuð að vaxa á nýjan
leik og innan tíðar munu afleiðing-
ar fjármagnsflóttans birtast í auknu
atvinnuleysi. Að vonum sækja því
rnargir berserkir íhaldsins fast að
gengið sé til kosninga áður en
atvinnuleysi og lífskjör versna enn
meir og þar með vinsældir flokks-
ins.
Auk þess virðist sem Verka-
mannaflokknum hafi nú loks tekist
að setja niður illskeyttar deilur
niilli hægri og vinstri arma flokks-
ins. Ekki kann það góðri lukku að
stýra fyrir íhaldið sem hefur sann-
ast sagna nærst á misklíð vinstri
vængsins. Fjölmiðlar klifa að vísu á
deilunum kringum hinn trotskíska
Militant hóp, en með litlum
árangri. Fólk er frekar leitt orðið á
rógburði um Verkó.
Kjördœmabreyting
hagnast Ihaldinu
Ýmsar taktískar ástæður valda
að Thatcher og ráðgjafar hennar
kunna að leggjast gegn því að kosn-
ingum verði flýtt. Margrét er sjálf
enn á þeim buxunum, að stefna
hennar beri ávöxt um síðir, og fýsir
því að sitja sem lengst í þeirri von
að langþráður efnahagsbati knýi
loks dyra.
í annan stað virðist sem íhalds-
flokkurinn sé um þessar mundir að
endurvinna t^svert af því fylgi sem
flokkurinn missti á síðasta ári til
hins nýfædda bandalags krata og
frjálslyndra. Það er Ihaldinu af-
skaplega mikilvægt, því að 78 af
þeim 80 þingsætum er naumast
unnust við síðustu kosningar eru í
höndum íhaldsflokksins, sem þarf
því ekki að missa mikið fylgi til
krata svo að Verkamannaflokkur-
inn vinni sætin 78. Jafnframt bend-
ir margt til þess að fylgi bandalags-
ins sé að mestu leyti sótt til íhalds-
ins og því von að hægri vængurinn
vilji endurheimta glataðar sálir
áður en lagt er í slaginn við Verka-
mannaflokkinn.
Síðast en ekki síst standa fyrir
dyrum umdeildar breytingar á
kjördæmaskiptingu. Fólksflutn-
ingar frá innborgum til útborga
undanfarna áratugi hafa valdið því
að tiltölulega mannfá innborgar-
svæði hafa fleiri fulltrúa á þingi en
fjölmennar útborgir. Þessu hefur
staðið til að breyta um nokkurn
tíma, og íhaldinu nú tekist að láta
smíða tillögur, sem auk tilætlaðra
breytinga á kjördæmum, munu
einnig valda því að Verkamanna-
flokkurinn tapar 25 til 35 þingsæ-
tum miðað við úrslit síðustu kosn-
inga. Talsmenn flokksins hafa ekki
1 hyggju að taka slíkum sendingum
baráttulaust og hafa því kallað
dómstóla til liðsinnis. Ekki vill
íhaldið missa svo feitan bita úr aski
sínum og margur Thatcher-gaurinn
tregur að fara í kosningar fyrr en
málið er komið frá dómstólum og
Margrét búin að berja breytingarn-
ar gegnum þingið.
Bandalag krata
og frjálslyndra
úr sögunni?
Skoðanakannanir benda til þess,
að kosningar myndu fyrst og fremst
verða barátta hinna tveggja hefð-
bundnu stórflokka, Ihalds og
Verkamannaflokks. Bandalag
krata og frjálslyndra, sem á fyrra
ári naut fylgis meira en helmings
kjósenda og vann á þeim tíma
hverja aukakosninguna á fætur
annarri, er á jafnri og góðri niður-
leið og nýtur nú ekki stuðnings
nema fimmtungs kjósenda.
Þó kann að fara svo að banda-
lagið setji mark sitt á kosningarnar.
Michael Foot hefur löngum haft á
orði að það sé sögulegt hlutverk
þess að koma stjórn Verkamann-
aflokksins til valda. Margir foryst-
umenn íhaldsins hafa látið í ljós
ugg um að svo verði. í sjálfu sér er
ekki ólíklegt að svo fari, því að eins
og fyrr var sagt þá tekur bandalagið
mun meira fylgi frá íhaldi en
Verkamannaflokknum, og einkum
þar sem fhaldið er veikt fyrír!!
Annar möguleiki er sá, að
bandalagið fái nógu marga þing-
menn til að hvorugur hinna flokk-
anna fái meirihluta. Ef til vill er
það nú eini mögleiki þess til að láta
að sér kveða, því að líklegt er talið
að íhaldið myndi þá reyna að tæla
bandalagið með sér í samsteypu-
stjórn. Fallbyssur á borð við
Edward Heath hafa þegar látið
uppi vilja um slíkt nái enginn
flokkur meirihluta.
Betri staða
en sýnist
Þó að Verkamannaflokkurinn
hafi urn alllangt skeið verið tölu-
Víðtcekt fylgi
við róttæka
stefnu
Sem dæmi má taka, að rúmur
helmingur Breta styður úrsögn
Breta úr Efnahagsbandalaginu,
sem er jafnframt eitt helsta barátt-
umál Verkamannaflokksins, en
andstætt stefnu bæði íhalds og fyrr-
nefnds bandalags. Yfir 47 prósent
vilja amerískar herstöðvar úr
landinu og svipaður fjöldi vill Tri-
denteldflaugarnar fyrir ætternis-
stapa, þvert gegn stefnu Thatcher
og Ihaldsins. Og yfir 64 prósent eru,
sammála flokknum um að leggja
beri meiri áherslu á að útrýma
atvinnuleysi en verðbólgu, enn al-
gerlega andstætt Thatcher. Þetta er
afskaplega mikilvægt, því að líklegt
er, að meira en nokkrar kosningar
síðan 1931 muni næstu þingkosn-
ingar snúast um atvinnuleysi og
atvinnusköpun.
Það er því óhætt að staðhæfa, að
jarðvegurinn er frjór fyrir stefnu
Verkamannaflokksins, og miklar
líkur á að honum farnist betur en
nú er hald djúpviturra spekinga.
Einsog má sjá af framansögðu væri
annað bölvaður aumingjaskapur.
Framkvæmdastjóri
lönnemasamband íslands auglýsir eftir
framkvæmdastjóra. Um er aö ræöa fullt starf.
Æskilegt er aö viökomandi hafi reynslu í fél-
agsmálastörfum og þekki eitthvað til
lönnemahreyfingarinnar og málefna iön-
nema. Umsóknir um starfið ásamt upplýsing-
urr um menntun og fyrri störf skulu hafa bor-
ist skrifstofu INSÍ, Skólavörðustíg 19 Reykja-
vík í síðasta lagi föstudaginn 11. febrúar.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sam-
bandsins.
Iðnnemasamband íslands.
-os
L LANOSVIRKJUN BLÖNDUVIRKJUN Landsvirkjun auglýsir hér með forval vegna byggingar neðanjarðarvirkja Blönduvirkjun- ar. Helstu magntölur eru áætlaðar eftirfarandi: Sprengingar 120.000 m3 Steypa 9.000 m3 Sprautusteypa 4.000 m3 Forvalið er opið íslenskum og erlendum verktökum. Verkið á að hefjast í ágúst 1983. Gert er ráð fyrir, að í apríl nk. verði útboðsgögn send til þeirra fyrirtækja er Landsvirkjun hefur metið hæf til að taka að sér verkið að loknu forvali. Forvalsgögn verða afhent á skrifstofu Lands- virkjunar, Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, frá og með 9. febrúar 1983. Skilafrestur er til 12. mars 1983.