Þjóðviljinn - 05.02.1983, Síða 21
Helgin 5. - 6. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Bakarasveinafélagið 75 ára
Eitt elsta stéttarfélag landsins
Bakarasveinafélag Islands á
75 ára afmæliídag,
laugardaginn 5. febrúar.
Þegar félagið var stofnað árið
1908 voru kjör bakarasveina svo
þröng, bonð saman við ýmsar
aðrar starfsstéttir, að bakarar töldu
sig ekki geta lengur við það unað.
Aðalhvatamaðurinn að stofnun
stéttarfélags var danskur maður
P.O. Andersen að nafni sem um
þær mundir var starfandi í hópi
reykvískra bakarasveina. Ander-
sen var kunnur stéttasamtökum úr
sínu heimalandi og honum var
ljóst, að samtök, sem aðeins væri
efnt til um stundarsakir, meðan
verið væri að þoka fram tilteknum
hagsbótamálum, kæmi að litlu
haldi. Hið eina sem dyggði væri að
stofna varanlegan félagsskap, sem
ynni að staðaldri að bættum kjör-
um stéttarinnar og gerðist samn-
ingsaðili við bakarameistara.
Brýndi Andersen félaga sína til
dáða, og á skömmum tíma vaknaði
mikill áhugi fyrir stofnun stéttarfé-
lags bakarasveina.
Stofnfundurinn var síðan hald-
inn í Þingholtsstræti 9 hinn 5. fe-
brúar 1908 á heimili Guðmundar
Guðmundssonar, bakarasveins.
Voru stofnendur 16, allt íslending-
ar, utan P.O. Andersen.
Efla og vernda
vellíðan og hagsmuni
Samkvæmt 2. grein laga-
frumvarps sem samþykkt var á
stofnfundinum, var tilgangur fél-
agsins sá, „að efla og vernda vell-
íðan og hagsmuni manna á íslandi
er bakaraiðn stunda, halda uppi
rétti þeirra gagnvart vinnuveitend-
um og öðrum stéttum að svo miklu
leyti sem unnt er að tryggja bök-
urum sæmilega lífsstöðu í fram-
tíðinni. Enn fremur að styðja af
megni að öllu því, sem lýtur að full-
komnun og framförum í bak-
araiðn."
A stofnfundi var Sigurður Á.
Gunnlaugsson kjörinn formaður
félagsins, Kristján P.Á. Hall ritari
og Kristinn Þ. Guðmundsson
gjaldkeri.
Eitt fyrsta verk félagsins var að
semja við bakarameistara um
lengd daglegs vinnutíma, kaup-
gjald og kjör bakaranema. Gekk
lengi í miklu þófi við að fá bak-
arameistara til að viðurkenna hið
Mikil
fjölgun í
bakara-
stéttinni
í dag eru 106 bakarar félagar í
Bakarasveinaféiagi Islands. For-
maður félagsins Hermann Arn-
viðarson sagði í samtali við Þjóð-
viljann að mikil tjölgun hefði orðið
í stéttinni á síðustu árum, og sífellt
fleiri legðu nú fyrir sig nám í
bakstri.
Á síðasta hausti tóku 8 bakara-
nemar sveinspróf, og fjöldi er í
námi núna víðsvegar um landið,
þar af tvær stúlkur.
Ekki er að efa að aukinn skiln-
ingur landsmanna á hollmeti og sú
breyting sem orðið hefur á neyslu-
venjum á síðustu árum hefur
hleypt miklum fjörkipp í bakara-
stéttina sem framleiðir
fjölbreyttari vörur en áður tíðkað-
ist, brauðvörur sem standa erlendri
vöru fyllilega á sporði. Það fer því
vel á því að óska bökurum alls hins
besta í framtíðinni og urn leið til
hamingju með stórafmæli síns
stéttarfélags sem hefur oftar en
ekki verið leiðandi afl í réttinda-
baráttu launafólks.
- is-
XEROX
LEIÐANDI MERKI í LJÓSRITUN
NON HF.
Síöumúla 6, S:84209 - 84295
RANK XEROX umboöið
Átti í lengsta
verkfalli sem
um getur
í íslenskri
verkalýðs-
baráttu
nýja félag sem samningsaðila.
Vildu þeir að sjálfsögðu halda
fornum hætti, að semja við einstak-
linga um þau kjör, er þeim sjálfum
þóknaðist að bjóða. En samtök
bakarasveina reyndust furðutraust
í fyrstu lotu, og var fyrsti samning-
ur félagsins við bakarameistara
gerður í maí 1908.
Lengsta verkfall
á íslandi
Lengsta verkfall sem háð hefur
verið hér á landi og jafnframt eitt
það sögulegasta, var kjaradeila
bakarasveina við bakarameistara
árið 1957. Verkfallið hófst í byrjun
maímánaðar og stóð samfleytt í 101
dag.
Strax uppúr áramótunum 1957
fór að gæta megnrar óánægju hjá
bakarasveinum vegna þess hve þeir
töldu sig hafa dregist aftur úr öðr-
um sambærilegum stéttum
iðnaðarmanna um kaup og ýmis
hlunnindi. Alþýðusamband ís-
lands hafði lýst sig andvígt almennri
uppsögn kaupsamninga að svo
stöddu og var því lítils stuðnings að
vænta úr þeim herbúðum. Bakara-
sveinar létu ekki deigan síga og að
undangenginni allsherjaratkvæða-
greiðslu var samningum sagt upp.
Verkfallið stóð allt sumarið og
var félaginu bæði erfitt og kostn-
aðarsamt. Að lokum vannst þó
sigur og bakarasveinar náðu fram
töluverðum kjarabótum.
Hún er glæsileg brauðvaran hjá íslensku bakarastéttinni. Það er Brynjar Sveinsson bakarasveinn sem heldur
á hinu daglega brauði. Mynd -eik.
Ófrjálsir menn háðir
geðþótta húsbœnda sinna
Það er fróðlegt að rifja upp hér íu
lokin hver kjör bakarasveina voru í
kringum síðustu aldamót fyrir
stofnun stéttarsamtaka þeirra.
Stofnendur fyrstu brauðgerðar-
húsanna hérlendis voru flestir er-
lendir menn og fylgdu þeir svip-
uðum venjum um kjör og
tíðkuðust í nágrannalöndum. Um
aldamótin voru kjör sveina hér
þau, að þeir fengu 10 kr. í kaup á
viku og höfðu fæði og húsnæði hjá
húsbónda sínum. Vinnutími var
engum takmörkunum háður, held-
ur urðu sveinarnir að vinna svo
lengi sem yfirboðarar þeirra
kröfðust, hvort heldur var á nóttu
eða degi, helga daga eða rúmhelga.
Þá tíðkaðist það einnig, að þeir
voru látnir vinna öll störf, sem fyrir
komu á heimilinu og í
brauðgerðarhúsi, þótt ekki væru
þau bakstursstörf. Sérstakt kaup
fyrir nætur- og helgidagavinnu
Núverandi stjórn Bakarasveinafélagsins skipa, talið f.v. Hermann Arnviðarson form. Sigurður Sigurjóns-
son gjaldkeri, Guðmundur P. Jónsson meðstjórnandi, Sturla Birgisson varaformaður og Styrmir Bragason
ritari.
þekktist ekki. Meðan sveinar áttu
við þessi kjör að búa, voru þau að
heita mátti ófrjálsir menn, alger-
lega háðir geðþótta húsbænda
sinna. Mátti heita að þeim væri ó-
kleift að koma sér upp eigin heimili
eða lifa sjálfstæðara lífi en hver
önnur vistráðin hjú.
Á þessu varð engin breyting
fram til ársins 1908, að stéttarfélag
bakarasveina var stofnað. Það átti
sem önnur stéttarfélög við ærinn
andblástur að etja í upphafi, fulian
fjandskap af hálfu ýmissa atvinnu-
rekenda og skilningsskort í eigin
röðum. En þrátt fyrir margvtslega
erfiðleika sem frumherjarnir urðu
að ganga í gegnum, var það merki
hafið, sem vinnustéttirnar hófu að
fylkja sér undir til sóknar og varnar
á sviði kjara- og réttindabaráttu.
(- Ig. tók saman úr riti
Gils Guðmundssonar um
Bakarasvcinafélag íslands)