Þjóðviljinn - 05.02.1983, Side 23
Helgin 5. - 6. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23
Einn þeirra íslendinga sem hvað lengst hafa náð í
heimi atvinnuknattspyrnunnar á undanförnum árum er
Valsmaðurinn fyrrverandi, Jóhannes Eðvaldsson.
Hann lék um árabil með skoska stórliðinu Glasgow
Celtic við góðan orðstír og var á þeim tíma fyrirliði
íslenska landsliðsins. Margir landsleikja hans eru
minnisstæðir, hver man ekki eftir markinu glæsilega
sem hann skoraði gegn Austur-Þjóðverjum á Laugar-
dalsvellinum 1975? Frá Skotlandi lá leið „Búbba“ til
Bandaríkjanna þar sem hann lék með/Tulsa Roug-
hnecks og síðan til vestur-þýska 2. deildarliðsins Hann-
over 96. Jóhannes er nú kominn á fertugsaldurinn og
það kom ýmsum á óvart í haust er hann freistaði á ný
inngöngu í skosku úrvalsdeildina og gekk þar til liðs við
nýliðana Motherwell. Eins og sjá hefur mátt á íþrótta-
síðum dagblaðanna hefur honum vegnað mjög vel þar,
ekki síst nú síðustu vikurnar og hefur hann hrundið
öllum hrakspám um að ferill hans í knattspyrnunni sé á
enda. Það hefur meira að segja verið rætt um hvort ekki
væri rétt að fá hann til liðs við landsliðið á ný. Enska
knattspyrnutímaritið „Shoot“ ræddi á dögunum við Jó-
hannes og fer sú grein hér á eftir í lauslegri þýðingu.
Jóhanncs hefur margoft stýrt íslcnska landsliðinu á ferli sínum, og nú ræða menn um að fá hann í liðið á ný
„Allt er mögulegt þar sem
Wallaceer
við stjórn”
Þýtt viötal viö Jóhannes
Éövaldsson fyrrum fyrirliöa
landsliösins í knattspyrnu
Jóhannes Eðvaldsson, íslenski
landsliðsmaðurinn, hefur að
undanförnu leikið knattspyrnu í
Bandaríkjunum og Vestur-
Þýskalandi en er nú kominn á ný til
landsins sem hann kallar nú sitt
heimaland: Skotlands! Jóhannes,
fyrrum vinsæll leikmaður hjá Celt-
ic, hefur snúið aftur til úrvals-
deildarinnar og segir: „Það er stór-
kostlegt að vera kominn aftur-4.
„Motherwell hefur átt í vand-
ræðurn með að aðlaga sig að úrvals-
deildinni eftir að hafa sigrað í 1.
deild í fyrra en nú er allt á réttri
leið. Jock Wallace hefur breytt
liðinu talsvert frá því f fyrra. Auk
mín keypti hann Ally Mauchlen frá
Kilmarnock og fékk Bobby Flavell
frá Hibernian í skiptum fyrir Willie
Irvine. Fyrir utan þetta hefur hann
ekki getað notað reynda leikmenn
í búningi Motherwell: „Aftur far-
inn að hafa gaman af knattspyrn-
unni“.
eins og Brian McLaughlin og minn
gamla félaga frá Celtic, Alfie
Conn. sem hafa báðir verið
meiddir. Þetta er erfitt en við leggj-
um okkur allir fram eins og við
getum. Jock Waliace sér um það!"
Jóhannes, Wallace og Conn
kornu saman síðast fyrir sex árunt
undir „dramatískum" kringum-
stæðunr: úrslitaleik skosku bikar-
keppninnar á Hampden Park í
Glasgow þar sem Celtic og Ran-
gers mættust í sögulegum leik.
„Alfie og ég lékurn báðir þann
leik með Celtic og Wallace hélt þá
um stjórnvölinn hjá Rangers. Við
sigruðunt 1-0 og ég átti þátt í eina
marki leiksins", segir Jóhannes.
Stuttu eftir þann leik fór Walla-
ce til Leicester City og Jóhannes til
Bandaríkjanna. Nú eru görnlu
andstæðingarnir orðnir samherjar
á Fir Park.
Reyndar á lið Motherwell í dag
margt að sækja til gömlu stór-
liðanna, Celtic og Rangers.
Aðstoðarmaður Wallace er Frank
Connor, fyrrum markvörður hjá
Celtic, Brian McLaughlin hefur
einnig leikið með þeim græn/hvítu,
svo og Tommy O’Hara, annar lyk-
ilntaður hjá Motherwell sem einnig
hefur komið við í bandarísku
knattspyrnunni. Vinstri bak-
vörðurinn Alex Forsyth lék áður
með Rangers, Partick og Manc-
hester United en er nú kominn
Undir stjórn Jock Wallace á ný.
„Auk nokkurra reyndra leik-
ntanna eigum við talsvert af ungum
og efnilegum strákum. Nú er málið
að ná réttu jafnvægi í liðið", segir
aukvisar að í úrvalsdeildinni. Ef þú
heldur velli hér, ertu boðlegur hvar
sem er, svo mikið veit ég af feng-
inni reynslu.
Ég er aftur farinn að hafa gaman
af knattspyrnunni og er ánægður
með að vera kominn til Skotlands á
ný. Við hjónin dveljumst í Burnsi-
de í Lanarkshire, rétt utan við
Glasgow og þetta er allt saman
mjög ánægjulegt. Konan mín er
skosk svo hún er að sjálfsögðu líka
mjög fegin að vera komin heirn.
Fólk hér í Skotlandi er einstaklega
vingjarnlegt. Mér var meira að
segja fagnað á Parkhead, lieima-
velli Celtic, þegar Motlierwell lék
þar í deildinni í haust.
Það yrði reglulega gaman að ná
góðum árangri með Motherwell í
vetur. Þarsern herra Wallace er við
stjórn er allt mögulegt!"
Hér lýkur greininni í Shoot og
litlu cr við hana að bæta. Motherw-
ell hefur mjög verið að sækja sig
síðustu vikurnar, hefur m.a. lagt
bæði Celtic og Rangers að velli
með stuttu millibilli það sem af er
árinu. Samt er liðið enn í næst
neðsta sæti úrvalsdeildarinnar en
hefur sömu stigatölu og næstu tvö
lið fyrir ofan. Það er því erfiður en
spennandi síðari hluti þessa keppn-
istímabils sem bíður Jóhannesar
Eðvaldssonar og félagaá Fir Park,
þeirra markmið er að halda sér í
hópi þeirra tíu bestu í Skotlandi og
bóka má að Valsmaðurinn gamli
lætur sitt ekki eftir liggja í þeirri
baráttu frekar en endranær. - VS
Einbýlishúsalóðir
Hafnarfjaröarbær mun á næstunni úthluta
lóöum í Sétbergi. Um er aö ræöa 83 lóðir
einkum fyrir einbýlishús en einnig nokkur
raöhúsog parhús. Lóðirnarveröabyggingar-
hæfar sumarið 1983.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
bæjarverkfræöings, Strandgötu 6 þ.m.t. eru
gatnagerðargjöld, upptökugjöld, byggingar-
skilmálar o.fl.
Umsóknum skal skila á sama staö á eyðu-
blöð sem þar fást eigi síðar en 25. febr. n.k.
Eldri umsóknir þarf aö endurnýja.
Bæjarverkfræðingur.
Lausar stöður
hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa.
Starfskjör skv. kjarasamningum.
• Staða hjúkrunarfræðings við heimahjúkrun.
• Staða aðstoðarmanns við skólatannlækningar
Reykjavíkurborgar. Hlutastarf.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá
menntun og starfsreynslu auk almennra persónulegra
upplýsinga.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Heilsu-
verndarstöövar Reykjavíkur í síma 22400.
Umsóknareyðublöö liggja frammi í afgreiðslu heilsu-
verndarstöövarinnar.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, fyrir kl. 16.00
miðvikudaginn 16. febrúar 1983.
Jóhannes. „Það komast engir