Þjóðviljinn - 05.02.1983, Qupperneq 32
DWÐVIUINN Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess A Xoleími tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir ■ - 81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma Qt 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt Ajr öll kvöld. Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Helgin 5. — 6. febrúar 1983
Ráðherrar Framsóknar hafna einhliða aðgerðum gegn Alusuisse
Málið verður lagt
fyrir þing og þjóð
segir Hjörleifur Guttormsson
Það er greinilegt, að formaður Framsóknarf lokksins hefur
ekki mikinn hug á að láta sverfa til stáls gegn Alusuisse.
Hann kýs fremur að beina vopnum sínum að mér og láta
sverfa þartil stáls, sagði Hjörleifur Guttormsson,
iðnaðarráðherra þegar Þjóðviljinn innti hann í gær eftir
umræðum um álmálið á ríkisstjórnarfundi s.l. fimmtudag,
-en samkvæmt frétt á forsíðu Tímans í gær láta
Framsóknarmenn í ríkisstjórninni nú „sverfa til stáls í
álmálinu“ innan ríkisstjórnarinnar.
Hjörieif ur Guttormson sagði:
Alþingi mun gefast kostur á að fjalla um tillögu mína um
einhliða hækkun á raforkuverði til álversins, fyrst
Alusuisse heldur fast við þá afstöðu að neita að fallast á
viðunandi hækkun í samningum. Og það er þjóðin sem
síðan mun dæma.
Formaður Framsóknarflokksins segist bara vilja halda
áfram því samningaþófi, sem staðið hefur yfir í tvö ár, og
að við bjóðum Alusuisse þetta og hitt í forgjöf án þess að
Alusuisse hafi samþykkt eyrishækkun á raforkuverðinu.
Hann vill ekki gera kröfu um somasamlega
byrjunarhækkun að neinu skilyrði í samningum af okkar
hálfu, heldur fallast á skilyrði Alusuisse.
Fyrst þetta er afstaða formanns Framsóknarflokksins þá
verða þing og þjóð að skera úr.
Gunnar og Steingrímur
ekki sámmála
Það kom greinilega fram á
ríkisstjórnarfundinum, að þótt
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, væri ekki reiðubúinn til
að mæla með því nú, að þetta
frumvarp mitt verði flutt sem
stjórnarfrumvarp, þá var afstaða
hans í veigamiklum atriðum allt
önnur en Steingríms.
Forsætisráðherra tók m.a.
skýrt fram, að við ættum alls ekki
að gefa Alusuisse neitt undir fót-
inn varðandi þær kröfur, sem
fulltrúar fyrirtækisins hafa borið
fram, meðan Alusuisse fellst ekki
á sanngjarna byrjunarhækkun
raforkuverðs og áfangahækkanir
í framhaldi af því. - Og þetta er
auðvitað það meginatriði, sem
allir samningar hafa strandað á,
þótt Steingrímur Hermannsson
reyni að snúa málunum öfugt.
Hjörleifur Guttormsson
Alusuisse hefur ekki viljað fallast
á nokkra minnstu hækkun raf-
orkuverðsins, og þess vegna hef-
ur ekki verið um neitt að semia.
Mun færa málið inn
á vettvang Alþingis
Ég tel að á ríkisstjórnarfundin-
um í fyrradag hafi gerst mikil og
alvarleg tíðindi, þar sem ráðherr-
ar Framsóknarflokksins höfnuðu
tillögum mínum, um einhliða
aðgerðir til leiðréttingar á orku-
verðinu til Alusuiss. Þetta orku-
verð er nú 12,1 eyrir á kwst., en á
sama tíma er almenningsraf-
veitunum gert að borga 65,40
aura fyrir kílówattstundina.
Tillaga mín um þetta efni var
lögð fram í ríkisstjórninni í síð-
ustu viku, en fyrir einum og hálf-
um mánuði lagði ég fram í ríkis-
stjórninni ábendingar um nokkr-
ar leiðir til að ná fram leiðrétt-
ingu á raforkuverðinu til ísal og
lögfræðilegar greinargerðir mál-
inu til stuðnings.
Engar undirtektir hafa fengist
við þessum ábendingum og engar
tillögur til breytinga á tillögu
minni hafa komið fram innan
ríkisstjórnarinnar. Einu
viðbrögðin eru neitun á stuðningi
við einhliða aðgerðir af hálfu
Framsóknarráðherranna og svo
yfirklór frá Steingrími, þar sem
hann vill nú m.a. fara að stofna til
nýrrar álviðræðunefndar tveimur
mánuðum eftir að Guðmundur
G. Þórarinsson stökk útúr slíkri
nefpd og þingflokkur Framsókn-
ar lýsti yfir stuðningi við hann og
neitaði að skipa annan fulltrúa í
hans stað.
Ég áskilid mér í ríkisstjórninni
allan rétt til að færa málið inná
vettvang Alþingis til að tillögur
mínar og málsmeðferð lægju þar
skýrt fyrir, og þingið geti fjallað
um málið með skilmerkilegum
hætti og þingmenn eigi aðgang að
þeim gögnum, semég reisi mála-
fylgju mína á.
Steingrímur aö hlaupast
undan merkjum
Afstaða Framsóknarráðherr-
anna nú dregur vissulega dám af
vinnubrögðum Guðmundar G.
Þórarinssonar, en ég hafði vonað
að ráðherrarnir eltu hann ekki út
í ófæruna til stórtjóns fyrir ís-
lenskan málstað. Þessi viðbrögð
ráðherranna með Steingrím í far-
arbroddi eru þeim mun sérkenni-
legri, sem ríkisstjórnin sam-
þykkti í ályktun, sem gerð var 26.
febrúar 1982 varðandi meðferð
deilumála og endurskoðun samn-
inga við Alusuisse, eftirfarandi
um aðrar leiðir í málinu:
„Ef ekki reynist unnt að fá sam-
þykki Alusuisse og hefja án tafar
viðræður á ofangreindum grund-
velli, áskilur íslenska ríkisstjórn-
in sér alian rétt til að fara eigin
leiðir til þess að ná fram nauðsyn-
legum breytingum á gildandi
samningum.“
Síðan er nær heilt ár liðið og
fullreynt er, að Alusuisse vill ekki
ganga til móts við lágmarkskröf-
ur íslenskra stjórnvalda til
leiðréttingar á samningunum.
Talsmenn Framsóknar hafa ein-
mitt gagnrýnt það að hægt gangi í
þvf efni, en nú neita þeir að beita
þeim vopnum sem ein eru líkleg
til að ná fram leiðréttingum á
þessum fráleita samningi. Þetta
eru alvarleg tíðindi, sem erfitt
verður fyrir að bæta, því að jafn-
hliða leggur formaður Framsókn-
arflokksins til að gengið verði
strax að kröfum sem Alusuisse
hefur heimtað sér til hagsbóta,
svo sem um að fá að taka nýjan
hluthafa með 50% eignarhlut inn
í álverið.
Kaldar kveöjur til fólks
sem borgar brúsann
fyrir Alusuisse
Þetta eru kaldar kveðjur til
samstarfsaðila í ríkisstjórn, sem-
lagt hafa sig fram um að ná sem
víðtækastri samstöðu í þessu stór-
máli, en enn kaldari eru þær til
þess fólks sem nú ber síhækkandi
byrðar af skattlagningu almenn-
ings í þágu Alusuisse. A þetta
öðru fremur við þá sem hita þurfa
híbýli sín með raforku, en auk
þess þarf að verja um 100 miljón-
um króna í niðurgrciðslu á raf-
orku úr ríkissjóði til að draga
sárasta broddinn úr núverandi
misrétti í húshitunarmálum.
Hjörleifur sagði að hann
myndi nú undirbúa málið til
framlagningar á Alþingi, auk
þess sem hugað verður að öðrum
þáttum er snerta viðskiptin við
Alusuisse og eru á valdi íslenskra
stjórnvalda.
75 ára í dag
Bakaras veinafélag Islands á 75 ára
afmæli í dag, en félagið er eitt elsta
stéttarfélagIlandinu. í blaðinu í
dag er skýrt frá aðdragandanum að
stofnun félagsins og gripið niður í
sögu félagsins, sem m.a. hefur átt í
lengsta verkfalli sem háð hefur
verið hérlendis. Þessi mynd var
tekin í Bakarameistaranum í
Suðurveri í gær, þar sem þessir
frísku sveinar voru að störfum.
Talið frá v. Brynjar Sveinsson,
Sveinbjörn Gunnarsson og Bo
Walder sem er eini danski
> bakarasveinninn í félaginu um
þessar mundir. - My nd - eik.
Efling verkamannabústaða frá 1980:
Byrjað á 583 íbúðum
á aðeíns þremur árum
1970-’80 voru byggðar 84 íbúðir á ári!
Gífurleg aukning hefur orðið í
byggingum verkamannabústaða
víða um land á undanförnum
árum. A síðasta áratug voru
byggðar 842 íbúðir í vcrkamanna-
bústöðum á landinu öllu eða 84 á
ári til jafnaðar. Með nýju lögunum
um Húsnæðisstofnun og eflingu fé-
lagslegra íbúðabygginga urðu hins
vegar þáttaskil. Síðan lögin tóku
gildi hafa verið hafnar fram-
kvæmdir við 583 íbúðir í 38
sveitarfélögum, þar af eru 40 leiguí-
búðir í eigu sveitarfélaganna. Um
áramótin síðustu var búið að af-
henda 158 íbúðir og eru því nú í
byggingu 425 verkamannabústaðir
og lciguíbúðir svcitarfélaga víða
um land.
Hlutfall lána Húsnæðisstofnunar
til nýrra íbúða hefur farið stöðugt
vaxandi síðustu árin og er þá miðað
við byggingarkostnað svonefndrar
vísitöluíbúðar. Árið 1978 var
lánshlutfallið 30.8%, árið 1979
33.5%, árið 1980 30.4%, 1981
32.7% og á síðasta ári náði þetta
hlutfall 35.5% af byggingarkost-
naði íbúðarinnar. Þetta kemur
fram í grein Ólafs Jónssonar for-
manns stjórnar Húsnæðisstofnun-
ar í blaðinu í dag.
Ólafur minnir á í grein sinni að
fjárhagsgrundvöllur húsnæðislán-
anna sé of veikur og að hann verði
að treysta ef Húsnæðisstofnun
ríkisins eigi að geta gegnt hlutverki
sínu í þjóðfélaginu. Liður í þeirri
eflingu er 100% hækkun framlaga
ríkissjóðs til Byggingasjóðs ríkisins
1983 frá fyrra ári.
Sjá grein Ólafs Jónssonar á bis. 4
í blaðinu í dag.
- v.
Alþýðubandalagið:
Miðstjórnar-
fundur 11. feb.
Fundur verður haldinn í
miðstjórn Alþýðubandalags-
ins föstudaginn 11. febrúar kl.
20 í Sóknarsalnum Freyjugötu
27. Fundinum verður fram
haldið á sama stað kl. 10
laugardaginn 12. febrúar.