Þjóðviljinn - 12.02.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.02.1983, Blaðsíða 1
SUNNUDAGS 32 DJOÐVIUINN BLADID Helgin 12.-13. febrúar 1983. 35.-36. tb. 48. árg. Fjölbreytt lesefni um helgar Verð kr.15 Samsýningar ungra listamanna. Halldór Runólfsson skrifar gagnrýni Framtíðin 100 ára, uppeldisfélag upprennandi stjórnmálamanna 13 Allan Morthens spurður út úr um Unglingaheimili ríkisins Gömlu deilumálin við Alusuisse gerð upp: 127 miljónir kr. í skatta af 683 miljóna duldum tekjum Einhliða aðgerðir íslenskra stjórnvalda, byggðar á niðurstöðum færustu sérfræðinga Fjármálaráðuneytið hefur skuidfært íslenska álfé- lagið, dótturfyrirtæki Alusuisse, um samtals 6.6 milj- ónir bandaríkjadala eða 127 miljónir íslenskra króna vegna endurákvörðunar á framleiðslugjaldi félagsins 1976-1980. - 2 miljón króna inneign ísal hjá ríkissjóði þurrkast út og eftir stendur 35 miljón króna skuld félagsins við ríkissjóð. Eru þá ekki meðtaldir vextir af inneigninni frá upphafi árs 1971. Vantalinn hagnaður hjá álverinu á tímabilinu 1975-81 reyndist samkvæmt athugunum nema 35.8 miljónum banda- ríkjadala sem jafngildir 683 miljónum íslenskra króna í dag. Þessi duldi hagnaður á rætur að rekja til rangrar verðlagn- ingar á súráli og rafskautum auk meðferðar á afskriftum. Skattur er reiknaður af þessum 683 miljónum króna og er niðurstaðan 127 miljóna króna hækkun á sköttum þessara ára. „Hér er auðvitað um einhliða aðgerð íslenskra stjórnvalda að ræða og farið að íslenskum lögum. Með þessari niður- stöðu er endurskoðun á vantöldum hagnaði Islenska álfél- agsins lokið“, sagði Ragnar Arnalds fjármálaráðherra. „Réttur íslendinga til að endurákvarða skatta á ísal er ótví- ræður og um það hefur ekki verið ágreiningur. Þessi endur- ákvörðun hefur nú átt sér stað“, sagði Hjörleifur Guttorms- son iðnaðarráðherra á blaðamannafundinum í gær. Sjá frétt- ir á bls. 3 í blaðinu. -v. Sjá 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.