Þjóðviljinn - 12.02.1983, Blaðsíða 31

Þjóðviljinn - 12.02.1983, Blaðsíða 31
Helgin 12. - 13. febrúar 1983 Fargjöld SVR hækka í dag: Helgin 12. - 13. febrúar 1983 ÞJÓBVILJINN - SÍÐA 31 Engin afsláttar- kort verða seld í dag hækka fargjöld Strætis- vagna Reykjavíkur um 25%, - far- gjöld fyrir fullorðna hækka úr 8 krónum í 10 og barnafargjöld úr 2 krónum í 2,50. Engin afsláttarkort verða seld nema til aldraðra og ör- yrkja. Bráðabirgða- lögin afgreidd á mánudag Eftir langar ræður og nokkurt þóf var umræðu í neðri deild al- þingis um bráðabirgðaiög ríkis- stjórnarinnar slitið kl. 19.00 í gær- kveldi. Það var Sverrir Hermannsson, sem hafði verið fjarverandi þing- störf, sem sleit fundi og upplýsti að tekist hefði gott samkomulag um að afgreiða lögin nk. mánudag. -óg. „Á fundi verðlagsráðs s.l. miðvikudag voru afgreiddar hækk- unarbeiðnir frá Landleiðum og Strætisvögnum Kópavogs", sagði Sveinn Björnsson formaður verka- lýðsráðs í samtali við Þjóðviljann í gær. Var einróma samþykkt 25% hækkun á fargjöldum þessara fyrir- tækja og jafnframt samþykkt að Strætisvögnum Reykjavíkur og Akureyrar væri heimilt að hækka sín fargjöld upp að þessu marki. -ÁI Leiðrétting Nafn Kristjáns Benediktssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokks- ins féll niður í frétt Þjóðviljans í gær þar sem skýrt var frá því hverjir hefðu stutt kaupin á Doppelmayer skíðalyftu í Bláfjöllin. 13 greiddu atkvæði með: 11 borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins (allir nema Al- bert Guðmundsson) og þeir Sigur- jón Pétursson og Kristján Bene- diktsson. Leiðréttist þetta hér með. ólafur Ragnar Grímsson þingflokksformaður Höggva verð- ur á hnútinn næstu daga Við viljum ljúka þessum þing- störfum sem allra fyrst, sagði Ólafur Ragnar Grímsson þing- flokksformaður Alþýðubandalags- ins í viðtali við Þjóðviljann í gær. - Staðreyndin er sú að í þinginu hefur ríkt pattstaða um margra mánaða skeið. Ríkisstjórnin og meirihluti hennar hefur ekki fengið málum fram í neðri deild einsog þingræðiskefið nú er. Þetta er að sjálfsögðu óþolandi ástand og allir þingflokkar hljóta að vilja höggva á hnútinn sem allra fyrst, svo hægt sé að rjúfa þing og boða til kosn- inga. - Þá má benda á að ríkisstjórnin er í sjálfu sér sundurþykk og við Alþýðubandalagsmenn höfum engan áhuga á að vera negldir upp við ríkisstjórn sem samþykkir eng- in stórmál sem við viljum og teljum þjóðfélagslega nauðsynlegt að nái fram að ganga. - Ég tel því nauðsynlegt að nú verði hendur látnar standa fram úr ermum, reynt verði að ná meiri- hlutasamkomulagi um gang þeirra mála sem verða að fá afgreiðslu þingsins og síðan verði þing rofið einhvern allra næstu daga og boðað til kosninga. - Atvinnulífið og pólitískt ástand í landinu leyfir ekki að þingið starfi lengur í þófi heldur en þegar hefur orðið. Það er nóg komið af svo góðu. - Um kjördæmamálið eitt og sér er það að segja að ég tel að ekki sé um annað að ræða en þeir flokkar sem eftir margra mánaða samning- aþóf hafa komist niður á sam- komulag eftir margvíslegar mála- miðlanir; þeir eigi einfaldlega að leggja fram frumvarp strax. Það er búið að ræða þetta fram og aftur og auðvitað eru aldrei allir sammála. I framtíðinni tel ég að sé rétt, að þar- til gerð nefnd eða stofnun sjái um að koma fram með tillögur um breytta kjördæmaskipan og kosn- ingalög í samræmi við þjóðfélags- þróun. Þannig gerist þetta yfirleitt með öðrum þjóðum. En umfram allt verður að ljúka þessu þingi strax, svo hægt sé að byrja af alvöru að vinna að myndun starfshæfrar ríkisstjórnar og lausn efnahags- mála, en vandinn stækkar með hverjum deginum, sagði Ólafur Ragnar Grímsson að lokum. -óg Hér lítum við yflr sameiginlega hluta sýningarinnar. - Ljósmynd: ÓK Sýning í Hagaskóla: Tilbreyting frá skólavinnu Nú stendur yfir í Hagaskóla sýn- ing á verkefnum nemenda í 7., 8. og 9. bekk. Sýningin skiptist í þrjá flokka: 7. bekkur er með verkefnið „Við og umferðin“, 8. bekkur með verkefn- ið „Sjávarútvegur“ og loks er blandað verkefni úr öllum bekkj- Verkefni 7. og 8. bekkjar byggist á kartonvinnu og myndum og hafa þau unnið að því í 4 daga. Blandaða verkefnið er hins vegar árangur nemenda í allan vetur í handavinnu og ljósmyndun. Flestum krökkunum fannst þetta skemmtilegt verkefni og til- breyting frá venjulegri skólavinnu. RJS/ÓK Óiafur Ragnar Grímsson. Verður að Ijúka þingstörfum sem allra fyrst. Ú tf lu tningsgjaldið: Ekld tekið við sölu erlendis Frumvarpið um Ofíusjóð fiski- skipa varð að lögum frá efri deild í gær. Meðal nýmæla og breytinga sem orðið hafa á þcssum bráða- birgðalögum er, að fellt var niður að taka útflutningsgjald af óskipt- um afla við sölu fiskiskipa erlendis, en Garðar Sigurðsson alþingis- maður hafði frumkvæði að þessari breytingu í neðri deild. Ennfremur var samþykkt ákvæði til bráða- birgða um skipun fjögurra manna nefndar til að endurskoða lögin um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Einnig á nefndin að kanna hvort og á hvern hátt olíuöflunarsjóður geti orðið að liði í þessu sambandi svo og hvort hljómgrunnur sé fyrir breyttu og bættu launafyrirkomu- lagi fiskimanna. - óg Frumvarp um málefni fatlaðra nái fram Samráðsnefnd um málefni fatl- aðra hefur fagnað því að frumvarp um málefni fatlaðra hefur nú verið lagt fram á Alþingi á ný með breytingum Félagsmálanefndar neðri deildar og breytingartillögum Samráðsnefndarinnar, sem fylgja frumvarpinu. Samráðsnefndin skorar jafnfamt á Alþingi að fylgja þessu máli eftir, þannig að frum- varpið verði gert að lögum á yflr- standandi þingi, svo þetta mikla hagsmunamál fatlaðra nái fram að ganga. Samráðsnefndina skipa Margrét Margeirsdóttir, formaður, fulltrúi félagsmálaráðuneytisins, Arnór Pétursson ritari, fulltrúi BSRB, Halldór Rafnar, fulltrúi Öryrkja- bandalags íslands, Jón Sævar Alfonsson, fulltrúi Sjálfsbjargar Landssambands fatlaðra og Tryggvi Þór Aðalsteinsson fulltrúi AS*- - ekh RÍKISSPITALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN AÐSTOÐARLÆKNAR (2) óskast við lyflækninga- deild til 12 mánaða með möguleika á framlengingu. Önnur staðan veitist frá 20. mars eða eftir nánara samkomulagi. Hin staðan veitist frá 1. júní n.k. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist Skrif- stofu ríkisspítala fyrir 12. mars n.k. Upplýsingar veita yfirlæknar lyflækningadeildar í síma 29000. GEÐDEILDIR RÍKISSPÍTALA HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á deild I Kleppsspítala HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á deild II Kleppsspítala. HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast í hálft starf til næturvakta á deild XIII (Flókagötu 29). HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á ýmsar geð- deildir ríkisspítalanna. DEILDARRITARI óskast í fullt starf á deild 33C cjeð- deild Landspítala. Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir hjúkrunar- forstjóri í síma 38160. Fteykjavík, 13. febrúar 1983, RÍKISSPÍTALARNIR. Heimilishjálp óskast Traust og áreiðanleg kona sem hefur reynslu í um- önnun ungbarna óskast á heimili í Laugarneshverfi, sveigjanlegur vinnutími. Upplýsingar gefa Gunnar og Sigrún í síma 25500. Eiginmaður minn Hermann Guöbrandsson, fyrrv. deildarstjóri hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur lést í Landakotsspítala, gjörgæsludeild 11. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda, Oddný Þórarinsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.