Þjóðviljinn - 12.02.1983, Qupperneq 5
Helgin 12. - 13. febrúar 1983 [ ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Alusuisse fær bakreikning:_____
Skattgreiðshir hækkaðar
um 127 miljónir króna!
Fjármálaráðuneytið hefur
úrskurðað 127 miljón króna
skattahækkun hjá ISAL,
dótturfyrirtæki Alusuisse
hér vegna dulins hagnaðar af
rekstri auðhringsins hér á
landi á árunum 1976-1980 og
hefur fyrirtækið verið skuld-
fært fyrir þeirri upphæð.
Skattainneign auðhringsins
hjá ríkissjóði er því ekki
lengur fyrir hendi en þess í
stað á ríkissjóður inni hjá
dótturfyrirtækinu 35 miljón-
ir íslenskra króna auk vaxta
frá ársbyrjun 1981.
Það var sl. fimmtudag sem fjár-
málaráðuneytið tilkynnti dóttur-
fyrirtæki Alusuisse hér á landi, að
framleiðslugjald félagsins fyrir árin
1977, 1978 og 1979 hefði verið
endurákvarðað á grundvelli
skýrslna frá breska endurskoðun-
arfyrirtækinu Coopers og Lybrand
og gjaldið hækkað um 2.824.645
bandaríkjadali. Áður var búið að
endurákvarða framleiðslugjaldið
fyrir árin 1976 og 1980.
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra afhendir blaðamönnum tilkynninguna Um að skattar á dótturfyrirtæki Alusuisse hér hafi verið hækkaðir um 127
miljónir króna. Talið frá vinstri: Halldór J. Kristjánsson deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu, Hjörleifur Guttormsson, Ragnar Arnalds, Hösk-
uldur Jónsson ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu og Árni Kolbeinsson deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu. Einnig voru á fundinum Halldór
V. Sigurðsson ríkisendurskoðandi og Sveinn Arason deildarstjóri í Ríkis endurskoðun. Ljósm. -eik.
683 miljónum
skotið undan
Endurreikningur framleiðslu-
gjaldsins fyrir umrædd ár er eins og
áður sagði gerður á grundvelli
niðurstöðu sérstakrar endurskoð-
unar hins virta endurskoðunarfyr-
irtækis Coopers og Lybrand á verð-
lagningu súráls og rafskauta til ísal
Ár Súrál Rafskaut AIls
þús/USD þús/USD þús/USD
1975 5.838 1.343 7.171
1976 3.162 962 4.124
1977 679 2.192 2.871
1978 2.532 3.038 5.570
1979 2.279 2.463 4.742
1980 2.160 3.119 5.279
1981 965 717 1.682
Samtals þús/USD 17.605 13.834 31.439
Vantalinn hagnaður Alusuisse:
Sömu upphæðir
og raforkuverðið!
Nokkrar umræður urðu undir
liðnum „þingsköp“ á fundi neðri
deildar alþingis í gær þarsem þing-
menn úr Sjálfstæðis- og Alþýðu-
flokki kvörtuðu undan því, að ekki
væri leyfð umræða utan dagskrár
um ákvörðun um skattamál ísal.
Alexander Stefánsson forseti
deildarinnar (í fjarveru Sverris
Hermannssonar), sagði að
iðnaðarráðherra hefði ekki lýst sig
reiðubúinn til að taka þátt í um-
ræðu utan dagskrár á þessu stigi
málsins og með jafn litlum fyrir-
vara.
Iljörleifur Guttormsson iðnað-
arráðherra sagðist hafa fyrst fengið
beiðni um slíka umræðu um þrjú-
leytið í gær. Auk þessa skamma
fyrirvara hefði fundur deildarinnar
verið boðaður um bráðabirgðalög-
in.
Lýsti Hjörleifur sig reiðubúinn
að taka þátt í utandagskrárumræðu
um þetta mál við lok þessarar um-
ræðu eða hvenær sem væri síðar.
f viðtali við blm. eftir umræðuna
sagði Hjörleifur Guttormsson að
hann hefði m.a. tekið tillit til óska
stjórnarliða um að hefja ekki um-
ræðu inn í miðri umræðu um bráða-
birgðalögin og tefja þannig fram-
gang þeirra.
Sjálfstæðismennirnir Birgir Isl.
Gunnarsson, Olafur G. Einarsson
og fleiri skoruðu á forseta að
breyta afstöðu sinni. Sagði Ólafur
t.d. að Sverrir Hermannsson hefði
orðið við beiðni þingflokks Fram-
sóknarflokksins fyrir nokkrum
dögum um fundahöld. Nú vildi Al-
exander Stefánsson ekki verða við
sams konar beiðni frá þingflokki
Sjálfstæðisflokksins. _
árin 1976-79 og endurskoðunar
sömu aðila á ársreikningum félags-
ins 1980. Niðurstöður breska end-
urskoðunarfyrirtækisins um yfir-
verð á aðföngum til ísal 1975-81
voru eins og fram kemur í með-
fylgjandi töflu. (Upphæðir í þús-
undum Bandaríkjadollara):
Við endurskoðun reikninga
dótturfyrirtækis Alusuisse, komust
bresku endurskoðendurnir suntsé
að þeirri niðurstöðu að verð á súr-
áli og rafskautum til verksmiðjunn-
ar í Straumsvík hafi verið sagt 31.4
miljónum Bandaríkjadölum hærra
á tímabilinu 1975-81 en það í raun
átti að vera samkvæmt samning-
um. Hér er um tæplega 600 miljón-
ir króna á gengi í dag að ræða. Til
viðbótar voru svo ársreikningar
ísal vegna áranna 1980 og 1981
leiðréttir vegna afskrifta um 4.4
miljónir dollara eða um 8^ miljónir
íslenskar krónur til viðbótar. Þess-
ar reikningskúnstir höfðu það í för
með sér að hagnaður ísal sam-
kvæmt framlögðum reikningum
þessi ár var talinn 683 miljónum
króna minni en vera átti. Þar með
lækkuðu skattgreiðslur fyrirtækis-
ins til íslenska ríkisins. Þetta hefur
nú verið leiðrétt.
Álit
Álviðræðunefndar
f þeim endurreikningum sem
fjármálaráðuneytið hefur núna
gert á framleiðslugjaldi, þ.e.
sköttum íslenska álfélagsins í
Straumsvík var einnig stuðst við
álit Álviðræðunefndar sem var sett
fram í bréfi til iðnaðarráðherra, 21.
nóvember 1982 en þar segir m.a.:
„Það er skoðun Álviðræðunefnd-
ar að niðurstöður Coopers & Lyb-
rand séu haldbærasta matið á verð-
lagningu Alusuisse á þessum mikil-
vægu hráefnum til ísal með hlið-
sjón af ákvæðum í grein 27.03 í
aðalsamningi um „viðskipti óháðra
aðila“ og ákvæði í grein 2.03(c) í
aðstoðarsamningi um rekstur, er
kveður á um að Alusuisse skuli
aðstoða ísal við að útvega þau á
„bestu fáanlegu kjörum“.”
Fyrir liggur lögfræðileg álitsgerð
þeirra Benedikts Sigurjónssonar
fyrrverandi hæstaréttardómara og1
Ragnars Aðalsteinssonar hæsta-
réttarlögmanns frá 13. október sl.
um álagningu framleiðslugjalds á
íslenska álfélagið hf. Þeir félagar
komast að þessum meginniður-
stöðurn:
Annars vegar að ein af al-
mennum grundvallarreglum skatt-
aréttar sé að endurákvarða megi
skatt á skattaðila, ef í ljós komi að
honum hafi ekki verið gert að
greiða skatt af öllum tekjum sínum
eða eignum og skipti þá ekki máli
hvort um refsiverða háttsemi sé að
ræða eða ekki.
Hins vegar sé réttur stjórnvalda
til að endurákvarða skatt háður
þeim takmörkunum í fslenskum
skattalögum, að endurákvörðun
geti aðeins náð til skatts vegna
tekna og eigna síðustu sex ára á
undan því ári sem endurákvörðun-
in fer fram. Eðlilegt sé því talið aðl
þessi regla eigi við um framleiðslu-,
gjald ísal og megi endurákvarða!
framleiðslugjald vegna ársins 1976
og síöari ára.
-v.
KVIKMYNDA-
BLAÐIÐ ER KOMIÐ ÚT
Febrúar/mars hefti
kvikmyndablaðsins er
komið á blaðsölustaði
MEÐAL EFNIS:
Spennumyndir.
Fjallað um nýja íslenska kvikmynd „Húsið/
trúnaðarmál“ sem frumsýnd verður í mars.
Myndir á leiðinni í kvikmyndahúsin.
Síðustu fregnir úr kvikmyndaheiminum
og fleira og fleira.
Verð kr. 60.-.
þar sem 683
miljónum hafði
verið skotið
undan skatti
á árunum
1975-1981