Þjóðviljinn - 12.02.1983, Side 11
~»vi u* #fr »r' f.
> #■ r
Helgin 12. - 13. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Daði Guðbjörnsson og 4 glæstar Gullstrandar-myndir.
Þeir Kristinn G. Harðarson og Heigi Þ. Friðjónsson Pólitískt raunsæi fær sitt pláss á Kjarvalsstöðum.
vinna mörg verk saman: „Allt er leyfilegt í nýja mál- Verk eftir Gunnar Karlsson.
verkinu“.
almenningur bersýnilega gert ef
marka má undirtektir þær sem sýn-
ingarnar á Hringbraut 119, „Gull-
ströndin andar“ og Kjarvalsstöð-
um, „Ungir myndlistamenn" hafa
hlotið. Það er mikið fjör og
stemmning kringum þessar sýning-
ar. Þar er málað af hjartans lyst, án
áhyggju um fortíð eða framtíð.
Það er óneitanlega merkilegt að
horfa upp á slíka list frá hendi ís-
lenskra málara. Hingað til hefur
einbeitni og yfirvegun verið alls-
ráðandi í list okkar að fáeinum
undantekningum frátöldum.
Sjálfsprottin tjáningarþörf hefur
aldrei verið okkar sterka hlið, en
kannski er þetta að breytast. Allir
fá að vera með íveislunni, a.m.k. á
Hringbrautinni, engum er úthýst.
Fyrir bragðið verður sýningin risa-
vaxin og vex sjálfu innihaldinu yfir
höfuð. Margir einstaklingar kafna í
fjöldanum, einkum vegna þess að
sérstaða hvers og eins er ekki dreg-
in fram í uppsetningu. Þar með eru
margir útilokaðir óviljandi, í þess-
ari risasamkeppni um athygli
áhorfandans.
En aðalvandinn er sá, hve illa
helst í hendur fjölbreytnin við
stærð sýningarinnar. Nokkrir mála
af djúpri tjáþörf, en það er vitan-
lega forsenda svona expressión-
isma. En þar eru á ferð listamenn
sem þegar hafa sýnt sig og sannað
sitt á öðrum vettvangi. Allt of
margir fylgja hinu nýja málverki,
án þess að innri kraftur fylgi ytri
ásýnd. Stílbrigði þessara lista-
manna eru þröng og keimlík, enda
er það háttur hugmyndasnauðra að
fylkja sér um hina fáu „sönnu" eins
og hirð og apa í stað þess að skapa.
III.
Sýningin að Hringbraut 119 var
að einhverju leyti hugsuð sem
andóf gegn Kjarvalsstöðum og
„öldungaráðinu" með hamarinn,
Grafík fær sinn skerf eins og sjá má
af vcrkum Guðmundar Thorodd-
sen.
sem dæmdi menn úr leik. En hvers
vegna beið „Gullströndin“ ekki
eftir hinum útskúfuðu af Kjarvals-
stöðum, til að veita þeim hæli?
Slíkt hefði verið rausnarlegt. í
staðinn var keppt við „Myrka mús-
íkdaga" fyrstu vikuna og Kvik-
myndahátíð þá næstu, allt til að
vera á undan.
Verra er þó að botninn var rifinn
úr andófinu, þegar hinir sömu og
sýndu á „Gullströndinni“, sendu
inn önnur verk á Kjarvalsstaði. Þar
hanga þeir við hliðina á hinum
heppnu sem komust inn, meðan
þeir útskúfuðu eiga í ekkert hús að
venda.
„Ungir myndlistamenn“, skartar
fyrst og fremst ungum málurum
líkt og Gullstrandarsýningin. Það
er athyglisvert að hinir elstu eru um
þrítugt, þeir yngstu undir tvítugu.
Slíkt telst vart hár meðalaldur fyrir
myndlistamenn, jafnvel þótt marg-
ir sýni í fyrsta sinn. Þessi sýning er
agaðri en sú á Hringbrautinni,
enda valin af sérstakri dómnefnd.
Þó verður ekki sagt að dómarar
hafi verið strangir. Grisjunin
virðist hafa ráðist af plássleysi
fremur en gæðamati. Enda leikur
hér loft um verkin, utan þau sem
hanga á göngum, en gangarnir hafa
raunar alltaf verið misheppnaðir til
sýningahalds.
Það kemur nokkuð á óvart, hve
fjölbreytileg þessi sýning er, ef
miðað er við Gullströndina sem er
mun stærri. Kannski er það vegna
þess að reynt er að tefla fram and-
stæðum fremur en samstæðum og
dregur það fram skýrari mynd af
hverjum manni. Að vísu er Gull-
ströndin sterkara manifest hins
nýja málverks ogþar af leiðandi
afgerandi stefnuyfirlýsing, sem
Kjarvalsstaðasýningin er ekki.
Þannig keinur heildin fram sem
boðberi nýrrar listar. Á hinn bóg-
inn ráða einstaklingarnir ferðinni á
Kjarvalsstöðum.
Hvort önnur sýningin reynist
vænlegri áhrifavaldur en hin, skal
ég ekki um dæma. Hitt var undar-
legt að þrátt fyrir verðskulduð
verðlaun fyrir eitthvert athyglis-
verðasta framlagið á sýningunni að
Kjarvalsstöðum, sniðgengu söfnin
myndir Kjartans Ólasonar. Fyrir
valinu urðu mun risminni málverk
sem eru langt frá því að teljast
tímamótandi. Svona stefna í vali
kann vart góðri lukku að stýra.
Þegar ungir menn fá verðlaun fyrir
gott framlag, er tilhlýðilegt að verk
þeirra prýði a.m.k. eitt safn í
landinu.
llrval fremstir á Mallorca
Tryggðu þér gististað
sem þér hentar best með
því að panta far strax
ÚRVAL við Austurvöll @26900
Umboösmenn um allt land
URVAL
Páskar 27. mars 17dagar Ódýr vorferð 12. april 3 vikur 3.maí 3 vikur 24. maí 3 vikur 31. maí 2 vikur 14. júní 3vikur 21. júní 2 vikur 5. júlí 3 vikur
12. júlí 2 vikur 26. júlí 3 vikur 2. ágúst 2 vikur 16. ágúst 3 vikur 23. ágúst 2 vikur 6. sept. 3 vikur 13. sept. 2 vikur 27. sept. 3 vikur
1