Þjóðviljinn - 09.07.1983, Síða 5
Helgin 9-10. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
unglinaasióan_____ Umsjón Helgi Hjörvar
Vemdarar vorir að störfum
Á leið minni niður Laugaveginn
á þriðjudaginn var, sá ég hóp ung-
menna á gangstéttinni er höfðu í
frammi hina furðulegustu hegðun.
Voru þau máluð í framan og öll hin
ófrýnUegustu á að líta.
Fremstur í flokki gekk hávaxinn
maður mjög og var hann í svörtun
kufli með svarta hettu og hélt á
svörtu orfi er í var ljár. Minnti þessi
maður all mikið á Dauðann sjálfan
holdi klæddan. En það sem vakti
mesta undrun mína og hneykslun
var að í orfinu hékk þjóðfáninn
(þ.e.a.s. sá bandaríski), þótti mér
það í hæsta máta óviðeigandi að
tengja fána vina okkar og verndara
dauðanum, slíkt eiga þeir menn
ekki skilið sem hætta lífi sínu og
limum við að snúa konur og börn
úr hálsliðnum til þess að koma í veg
fyrir offjölgun íbúa jarðar.
Næst á eftir þessari furðuveru
kom svo nokkur hópur fólks er
klætt var í svarta sorppoka og var
framan á þá letrað nafn einhvers
ríkis sem bandaríkjastjórn heldur
verndarhendi sinni yfir (Palestína,
Chile, E1 Salvador o.fl.). Minnti
þetta einna helst á líkfylgd því ver-
ur þessar voru hvítmálaðar og
höfðu rauða bletti hér og hvar á
lfkamanum. Þessi lík áttu erfitt um
gang og slangruðu oft í veg fyrir
vegfarendur ellegar ultu á gang-
stéttina.
Þá kom enn í ljós hversu ágæta
vini og verndara vér eigum, því
þarna voru þrír vopnaðir vinir vorir
af vellinum og beittu þeir byssu-
skeftum sínum af mikilli list og
hreint og beint börðu þessa apa-
ketti áfram.
Ahugi verndara vorra á íslenskri
menningu er mjög mikill eins og
öllum er kunnugt og sannaðist það
þarna því þessir kanar og kommún-
istabanar höfðu lært íslensku svo
vel að þeir töluðu sem innfæddir
væru.
Rétt áður en „líkfylgd“ þessi
kom að gatnamótum Vitastígs og
Laugavegar renndi svartur og hvít-
ur sendiferðabíll upp á gangstétt-
ina og út stigu nokkrir fulltrúar
laga og reglu (ekki Bubbi heldur
lögreglan) og áminntu dátana um
að láta ekki of mikið bera á vopn-
17 1
um sínum því Islendingar væru
ekki mjög vanir slíku.
Á gatnamótum Laugavegs og |
Frakkastígs renndi önnur bifreið i
eins og áður var lýst upp á gang- ,
stéttina og stigu þar út tveir gal-
vaskir víkingar og tjáðu „Dauðan-
um“ að samkvæmt íslenskum •
lögum mætti hann ekki ganga dul- !
búinn og einnig væri það bannað i
með svokölluðum fánalögum að
festa bandaríska fánann í orf. Að ’
svo mæltu þrifu þeir í hettu manns- 1
ins og tóku fánann af orfinu, brutu
hann varlega saman og lögðu hann
inn í bílinn. Já loksins endurguldu
víkingarnir fyrir allar þær æfingar
er þeir fengu náðarsamlegast að
stunda upp á Miðnesheiði!
Er þessi „fríði“ flokkur kom nið- ;
ur á Lækjartorg voru þar staddir
um 500 kommúnistar og vildu
verndarar vorir ekki halda lengra
að óathuguðu máli þannig að þeir
stilltu föngum sínum upp í einfalda
röð og stilltu sér sjálfir upp fyrir
framan þá.
Eftir nokkrar ræður er fluttar
voru þarna þusti allur manngrúinn
út á Lækjargötu og hrifust vinír
vorir og verndarar ásamt föngum
sínum með. Var nú þrammað í átt
að bandaríska sendiráðinu og ætl-
uðu kommúnistar sér greinilega að
hertaka sendiráðið og ná þannig
vini okkar að vestan George Bush.
En sem betur fer var öflugur vík-
ingavörður til varnar. Þar stóðu
helv. kommarnir og hrópuðu ýmis
slagorð t.d. gegn vígbúnaði og vík-
ingasveitum, lsland úr NATO -
herinn burt. Meðan þeir hrópuðu
sig hása gafst mér tækifæri til að
ræða örlítið við þessa þrjá vini okk-
ar og verndara. Ég spurði þá að
sjálfsögðu fyrst hvað þeir væru og
hvað þeir gerðu? Þeir svöruðu því
til að þeir væru bandarískar hetjur
sem dræpu konur og börn og önnur
hraustmenni þ.e.a.s. gamalmenni.
Síðan voru þeir roknir því fangar
þeirra voru farnir að hrópa; „Fas-
isti, fasisti“, að sjálfum varaforseta
herraþjóðarinnar. Var þá ofsinn í
kommunum orðinn mikill og
verndarar mínir farnir svo ég flúði.
Það var
svaka fjör
í Þórs-
merkur-
ferð Æ.F.
Á föstudagskvöldið (þann 1/7)
lagði upp frá flokksmiðstöðinni
fríður hópur ungmenna áleiðis í
Þórsmörk. Þangað kom flokkurinn
(í rútu vel að merkja) um kl. 1.30.
Var þá slegið upp tjöldum i Húsa-
dal og tekið til við ýmsa skemmtan
svo sem söng.
Um klukkan eitt á laugardaginn
hélt hópurinnn síðan af stað í
gönguferð um mörkina. Var fyrst
gengið úr Húsadal í Hamraskóg og
þaðan yfir í Langadal. Þar fóru
nokkrir í söluturninn en aðrir
gengu upp á Valahnjúk. Um
klukkan fimm var síðan gengið yfir
í Húsadal. Um klukkan átta var
síðan kveiktur langeldur (grill) og
sest að snæðingi. Seinna um kvöld-
ið lék Æ.F. Kvartettinn fyrir fólkið
ýmis frumsamin lög. Klukkan þrjú
daginn eftir var síðan lagt af stað
heimleiðis og komum við í bæinn
um klukkan átta.
Það er holl og góð hreyfing að prfla upp um fjöll og firnindi!
Orlofsferðir
Alla föstudaga.
Gist 1 dag í Budapest
Skoöunarferö laugar-
daga.
Dvalist viö Balatonvatn
í sumarhúsum í Alsóörs
viö n-a hluta vatnsins.
Matarmiðar - skoðunar-
feröir - barnagæsla.
Börn innan 12 ára frí
gisting og hálft far-
gjald 4-5-6 manna
sumarhús í einkaleigu.
Leiösögumaður Emil
Kristjánsson kennari.
Verö 3 vikur með
matarmiðum miöaðv. 4
í bústað um 21.700.-
Fá sæti eftir
FERÐASKRIFSTOFA
KJARTANS
Gnoöarvogur 44
sími 91-86255
UNGVERJALAND