Þjóðviljinn - 09.07.1983, Síða 7
' V 1 '• • « • V • » l » * .
Helgin 9-10. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SŒ)A 7
Spjallað við alþýðulistamanninn
Sæmund Valdimarsson
„Einhver
sagði mér að
hagvöxturinn
væri ekki allt”
„ Ég var hissa þegar ég heyröi
einhvern segja að
hagvöxturinn væri ekki allt. Þaö
væri fleira til í lífinu. Sjálfur er ég
alinn upp í fátækt og eins og
sannur Islendingur hugsaði ég
aldrei um annað en að vinna og
vinna. Ég gekk að minnsta kosti
ekkimeðneina
listamannsdraumasem ungur
maður. En einhvern veginn
sótti þetta samt æ meira á
mann,“ sagði
alþýðulistamaðurinn
Sæmundur Valdimarsson,
þegar hann var að sýna okkur
höggmyndir sínar í matsalnum í
Áburðarverksmiðjunni í Gufu-
nesi.
Þegar nýr matsalur var opnaður
þar í júní, voru verk hans sett upp
til sýnis í salnum, enda á það vel við
„Gamla drottningin" heitir þessi
höggmynd. Pilsið er úr fiskroði.
því Sæmundur hefur nú í sumar
unnið í Áburðarverksmiðjunni í 30
ár. Á sýningunni eru 21 verk og
verða þau í matsalnum fram í
miðjan júlí. En hvers vegna skyldi
Sæmundur hafa byrjað á högg-
myndunum:
„Ætli það hafi ekki verið af innri
þörf. Það var að minnsta kosti ekki
af gróðavon. Ég hef aðeins selt eitt
verk um ævina og það keypti Guð-
bergur Bergsson. Annað hef ég
gefið. Mér er lítið um að selja. Ég
hef snúið mér meira og meira að
höggmyndunum og trémyndum
ýmiss konar, en áður fékkst ég líka
við verk úr steinum og svo málaði
ég“-
„Hefurðu sýnt þessi verk áður?“
„Nokkur þeirra, já. Ég sýndi
fyrst verk opinberlega á samsýn-
ingu á alþýðulist í Gallerí SÚM ár-
ið 1974. Svo átti ég verk á sýningu
svokallaðra naivista á Kjarvals-
stöðum í fyrra:“
„Ertu naivisti?"
„Mönnum er frjálst að kalla
þetta það sem þeir vilja. Ég hef
ekkert vit á því. En ég geri þetta
eftir mínu eigin höfði, - ég hef
minn stíl, hvað sem menn vilja
kalla verkin.“
„Hefurðu góða aðstöðu til að
vinna við höggmyndirnar?“
„Ég geri þetta í bflskúrnum. Ég
er oft marga mánuði við hvert
verk. Ég get ekki unnið nema þeg-
ar ég er í formi. Sjáðu til dæmis
þetta verk, það heitir hamingja.
Þetta er svona formlaust, eins og
hamingjan og hefur engin ein-
kenni. Þú veist ekki af henni fyrr en
hún er farin framhjá", og Sæmund-
ur bendir okkur á viðardrumb.
„Eða þessi hérna. Þetta er
hvorki kona né barn - óánægð með
sjálfa sig - feit og ólánleg. Kannski
verður hún einhvern tíma eitt-
hvað“, og Sæmundur bendir á
annan drumb, með barnsandlit og
digran skrokk. Við göngum með
Sæmundi um sýninguna og hann
útskýrir hvert verk fyrir sig. „Þessi
heitir „Ekki Stalín“. Ég varð að
skíra hana það, því allir héldu að
þetta væri Stalín. Og hér er önnur
með fiskroði. Ég nota ýmis konar
náttúruefni, söl, steina, roð og fisk-
bein“ segir Sæmundur. Hann talar
um verkin eins og lifandi fólk. Spá-
ir í þau, hvað úr þessum persónum
verði og hvað þær séu eiginlega að
hugsa.
Þegar gengið er út úr matsalnum
blasir við strompurinn úr Áburðar-
verksmiðjunni.
Ojá, segir Sæmundur, „þetta
umhverfi er nú svona og svona og
margt hægt að segja um það. En
það hefur að minnsta kosti ekki
drepið í mér löngunina til að fást
við myndlist. Þegar ég kem heim af
vöktunum, sest ég niður með spýtu
og járn og þá dettur mér ýmislegt í
hug.“ Við kveðjum Sæmund og
þökkum honum fyrir að fá að
skoða þessa sérkennilega sýningu,
en rétt er að geta þess að lokum, að
það var Þorsteinn Jónsson hjá
listasafni ASI sem valdi verkin
sem sýnd eru þarna í matsalnum.
þs
Sæmundur á heimili sínu með eitt verka sinna.
„Verðandi einstæð“, höggmynd
eftir Sæmund.
Lóðaeigendur athugið
Loftorka s.f. sýnir og kynnir
einingahúsaframleiðslu sína
að Áslandi 2, Mosfellssveit.
Sýnt verður steypt einingahús tilbúið undir tréverk og málningu,
teikningar og Ijósmyndir af framleiðslunni og kynntar verða byggingar-
aðferðir.
Komið, skoðið og fræðist um möguleikana í steyptu einingahúsunum.
Viðurkennd byggingaraðferð, vönduð vinna, gott verð.
Dæmi um verð á steyptu einingahúsi, frá plötu, með uppsetningu,
frágengnu þaki, gluggum, gleri, útihurðum og raflögnum.
150 m2 kr. 774.800.-
245 m2 kr. 1.295.700.-
Sýningin verður 9. og 10. júlí frá kl. 13 til 18 báða dagana að Árlandi 2,
Mosfellssveit.
(Við Vesturlandsveg í Helgafellshverfi).
DiOPir
•RKA
Borgarnesi símar 93-7113
og 93-7155 (kvöld)
Reykjavík sími 72133