Þjóðviljinn - 09.07.1983, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 09.07.1983, Blaðsíða 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 9-10. júlí 1983 dægurmál (sígiid?) • m. I. / > y? *rf*'*' i * 7 rv Í^rcr Ó V <: Egó kom fram með tvo nýja liðsmenn, en hér eru þeir sem fyrir voru, Bergþór, Rúnar og Bubbi Morthens. Enn kátt og fátt í Höllinni Pósturinn Páll Nýverið kom út barnaplatan Pósturinn Páll sem allir þekkja úr samnefndum framhaldsmynda- flokk úr sjónvarpinu, sem sýndur hefur verið undanfarna sunnu- daga. Mér finnst platan ekkert sér- stök en strákurinn minn sem verður fimm ára nú í haust er ekki á sama máli. Hann kann svo sannarlega að meta hana og sagði mér í óspurðum fréttum að hún væri mjög góð. Ekki ætla ég að draga hans orð í efa því sá stutti veit hvað hann syngur í þessum efnum og hefur nokkuð „sæmi- legan“ smekk. Eða eigum við að segja að hann hafi fengið „gott“ uppeldi. Hann er nýkominn yfir tímabil þar sem Clash, Killing Joke, Stuðmenn og Bubbi voru það eina sem mátti spila. Núna er Póstirnn Páll eina platan sem má spila á heimilinu. Ef tilraun er gerð til að spila eitthvað annað fer allt í bál og brand. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri en það eru í mínum augum meðmæli með plötu, að heilla strákinn svona rækilega eins og Pósturinn Páll gerir. JVS. Tónleikarn'ir í Höllinni síðast- liðinn laugardag stóðu fyllilega undir þeim vonum sem við þá voru bundnar. Hjálpaðist þar allt að: góðar hljómsveitir, góður hljómburður og góð stemmning. Er ég efins um að jafn góðir tón- leikar hafi verið haldnir hér í háa herrans tíð. Eins og vera ber var húsið opn- að klukkutíma seinna en áætlað hafði verið. Illa gekk að koma hljómflutningstækjunum upp og „sándtékkið" byrjaði því seinna en ráð var fyrir gert. Áheyrend- um var hleypt inn í salinn um klukkan níu og tuttugu mínútum seinna hófust svo tónleikarnir. Þeir sem þekkja hina íslensku „nákvæmni" í sambandi við tón- leikahald mættu „stundvíslega“ en hinir urðu að láta sér nægja að kúldrast í anddyri Hallarinnar í klukkutíma. Hvað um það, Deild 1 hóf tón- leikana um hálf tíu. Hljómsvein er skipuð ýmsum þekktum hljómlistarmönnum: Sigurgeir Sigmundssyni og Eiríki Hauks- syni úr Start, Ásgeir Bragasyni úr Purrk Pillnikk, Richard Korn sem ieikur með Sinfóníuhljóm- sveit íslands og lék með Magnúsi Þór Sigmundssyni á plötunni Gat- an og sólin og Björgvini Gíslasyni en hann er öllum tónlistarunn- endum kunnur af iöngum og glæsilegum ferli. Þeir léku fjögur eða fimm lög sem ég held að hafi fallið vel í kramið hjá áheyrend- um. Þetta eru allt úrvals hljóðfæraleikarar en „sándið“ var lélegt og ekki mikill tími til að gera neinar rósir. Ég er þeirrar skoðunar að ef hljómsveitinni endist aldur þá eigi hún eftir að láta mikið að sér kveða á kom- andi árum. Það verði annaðhvort allt eða ekkert. Grýlurnar stigu næstar á sviðið, prúðbúnar að vanda. Þær eru nýkomnar úr tónleikaferð um Norðurlönd en ekki hef ég heyrt hvernig sú ferð gekk. Grýlurnar komust klakklaust frá sínu og auðheyrt að þær voru í fínu formi. Þær léku ekki nema fjögur eða fimm lög. Þótti sumum það gott en öðrum miður. Ég heyrði tvo tónleikagesti ræða af miklum áhuga um Grýlurnar og voru þeir fullkomlega á öndverðum meiði. Að endingu sættust þeir á að fella málið af dagskrá og fá sér einn sterkan þess í stað. Ekki voru all- ir jafn sáttfúsir og þessir tveir ágætu félagar því sveita- balla-stemmningin réði ríkjum framan af með öllum sínum blæ- brigðum og litaskrúði. Egóið þurfti að gera hlé á sín- um flutningi vegna slagsmála. Það var fyrst og fremst Bubba að þakka að slagsmálin fjöruðu að mestu út. Gaman var að sjá hve hann hafði góða stjórn á liðinu og tókst vel að eyða þessari leiðinda stemmningu sem myndast hafði. Egóið var með nýtt prógram og lék að ég held jafnlengi og Grýl- urnar og Deild 1 til samans. Áheyrendur kunnu svo sannar- lega að meta það. Hið nýja pró- gram Egósins var með því besta sem ég hef heyrt frá hljóm- sveitinni. Hinir tveir nýju með- limir hljómsveitarinnar stóðu sig með prýði. Hinn nýi hljómborðs- leikari, Gunnar Karlsson, er mik- ill styrkur fyrir hljómsveitina og gefur henni tækifæri til að „breikka“ sig mikið. Nýi tromm- arinn, Jökull Úlfson, er ekki al- veg jafngóður og Magnús en hann kemur ábyggilega til með að spjara sig vel. Hann gerði eng- ar rósir en það sem hann gerði, gerði hann vel og er óvíst hvort Egóið hafi getað fundið heppi- legri eftirmann fyrir Magnús. Eftir að Egóið hafði lokið sér af þurftu menn að bíða í 30 mín- útur eftir Echo and the Bunny- Echo and the Bunnymen á sviðinu í Laugardalshöil. Myndirnar á síðunni tók Leifur. men. Fara þurfti yfir græjurnar, rétta þær af sem aflagast höfðu í hamaganginum á undan og yfir- fara „sándið“. Voru ýmsir orðnir þreyttir á þessari bið og létu ó- spart til sín heyra. En öll él styttir upp um síðir og um hálf tólf stigu Echo and the Bunnymenn fram á Grýlurnar komu fram í Laugardalshöll nýkomnar úr Skandinavíu- hljómleikaferð og rétt óbyrjaðar í sumarfríi. Hér er forsprakki þeirra, Ragnhildur Gísladóttir, í Höllinni á laugardag. svið Hallarinnar við mikil fagn- aðarlæti. Það voru ekki fjórir menn sem stigu fram heldur átta. Hljóm- sveitin er að koma úr miklu ferðalagi um Bandaríkin og hing- að til lands kom fjórtán manna hópur. Þar af fjórir aðstoðar- hljóðfæraleikarar, gítarleikari, fiðluleikari, cellóleikari og bongótrommuleikari. Liðið var í banastuði og lék við hvern sinn fingur. „Sándið“ var óaðfinnan- legt og krafturinn rosalegur. Þeir sögðu það gárungarnir að á sviðinu í Höllinni þetta kvöld hefði mátt sjá alla hátalara sem til eru í landinu. Hljómsveitin lék mestmegnis gömul lög, svo sem „Back of lo- ve“, „Heaven up here“, „Simple“ og að sjálfsögðu „Cutt- er“ við fádæma hrifningu, enda sennilega eina lagið sem allir þekktu af dagskrá hljómsveitar- innar. Echo and the Bunnymen voru frábærir á þessum tón- leikum og er langt síðan jafn góð erlend hljómsveit hefur haldið hér tónleika. Áheyrendur kunnu svo sannarlega að meta hljóm- sveitina og létu óspart í sér heyra. Stemmningin var þrælmögnuð og brutust út mikil fagnaðarlæti þeg- ar hljómsveitin kom fram til að leika aukalagið. Tónleikarnir heppnuðust í alla staði mjög vel og eiga aðstand- endur þeirra mikið lof skilið fyrir framtakið. Eitt olli nokkrum vonbrigðum en það var fámenn- ið. Á tónleikunum voru um 1700 manns sem er lítið ef miðað er við að þarna voru okkar bestu hljóm- sveitir og er hreint óskiljanlegt að fleiri skyldu ekki mæta. En þeir sem heima sátu geta nagað sig í handarbökin fyrir að missa af þessum einstæða tónlistarvið- burði. JVS. Umsjón Sif Jón Viftar Andrea

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.