Þjóðviljinn - 03.08.1983, Side 3

Þjóðviljinn - 03.08.1983, Side 3
Miðvikudagur 3. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Skúli Thoroddsen, starfsmaður Dagsbrúnar: Helgarvinnubann verndar gegn óhóflegu vinnuálagi Þann 26. maí í fyrra sendi Vinnu- veitendasamband íslands Verka- mannafélaginu Dagsbrún bréf þar sem þeirri skoðun Vinnuveitenda- sambandsins á helgarvinnubönn- um var lýst sem markleysu og ó- skuldbindandi fyrir alla hlut- aðeigandi aðila og brot á kjaras- amningum. Dagsbrún sendi bréf um hæl, þar sem þeirri skoðun var lýst, að hér væri ekki um að ræða brot á kjarasamningi og á það bent, að helgarvinnubann hefði verið í gildi um áratugaraðir á sumrin á félagssvæði Dagsbrúnar án þess að Vinnuveitendasamband íslands hefði fyrr hreyft mótmælum. Þann 10. nóvember 1981 var í Félagsdómi kveðinn upp dómur í máli sem Vinnuveitendasamband- ið höfðaði fyrir hönd nokurra fyrir- tækja á Vestfjörðum á hendur Al- þýðusambandi íslands til að fá helgarvinnubann Verkalýðsfélags- ins Baldurs dæmt ólöglegt. Félags- dómur kvað upp þann úrskurð, að slík vinnustöðvun bryti ekki í bága við lög. Verkalýðsfélög hafa því fyllsta rétt á því að samþykkja slíkt bann og slík bönn hafa verið sett á sumrin um áratugi. Við spurðumst fyrir um það hjá Skúla Thorodd- sen, starfsmanni Dagsbrúnar, hvers vegna þörf væri talin á slíku banni. „Það er einfaldlega þannig, að ef Áframhaldandi vinna hjá BÚR Togarar koma fullhlaðnir að landi Verkamannafélagið Dagsbrún í Reykjavík hefur í sumar sett helg- arvinnubann á hafnarvinnu, fisk- vinnslu og steypuvinnu og Verka- kvennafélagið Framsókn hefur einnig sett á helgarvinnubann í fiskvinnslu fyrir sínar félagskonur. Bæjarútgerð Reykjavíkur hefur fengið þrjár undanþágur til að vinna á laugardögum í júlí og þar hefur verið mikil vinna. Fyrirsjáan- legt er að hin mikla vinna haldist áfram, því í gær var landað full- fermi úr Ottó N. Þorlákssyni, Snorri Sturluson kemur fyrir helgi með 200 tonn af karfa og Jón Þor- láksson er á leiðinni með 120 tonn af þorski. „Frystihúsum í Reykjavík var þrisvar sinnum veitt undanþága frá helgarvinnubanninu í fyrrasumar," sagði Skúli Thoroddsen, starfs- maður Dagsbrúnar í samtali við blaðið í gær, „en BÚR hefur nú þegar fengið þrisvar sinnum undanþágu í hraðfrystistöð sinni og fjórum sinnum í saltfiskverkun- inni. í ár var haft fyllsta samráð við starfsfólk í öllum frystihúsum í Reykjavík sem og við hafnarvinnu og á steypustöðum varðandi helg- arvinnubannið, m.a. með at- kvæðagreiðslum, þar sem mótat- kvæði gegn banninu voru teljandi á fingrum annarrar handar." ast Reykjavík: Kaldasti júlí aldarinnar Gott fyrir norðan Kaldasti júli síðan 1887 er niður- staðan úr veðurfarsmælingum í Reykjavík að sögn Öddu Báru Sig- fúsdóttur veðurfræðings. Akur- eyringar hafa hinsvegar búið við gott vcður í júlí, meiri hita en í meðalári, minni úrkomu og fleiri sólarstundir. Nýliðinn júlímánuður er þriðji kaldasti júlí síðan reglulegar mæl- ingar hófust árið 1880, var kaldari árin 1885 og 1887. Meðalhiti í júlí 1983 var 8,5 stig, sem er 2,7 stigum lægra en í meðalári. Þá er miðað við meðalhita áranna 1931-1960. Júlí nú er heilu stigi kaldari en þeir kollegar hans sem kaldastir hafa verið á öldinni, árin 1921, 1975 og 1979. Þessum kulda í Reykjavík hefur fylgt sífelldur dumbungur og mikil úrkoma, helmingi meira en í meðalári sem þó telst ekki afbrigði- legt að að sögn Öddú Báru. Sól- skinsstundir hafa verið óvenjufáar í bænum undanfarinn mánuð, aðeins 89, helmingi færri en í meðalári, og aðeins þrjá júlímán- uði hefur sólin verið sparari á geisl- ana við reykvíkinga síðan mælingar hófust árið 1923. Á Akureyri er meðalhiti í júlí hinsvegar 11,6 stig, o,7 stigum yfir viðmiðunarhita. Urkoma hefur þar verið í tæpu meðallagi og sólskins- stundir fleiri en í meðalári. Á Hveravöllum er júlímánuður tveimur stigum kaldari en áætlaður meðalhiti þess mánaðar. Talan er 5,6 stig fyrir 1983, og aðeins einn júlí hefur mælst kaldari, á árinu 1970; 4,4 stig. „Þessi þráláta vestanátt næðir um okkur sunnanlands, en er orðin hlý norðan heiða“ sagði Adda Bára. Hún sagði engar ályktanir að draga af þessum kuldum í Reykja- vík.ágúst gæti þessvegna orðið góður. „Undanfarin allmörg ár hefur kólnað í veðri, en hitinn er alltaf að breytast og engin leið að segja til um lengd kuldakasta." - m Ungur maður í gæsluvarðhald: Ungur maður var um helgina úr- skurðaður í gæsluvarðhald vegna líkamsárása og þjófnaðar á tjald- svæðinu við Húsafell, en mikill fjöldi unglinga var þar samankom- inn um Verslunarmannahelgina. og stuldur Maðurinn réðst að ungum pilti í tjaldi einu og barði hann illilega. Þá var hann einnig ákærður fyrir þjófnað úr tjöldum á svæðinu. Rannsóknarlögreglan er með mál mannsins til frekari athugunar. fólk neitar að vinna urn helgar vofir yfir því hætta á uppsögn. Við höf- um beinlínis mörg dæmi um slíkt. Því er þessi regla sett á; félagið er einfaldlega að vernda fólkið. Verkalýðsfélögin hafa ætíð lagt mikla áherslu á, að verkafólki væri það rnikið hagsmunamál að sporn- að yrði gegn óhóflegu vinnuálagi. Jafnframt er með þessu verið að knýja atvinnurekendur til þess að skipuleggja vinnuna betur, þannig að fólk þurfi ekki að vinna óhóf- lega yfirvinnu. Það er vitað mál, að ef atvinnurekendur biðja fólk að vinna kvöld- eða helgarvinnu á það mjög óhægt um vik með að neita, því þá á það á hættu að fyrirgera rétti sínum til vinnunnar." - Hvað með verðmæti þjóðar- búsins, kann einhver að spyrja. „Ég held, að íslenskt verkafólk, einkum í fiskvinnunni, geri sér full- ljóst hversu þýðingarmikið það er fyrir þjóðarbúið að það skapi sem verðmætastar afurðir. Sú spurning vaknar á móti: hvað fær þetta fólk í staðinn fyrir vinnuálagið? Ég get tínt það til: það fær erfiðustu störf- in, lægsta kaupið og vinnuþrælkun. Ég er þeirrar skoðunar, að helg- avinnubanni beri að framfylgja sé það á annað borð sett á, annars nær það engum tilgangi. En ég teldi einnig koma til greina að veita ein- hverjar undanþágur gegn því að fólk fengi greidda næturvinnu á laugardögum, eins og nú er ef unn- ið er þá daga, en að auki fengi það sérstakan frídag eða frídaga fyrir þá þjónustu sína við þjóðfélagið í heild að bjarga þeim verðmætum, sem við öll lifum á.“ ast Það var glampandi sól og blíða á Isafirði yfir verslunarniaiinahclgina og heilmargt að sjá í fjörunni. Fjöldi fólks var á fjölskylduhátíð sportbáta- eigenda í Djúpmannabúð í Mjóafirði og hátt á annað hundrað í Reykja- ncsi. Að venju var einnig Ijöldi ferðamanna á llornströndum. Strákarnir heita Arnaldur Máni, Steini og Óskar og nutu sólarinnar á stuttbuxum. Ljósm. EÞ. Friðarganga ’83 Lestrarefni og annar söluvarningur á skrifstofu Samtaka herstööva- andstæöinga HÖFUM TILSÖLU KILJUR MALS OG MENNINGAR: Stöðvun Friðarumræðan af sjónarhóli kirkju og Kirkja og kjarnorku- kjarnorku- vígbúnaðar kristinna safnaða vígbúnaður eftir Edward Kennedy og Mark Hatfieid ásamt ýmsum öðrum fróðleik í prentuðu máli sem allir friðarsinnar þurfa að kynna sér Höfum líka til sölu hljómplötur Heimavarnarliðsins: „Hvað tefur þig bróðir“ og „Eitt verð ég að segja þér“, „Það er engin þörf að kvarta“ meðBöðvari „Þjóðhátíðarljóð ’74“ SXtiSEi*.. Friðargöngu-peysurnar eru enn til í öllum stærðum, en birgðir eru takmarkaðar. Smelltu þér því á eina strax! Líttu við á skrifstofunni. Skráning í Friðargöngu ’83a\\a daga fram til laugardags 6. ágúst. Samtök herstöðvaandstæðinga Frakkastíg 14, fíeykjavík Símar 17966 og 29212.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.