Þjóðviljinn - 17.03.1984, Side 2

Þjóðviljinn - 17.03.1984, Side 2
2 SÍÐA - WÓÐVIUINN skammtur Ijóst, að eftirfarandi húsráð ættu að vera óbrigðul ef mann langar til að verða ekki fyrir óþægindum af kjarnorkustyrjöld: 1. grein leiðbeininga í símaskránni: „Þegar frumáhrif kjarnasprengingar eru gengin yfir, skal leita skjóls“. Mikil áhersla er lögð á, að maður sé ekki á ferli á því svæði, sem verið er að varpa atómsprengjum á, en það hinsvegar látið fylgja að sé maður þar staddur eigi að leita skjóls hið allra fyrsta og þá helst í kjallara, enda tæplega háhýsum fyrir að fara, ef „kjarna- sprengjuóhapp“ hefur orðið. í símaskránni er rík áhersla lögð á það hvernig sá eigi að haga sér sem hefur orðið fyrir kjarnorku- sprengju en hefur ekki enn leitað skjóls. Þar segir orðrétt: „Áður en farið er inní skýli, verður að afklæðast menguðum fötum fyrir utan og dusta ryk úr höfði sér, ef kostur er“. Aflausn á kjarnasprengjuóhappi Þá eru menn - í leiðbeiningum símaskrárinnar - eindregið hvattir til að yfirgefa ekki kjallarana fyrr en atómsprengingarnar séu í rénun. Og blátt bann er lagt við því að fara úr skýlunum þegar um „síendurteknar kjarnorkuárásir“ er að ræða. „Ráð eru til alls fyrst“, segir einhvers staðar og annars staðar „Ekki er ráð nema í tíma sé tekið". Þá segir að „hafa skuli ráð, þó úr refsbelg korni" og að „best gefist viturra manna ráð“. Það síðasta datt mér í hug þegar ég á dögunum las blaðagrein eftir Rúnar Bjarnason, slökkviliðsstjóra. Greinin virðist mér, öðru fremur, vera um það, hvað sniðugast sé að gera, þegar verið er að kasta á mann atómsprengjum. Slík uppákoma er í greininni kölluð kjarnorkuárás, eða kjarnasprengjuóhapp. Það má ef til vill segja, að „viturra manna ráð“ hafi, í aldanna rás, oft breyst í það, sem á dönsku er kallað „husraad" og á íslensku „húsráð". Húsráð hafa íslendingar kunnað frá alda öðli og flest óbrigðul. Við mörgum kvilla er gott að brenna hundshöfuð til ösku, blanda það galli úr þrevetra griðungi og (aurrkuð- um saur úr hvítvoðungi, hræra út með þvagi óspjall- aðrar meyjar eða vandaðrar manneskju, leggja þessi smyrsl við meinsemdina, en roð af bjartál við, snúa holdrosanum að og lesa um leið þrisvar sinnum pat- ernoster og Máríuvers. Nútíma húsráð eru miklum mun einfaldari en þau gömlu. Hrátt kjöt er sett á glóðaraugu, kaldur hnífur á kúlur eftir höfuðhögg, tyggjói náð úr fötum með því að setja flíkina í frystihólfið og mylja síðan tugguna úr. Þá er kveikt umsvifalaust á eldspýtu, ef gestir leysa vind í kvöldverðarboðum. Þannig hafa landsmenn ráð undir rifi hverju við aðsteðjandi vanda, og nú síðast er það orðið Ijóst að enginn þarf að deyja ráðalaus, þó hann verði fyrir atómsprengju. Rúnar hvetur alla til að fara sem fyrst að sjá bíó- mynd um það hvernig fólk á að haga sér, þegar verið er að kasta á það kjarnorkusprengjum. í greininni segir: „Þeir sem áhuga hafa á almannavörnum geta mikið lært á að sjá þessa mynd. Allt fólkið sem við sjáum í myndinni og lifir af sþrengjuna sjálfa, þarf ekki að þjást svo mjög og jafnvel deyja fyrir lok myndarinn- ar“. Og nú er það, að áhugi minn hefur vaknað á því fyrir alvöru, hvaða húsráðum best sé að beita þegar farið verður að varpa kjarnorkusprengjum hérna á suðvest- urhornið. Eftir að hafa lesið alla grein Rúnars og síðan „Við- brögð til varnar“ í símaskránni, sem eru leiðbeining- ar um hegðun í kjarnorkusprengjuárás, þá er mér það Það segi ég satt, að ég fyllist bjartsýni og trú á það, að lífið sé sterkara en dauðinn, þegar ég meðtek leiðbeiningar góðra manna og glöggra um það hvern- ig hægt er að sleppa við bombuna, þó hún spryngi. í raun og veru ekkert annað en nota bara réttu húsráðin. Víst er, að ef ég fengi atómsprengju í höfuðið þá teldi ég það helst til bóta að sjóða blóðbergsseyði, blanda seyðið hunangi og drekka það. Taka síðan hrafnshöfuð og brenna til ösku, blanda öskuna hlandi úr ungri folaldsmeri og þvo með hárið. Binda síðan sokkaband af óspilltri jómfrú um höfuðið og slá saltar- anum þrisvar sinnum létt í hvirfilinn. Og svo færi ég með gömlu góðu vísuna: Lífs ég von í brjósti ber, bjartsýnn, hvergi smeykur; veit að sprengjan atóms er aðeins barnaleikur. skraargatiö Friðrik Olafsson stórmeistari í skák verð- urfimmtugurí byrjun næsta árs. í tilefni þess hafa nokkrir aðilar, með þann framtakssama og hug- myndaríka skákfrömuð Jóhann Þóri í broddi fylkingar verið að hugleiða að setja hér upp stór og glæsilegt skákmót til heiðurs Friðriki. Hafa menn velt fyrir sér ýmsum möguleikum í því sam- bandi, en sú sem virðist hafa mestan meðbyr að fá hingað til lands skákmeistara sem voru á toppnum á sama tíma og Friðrik. Þar er svo sem ekki um neina aukvisa að ræða, Kortsnoj, Tal, Pctrosjan, Donner, Bent Larsen o.fl. Þá hefur sú hugmynd einnig verið uppi að fá til landsins nokkra af allra sterkustu skák- mönnum heimsins í dag og setja upp skákmót sem munað verður eftir meðan skák er iðkuð og eru menn að velta fyrir sér að láta það fara fram í Háskólabíói. Siðferði í opinberu stjórnmálalífi hér- lendis hefur löngum verið ákaf- lega slappt. Það skiptir engu þó að ráðherrar verði t.d. uppvísir að lygum eða að því að hygla sér og sínum. Þeir sitja sem fastast og láta sem ekkert sé. f síðustu ríkis- stjórn kom varla svo upp hneykslismál að það tengdist ekki ráðherrum Framsóknar- flokks á einn eða annan hátt en nú eru það einkum ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sem eru í sviðsljósinu að þessu leyti. Ný- lega upplýsti t.d. Tíminn að Sverrir Hermannsson hefði út- hlutað eigin fiskeldisfyrirtæki - meðan hann var forstjóri Fram- kvæmdastofnunar - styrk, og Anna: Saga íslenskra kvenna í 1100 ár. Ragnhildur Helgadóttir lét Rekstrarstofuna h.f. gera úttekt á Lánasjóði ísl. námsmanna án verklýsingar en eigandi hennar er Helgi, sonur hennar. í Bretlandi er þessu öðruvísi farið og nú hef- ur Margrét Thatcher beðið hnekki vegna brasks Marks sonar hennar í skjóli mömmunnar. Vegna þess máls hefur það verið rifjað upp sem Winston Churc- hill, forsætisráðherra og formað- ur íhaldsflokksins, sagði árið 1952 en það var þetta: „Ráðherr- ar verða að afgreiða sín mál með þeim hætti að ekkert misræmi komi upp, né heldur sýnist koma upp, milli einkamála þeirra og opinberra skyldustarfa.“ Þetta mættu íhaldsmennirnir Ragn- hildur og Sverrir kannski hug- leiða með sjálfum sér. Fjalakötturinn hefur verið mjög til umræðu í mörg ár. M.a. hefur eigandan- um, Þorkeli Valdimarssyni, verið vorkennt óspart fyrir að þurfa að greiða háa fasteignaskatta af þessi óarðbæru eign. Það hefur Ómar: Sleginn og sleglð við. hins vegar ekki fylgt sögunni að hann hefur ávallt fengið 75% af- slátt frá þessum sköttum hjá borginni og því aðeins greitt 25% fasteignaskatta af eigninni. Kvennalistinn var að halda uppá afmæli sitt um helgina. Hörð átök urðu í undir- ■ búningsnefnd fyrir hátíðahöldin um þá hugmynd Helgu Thorberg að þær klæddu sig uppá sem nornir og riðu á kústsköftum um borgina. Eftir nokkrar atkvæða- greiðslur og fundahöld segir sag- an að þessi hugmynd hafi orðið í minnihluta, en ekki er vitað til þess að komi til sérframboðs á vegum minnihlutans vegna þessa máls. Á þessu ári er væntanlegt á bóka- markaðinn mikið rit eftir Önnu Sigurðardóttur, forstöðumann Kvennasögusafnsins, um íslensk- ar konur í 1100 ár. Hefur hún unnið að þessu verki áratugum saman og ætlar að gefa það út á Frlðrik: Stórmót í tilefnl af fimmtugsafmælinu. eigin kostnað. Rit þetta sem verður einar 4-500 blaðsíður og mikið myndskreytt er hugsað sem undirstöðurit um frekari rannsóknir á störfum kvenna, enda er kappkostað í því að vísa til heimilda. Bókin er þegar kom- in í setningu og bíða sjálfsagt margir spenntir eftir útkomu hennar. Blaðamennska hér á íslandi er orðin allharð- skeytt á köflum og minnir æ meira á það sem gerist erlendis þar sem hvorki eru spöruð bola- brögð né fjármunir ef um eitthvað „feitt“ og sölulegt er að ræða. Þannig hafði skipverji á Vigra tekið myndir af bandaríska flugmanninum sem nauðlenti á hafinu í síðustu viku þar sem hann var að synda til skips. Blað- amenn biðu eins og hrægammar þegar skipið kom til Reykjavíkur og buöu í filmu mannsins. Blaða- maður D&V brá sér í síma til þess að fá heimild til fjárútláta en á meðan gerði Ómar Valdimars- son, blaðamaður Morgunblaðs- Helga: Nornir á kústsköftum. ins, sér lítið fyrir og gekk frá samningum við manninn. Þegar Dagblaðsmaðurinn kom til baka og sá að hann hafði orðið undir í þessari samkeppni reiddist hann. ákaflega og sló Ómar. Urðu síð- an stympingarámilli þeirra áhorF endum til mikillar furðu. Þegar Árni Johnsen var kosinn á þing og hætti á Morgunblaðinu tók Ómar Valdimarsson við af honum sem helsti slysa- og náttúruhamfara- - blaðamaður blaðsins. Það er þó svo að þegar eitthvað mikið er • um að vera halda Árna engin bönd. Svo var í vikunni þegar Ómar Valdimarsson var búinn að bíða í Eyjum í marga daga til að fá viðtal við afreksmanninn Guð- laug Friðþórsson - án árangurs - að Árni flaug út og tók langt við- tal við hinn unga sjómann og Ómar varð að bíta í það súra epli að sitja eftir með sárt ennið og niðurlægður í þokkabót. Mum Árni hafa tryggt einkaviðtal við1 Guðlaug enda neitaði hann út- varpinu uin stutt viðtal sama dag.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.