Þjóðviljinn - 17.03.1984, Blaðsíða 27
Helgin 17. - 18. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Sjávarútvegsráðherra kynnir ýmsar breytingar á kvótafyrirkomulaginu
„Göngum eins langt og hægt er“
„Menn verða að halda þetta ut
segir formaður LÍÚ
- Það er ekki endalaust hægt að|
breyta, en hér er gengið eins langt
og frekast er unnt að okkar mati.
Þetta eru ýmis atriði sem betur
máttu fara og það var gert ráð fyrir
því í upphafi að einhverjar
breytingar þyrfti að gera. Það var
aldrei við öðru að búast, sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra þegar hann í gær kynnti
þær breytingar sem gerðar hafa
verið á kvótafyrirkomulagi
botnfiskveiða.
Aðeins þr j ár vikur eru liðnar síð-
an gefnar voru út kvótatölur fyrir
botnfiskafla til 676 fiskiskipa. Sér-
stakri samráðsnefnd sem ráðuneyt-
ið skipaði til að fjalla um öll álita-
og ágreiningsmál varðandi veiði-
leyfin, bárust athugasemdir frá út-
gerðum nærri helmings allra
veiðiskipanna. Ekki hefur verið
farið yfir allar þær athugasemdir
sem bárust, en sjávarútvegsráðu-
neytið hefur ákveðið eftirtaldar
breytingar á kvótafyrirkomu-
laginu:
• Steinbítur verður veiddur á línu
utan kvóta fram til loka apríl og
grálúða sömuleiðis frá 1. júní þar
til annað verður ákveðið, en ekki
lengur en til loka ágúst. Einnig
verði skarkoli veiddur utan kvóta
frá 1. júní ótímabundið.
• Ný skip og þau sem skiptu um
eigendur á sl. ári fá aflakvóta í sam-
ræmi við veiðar þann tíma sem þau
hafa verið í eigu nýrra eigenda, hafi
þau verið gerð út minnst 5 mánuði
á sl. ári. Útgerðir megi síðan velja á
milli þessa reynslukvóta og þess
meðalkvóta og áður var miðað við
og olli víða mikilli óánægju.
• Þeir útgerðaraðilum sem úreltu
skip sín á viðmiðunartímabilinu og
keyptu annað sambærilegt eða
stærra verður nú heimilt að taka
mið af aflareynslu hins úrelta skips.
Sama gildir um þær útgerðir sem
skiptu um skip á síðasta ári.
• Sóknarmarkstímabilin tvö á síð-
ari helmingi ársins verða sameinuð
í eitt til að auðvelda mönnum
skipulag veiða, kvótar á sportbáta
verða felldir niður en koma þess í
stað til þeirra sem hafa tulla at-
vinnu af útgerð smærri báta og að
síðustu verður skipstjóra og skips-
höfn sem skipt hafa bát 51 brl. eða
stærri gefinn kostur í því að aflak-
vóti nýja bátsins miðist við aflar-
eynslu áhafnarinnar á fyrra
skipinu.
*
Ovíst um
aflaaukningu
Sjávarútvegsráðherra sagði á
fréttamannafundi í gær, að ekki
væri enn vitað hvað þessar
breytingar á kvótareglum þýddu í
auknum heildarafla. Ekki væri
búið að reikna dæmið og ýmsar
leiðréttingar ættu eftir að koma til
viðbótar. Menn teldu meira mál að
þessi atriði yrðu leiðrétt en að
eitthvað yrði farið fram yfir. Þá
kæmi ýmislegt til að falla út á móti.
Aðspurður um áhrif hinnar
miklu þorskgöngu í Breiðafirði á
endurskoðun á hámarksþorskafla
á árinu, sagði ráðherra að einum of
mikið væri gert úr þessari göngu.
Hún kæmi engum á óvart. Hins
vegar væri æskilegt að taka ákvörð-
un um endurskoðun sem fyrst en til
að slíkt væri hægt þyrfti frekari
upplýsingar. Kristján Ragnarsson
formaður LÍÚ sagði að fiskifræð-
ingar hefðu lofað að skila endur-
skoðun í síðasta lagi 15. apríl. „Við
viljum fá þetta sem fyrst og vonum
að það geti orðið fyrr en áðurnefnd
dagsetning“, sagði Kristján.
„Trúum þessu ekki“
Fréttir um að lélegri fiski væri í
nokkrum mæli hent fyrir borð á
bátaflotanum komu til umræðu á
fundinum og töldu ráðherra, for-
maður LÍU og fulltrúi veiðieftirl-
itsins að slíkar fréttir væru nokkuð
miklaðar. Þeir tryðu ekki slíku upp
á íslenska sjómenn. Reynt væri
eftir föngum að hafa eftirlit með
þessu. Gæði fisks hefði batnað,
ekki síst vegna þess að netum í sjó
hefði fækkað og það væru ánægju-
legar fréttir.
Ekki vildi sjávarútvegsráðherra
trúa því að margir bátar væru við
það að klára þorskaflakvóta sinn.
Menn yrðu að standa við þau
markmið sem sett voru og þegar
svo mikið væri í húfi væri mikils
vert að halda sig við þau markmið
sem kvótakerfið setur. Kristján
Ragnarsson sagði að útvegsmenn
yrðu að standa við 220 þús. tonna
þorskkvóta á þessu ári. Sjávarút-
vegsráðherra sagði það rétt að lík-
lega yrði þorskaflinn eitthvað meiri
á árinu þar sem svigrúm væri í kerf-
inu á að flytja á milli tegunda og
alltaf hefði verið gert ráð fyrir því
að farið yrði meira yfir í þorsk.
„Menn verða að standa við þau
markmið sem sett voru“, sagði Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð-
herra m. a. þegar hann kynnti ásamt
samráðsmönnum sínum „nauðsyn-
legar“ breytingar á kvótatyrirkomu-
laginu. Mynd -eik.
Halldór Ásgrímsson sagðist
vissulega óttast tímabundið
atvinnuleysi hjá sjómönnum og
fiskiðnaðarfólki á árinu, en kvót-
akerfið hefði gefið fólki meiri
tryggingu fyrir atvinnu en annars
hefði orðið. Kristján Ragnarsson
sagði að menn yrðu að ætla hverju
byggðarlagi að gæta að sínum mál-
um á árinu og tryggja jafna at-
vinnu. „Menn verða að halda þetta
út“, sagði formaður LÍÚ: -lg-
Fjölbreytt Hollandshátíð verður
haldin f Háskólabíó á morgun sunn-
udag og hefst hún kl. 14. 00. Fjöl-
margir hollenskir og íslenskir lista-
menn koma fram á þessari fjöl-
breyttu fjölskylduhátíð. I gær efndu
hollensku listamennirnir til uppá-
komu á Lækjartorgi til að minna á
hérvist sína á landinu, og tók eik
þessa skemmtilegu mynd af þeim
við það tækifæri.
Ný reglugerð um stjórn Kjarvalsstaða:
Atkvæðisréttur tek-
inn af listamönnum
FulltrúarSjálfstæðisflokksinsístjórnKjarvalsstaðadróguígærtilbaka yfirstjórn hússins skuli sameinuð
tillögu sína um að útiloka listamannasamtökin frá stjórn hússins, en hún og þar ráðinn forstöðumaður sem
hafði mætt sterkri andstöðu. Þeir lögðu fram nýja tillögu um að í stjórn-^i hefur listfræðilega menntun. Hins
inni skyldu sitja tveir fulltrúar frá Bandalagi íslenskra listamanna og skal
annar þeirra vera myndlistarmaður. Áður höfðu fulltrúarnir tveir verið
frá Félagi íslenskra myndlistarmanna og BÍL. Itök listamanna eru hins
vegar skert frá því sem áður var, þó fjöldinn sé sá sami, því af þeim er
tekinn atkvæðisréttur um val borgarlistamanna. Þeir skulu nú eingöngu
valdir af pólitískt kjörnum fulltrúum.
Það tók stjórn Kjarvalsstaða 5
tíma að afgreiða nýju reglugerðina
í gær. Fulltrúar listamanna, Þor-
gerður Ingólfsdóttir frá BÍL og Jón
Reykdal frá FÍM hafa ekki atkvæð-
isrétt um hana og fulltrúi Kvenna- v
framboðs, Guðrún Erla Geirsdótt-
ir, sat hjá við afgreiðsluna. Hún
flutti fjölda breytingatillagna en
aðeins ein þeirra náði fram að
ganga, sú, að forstöðumaður skuli
vera menntaður listfræðingur.
„Ég tel ýmislegt til bóta í þessari
nýju reglugerð", sagði Gerla í gær,
„en þar eru líka atriði sem ég get
ekki stutt. Ég fagna því t. d. að
vegar er gert ráð fyrir því, að þetta
komi ekki til framkvæmda fyrr en
eftir tvö ár og fyrir því eru engin
rök. Það hefur ekki reynst nógu vel
að skipta yfirstjórninni í tvennt, -
það eru allir sammála um að breyta
því og auðvitað væri eðlilegt að
gera það þá eftir 6 mánuði en ekki
tvö ár, eins og tillaga mín var.
Það er líka mjög til bóta frá upp-
haflegum tillögum ^Sjálfstæðis-
flokksins að fá fulltrúa myndlistar-
manna inn í stjórnina í gegnum
BÍL“, sagði Gerla, „en það er
slæmt að listamenn skuli ekki leng-
ur hafa atkvæðisrétt um val borgar-
listamanns og ekki neitt að segja
um kaup á listaverkum. Mér hefði
þótt eðlilegt að forstöðumaður og
fulltrúi myndlistarmanna í stjórn
hússins hefðu töluvert um lista-
verkakaup að segja, en pólitískt
kjörnir fulltrúar virðast ekki þurfa
faglegt mat sér til stuðnings í þeim
efnum!“
A fundinum voru lögð fram bréf
frá listamannasamtökum þar sem
m. a. er lýst stuðningi við breyting-
ar á yfirstjórn hússins en því mót-
mælt að listamenn hafi ekki at-
kvæðisrétt um val borgarlista
manna og enga aðila að listaverka
kaupum.
Borgarstjórn fjallar væntanlega
um þessa nýju reglugerð eftir 3 vik-
ur.
-ÁI
Fimm marka sigur Sovét manna á Akureyri
Atli áfram bestur
Samningur borgarinnar og
Starfsmannafélagsins:
Unglingataxta mótmælt
Á fundi borgarstjóra sl.
fimmtudag kvaddi Guðrún Ágústs-
dóttir, borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins sér hljóðs vegna
samnings Starfsmannafélags
Reykjavíkur við Reykjavíkurborg,
en Guðrún sat hjá þegar borgarráð
samþykkti samninginn.
{ bókun Guðrúnar vegna þessa
segir: „Ég treysti mér ekki til að
samþykkja nýjan aðalkjarasamn-
ing við Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar, þar sem ég tel að ver-
ið sé að víkja frá vegamiklu atnði í
fyrri kjarasamningum með ákvæði
um sérstakan unglingataxta. Áður
hefur fólk á aldrinum 16 - 18 ára
verið viðurkennt sem fullgilt vinn-
uafl og fengið laun samkvæmt því.
Hér er því um verulega afturför
frá fyrri kjarasamningaunt að
ræða, sem erfitt getur verið að
leiðrétta. Ég sat því hjá við at-
kvæðagreiðslu um samninginn í
borgarráði."
Ekki tókst heimsmeisturum So-
vétmanna í handknattleik að hrista
fslensku landsliðsstrákana af sér á
Akureyri í gærkvöldi, frekar en í
fyrri leik liðanna í fyrrakvöld. So-
vétmenn voru þó ávallt með undir-
tökin og sigruðu verðskuldað, 27 -
22.
Strax í upphafi náði heimsmeistar-
arnir forystu, 1 - 4, og hana réði
íslenska liðið aldrei við. Þriggja
marka munur hélst lengst af í fyrri
hálfleik, 7 - 4 og 9 - 6 en undir lok
hans komust Sovétmenn í 13 - 8 og
leiddu 15 - 10 í liléi.
Páll Ólafsson skoraði tvö fyrstu
mörk síðari hálfsleiksins, 15 - 12,
og síðan var 3-4 ntarka ntunur þar
til tíu mínútum fyrir leikslok að So-
vétmenn náðu fimm marka for-
ystu, 24 - 19, og í þeim dúr urðu
lokatölurnar, 27 - 22.
Öðru sinni var það Atli Hilmars-
son sem var besti maður íslenska
liðsins. Hann var tekinn úr umferð
allan fyrri hálfleik og gerði þá tvö
mörk en var sleppt í þeim síðari og
dældi þá inn fimm eintökum. Krist-
ján Arason og Páll Ólafsson léku
ágætlega og sömuleiðis var Þorgils
Óttar Mathiesen frískur á línunni
þrátt fyrir örðuga byrjun gegn frá-
bærum markverði Sovétmanna.
Annars var sóknarleikur íslenska
liðsins ekki nógu beittur og hálf-
gert áhugaleysi gerði vart við sig í
honum, í kjölfar langdreginna
sóknarlota virtist aðeins skyldu-
verkefni að ljúka þeim með skoti.
Þá var markvarslan á núlli, Brynjar
Kvaran varði 4 skot en Jens Einars-
son ekkert.
Marvörðurinn Sukanov var best-
ur Rússanna, sýndi stórgóða mark-
vörslu og varði 17 skot. Af öðrum
bar mest á Berzenschtein, hann
stjórnaði leik liðsins og skoraði
nánast að vild að utan.
Mörk Islands: Atli 7, Kristján 5 Páll 4,
Þorgils Óttar 2, Sigurður Gunnarsson 2,
Guðmundur Guðmundsson 1 og Steinar
Birgisson 1
Mörk Sovét: Berzenschtein 6, Kazs-
hakecic 6, Rymanov 4, Shevztov 3, Val-
utzkaz 3, Gagin 2, Norvizki 2 og Belov 1.
Norsku dómararnir voru einum
of strangir og voru sumir dómar
þeirra, einkum rm' ingsdómar,
nokkuð furðulegir.
-K . Í/Akureyri