Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 1
LANDIÐ MENNING ÍÞRÓTTIR Farmgjöld Nær50% lækkun Eimskip lœkkar farmgjöld áfiski til Sovétríkjanna úrl02 dollurum Í55 dollara á tonnið. Lœkkunin nemur 31 miljón króna á nœsta ári Fullyrða má að fáar fréttir hafi vakið meiri athygli hjá fólki, en þegar sagt var frá því um helg- Akureyri Makbeð slóút Makbeð, leikritið þekkta eftir Shakespeare, var sýnt við miklar undirtektir hjá Leikfélagi Akur- eyrar í síðustu viku. Þar var á ferð þekktur breskur leikhópur, London Shakespeare Group. Svo mikil voru tilþrifin í þessu magnaða stykki að spennan hleypti upp hnútum á hörundi áhorfenda. Þegar svo rafmagninu sló út í fimm mínútur kippti eng- inn sér upp við það - menn héldu hins vegar að þetta tilheyrði og væri leikbragð til að magna enn upp spennuna! Leikarar og aðstandendur sýn- ingarinnar supu hins vegar hveij- ur uns rafmagnið kom á aftur, því frægt er að alls kyns uppátæki tengist sýningum á Makbeð, sum ekki alltaf jafnskemmtileg. -ÖS ina að Eimskipafélag íslands hafl í útboði lækkað farmgjöld á fiski til Sovétríkjanna fyrir SH um nær 50% eða úr 102 dollurum á tonn- ið nður í 55 dollara. Fólk hefur eðlilega spurt hvað er hér á seyði? Þjóðviljinn innti Guðmund H. Garðarsson blaðafulltrúa SH eftir því, hve mikil lækkunin væri í krónum talið miðað við að jafn mikið magn af fiski yrði flutt til Sovétríkjanna 1985 og var á þessu ári. Guðmundur sagði að þar væri um einfalt reikningsdæmi að ræða. í ár væru fluttar út 16.500 lestir af fiski til Sovétríkjanna á vegum SH. Áður voru greiddir 102 dollarar fyrir tonnið nú 55, munurinn væri því 47 dollarar á tonnið. Sé þetta margfaldað sam- an miðað við gengi dollarans í dag sem er 40 krónur þá nemur farmgjaldalækkunin 31 miljóna króna. Þá var Guðmundur inntur eftir því hvers vegna SH hefði ekki boðið flutninga sína út fyrr og sagði hann að stjórn SH myndi svara þessari spurningu. Eitt er ljóst að sú skýring sem Eimskip hefur gefið á þeim miklu farmgjaldalækkunum, sem SH hefur náð fram hjá félaginu með undangengnum útboðum, verða ekki skýrðar með því að aukin hagræðing hafi átt sér stað hjá félaginu. Ef til vill að einhverju leyti en ekki öllu. -S.dór Jolatréð fra Fredriksberg i Danmörku. sem hefur verið komið fyrir a Thors- plani i Hafnarfirði, var tendrað sl. laugardag. Sendifulltrúi Danmerkur afhenti treö en Einar I. Baldvinsson veitti þvi viðtöku. Jola sveinar foru auðvitað að a kreik að athöfninni lokinni og er myndin tekin við það tækifæri. Ljosm.-eik. Ríkisstjórnin Verðbólgan í 60 prósent Verðbólgan mun hœkka á nœstu mánuðum og ná hámarki ífebrúar Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans var hækkun fram- færsluvísitölunnar I nóvember- mánuði einum saman um 4,5 til 5 prósent. Á ársgrundvelli svarar þettatil um75prósentverðbólgu. Hins vegar er mun marktækara að miða við þriggja mánaða tíma- bil. Miðað við síðustu þrjá mán- uði, tímabilið 1. september til 1. desember, var verðbólgan þann- ig á ársgrundvelli um rúm 30 prósent. Spár sem hafa verið gerðar um verðbólguna á næstu þremur mánuðum, þ.e. desemb- er til febrúar gera hins vegar ráð fyrir mjög auknum verðbólgu- hraða og samkvæmt þeim mun verðbólgan verða um 60 prósent í febrúarbyrjun, miðað við árs- grundvöll. Slík spá birtist meðal annars í tímaritinu Vísbending, sem gefið er út af Kaupþingi. Talið er að verðbólgan muni ná hámarki í febrúarbyrjun og eftir það fara minnkandi. í marsbyrj- un er líklegt að verðbólgan verði komin niður í 50 prósent og niður í 38 prósent í aprflbyrjun. Gengisfellingin sem ríkis- stjórnin stóð fyrir á mikinn þátt í hinum aukna snúningshraða verðbólguhjólsins. _q§ Selfoss 40 atvinnu- lausir Atvinnuástandið hérna er alls ekki nógu gott. Það eru um 40 manns á atvinnuleysisskrá og það hefur verið að síga á ógæfuhliðina síðustu vikur, sagði Hafsteinn Stefánsson hjá Verkalýðsfélaginu Þór á Selfossi í samtali við Þjóð- viljann f gær. Hafsteinn sagði að nú stefndi í það sama og um síðustu áramót en þá voru mest 80-90 manns á atvinnuleysisskrá á Selfossi. Hér er mest um almennt verkafólk að ræða. aðallega konur. „Ég get ekki séð að hér verði neitt gullregn í náinni framtíð. Menn verða að átta sig á því að það er ekki bæði hægt að binda skip og bjóða upp og ætla að halda uppi fullri atvinnu á sama tíma“, sagði Hafsteinn. _i„ Söluskattshœkkunin Stjómarliðar í andófi Varaformaður Sjálfstæðis- flokksins og þingflokksfor- maður Framsóknarflokksins skrifa undir nefndaráiit meiri- hluta fjárhags og viðskiptanefnd- ar neðri deildar um söluskatts- hækkun með fyrirvara. Þeir Friðrik Sophusson vara- formaður Sjálfstæðisflokksins og Páll Pétursson þingflokksfor- maður Framsóknarflokksins skrifa undir með fyrirvara og er greinilegt að ríkisstjórninni og Albert Guðmundssyni fjármála- ráðherra er gert þannig erfiðara fyrir en ella að knýja söluskatts- hækkunina í gegn. Þetta þykir og gefa ótvírætt til kynna óánægju og andóf gegn ríkisstjórninni meðal stjórnarliða á þingi. -<>g

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.