Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR
Skipaviðgerðir
Hundmð miljóna
fara forgörðum
Alþingi
Landsmiðjan seld
Einungis 23 afyfir 70 starfsmönnum keyptufyrirtœkiðfyrir rúmlega 22
miljónir króna. Óvísthvað verður um grunninn sem kostaði 66 miljónir
Einungis 23 af yfir 70 starfs-
mönnum Landsmiðjunnar
vilja og/eða geta gerst eigendur að
Landsmiðjunni. Hjörleifur Gutt-
ormsson og fleiri stjórnarand-
stöðuþingmenn lýstu efasemdum
sínum um að hér væri stigið skref
í atvinnulýðræðisátt eins og
stjórnarsinnar vildu vera láta.
Söluverð verður rúmlega 22 milj-
ónir króna.
Hjörleifur Guttormsson kvaðst
efast um að þessi sala væri ríkinu
hagkvæm - og jafnvel þorra
starfsmanna. Óvíst væri um at-
vinnuöryggi starfsmanna og fjöl-
margir þættir málsins þyrftu nán-
ari skoðunar við. Hjörleifur benti
á að húsgrunnur að Skútuvogi 7,
sem talinn er hafa kostað 66 milj-
ónir króna, væri ekki inní
kaupunum en óvissa sé um afdrif
þeirrar eignar. Hjörleifur lagði til
að málinu yrði vísað til ríkis-
stjórnarinnar, - og að það yrði
lagt fyrir næsta alþingi, þar sem
m.a. yrði tryggt að allir fastráðnir
starfsmenn ættu sameiginlegan
hlut í fyrirtækinu.
Guðrún Agnarsdóttir kvað
liggja skýrt fyrir hvers vegna ætti
að selja Landsmiðjuna; ekki
væru það hagkvæmnissjónarmið
fyrir ríkið, ekki atvinnulýðræðis-
sjónarmið, - og kvaðst undrast
hraða málsins. Hún kvað alþingi
enn einu sinni standa frammi
fyrir orðnum hlut, - það hefði
náðst samkomulag milli kaup-
enda og seljanda - og samþykki
alþingis væri formlegs eðlis. Því
myndi hún sitja hjá við afgreiðslu
málsins. Kjartan Jóhannsson
kvaðst myndu styðja málið.
Svavar Gestsson kvað nauð-
synlegt að einhverjar fastar regl-
ur væru um mat á eignum ríkis-
ins. Og hann undirstrikaði þá
stefnu Alþýðubandalagsins að
starfsfólkið réði yfir fyrirtækjun-
um og að miðstýrt efnahagskerfi
væri fráleitt stefna þess. Hann
kvað nauðsynlegt að atvinnumál í
Reykjavík kæmu til kasta þings-
ins, þar sem framleiðslugreinar
hefðu dregist þar saman. Sverrir
Hermannsson lýsti sig sammála
Svavari um að reglur um „hvern-
ig meta skuli" þyrftu að verða til,
- og hann hefði oft verið í vafa um
söluverð fyrirtækja. f máli hans
kom og fram, að hann hefði í
grundvallaratriðum ekkert á
móti opinberum rekstri.
Frumvarpið varð að lögum
eftir þriðju umræðu í neðri deild.
-óg
Hún færi létt með það húsmóð-
irin heppna á Stokkseyri að
kaupa Kröflu af Sverri Her-
mannssynl.
Sundurlyndi og áhugaleysi járnsmiðjunnar í
Reykjavík
Jólasveinarnir þurfa að stússast í ýmsu. Mynd - eik.
Verðlag
Hundruð miljóna króna fara
árlega forgörðum vegna þess
að ekki er nógu góð aðstaða til
viðgerða á kaupskipum hér á
landi, sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson á alþingi í gær um leið
og hann vakti athygli á að vegna
sundurlyndis og áhugaleysis hefði
ekki verið hafist handa við Skipa-
verkstöð í Kleppsvík við Reykja-
vik.
Guðmundur kvað Reykjavík-
urborg til skamms tíma hafa lagt
áherslu á að Slippfélagið og
járnsmiðjur í Reykjavík mynd-
uðu með sér samtök um þetta
verkefni, en samtakamáttinn
hefði vantað meðal þeirra. Hins
vegar hefði Landssmiðjan brugð-
ist vel við áskorunum um þetta
þjóðþrifafyrirtæki og sótt um lóð,
því væri ekki hægt að ásaka hana
fyrir fjárfestinguna í grunninum
dýra. Guðmundur kvað álitið að
á miili 80% og 90% af viðgerðum
á kaupskipum færu fram er-
lendis.
-óg
Askasleikir á fimmþúsundkall
að hlýtur að kosta sitt fyrir
jólasveinana að komast til
byggða ofan úr fjóllunum. Að
minnsta kosti þurfa þeir að fá
5000 til 6000 krónur fyrir að
koma fram á jólatrés-
skemmtunum.
Askasleikir, hinn kunni jóla-
sveinn, hefur skemmt okkur í 28
ár. Nú kostar 5000 krónur að fá
hann í heimsókn ásamt Jóhanni
Benjamínssyni sem hefur fylgt
með honum með harmóníku síð-
an árið 1966.
Stúfur, Gáttaþefur og Grýla
keyra um jólaskemmtanir á kass-
abíl með gítar í för með sér.
Þau eru á vegum Alþýðu-
leikhússinsog taka 6000 krónur
fyrir heimsóknina. Pá er að nefna
Hurðaskelli sem sagði Þjóðvilj-
anum að það kostaði hann svipað
að komast til byggða og hina jóla-
sveinana, enda fylgir honum
undirleikari. Umboðsmaður
Hurðaskellis er í Hafnarfirði og
teljum við fara vel á því að for-
maður jólasveinafélagsins búi
þar!
-jP
HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS
HaDDdrættismiðar hafa nú verið sendir út til áskrifenda
og þeir vinsamlegast beðnir að gera skil sem allra fyrst.
712^ 884^ , 8012(i| 1677 GÍRÓ-SEOILL Q NR
Happdrætti Þjóðviljans Síðumúla 6
Jón Jónsson Laugavegi 200 105 Reykjavík Alþýðubankinn h.f.
Algreiðslustaður viðskiptasiolnunar Aðalbanki
Tegund reikmr.gs -Jjiroreiknmgur ; Avisanareiknmgur . AllauDareikningur
Skyring greiðslu
Happdrættismiðar
Hægt er að gera skil á afgeiðslu Þjóðviljans Síðumúla 6, hjá Alþýðubandalaginu Hverfisgötu 105,
hjá umboðsmönnum um land allt, greiða með gíróseðli í banka eða pósthúsi (sjá sýnishorn um
útfyllingu). Á Reykjavíkursvæðinu er hægt að sækja greiðslu til þeirra sem þess óska og er tekið
við þeim beiðnum í síma 81333.
Ekki stætt
utan dyra
Pakplötufjúk. Bílvelta. Skip
komust ekki íhöfn. Rútur lengi ú
leið
Ihvassviðrinu á laugardaginn
var rúta hætt komin í Kolla-
firði, bfllfauk afvegi milliól-
afsvfkur og Grundarfjarðar, allt
lauslegt fauk um Olafsvík og
þakplötur fóru af fiskverkunar-
húsi, einu einbýlishúsi og nokkr-
um fjárhúsum. Á Patreksfirði var
mikið brim i bænum og varla
stætt. A Isafirði var ekki stætt á
nokkrum stöðum í bænum. Skip
komust ekki í höfn á ísafirði,
Patreksfirði og víðar vestan-
lands.
Eftir að bíll fauk út af veginum
milli Ólafsvíkur og Grundarf-
jarðar komust tveir menn sem í
honum voru við illan leik gegnum
veðurofsann að eyðibýli í Eyrar-
sveitinni. Þar fundust þeir eftir að
leit var hafin. Snæfellsrútan lagði
af stað frá Reykjavík kl. 13 á
laugardag. Þrívegis fékk hún á sig
kröftugar vindrokur í Kollafirð-
inum svo litlu munaði að hún fyki
út af veginum. Eftir 6 tíma akstur
komst hún að Vegamótum og
beið þar í rúma 2 tíma vegna
hvassviðris áður en lagt var í
Kerlingarskarðið.
Ekki var stætt á Hellissandi
þegar verst var en veðrið gekk
síðan snögglega niður.
Að sögn Vegaeftirlitsins er nú
víðast hvar þokkaleg færð. í gær
snjóaði mikið frá Vík vestur og
norður í Þingeyjarsýslur. Þó er
hægt að komast leiðar sinnar,
nema yfir fjallvegi á Snæfellsvegi
og Öxnadalsheiði sem er einungis
fær stórum bflum og jeppum.
-ÍP
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Þriðjudagur 18. desember 1984