Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 20
Aðalsími: 81333. Kvðldsími: 81348. Helgarsími: 81663. DJOÐVIUINN Þriðjudagur 18. desember 1984 253. tölublað 49. örgangur Jólapósturinn Flugpostur látinn liggja Flugleiðir sögðust ekki anna öllum póstflutningum. Há póstfjöll mynduðust , Jú, það er rétt, póstflutningar tii og frá landinu lágu niðri um tíma fyrir helgi þar sem Flug- leiðamenn báru því við að flutn- ingsgeta þeirra annaði ekki þess- um pósti, en þetta er komið í lag núna“, sagði Björn Björnsson póstmeistari í samtali við Þjóð- viljann. Allir póstflutningar frá landinu lágu niðri fyrir síðustu helgi og mynduðust mikil póstfjöll beggja vegna Atlantshafsins en í gær voru fjöllin að mestu hreinsuð upp. Björn sagðist ekki búast við öðru en að pósturinn sem þurfti að bíða flutnings kæmist í réttar hendur fyrir jólahátíðina. „Það gengur mjög vel hjá okk- ur að afgreiða póstinn hér í nýja húsinu og aldrei gengið eins vel í jólaösinni. Við erum í raun alveg undrandi hvað þetta rúllar hratt hér í gegn“, sagði Björn. Reikn- að er með að um 100 þúsund bögglar verði póstaðir í Reykja- vík í þessum mánuði og annað eins berist erlendis frá. - lg. Um helgina dreifðu borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins einblöðungi þar sem vakin er athygli á hörmulegu ástandi dagvistunarmála í Reykjavík og slælegri frammistöðu borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokksins í þeim málaflokki. Myndin er tekin í garranum á laugardag þar sem þær Adda Bára Sigfúsdóttir oq Guðrún Agústsdóttir standa í ströngu. Ljósm.: eik. Gengisfellingin Mildandi aðgerðimar að mestu komnar fram Verið er að skoða húsnœðismálakerfið Eftir að gengisfellingin var framkvæmd í nóvember sl. taiaði ríkisstjórnin um „mild- andi" aðgerðir sem fylgja ættu í kjölfarið. Fyrst í stað var Ijóst að ekki náðist samkomulag í ríkis- stjórninni um hverjar þessar að- gerðir ættu að vera. Var margt nefnt til þjá þingflokkum ríkis- stjórnarinnar en samkomulag náðist um fæst. Þjóðviljinn innti Steingrím Hermannsson forsætisráðherra eftir því í gær, hvenær væri að vænta þessara mildandi aðgerða. Hann sagði: „Þessar aðgerðir eru að veru- legu leyti komnar fram og þær felast fyrst og fremst í þeim breytingum sem gerðar voru á tryggingalögunum. Það kemur í ljós að þær eru viðameiri en búist var við. Það voru settar 100 milj- ónir til að hækka hundraðshluta hjá ellilífeyrisþegum. Eins hefur verið dregið verulega úr greiðslum sjúklinga og það er einnig verulega miklu meira en við áttum von á.“ Er þá ekki neins fleira að vœnta? „Ja, það er verið að skoða tvo þrjá aðra hluti sem ég get ekki greint frá núna, svo sem varðandi húsnæðismálin“, sagði forsætis- ráðherra Steingrímur Hermanns- son. - S.dór. Pjófnaður Maður undir grun Teikningu eftir Mugg stolið Aföstudaginn var, var stolið lít- illi teikningu eftir Mugg en hún var á sýningu sem haldin er á verkum hans í Listasafni ASÍ um þessar mundir. Þetta er blýants- teikning frá árinu 1913 af sofandi barni og er aðeins 12,5 x 14,7 sm að stærð. Nefnist hún Beta og er teikning af Elísabet Waage, syst- urdóttur listamannsins, með per- sónulegri áletrun. Er hún í eigu Elísabetar og því ákaflega sárt fyrir hana að missa svo persónu- legt listaverk. Rannsóknarlög- reglan hefur unnið ötullega að rannsókn málsins en síðdegis í gær var ekki búið að hafa uppi á þjófnum. Málsatvik voru þannig að safn- ið var á föstudag opið fyrir nem- endur Myndlista- og handíða- skólans sem voru í tíma í lista- sögu. Mun maður nokkur hafa slæðst inn á safnið með hópnum og leikur grunur á að hann sé þjófurinn. Ekki er þó vitað hver hann er. Þess skal getið að nær ómögulegt er að koma stolnu listaverki af þessu tagi í verð hér heima og hæpið að koma því í verð erlendis. Gáfulegast væri því fyrir þjófinn að skila því hið snarasta. - GFr. Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd ÍSLAND VERÐI MEÐ OlofPalme: aðild Islands styrkir áhrifamátt kjarnorkuvopnalauss svœðis á Norðurlöndum Aðild íslands að kjarnorku- vopnalausu svæði á Norður- löndum myndi gera framkvæmd hugmyndarinnar flóknari en hún myndi um leið styrkja áhrifamátt svæðisins til slökunar og upp- byggingu gagnkvæms trúnaðar, sagði Olof Palme, forsætisráð- herra Svíþjóðar, á fundi í hátíð- arsal Háskóla íslands á föstudag- inn. Þar flutti Palme sköruglega ræðu um öryggi og frið í heimin- um og hlutverk Norðurlanda. í ræðu sinni sagði Palme að kjarn- orkuvopnin hefðu breytt inntaki stríðsins og að enginn gæti sigrað í slíku stríði. Vígbúnaðarkapp- hlaupið stendur ekki bara á milli stórveldanna, sagði Palme, þau leika sér um leið með líf okkar og framtíð. Palme minntist á þá stór- auknu vígvæðingu sem átt hefði sér stað sl. 2 ár og spurði fundar- menn hvort þeir teldu að hún hefði aukið öryggið í heiminum. Nei, sagði Palme, aukin vígvæð- ing leiðir til stöðugt meira óör- yggis. Öryggismál heimsins verða ekki leyst með tæknilegum með- ulum eins og stjörnustríðshug- myndinni, það eru aðeins til pól- itískar leiðir er leitt geta til sam- eiginlegs öryggis. Palme sagði að það væru sameiginlegir hagsmun- ir stórveldanna og alls mannkyns að ekki brytist út kjarnorkustyrj- öld, og út frá þessum sameigin- legu hagsmunum yrði að finna pólitíska Ieið til þess að eyða tor- tryggni og draga úr vígbúnaði. Palme sagði að hugmyndin um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum væri mikilvægur liður í utanríkis- og öryggismála- stefnu sænsku stjórnarinnar, og hann sagðist telja að bjóða ætti íslandi aðild að slíku svæði. Palme taldi að slíkt svæði myndi draga úr áhættunni á að styrjöld brytist út og hafa áhrif í átt til aukins gagnkvæms trausts á milli stórveldanna. Hann sagði jafn- framt að framkvæmd hugmynd- arinnar væri háð velvilja stór- veldanna og undirbúningur hennar krefðist mikillar þolin- mæði. Þótt mönnum kunni að virðast að hugmyndin eigi langt í land nú, þá geta aðstæður breyst á skömmum tíma. Palme sagði á blaðamannafundinum sem hald- inn var eftir fundinn í Háskólan- um að þótt Svíar byggðu á tiltölu- lega öflugum hervömum, þá væri varnarmáttur þeirra fyrst og fremst fólginn í utanríkispólitík- inni. „Ég lít raunsæjum augum á málin“, sagði Palme, „en það að vera raunsæismaður felur líka í sér að maðurvonar“. Olof Palme hélt heim á laugardag. Jólin koma

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.