Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 12
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
FLÓAMARKAÐURINN
Áskorun
Greiðið flokks- og félagsgjöldin fyrir jól!
Hér meö er skorað á alla þá sem enn hafa ekki gert skil á flokks- og
félagsgjöldum ársins aö greiða þau fyrir jól. Munið að þetta er
megintekjulind flokksins. Það má enginn skerast úr leik. Gíróseðl-
ana má greiða í öllum bankaútibúum og pósthúsum. - Gjaldkerar.
NYJAR B/íKUR
Veistu svarið?
Veistu svarið? heitir nýútkomin
bók frá bókaútgáfunni Vöku.
Þetta er bók, sem nú bætist í hið
vinsæla safn tómstundabóka
Vöku. Veistu svarið? er alíslensk
spurningabók hin fyrsta sinnar
tegundar. Axel Ammendrup er
höfundur bókarinnar, en Þor-
steinn Eggertsson hefur mynd-
skreytt hana.
í bókinni Veistu svarið? eru
spurningar úr ýmsum áttum,
mörg afbrigði spurningaleikja
um menn og málefni, sögu Is-
lands, landið sjálft og þjóðlífið.
Þá er spurt um önnur lönd og álf-
ur og sitt af hverju sem tengist
nútíð og fortíð. Spurt er um dæg-
urflugur og lesendur eru prófaðir
í reikniþrautum. Sumar spurn-
ingarnar eru léttar, aðrar erfið-
ari. í bókinni er að finna spenn-
andi stigakeppni og einnig gátur
og glens, enda er markmiðið að
sameina í bókinni spennu, gagn
og gaman.
Endurminn-
ingar
Póris Bergs-
sonar
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur gefið út Endurminningar
Þóris Bergssonar. Þórir Bergsson
var höfundarnafn Þorsteins Jóns-
sonar sem hefur lengi verið talinn
einhver fremsti höfundur smá-
sagna hér á landi.
Smásagnasöfn Þóris Bergs-
sonar, sem stunda varð ritstörf í
tómstundum, urðu alls átta. Úr-
val þeirra hefur komið út og svo
ritsafn hans í þrem bindum.
Hann lést árið 1970 og með því
síðasta sem hann færði í letur
voru þessar endurminningar.
Hannes Pétursson og Krist-
mundur Bjarnason sáu um útgáf-
una en formálsorð eru eftir Guð-
mund G. Hagalín.
Fjallakrílin
- ný barnabók
Fjailakrflin - óvænt heimsókn
heitir barnabók eftir Iðunni
Steinsdóttur sem Bókhlaðan gef-
ur út.
Þetta er framhald af bókinni
Fúfu og fjallakrílin sem kom út í
fyrra. Fjallakrílin munu vera
sköpunarverk höfundar og er því
lofað í bókarkynningu að kátt sé í
koti hjá þeim og talsvert um
óvæntar heimsóknir. Búi Krist-
jánsson teiknaði myndir í þessa
sögu.
Viðskiptavinir
athugið
Ás;verndaða vinnustofan sem Styrktarfélag vangef-
inna hefur rekið undanfarin þrjú ár inn við Stjörnugróf,
hefur flutt alla sína starfsemi í Brautarholt 6, 4. hæð.
Nýtt símanúmer er 62 16 20 og pósthólf 5110 125 R.
Opið 9-16.
Ás mun kappkosta að hafa ávallt til á lager afþurrkun-
arklúta, gólfklúta, borðklúta, bónklúta, handklæði,
þvottapoka, diskaþurrkur og bleyjur. Vönduð vinna úr
góðum efnum ásamt sanngjörnu verði stuðlar að
ánægju í viðskiptum.
Vinnustofa
Styrktarféiags
vangefinna
í Reykjavík
Frá
menntamálaráðuneytinu
LAUS STAÐA
Staða skólameistara Fjölbrautaskólans á Akranesi er hór með auglýst laus til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Starfið verður veitt frá 1. júní 1985. Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum
um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 101 Reykjavík, fyrir 31. janúar 1985.
Menntamálaráðuneytið
14. desember 1984.
Gömul AEG-eldavél
smábiluð, fæst gefins. Uppl. á Tún-
götu 36 eftir kl. 17.30.
Við erum ungt par
fyrir vestan sem vantar 2ja herb. íbúð
næsta haust, þegar betri helmingur-
inn fer í skóla. Við getum borgað vel
fyrirfram ef leigan er sanngjörn. Uppl.
í síma 94-4259.
Fjögurra manna fjölskylda
(2 stálpuð börn) óskar eftir að taka á
leigu íbúð eða hús í mið- eða vestur-
bænum frá 1. jan. '85. Öruggar
greiðslur, þ.e. fyrst einn mánuð síðan
2 í einu. Upplýsingar í síma 12126
eða hafið samband við auglýsinga-
deild Þjóðviljans í síma 81333.
YOGA
Hefur þú áhuga á Yoga? Viltu læra
hugleiðslu? Hringdu þá í síma 27638
á kvöldin.
Litasjónvarp
Áttu litasjónvarp, sem þú þarft ekki að
nota um jólin? Ertu til í að lána mér
það? Uppl. í síma 19848.
íbúð í Kaupm.höfn
I miðborginni ertil leigu 3ja herb. íbúð
í 6 vikur á tímabilinu frá 21. des. til 1.
feb. '85. Uppl. í síma 90-45-1 -549545
íbúð 68.
Myndabúðin
Njálsgötu 44
Myndarammar og málverkaprentanir
á góðu verði. Myndabúðin Njálsgötu
44. Opið frá kl. 16-18.
Vil selja
gamalt þjóðbúningasilfur og gull.
Uppl. veittar í versluninni Gullkistan
Frakkastíg.
Til sölu
mjög gott svart/hvítt sjónvarp. Verð
ca. 1000 kr. Uppl. í síma 76994 e. kl.
19.00.
Til sölu
símaborð með Ijósi og skáhillu fyrir
skrifblokk. Selst ódýrt. Sími 35742.
Stúlka í háskólanámi
óskar eftir íbúð í Reykjavík. Uppl. í
síma 74891.
I
Til sölu
Silvercross barnavagn. Vel með far-
inn. Uppl. í síma 45962.
Til sölu
2 hægindastólar úr leðri. Verð kr.
5000 stk. Uppl. í síma 685953 eftir kl.
19.00.
Jólasveinar 2-4
Starfsmannafélög, klúbbar, fyrirtæki,
verslanir. Ennþá er hægt að fá úrvals
jólasveina af öllum stærðum og gerð-
um við öll tækifæri. Uppl. í síma
618241 e.kl. 19.
2 stk. nýir leðurjakkar
til sölu. Á sama stað óskast til kaups
ódýrt stereótæki. Uppl. í síma 29748
e. kl. 19.
Notaður bakarofn
helst Husquarna óskast. Eða ele-
ment úr Husquarna ofni. Uppl. í síma
16034.
Sölufólk óskast
til að selja þjóðleg almanak Sól-
eyjarsamtakanna (með bæði gömlu
og nýju mánaðarheitunum). Uppi. í
síma 46821 eftir hádegi.
Til sölu
Lada 1600 Canada árg. 1981. Verð
og greiðsluskilmálar eftir nánara
samkomulagi. Uppl. á kvöldin í síma
53902.
Grábröndótt
lítil tveggja mánaðar kisa fæst gefins.
Uppl. gefur Linda í síma 83587 eftir kl.
5.
Til sölu
svefnsófi og skrifborð. Mjög vel með
farið. Uppl. í síma 35297.
81333
/
Er ekki tilvalið
að gerast áskrifandi?
r
'JOÐVIUINN
BRIDGE
Hér er annað spil með þeim
Páli Valdimarssyni og Hannesi R.
Jónssyni sigurvegurum á Opna
mótinu á Akranesi um síðustu
helgi:
xxxx D
x ÁDxx
Kxx xxx
10xxxx ÁDxxx
Páll sat í Austur og vakti á 2
laufum (eðlilegt og lofar lauflit og
opnun), Suður doblaði, Hannes
sagði 3 lauf, Norður pass, Páll
pass og eftir svolítið maus sagði
Suður pass. Nú, útspilið var
spaði, tekið á ás og meiri spaði,
sem Páll trompaði heima. Smár
tígull, lítið frá Suðri, kóngurinn
hélt. Nú spilaði Páll laufi úr borði,
lítið frá Norðri og Páll stakk upp ás
(og skipaði Suðri um leið að láta
kónginn), Páll fékk kónginn (hann
var stakur). Nú kom hjartaás og
meira hjarta trompað í borði,
spaði trompaður heim og þriðja
hjartanu spilað og aftur heimtaði
Páll kónginn (hann fékk hann
einnig í þetta skiptið). Síðan henti
Páll einum tígli í hjartadömu og
fékk 11 slagi og 19 stig af 26
mögulegum fyrir spilið. Brandar-
inn í þessu spili var sá, að bless-
aður maðurinn í Suðri var orðinn
svo leiður á þessu röfli í Páli (og
utan við sig) að hann henti hjart-
akóngnum í þegar Páll bað um
hann, þó hann væri fjórði hjá
Suðri?
En þetta fór þó allt fram í vin-
semd milli þeirra Páls og Hannes-
ar annars vegar og Marons
Björnssonar og Sigurbjörns
Jónssonar hinsvegar. Sem betur
fór.
s
V
%
1
£
\II\MM.\l{>JUi)lJK ÍSLENZtiliAK \1 |,\ ti|
SIGFUS S1GURHJ4RT4RSON
Minningarkortin eru tilsölu á
eftirtöldum stöðum:
Bókabúð Máls og menningur
Skrifstofu Alþýdubandalagsins
Skrifstofu Þjódviljans
Munið söfnunarátak í
Sigfúsarsjóð vegnu
flokksmiðstöðvar
Alþýðuban dalagsins
trrnl .
UMFERÐIN
-VIÐ SJÁLF
Krossgáta
Nr. 39
Lárétt: 1 skarð 4 hamingja 6 fugl
7 tóbak 9 forfeðurna 12 viðburður
14 svar 15 eðja 16 glaðar 19
hreyfist 20 köku 21 hundur.
Lóðrétt: 2 strik 3 feiti 4 óvirði 5
dúkur 7 einir 8 truflar 10 ávexti 11
þáttur 13 skynsemi 17 geisla-
baugur 18 ílát.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 stíg 4 köst 6 lús 7 vala 9
ofn 12 ásana 14 rot 15 ræl 16
illum 19 unni 20 nugg 21 smáir.
Lóðrétt: 2 tía 3 glas 4 kron 5 Sen
7 vörður 8 látins 10 farmur 11
aflaga 13 afl 17 lim 18 uni.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 18. desember 1984