Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 3
FRETTIR
Náttúruverndarráð
Fiskeldismenn áminntir
Stöðvar reistar með opinberum styrkjum án þess álits
ráðsins sé leitað
w
Afundi Náttúruverndarráðs
um helgina var samþykkt á-
lyktun þarsem forsvarsmenn fisk-
eldisstöðva eru teknir á beinið
fyrir að sinna ekki þeirri skyldu ,
að leita til ráðsins áður en farið er
í framkvæmdir. „Þess eru jafnvel
dæmi að fiskeldisstöðvar séu
reistar á svæðum sem eru á nátt-
úrumiiyaskrá“ segir í ályktun
ráðsins „og styrktar af opinber-
um sjóðum án þess að leitað hafi
verið álits Náttúruverndarráðs
einsog lög gera ráð fyrir“. Mun
meðal annars átt við nýlega styrki
úr Byggðasjóði til ýmissa fiskeld-
ismanna.
Ráðið minnir á náttúruvernd-
arlög sem skylda forstöðumenn
við mannvirkjagerð og jarðrask
til að leita álits hjá ráðinu áður en
framkvæmdir hefjast. Einnig
segir í ályktun ráðsins að frá-
rennsli úr fiskeldisstöðvum sé
mjög mengað lífrænum efnum,
og geti sú mengun verið varhuga-
verð.
Ráðið tekur fram að það hafi
yfirleitt brugðist vel við þegar
fiskeldismenn hafa til þess leitað,
og heyri tíl undantekninga að
framkvæmdamenn hafi verið ó-
fúsir að virða óskir ráðsins. „Það
er þjóðinni fyrir bestu að leitast
sé við að sú starfsemi sem hún
rekur taki mið af þeim lögmálum
sem landið setur“, segir ráðið og
hvetur álitslausa fiskeldismenn til
að hafa samband.
-m
Flensborgarskóli
Vísna-
kvöld
í kvöld kl. 20.30 býður kór
Flensborgarskóla í Hafnarfirði
öllum bæjarbúum til vinakvölds á
aðventu í hátíðarsal skólans. Þar
munu kórfélagar ásamt hljóð-
færaleikurum úr hópi nemenda
flytja jóla- og hátíðartónlist.
Sérstakir gestir kórsins í kvöld
verða börn úr Hafnarfirði á aldr-
inum 7-13 ára, sem munu flytja
helgisöngleik.
Enginn aðgangseyrir er að
kvöldboði þessu en gestum er
boðið upp á veitingar og þeim
sem bera hlýhug til kórsins gefst
kostur á að styrkja sjóð hans.
~ig-
Kór Flensborgarskóla ásamt stjómanda sínum Hratnhildi Blomsterberg.
Skuldaskipin
Fiskveiðasjóður taki áfallið
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra: Sjóðurinn
hefur til þess fjármagn
Eins og skýrt var frá í Þjóðvilj-
anum í síðustu viku hefur ver-
ið ákveðið að skuldaskipin svo-
kölluðu, sem fara munu á uppboð
í byrjun næsta árs og Fiskveiða-
sjóður mun þá kaupa, verði seld
aftur og þá á viðmjðunarverði,
eins og það heitir. í raun þýðir
þetta, að skipin verða seld fyrir
verð sem er langt fyrir neðan þær
skuldir sem á þeim hvfla.
Þjóðviljinn spurði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra
að því í gær hver ætti að taka á sig
þann skell sem af þessu hlýst.
Halldór sagði orðrétt:
„Það liggur ekki fyrir hvaða
skip þetta eru, hvað þau eru
mörg, né hve miklar upphæðir
hér er um að ræða. Það er enn
verið að vinna í þesum málum og
það er ekkert um þau að segja
fyrr en nánari vitneskja liggur
fyrir. Því er ekki hægt að segja
neitt um þetta fyrr en skipin hafa
verið seld aftur, þá sést hvað af
þessu tapast“.
Halldór var þá spurður í ljósi
þess að eitthvert fé tapast hver
myndi taka það á sig og svaraði
ráðherra því til að það væri Fisk-
veiðasjóður í þeim tilfellum, þar
sem hann myndi eignast skipin.
Aðspurður hvort sjóðurinn væri
svona vel aflögufær, svaraði ráð-
herra að hann ætti peninga fyrir
þessu.
Ljóst er að hér er um hundruð
miljóna króna að ræða, jafnvel
þó aðeins 3-4 skuldahæstu skipin
verði boðin upp, en hin sem held-
ur minna skulda sleppi.
-S.dór
Alþingi
Staðið verði við lög
Tveir lœknarþjóni Reyðarfirði og Eskifirði eins og kveðið er á um í lögum
eir Helgi Sejjan og Hjörleifur
Guttormsson hafa lagt fram
breytingartillögu við fjárlög um
að staðið verði við lög frá 1983
um að tveir læknar verði við
heilsugæslustöðina á Eskifirði, en
umdæmi hennar nær einnig yfir
Reyðarfjörð.
Við endurskoðun laga um
heilbrigðisþjónustu 1983, þar
sem allir þáverandi þingflokkar
áttu fulla aðild að, var reynt að
halda fjölgun lækna á heilsu-
gæslustöðvum í algeru lágmarki
og aðeins þar sem brýnust var
þörfin og mest aðkallandi. ítrek-
að hafði Helgi Selj an flutt um það
frumvarp að tveir læknar yrðu við
heilsugæslustöðina á Eskifirði og
sæti annar læknirinn á Reyðar-
firði enda fyrir því heimild í
lögum. Þetta náðist fram með
lagasetningu 1983.
Umdæmi heilsugæslustöðvar-
innar nær yfir 2000 íbúa, auk þess
sem gegnumakstur, skipakomur,
loðnu- og síldarvertíðir auka
mjög á álag læknisins og í raun
með öllu óhugsandi að hann fái
annað svo viðamiklum verkefn-
um, enda varð að lokum full sam-
staða um að breyta lagaákvæði
yfir í tveggja lækna stöð.
Þrátt fyrir lagaákvæðin hefur
ekkert gerst á þesu ári og ennþá
sér þess ekki stað í fjárlagaaf-
greiðslu að lagaákvæðum verði
hlýtt. Enn virðast íbúar Reyðar-
fjarðar og Eskifjarðar eiga að
búa við óviðunandi aðstöðu að
ekki sé nú minnst á lækninn sem
gegna verður svo annasömu
verkefni.
Samkvæmt lagafrumvarpinu er
heimild fyrir ráðningu afleysinga-
læknis á heilsugæslustöðina og
hefur það orðið til mikils gagns
og léttis fyrir lækninn á Eskifirði
en hvergi nærri fullnægandi.
„íbúar þessara staða bíða eftir
afgreiðslu úr þriðju umræðu en
flutningsmenn ætla að láta á það
reyna til fullnustu hvort t]ár-
veitingarvaldið sér ekki sóma
sinn í að standa við svo sjálfsagt
og einfalt lagaákvæði. Annar
læknir í umdæmið með búsetu á
Reyðarfirði er eðlileg krafa og
sanngjörn og ekki skal öðru trúað
en lagfæring fáist“ sagði Helgi
Seljan. _ig.
Strand
Mannbjörg varð
Sœbjörg strandaði
undan Stokksnesi
Mannbjörg varð er loðnubát-
urinn Sæbjörg Ve 56 strand-
aði undan Stokksnesi í gærmorg-
un. Björgunarsveit Slysavarnar-
félagsins á Höfn bjargaði áhöfn-
inni, 14 manns.
Skipið var mikið skemmt þegar
síðast var kannað í gærdag, en
það er vátryggt fyrir um 30 milj-
ónir. Sæbjörg er 20 ára gamalt
stálskip, smíðað í Noregi 1965 og
yfirbyggt 1978. _óg
Þriðjudagur 18. desember 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3
Getraunir
Stokks-
eyringur
fær hálfa
miljón
í 17. leikviku Getrauna kom
fram einn seðill með 12 réttum og
var vinningsupphæðin fyrir hann
kr. 560.870. Eigandi seðilsins er
kona búsett á Stokkseyri og var
hún með einfaldan 10 raða seðil
og nær því ekki sjálfkrafa í hlut-
deild í 2. vinningi, eins og þegar
um kerfisseðil er að ræða. Með 11
rétta voru 15 raðir og vinnings-
upphæðin fyrir hverja röð kr.
16.024.-.
Togarar
Frysting
að hluta
Eins og skýrt var frá í Þjóðvilj-
anum sl. fimmtudag hafa eigend-
ur japönsku skuttogaranna hér á
landi verið með það í huga að
breyta skipunum yfir í frystiskip.
Magnús Kristinsson í Vest-
mannaeyjum, sem gerir út Vest-
mannaey, eitt þessara skipa,
sagði að hér væri nokkuð ofsagt.
Sagði Magnús að eigendur jap-
önsku togaranna hefðu látið gera
mjög ítarlega úttekt á togurun-
um, þar sem gera þarf á þeim
verulegar endurbætur. Það var
Bolli Magnússon sem gerði þessa
úttekt og var greinargerð hans
mjög ítarleg og vel unnin. Magn-
ús sagði að þar væri lagt til að
lengja skipin m.a. en ekki bara
með frystingu um borð í huga
heldur til að auka vinnupláss.
Það sem menn væru að hugsa um
væri að geta fryst 15% aflans, til
þess að taka kúfinn af þegar mest
berst að til frystihúsanna.
Magnús sagði að einungis ein-
um af þeim 10 japönsku togurum
sem hér eru, yrði algerlega breytt
í frystiskip, hinum aðeins að
hluta til.
-S.dór
Bankarnir
Mikil
vanskil
Dráttur á húsnœðis-
lánum ein ástœðan
Vanskil hafa verið með mesta
móti í bankakerfinu að undan-
förnu að sögn Tryggva Pálssonar
í hagfræði- og áætlunardeild
Landsbankans og tóku banka-
menn sem Þjóðviljinn ræddi við í
gær undir þessi orð.
Almenn vanskil, af víxium og
skuldabréfum, hafa verið mikil
seinnihluta ársins og heldur
aukist með tímanum. Þó hefur
ekki orðið vart neinna stökk-
breytinga, og verkfallið virðist
ekki hafa haft umtalsverð áhrif.
Erfitt er að fá tölur um vanskil,
enda torvelt að meta slíkar tölur
þótt fengjust, - þyrfti þá að
reikna inn skuldbreytingar af ým-
islegu tæi og meta langvinn van-
skil þarsem hvert mál hefur sitt
eðli.
Bankamenn sögðu að vand-
ræði kringum afgreiðslu á hús-
næðislánum hefðu dregið slóða
eftir sér um allt kerfið.
-m