Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 18.12.1984, Blaðsíða 19
LESENDUR Óánœgður farþegi skrifar Ástæða þess að ég sting niður penna er sú að þolin- mæði mín og konu minnar í garð stórfyrirtækisins Flug- leiða er á þrotum. Þrátt fyrir að rúmlega einn og hálfur mánuður sé liðinn frá því við sendum fyrirtækinu kvörtun- arbréf vegna ómerkilegrar fram- komu starfsfólks þess í V- Þýskalandi og Luxemburg, hafa forráðamenn Flugleiða ekki látið svo lítið að svara okkur. Við leg- gjum fram í bréfinu sem við neyðumst til að birta opinberlega hér með, kröfur um skaðabætur vegna kostnaðar sem við urðum fyrir. Þetta bréf er nú birt til að freista þess að knýja forráða- menn Flugleiða til að svara okk- ur, en þess skal getið að við höf- um gert ítrekaðar tilraunir til að ná sambandi við þá menn sím- leiðis sem hafa með svona mál að gera, en árangurslaust. En hér kemur bréfið: Rvík 1. nóvember 1984 Flugleiðir hf., Rvík.flugvelli. Skrifað vegna ómerkilegrar framkomu starfsfólks ykkar í V.- Þýskaiandi og Luxemburg. Saga okkar hjónanna er þannig í stuttu máli: Við flugum út til Luxemborgar á Pex miðum 17. sept., og til baka bókað 7. okt.. Þann 3. okt. hringdum við til Frankfurt í síma 2999715 og töluðum við Elisa- beth sem er þýsk og talar góða íslensku. Hún sagði að leyfi væri fengið fyrir flugi á sunnudag 7. okt. Á fimmtudag 4. okt. hringd- um við frá Lubeck, V.- Þýskalandi, þar sem við dvöld- um, og okkur var sagt að flug væri heim til íslands 7. okt., af karl- manni sem talaði ágæta ensku í síma 00352/47982475 Luxemb- urg. Föstudag 5. okt. hringdum við í sama símanúmer frá hóteli okkar í Luxemburg, og var okkur aftur tjáð af karlmanni sem talaði ensku að flogið yrði örugglega heim á sunnudeginum 7. okt. Við hringdum aftur sama dag og í sama síma og þá staðfesti íslensk kona það sama. Á sunnu- deginum 7. okt. mættum við útá Happdrœtti SÁÁ Miðamir beint í ruslið Lesandi að norðan hringdi: Ég er einn af þeim fjölmörgu landsmönnum sem fékk um dag- inn sendan happdrættismiða frá SÁÁ. Þegar ég fór að lesa mið- ann rak ég augun í klausu þar sem segir að vinningsnúmer í barna- happdrættinu verði einungis birt í Mogganum og DV. Ég var fljótur að henda miðanum í ruslið þegar ég sá þetta enda er ólykt af þessu og ég veit um marga sem hafa gert það sama. Ég ætla mér ekki að fara að kaupa og styrkja Moggann eða DV uppá hvem einasta dag fram að jólum til að fylgjast með drætti í þessu happdrætti. Það kemur ekki til greina. Fyrst þessir höfð- ingjar sem em í forsvari fyrir SÁÁ hafa efni á að auglýsa svo mikið sem raun ber vitni í sjón- varpinu, þá ætti þeim ekki að vera ofraun að auglýsa í öllum dagblöðunum. Meðan þeir gera það ekki fara miðarnir þeirra beint í ruslið hjá mér. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23 Opið bréf til Flugleiða flugvelli um hádegi, fórum þar í nokkuð langa biðröð fyrir framan afgreiðsluborð með okkar flugn- úmeri. Loksins eftir langa bið fengum við að vita hjá íslenskri konu við upplýsingaborð Flug- leiða að ekkert flug yrði heim fyrr en á þriðjudag og Flugleiðir myndi ekki veita neina fyrir- greiðslu um uppihald fram að þeim tíma. Af tilviljun hittum við frændfólk sem gat bjargað þeim vanda. Á Aerogolf-Sheraton hittum við bandaríska ferðamenn á veg- um Flugleiða sem urðu fyrir töfum og sögðu þeir okkur að Flugleiðir borguðu allan þeirra , kostnað. Afgreiðsla hótelsins sagði okkur einnig að Flugleiðir i væri með tíu til fimmtán herbergi frátekin. En þau voru aldeilis ekki fyrir íslendinga. Svona mis- munun er óskiljanleg. Eins er með fargjöldin sem við á íslandi borgum niður með háum farg- jöldum og skattfríðindum til handa Flugleiðum sem á móti undirbjóða fargjöldin milli Bandaríkjanna og Evrópu og koma útlendingum einum til góða. Er þetta hægt? Ef Flugleiðir vill borga okkur meðfylgjandi hótelreikning, Lux. Fr. 8300.- að viðbættum áætluðum fæðiskostnaði í tvo daga þ.e. Lux. Fr. 8000.-, mun- um við sættast í þessu óskemmti- lega máli. Svar óskast fyrir 15. nóvember. Spumingar: 1. Fylgja Pex miðunum einungis kvaðir fyrir kaupanda en ekki seljanda? 2. Er það ætlun Flugleiða í fram- tíðinni að líta á fslendina sem 2. flokks fólk? 3. Er búið að leggja niður þann sið að svara bréfum? 4. Fá Flugleiðir að hækka sjálf- krafa flugfargjöld til Evrópu eftir hverja gengisfellingu sem verður? 5. Til verðlagsyfirvalda: Þurfa þau ekki að leggj a sína blessun yfir hækkun fargjalda Flug- leiða? Nnr. 0910-0873 HAOKAUP hagkaup hagkaup HAQKAOP 1.AGKA0P HAGKAUP Reykjavík Akureyri Njarðvík Hagkaups: Grænar baunir 1/2 ds. Hagkaups: Rauðkál 1/2 ds. Union: Bl. ávexti (fruit coctail) 1/1 ds. Union: Perur 1/1 ds. Ceramin: Bl. ávexti (fruit coctail) 1/2 ds. Ceramin: Ferskjur (sneiddar) 1/2 ds. Hintz: Instant kaffi 200 gr. Finax: Haframjöl 1,5 kg kr. 17.50 kr. 27.90 kr. 64.90 kr. 49.90 kr. 37.20 kr. 32.80 kr.138.80 kr. 45.80 Hagkaups: Gulr. og gr. baunir 1/2 ds. kr.21.90 Hagkaups: Maískorn 1/2 ds. kr. 33.60 Union: Ferskjur(skornar í tvennt) 1/1 ds. kr. 49.80 Union: Ferskjur(sneiddar) 1/1 ds. kr. 49.80 Hagkaups: Grænar baunir 1/1 ds. kr. 27.90 Hagkaups: Grænar baunir 1/4 ds. kr. 12.70 Hagkaups: Gulr.og gr. baunir 1/1 ds. kr. 35.90 Hagkaups: Gulr. og gr. baunir 1/4 ds. kr. 15.80 Hagkaups: Maískorn 1/1 ds. kr. 51.90 Hagkaups: Maískorn 1/4 ds. kr. 23.20 Hagkaups: Rauðkál 1/1 ds. kr. 46.90 Hagkaups: Rauðkál 1/4 ds. kr. 20.50 Ceramin: Perur 1/2 ds. kr. 29.90 Ceramin: Ferskjur (skornar í tvennt) 1/2 ds. kr. 32.80 Ceramin: Ferskjur (sneiddar) 1/2 ds. kr. 32.80 Hintz: Venjulegt kaffi 500 gr. Mocca og Gold kr. 99.90 Finax: Sunt og gott heilsufæði 1 kg kr. 61.20 Epli: Rauð amerísk pr. kg. kr. 48.50 Gerðu matarinnkaup í Hagkaup, verðmunurinn kemur þér til góða. Hagkaups matvara á Hagkaups verdi r I Hagkaup fænð þú matvöru sem þú finnurekki annars staóar, á verói sem þú séró ekki annars staóar... -ít

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.