Þjóðviljinn - 01.03.1985, Qupperneq 5
Iþróttir
Misnotkun
iyfja að aukast
Örvandi lyfnotuð íflestum greinum íþrótta. „Bolinnu
getur leitt til krabbameins auk annarra meina. Vaxtar-
hormón og blóðgjafir notuð í auknum mœli.
Keppnismcnn í íþróttum víðs vegar
um heiminn hafa á seinni árum gripið til
lyfjanotkunar í æ ríkari mæli til að efla
getu sína á keppnisvöllunum. Upphaf-
lega var neysla örvandi og vaxtarhvetj-
andi lyfja einskorðuð við greinar sem
íþróttamannsins. Hér er um svokallaöa
anabolic steroids að ræöa, sem hafa á
tungu mæðranna hlotið slanguryrðið
bolinn að nafngift. Testosterone og ýmis
afbrigði þess eru efst á blaði, en það lyf
er karlkyns kynhormón og þarf ekki að
fara mörgum orðum um hvernig afleið-
ingar hann hefur á konur. Þó ekki vaxi
beinlínis á þær tippi verða þær miklu
vöðvameiri, brjóstaminni, fá djúpa
rödd og stundum skeggvöxt!
Að auki getur neysla þessara lyfja
leitt til krabbameins og lifrarkrabbi er
Vaxtarhormón
- ný aðferð
Með auknum prófunum hafa íþrótta-
menn snúið sér í miklum mæli að vaxtar
þurfa mikilla krafta við, svo sem lyft-
inga, en hefur síðan breiðst einsog sinu-
eldur til flestra greina frjálsíþrótta.
Hópíþróttir á borð við knattspyrnu
hafa verið blessunarlega lausar við
þennan óþverra en nú virðist sem lyfjan-
eysla sé líka að hasla sér völl innan vé-
banda þeirra. Michel Platini, fyrirliði
franska knattspyrnulandsliðsins, sagði
þannig fyrir skömmu að lyfjaprófanir á
suðurevrópskum knattspyrnumönnum
myndu leiða neyslu örvandi lyfja í ijós.
Bolinn
Lyfin, sem eru einna útbreiddust, eru
tilbúnir kynhormónar sem örva vöxt
vöðvafruma og auka þannig styrk
Blóð-„dóping'
Heimsmet
Jouko Kuha
Blóðgjöf fyrir keppni
leiðir til skammvinnrar
afburðagetu
Jouko Kuha var finnskur hindrunar-
hlaupari sem þótti ekki líklegur til stór-
afreka á íþróttasviðinu. Árið 1968 kenn-
di hann magnleysis og slappleika og fór
til læknis rétt fyrir stórmót í Stokkhólmi.
„Blóðleysi“ sagði læknirinn og dældi
dágóðum slurk af blóði í æðar hans. Ör-
skömmu síðar skundaði Jouko Kuha útá
völl og setti heimsmet í hindrunarhlaupi
(8 mín 24,2 sek, 17. júlí 1968). Af hon-
um hafa litlar sögur farið síðan.
Mönnum var gersamlega hulið hvernig
stóð á þessari skammvinnu afburðagetu
Finnans. Eftir nokkrar pælingar komust
læknar að þeirri niðurstöðu að blóðgjöf-
in væri orsök hennar og það var síðan
staðfest með tilraunum.
Þetta var upphaf þess sem síðan hefur
verið kallað blóð-„dóping“ og Finnar
hafa löngum verið grunaðir um að nota
á hlaupara sína þegar dregur til stór-
móta. -ÖS
banamein þó nokkurra íþróttamanna
sem hafa glæpst til að bryðja bolann í
óhóflegu magni.
Þrátt fyrir þetta er það staðreynd, að
margir þjálfarar sem fá í hendur góð
íþróttaefni beinlínis hvetja skjólstæð-
inga sína til að taka inn hormóna til að
efla sig. „Pað er eina leiðin til að komast
á toppinn" er viðkvæði þeirra, megi
marka grein sem birtist í breska blaðinu
Observer fyrir skömmu.
Hröð utbreiðsla
Einsog fyrr segir var neysla örvandi
lyfja í fyrstu mestmegnis takmörkuð við
íþróttagreinar sem byggjast á miklum
vöðvamassa, einsog lyftingum og kast-
greinum. í hlaupum og stökkum var
neysla miklu minni. í fyrrnefndri grein í
Observer er þetta undirstrikað með því
að bera saman þróun heimsmeta síðustu
25 árin í kúluvarpi annars vegar og 1500
metra hlaupi hins vegar. í 1500 metra
hlaupinu, þarsem vitað erað lyfjaneysla
hefur verið í lágmarki, hefur heimsmet-
ið verið bætt um einungis 2,4 prósent í
aldarfjórðung. í kúluvarpinu þar sem
lyfjaneyslan hefur sannarlega verið all-
útbreidd, hefur heimsmetið á hinn bóg-
inn verið bætt um 15 prósent!
Því miður virðist nú sem neysla hórm-
óna og örvandi lyfja sé nú að færast hratt
yfir í hlaupagreinarnar og stökkgreinar
líka. Með aðstoð hormónanna er iðk-
endum þessara íþrótta kleift að æfa mun
meira en áður, því hormónarnir
auðvelda fólki meðal annars að ná sér
eftir erfiðar æfingalotur, menn geta því
lagt harðar að sér við æfingar og þarmeð
uppskorið betri árangur í keppnum.
hormón. Það er framleitt í líkama
mannsins, þannig að ókleift er að finna
með mælingum, hvort viðkomandi
íþróttamaður hafi bætt á sig utanaðkom-
andi vaxtarhormóni eða ekki. Hormón-
ið stjórnar nánast öllum vexti í líkaman-
um og getur stórlega eflt vöðvastyrk.
Það er unnið úr heiladinglum dauðra
manna, og notað sem lyf til að sporna
við dvergvexti hjá börnum sem hafa
skemmdan heiladingul. íþróttamenn
hafa hins vegar getað komist yfir það
með því að greiða fyrir það dýrum dóm-
um á svörtum markaði.
Blóðgjafir
Önnur aðferð til að „dópa“ íþrótta-
fólk fyrir keppni, sem virðist nánast
ómögulegt að uppgötva, er það sem
kallast blóð-„dóping“. Aðferðin byggist
á því, að því meir sem er af rauðum
blóðkornum í æðum íþróttamanna,
þeim mun meira súrefni kemst til vöðv-
anna og þess meiri vinnu geta þeir af-
kastað. Með því að nota blóðgjafir til að
auka blóðmagnið í æðum íþróttafólksins
er geta þess stóraukin.
Þetta gerist þannig, að nokkrum vik-
um fyrir mót er um það bil hálfur lítri af
blóði tekinn úr íþróttamanninum.
Líkaminn sér svo um að framleiða blóð í
Vörnin
Tilviljanakennd lyfjaprof
allt árið
Margir hafa velt fyrir sér hvernig væn-
legast sé að tálma íþróttamönnum
neyslu örvandi og vaxtarhvetjandi lyfja.
Svo virðist sem besta ráðið myndi vera
að stofna til tilviljanakenndra lyfjapró-
ana allt árið um kring, sem yrðu ekki í
tengslum við mót. íþróttamaðurinn ætti
með öðrum orðum von á því að eftirlits-
menn heimsæki hann á æfingum og
tækju sýni til prófunar. Með því yrði
■ komist hjá því að íþróttafólk notaði lyf
til að byggja sig upp en aflétti notkun
rétt fyrir stórmót þar sem búast má við
lyfjaprófunum.
Þetta er niðurstaða Christophers
Brasher í grein sem hann skrifaði fyriri
skömmu í breska stórblaðið Observer,
en hann er þekktur sérfræðingur í þess-
um málum.
-ÖS
stað þess sem tekið var burt. Þegar kem-
ur að keppninni er hins vegar hálfa lítr-
anum dælt inní æðar hans aftur, og geta
blóðsins til að flytja súrefni þannig
aukin umlO til 15 prósent.
Þessi aðferð er líklega útbreiddari en
menn gera sér grein fyrir. Nýlega játuðu
til að mynda bandarískir ólympíuverð-
launahafar í hjólreiðum að þeir hefðu
fyrir Los Angeles leikana verið dópaðir
með blóðgjöfum. Þessi aðferð hefur
ýmsar hættur í för með sér, en þó ekki
líkt eins miklar og bolinn og aðrar horm-
ónagjafir.
-ÖS
Misnotkun lyfja -
hverjir eru sökudólgarnir?
Tafla yfir þá sem Alþjóöasamband áhugaiþrótta-
manna (IAAP) hefur bannaö keppni sökum lyfja-
misnotkunar.:
íþróttagreinar Menn Konur Alls
Kastgreinar.............. 16 13 29
Millivegalengd............. 3 3 6
Spretthlaup................ 1 5 6
Stökk...................... 3 2 5
Lönd Menn Konur Alls
Finnland................. 4 0 4
Pólland................. 23 4
Rúmenía.................. 0 4 4
Búlgaría................. 1 3 4
Grikkland................ 2 1 3
V-Þýskaland.............. 3 0 3
Austurríki............... 0 2 2
Kanada................... 0 2 2
Kúba..................... 0 2 2
Dómíníkanska
lýðveldið................ 2 0 2
Noregur.................. 2 0 2
Ungverjaland............. 1 1 2
Svíþjóð.................. 1 1 2
Bandaríkin............... 2 0 2
Ástralía.................. 0 1 1
Belgía................... 1 0 1
A-Þýskaland............... 0 1 1
íran..................... 1 0 1
Portúgal................. 1 0 1
Spánn.................... 0 1 1
Alls.
26
27
53
UMSJÓN: ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Föstudagur 1. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5