Þjóðviljinn - 02.06.1985, Side 4
Á BEININU
Þjóðviljinn og iðnaöarráðherra í viðræðum á alþingi
Sverrir Hermannsson á beininu
um tekjur álnefndarmanna
Er eðlilegt að þeir hafi tvöfalt
hærri laun en ráðherra?
Sverrir Hermansson
er maður önnum kafinn,
var í gær á Vestfjörðum,
kom í bæinn um hádegi,
fór uppá Grundartanga
fyrir blaðamannafund
iðnaðarráðuneytisins
um þóknun álviðræðu-
manna; okkur tókst ekki
að ná við hann spjalli um
þeu efni fyrren í miðjum
sjónvarpsfréttum.
Þegar þú talaðir um saltverks-
miðjuna á Reykjanesi í þinginu,
Sverrir, þá vakti athygli að þú
sagðir að það væri alvarlegt mál
hvernig verkfræðingastóðið væri
farið að haga sér. Nú virðist vera
komið upp annað stóð og farið að
haga sér í þínu nafni með uppí 53
þúsund krónur í mánaðarlaun.
Er þetta ekki alvarlegt líka?
- Þú hefur sennilega verið á
þessum blaðamannafundi í dag,
er það ekki? - ég veit ekki hvað
kom þar fram en ég bað mína
menn að segja ykkur nákvæm-
lega frá allri tilurð þessa máls og
vona að það hafi tekist hjá
Kristmundi og Páli.
Ég er auðvitað ekki maður til
að meta hvað er sanngjarnt í
þessu. Með einhverjum hætti
komust menn að niðurstöðu um
það hvernig ætti að launa þetta.
Á ég að segja til um það hver sé
sanngjarn taxti lögfræðinga?
Kom ekki fram á þessum fundi að
þetta væri útreiknað með hlið-
sjón af einhverjum lögfræðinga-
taxta?
. Jú, reyndar. En laun viðræð-
unefndarmannanna, er það ekki
jafnalvarlegt mál og hegðun
verkfræðingastóðsins í saltinu?
- Það sem ég talaði um í sam-
bandi við saltverksmiðjuna var
þetta: ég sá að verkfræðingum
hafði verið launað ríkulega án
þess að fá svör við í hverju þeirra
vinna lá.
Þannig að þú telur þetta ekki
sambærileg mál?
- Alls ekki, vegna þess að eftir
þessa viðræðumenn liggur mikið
verk og stór ávinningur. Ég fékk
hinsvegar ekki svör við þvi fyrir
hvað reikningar verkfræðing-
anna í saltmálinu voru greiddir.
Þú telur þig hafa fuilnægjandi
upplýsingar um það sem þú
fékkst í staðinn i álviðræðunum?
- Ég hef það, - en hvernig í
ósköpunum geturðu ætlast til
þess að ég kunni að meta hvað sé
sanngjarnt í þessu efni? Ég veit
að vísu og sé að þessir menn hafa
skilað stórgóðu verki. En miðað
við, - ef þú spyrð um það -, hvað
venjulegur verkamaður ber úr
býtum, - þá eru þetta náttúrlega
konungalaun.
En telurðu eðlilegt að miða
laun lögfræðinga og viðræðu-
manna við það sem er í raun og
veru erlendur taxti?
- Ég get bara ekki svarað
þessu, en ég held að erlendi taxt-
inn sé margfalt hærri. Ef þú lítur á
Lipton, sérfræðing okkar í gerð-
ardómsmálinu, sem er mjög fær
maður, - þá er það alveg stjarn -
fræðilegahærraen það sem okkar
menn tóku. Þú ættir kannski að
spyrja Ragnar, sem ég hef mikið
álit á og er traustur maður, hann
Ragnar Aðalsteinsson, hvað sé
eðlilegt fyrir lögfræðinga. Þó að
okkar lögfræðingar séu dýrir eru
lögfræðingar ytra ótrúlega miklu
dýrari.
En er eðiilegt að miða laun við-
ræðumannanna sjálfra við lög-
fræðingalaunin?
- Þú getur elt mig uppi með
svona spurningum, - ég get bara
ekki svarað þeim. Hvað er eðli-
legt? Á sínum tíma, um það bil
sem ég kem að þessum störfum,
þá eru menn að reyna að gera sér
grein fyrir því hvernig eigi að
launa þetta. Þeir setja einhverja
formúlu um það hvernig eigi að
greiða mönnum.
Eðlilegt og eðlilegt, það er svo
allt annar hlutur. Áf hverju
spyrðu ekki: finnst þér eðlilegt að
þessir menn hafi tvöfalt hærri
laun en ráðherra? Og af því að ég
er ráðherra hlýt ég náttúrlega að
svara: það er ekki eðlilegt.
I framhaldi af þessu: í þessari
álviðræðunefnd eru tveir opin-
berir starfsmenn, sem eru báðir
vel launaðir fyrir, og virðast vera
komnir með svosem tvenn árs-
laun fyrir síðasta ár. Heldurðu að
þeir hafi sinnt öllum störfum sín-
um af sama þróttinum?
- Ég held það, já. Ég hygg það.
Þú heldur að þeir hafi ekki unn-
ið fyrir þig í vinnu sem aðrir
greiddu?
- Ja, - ekki get ég nú dæmt um
þetta, en þetta eru vel verki farnir
menn.
í DV í dag er frá því sagt að
forsætisráðherra hafi óskað eftir
skýringum á ríkisstjórnarfundi í
fyrradag?
- Einu sinni var hann í þessari
álviðræðunefnd. Hann var í stór-
iðjunefnd í mörg ár, svo hann
þekkir innviðina, hlýtur að gera.
Hvaðan ætlar hann að fá upplýs-
ingar? Og hvermg stendur á því
að hann heldur fund um þetta
mál án þess að iðnaðarráðherra
sem ber ábyrgð á þessu, - og
mundu mín orð: ég ber ábyrgðina
og ég ætla ekki að skjóta mér
undan henni -, hvernig dettur
Steingrími Hermannssyni allt í
einu í hug að taka það mál fyrir
yfirleitt að iðnaðarráðherra fjar-
verandi? Það þarf að spyrja hann
að því! Ég ansa engum svona
kjaftagangi og blaðri. Ef menn
vilja fá þann mann til andsvara
sem ber ábyrgðina, þá er rétt að
halda fund að honum viðstödd-
um. Svo bið ég að heilsa þeim.
Síðasta spurning, Sverrir:
Morgunblaðið biður í leiðara í
dag um kinnroðalausa frammi-
stöðu ráðamanna í þessu máli.
Ert þú rjóður í kinnum?
- Ónei. Það er ég ekki. En...
þeir ættu að ganga í herinn, í Sal-
vation Army, þeir Morgunblaðs-
menn, þessir nýfrelsuðu menn,
heilögu menn. Þeir ættu að biðja
um inngöngu í Frelsisherinn og
syngja þar og slá á bumbur einsog
Todda trunta og það kompaní.
Hún söng einmitt þetta: Jesús
kastar öllum mínum syndum bak-
við sig/og ég sé þær aldrei meir,
og ég sé þær aldrei meir.
-m
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. júní 1985