Þjóðviljinn - 04.05.1986, Qupperneq 16
Þrýstihópur
Rauðhœrðir
sameinist!
Fyrir þremur árum hafði Step-
hen Douglas fengið nóg af fjand-
skap fjölmiðla í garð rauðhærðra.
Stofnaði hann því samtök sem nefn-
ast Alþjóðasamtök rauðhærðra en
þeim er ætlað að bæta hlut þeirra
12 miljóna Bandaríkjamanna sem
hafa fengið rauðan háralit í vöggu-
gjöf.
Douglas sagði að ekkert sérstakt
atvik hefði orðið til þess að hann
hófst handa, hann hefði bara verið
orðinn langþreyttur á aulafyndni
um rauðhærða sem á stundum gat
verið ansi fjandsamleg. „Fólk sagði
oft við mig: Þú ert bara nokkuð
sætur, af rauðhærðum að vera.
Hvern andsk... á þáð við með
þessu?“ spyr Douglas. Hann held-
ur því fram að rauðhært fólk sé
beinlínis sniðgengið þegar velja á
fólk til starfa í sjónvarpi, kvik-
myndum og við fyrirsætustörf.
Samtökin telja nú 15 þúsund fé-
laga sem greiða 750 krónur á ári í
féiagsgjöld. f staðinn fá þeir árs-
fjórðungsrit sem ber nafnið
Rauðhausinn. Þar er að finna bar-
áttugreinar fyrir málstað
rauðhærðra í bland við ýmsar fróð-
legar upplýsingar um stöðu
rauðhærðra í samfélaginu. Til
dæmis upplýsti ritið fyrir skömmu
að þótt rauðhærðir séu 6% banda-
rísku þjóðarinnar er aðeins 1%
þeirra sem sitja í fangelsum lands-
ins rauðhærðir. Einnig kom þar
fram að sú þjóð sem telur hlutfalls-
lega flesta rauðhærða séu Skotar en
af þeim eru 14% rauðhærðir.
Tímaritið tók upp á því ekki alls
fyrir löngu að veita einskonar
skammarverðlaun sem nefnast
Dauða rósin. Sú sem hlaut þessi
verðlaun í fyrsta sinn var Eileen
Ford sem rekur eina þekktustu
fyrirsætumiðlun Bandaríkjanna. ’
Verðlaunin fékk hún fyrir að segja
að rautt hár væri ekki söluhæf vara.
Og til þess að styrkja rauðhærða í
h'fsbaráttunni birtir tímaritið af og
til Usta yfir þekkta rauðhausa úr
mannkynssögunni. Þar er efstur á
blaði Eiríkur rauði en neðar á lista
má finna Kristófer Kólumbus,i
Vincent van Gogh, Antonio Vi-
valdi, Söru Bernhardt og Leonardo
da Vinci.
- ÞH/Omni.
Háskólamenn til Kölnar fyrir 8.200!
Frestur til að kaupa farmiða framlengdur til 10. maí.
Stjórn Orlofssjóös starfsmanna í Bandalagi háskólamanna stendur fyrir þremur
flugferðum (leiguflug) í sumar til KÖLNAR
BROTTFÖR HEIMKOMA verð* sæti Börn yngri en 2 ára
DAGUR tími DAGUR
8. júlí 15:00 24. júlí 8.200 850
24. júlí 15:00 7. ágúst 8.200 850
7. ágúst 15:00 24. ágúst 8.200 850
*> Flugvallarskattur er ekki innifalinn
VERÐ:
Hvert sæti: 8.200.- kr. Enginn barnaafsiáttur er veittur en börn yngri en tveggja ára
greiða aðeins tryggingu ca. kr. 850.
PÖNTUN FARSEÐLA:
Frestur til að kaupa farseðla er til 10. maí og skulu þeir greiðast á skrifstofu
BHMR/BHM að Lágmúla 7, 108 R.
Ef menn póstsenda peninga skal það gert viku fyrr. Við greiðslu fá menn afhenta
tilvísun á farseðil sem verður síðar afgreiddur á skrifstofunni. Bent skal á að flugvall-
arskattur skal greiddur um leið og farseðill er afhentur.
ANNAÐ:
Á skrifstofu Arnarflugs er hægt að semja um mjög hagkvæma bílaieigubíla og
gistimöguleika.
Stjórn Orlofssjóðs
Aðalfundur Þinghóls hf. Aðalfundur Þinghóls hf. verður haldinn laugar- daginn 3. maí nk. í húsnæði félagsins að Hamra- borg 11, Kópavogi. Dagskrá fundarins verður samkvæmt samþykkt- um félagsins um aðalfundi. Fyrir fundinum liggur einnig tillaga stjórnar fé- lagsins um að afhenda Alþýðubandalaginu í Kópavogi nýtt húsnæði til afnota fyrir starfsemi sína. Stjórnin.
Gagnfræðaskólinn í Mosfellssveit auglýsir lausar kennarastöður næsta skólaár. Kennslugreinar: fslenska, stærðfræði, erlend mál, samfélagsfræði, raungreinar, handmenntir, verslunargreinar. Upplýsingar gefa Gylfi Pálsson, skólastjóri símar 666586 - 666153, Einar Georg Einarsson, yfir- kennari símar 666186 - 30457.
Er í þér einhver unglingur? Langar þig til að starfa með unglingum, fyrir ung- linga og í þeirra hópi? Úti og inni? í gleði og sorg? Er það? Þá er útideildin þín deild. Og svo skemmtilega vill einmitt til að við ætlum að fara að bæta við starfsmanni. Við veitum upp- lýsingar um starfið í síma 621611 alla virka daga frá 13-17. En það má alveg koma fram strax að auk starfsgleðinnar þarf umsækjandi að hafa reynslu af unglingastarfi eða menntun sem teng- ist því. Þá er bara að skrifa umsókn og leggja hana inn á starfsmannahald Reykjavíkurborgar, Pósthús- stræti 9, 5. hæð fyrir 20. maí nk. Það sakar sko ekki að sækja um. ÚTIDEILDIN.
VEGAGERÐIN
ÚTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í klæðn-
ingar í Skagafirði 1986 (150.000 m2) og Mið-
fjarðarveg 1986 (2 km, 6.500 m3).
Utboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 5.maí nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þann 20. maí 1986.
Vegamálastjóri.
Sálfræðileg ráðgjöf til
foreldra
varðandi börn og uppeldi.
Hef opnað sálfræðiþjónustu að Laugavegi 59
(Kjörgarði).
Dr. Garðar G. Viborg,
viðtalsbeiðnir í heimasíma 681648.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í end-
urnýjun lagna í steyptum stokk í hluta Breiðholts
I, 3. áfanga.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000 skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað,
þriðjudaginn 13. maí nk. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYK J AVIKURBORGAR
Frikifkjuvogi 3 Simi 25800
Styrkir til tónleikahalds
utan Reykjavíkur 1986-87
Aðtilhlutan Félags ísl. tónlistarmanna (FÍT) hefur
menntamálaráðuneytið veitt fé til stuðnings tón-
leikahaldi á landsbyggðinni veturinn 1986-87.
Styrktir verða einleikarar/söngvarar eða kamm-
erhópar, enda sé a.m.k. einn þátttakandi félagi í
FÍT.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar
fást hjá:
Félagi íslenskra tónlistarmanna
b.t. Tónverks sf.
Garðastræti 17
101 Reykjavík
Umsóknir skal senda þangað fyrir 1. september
1986.
IHafnarfjörður -
_____ matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði er
bent á að síðustu forvöð að greiða leiguna
eru föstudaginn 9. maí nk.
Eftir þann dag verða garðarnir leigðir öðrum.
Bæjarverkfræðingur.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýju við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
Einars Ágústssonar
Þórunn Sigurðardóttir
Helga Einarsdóttir Daníel Sigurðsson
Erna Einarsdóttir Jens. R. Ingólfsson
Sigurður Einarsson
Barnabörn og aðrir vandamenn