Þjóðviljinn - 23.11.1986, Síða 2
FLOSI
\iku
skammtur
◦f plokkfiski
Þegar hommarnir og lespurnar voru aö ræða
það í sjónvarpinu á dögunum, hvort homma- og
lespíubókmenntir ættu uppá pallborðið hjá
þjóðinni, fékk ég einsog nokkurskonar
hugljómun, sem ég tel í dag að hafi jaðrað við
andlega vakningu.
Ég settist í djúpa stólinn og hugsaði sem svo:
- Er ekki undarlegt, þegar öllu er á botninn
hvolft - hve margt er líkt með listinni og plokk-
fiski.
Ekki er nokkur vafi á því að hægt er að mat-
reiða jafn mörg tilbrigði af plokkfiski einsog list-
greinarnar eru margar.
Dæmin sanna að lengi má blanda í listina
einu og öðru sem hvorki ber lystugan eða list-
rænan keim, og víst er að listina má þynna
endalaust, án þess hún hætti að heita list.
Þessu er eins farið með plokkfiskinn. Hann er
hægt að þynna útí það óendanlega - einsog
listina - og halda áfram að kalla blönduna
plokkfisk, jafnvel eftir að hún er orðin blávatnið
eitt. Ef nógu lengi er síðan nuðað á því að vatn
sé plokkfiskur, þá dregur að því að allir fara að
kalla vatn plokkfisk.
Heiðarlegar húsfreyjur hella vatni í glösin og
segja glaðlega:
- Má bjóða manninum plokkfisksopa með
matnum? Og menn fá sér vænan slurk úr glas-
inu til að svala þorstanum en segja svo:
- Alltaf er hann nú bestur blessaður krana-
plokkfiskurinn.
Og á endanum eru allir búnir að gleyma því
að vatn hafi nokkurntímann heitið annað en
plokkfiskur. Ljóðabálkur Steins fer að heita
„Tíminn og plokkfiskurinn" og menn fara að
ræða það sín á milli, að mikill plokkfiskur hafi nú
runnið til sjávar síðan Sinfóníuhljómsveitin flutti
„Plokkfisksvítuna" eftir Hándel, eða íslenski
dansflokkurinn „Svanaplokkfiskinn" eftir
Tsjækofskí. Og eftir veislur þar sem fjölkunnugir
menn hafa breytt plokkfiski í vín, fara veislugest-
ir útundir húsvegg og kasta aí sér plokkfiski.
Eins er þetta með listina. Hana má þynna út
endalaust og halda samt áfram að kalla fyrir-
brigðið „list“ löngu eftir að blandan er orðin svo
þunn að hún er farin að leka viðstöðulaust í
gegnum hvað sem er, af því hún er þynnri en allt
sem þunnt er.
Plokkfiskar eru þau hljóðfæri nefnd, sem
plokkuð eru án afláts og eru einsog fiskar í
laginu. Forráðamenn sjónvarpa og útvarpa í
þessu landi virðast álíta að þjóðin sé að engu
elskari en hljómplötuauglýsingum þar sem
lasnir „lista“menn flytja „list“ sína með því að
plokka og berja plokkfiskana sína í tíma og ó-
tíma með „list“rænum búkhljóðum og látæði
enda kallað „Lista“popp, eða eitthvað þvíum-
líkt.
Og af því að ég er nú í svo dæmalaust góðu
skapi í dag, ætla ég bara að óska þeim sem
hafa gaman af þessari listgrein til hamingju -
með það hvað sjónvarpsstöðvarnar sinna vel
þeirri skyldu sinni og köllun að koma þessu efni
til neytenda. Og vonandi verða þessir tónlistar-
þættir lyftistöng fyrir poppið í landinu, sölu á
poppi og gróða á poppi. Monní! monní! monní!
Þjóðinni er löngu orðið það Ijóst að ein af
frumskyidum Sjónvarps og rása þess, er að
flytja listelsku fólki pönk, popp og metalrokk
gratís svo hljómplötusala detti ekki niður.
Þetta skil ég vel af því ég hef nef fyrir bísness.
Hinsvegar býst ég nú við því, að enn sé til í
landinu fólk sem ekki er búið að gleyma því, að
til er annarskonar tónlist en auglýsingapönk og
sá hópur er áreiðanlega afar þakklátur þeirri
tækni sem gerir oss kleift að slökkva á sjónvörp-
unum og „rásurn" Ijósvakans.
En hvað kemur þetta hommum og lespum
við?
Eiginlega ekki nokkurn skapaðan hlut og það
er ef til vill mergurinn málsins. Mér er nefnilega
gersamlega fyrirmunað að skilja hversvegna
þarf að framleiða sérstaka tegund af list fyrir
tiltekna hópa fólks. Margir bestu listamenn allra
alda hafa verið hommar, lespíur eða kannske
hvort tveggja, ekki veit ég það, enda skiptir það
engu máli. Listin er langt hafin yfir svoleiðis
tittlingaskít.
Eða einsog amma mín sagði þegar hún var
að kynfræða mig:
- Eg held jaað geri ekki til þó þeir togi soldið í
tippið á hver öðrum, ef þetta eru bara almenni-
legar manneskjur.
Ég veit ekki hvenær bókmenntirfóru að skipt-
ast niður í unglinga-, aldraðra-, drengja-,
einstæðra-. telpna-, kvenna- (og guð má vita
hvað) bókmenntir.
Kannske byrjaði þetta allt á því að konur fóru
að gera kröfu til þess að vera kallaðar menn,
sem auðvitað var látið eftir þeim einsog skot, þó
konur séu nú að vísu mun skemmtilegri á með-
an þær eru konur og ekki orðnar menn.
Uppúr því fóru að koma svonefndar kvenna-
bókmenntir, sem eru auðvitað stórkostlegar ef
þær eru bókmenntir, en afleitar ef þær eru það
ekki.
Ég held að próblembókmenntir hafi svo fylgt í
kjölfarið, án þess þó að ég hafi gert á því félags-
fræðilega úttekt í starfshópi.
Þegar ég var að verða læs var unglingavand-
amálið ekki enn til og kannske ekki unglinga-
bókmenntir heldur. Að minnsta kosti gat ég, á
þessum árum, ekki gert neinn greinarmun á
bókum annan en þann, hvort þær væru leiðin-
legar eða skemmtilegar. Og þegar ég fer að
hugsa útí það, þá held ég að mér hafi þótt allar
bækur skemmtilegar, nema ef vera kynnu
veðurlýsingarnar í Gösta Berlings sögu eftir
Selmu Lagerlöf.
Allt var lesið: Þjóðsögur Jóns Árnasonar,
Tarsan apabróðir, Sultur, Jón Trausti, Kári litli
og Lappi, Glæpur og refsing, Kisubörnin kátu,
Oddyseifskviða og Dickens. Ég gæti haldið
endalaust áfram. Það sem sungið var, voru
Skólaljóðin og Magnús Ásgeirsson og án þess
verið væri að pæla í því hvort þetta væru
barna-unglinga-kvenna-homma-lespíu-vanda-
mála-lamaðra-sköllóttra-örvhentra-aldraðra-frá'
skildra-einstæðra-ölkærra- eða dóparabók-
menntir.
Bækur voru einfaldlega skemmtilegar eða
leiðinlegar. Þær skemmtilegu voru lesnar. Hin-
ar gleymdust.
Það er nú einu sinni svo. Það er eins með
listina og plokkfiskinn, ja eða minnsta kosti
plokkfiskinn.
Maður gleymir ekki góðum óútþynntum
plokkfiski.
Kuklið hætt
Kuklið er hætt en Sykurmolar
komnir í staðinn. Hljómsveitin
Sykurmolar kynnti nýja hljóm-
plötu í gær föstudagskvöld á
afmæli söngkonunnar Bjark-
ar, en auk hennar skipa
hljómsveitina þeir Einar Örn
og Sigtryggur trommari úr
Kukli. Þá er Þór Eldon Ijóð-
skáld og sambýlismaður
Bjarkar í hljómsveitinni auk
tveggja fyrrverandi meðlima í
Purrk Pillnikk, en það eru þeir
Friðrik á gítar og Bragi Ólafs-
son, Ijóðskáld og bassa-
leikari.
Það er Smekkleysa sem gefur
út plötuna en auk þess gefur
Smekkleysa út fyrstu Ijóða-
bók Braga Ólafssonar, drags-
úg. í kjöifar þeirrar bókar kem-
ur svo bókin taktu benzín el-
skan, eftir Þór Eldon.
Þá má geta þess að Björk og
Gulli gítarleikari úr Kuklinu
ætla að gera hljómplötu í
sameiningu.
Jón með Karvel
Sighvatur Björgvinsson er í,
miklum ham í baráttu sinni við
Karvel Pálmason um efsta
sæti krata á Vestfjöröum. Jón
Baldvin og Ámundi eru ugg-
andi yfir þessu, enda óttast
Jón Sighvat, komist sá síðar-
nefndi í þingflokkinn, þarsem
þeir hafa gegnum tíðina eldað
grátt silfur. Til að hressa upp á
hrörnandi gengi Karvels brá
því Jón Baldvin á það ráð um
helgina að auglýsa fyrir
vestfirskum krötum að Karvel
sé sá sem hann hefur vel-
þóknun á. Látlausar auglýs-
ingar hafa dunið í útvarpinu
um Hólmavíkurfundinn með g
nöfnum Jóns og Karvels og I
vegna þess er nú mikil reiði á 1
meðal stuðningsmanna Sig- I
hvats sem telja að með þessu
sé flokksformaðurinn að
blanda sér í baráttuna.
Ekki með
fullum fimm
Steingrímur Hermannsson
var að koma úr útlandinu um
daginn. Hitti hann flokksbróð-
ur sinn og samráðherra Hall-
dór Ásgrímsson. Sagði: Hel-
víti fylgjast þeir vel með í
henni Danmörku. Nú, sagði
Halldór. Já þeir vita meira að
segja að ég sagaði framan af
puttunum, sagði Denni. Hvað
segirðu, sagði Dóri. Já þegar
Þrátt fyrir að fjöldi múraðra ís-
lendinga haldi til Glasgow
þessa dagana og eyði grimmt
fyrir jólin eru heildsalar farnir
að hugsa gott til glóðarinnar
og undirbúa sig fyrir jóla-
kaupin. Þannig heyrðum við
af einum heildsala hér í höfuð-
borginni, sem flytur inn ýmis-
konar snyrtivörur, að hann
hefði pantað ilmvötn fyrir 1,2
miljónir króna um daginn. Hér
er bara um að ræða eina af
þeim fjölmörgu tegundum af
ilmvötnum sem eru á markað-
inum hér á landi þannig að
sjálfsagt má gera ráð fyrir að
Frjálslyndir jafnaðarmenn,
sem fyrrum voru BJ-arar,
tirósa nú happi eftir að Stef-
áni Benediktssyni tókst að
snúa Bjarna P. Magnússyni
borgarfulltrúa, til fylgilags við
frambjóðanda þeirra í 4. sætið
í Reykjavík, Jón Braga
Bjarnason. Bjarni P. hafði
áður lýst stuðningi við Björgv-
vin Guðmundsson og
töldu BJ-arar að þeir hefðu
litla möguleika gegn samein-
uðum stuðningshópum
Bjarna P. og Björgvins. Eftir
sem áður hefur Björgvin Guð-
mundsson harðsnúið lið
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINK/ Sunnudagur 23. nóvember 1986