Þjóðviljinn - 23.11.1986, Page 5
ingarsögulegu gildi slíkra húsa
þar sem hluti efniviðarins er
keyptur í BYKO eða hjá Húsa-
smiðjunni. Enn aðrir benda á að
út frá byggingafræðilegum for-
sendum sé tillagan fráleit og að
mun skárri kostur sé að gefa
þessu sögufræga horni náðar-
höggið strax.
Einkabíll
í öndvegi
Skipulagshöfundar Kvosartil-
lögunnar fjalla nokkuð um þarfir
umferðarinnar að þessu nýja
hjarta höfuðstaðarins. Hvort sem
það er höfundum að kenna elleg-
ar reiknimeisturum borgarskipu-
lags, er ljóst að einkabíllinn er
settur í öndvegi með tilheyrandi
afleiðingum. Bflageymsluhús rísa
á einum þremur stöðum í út-
jöðrum Kvosarinnar og umferða-
ræðar króa byggðina af frá öðrum
hverfum. Lækjargatan heldur
sinni breidd og verður stofnbraut
með gífurlegum umferðarþunga.
Sama er að segja um öflugan
Kalkofnsveg í framhaldi Sætúns
og Geirsgötu, sem liggur um nú-
verandi hafnarsvæði. Þá breikkar
Vonarstræti verulega og sama er
að segja um Fríkirkjuveg, sem á
eftir að teygja sig talsvert út í
Tjörnina. Pá á eftir að afmarka
reit undir Ráðhús Davíðs Odds-
sonar á hornlóð Tjarnargötu og
Vonarstrætis, sem þýðir tal-
sverða stækkun út í Tjörn.
í tillögu Dagnýjar og Guðna er
mikil áhersla lögð á samspil op-
inna svæða, byggðar og gatna-
kerfis. Því miður bendir margt til
þess að öflugar umferðaræðar á
þrjá vegu slíti Kvosina úr eðli-
legum tengslum við Tjörnina að
sunnan, hafnarsvæðið að norðan
og Torfu og Þingholt að austan.
Besta tillagan?
Tillaga arkitektanna tveggja
sem hér hefur lauslega verið
minnst á er án alls vafa vel hugsuð
og það er ljóst að þeir hafa náð
allvel þeim markmiðum sem sett
voru í upphafi. Hins vegar eru
ágallarnir margir. Of mikil niður-
rifsgleði ríkir, nýja byggðin er
amk. einni hæð of há, tengsl
Kvosar við önnur svæði eru af-
skorin með umferðaræðum. Þar
liggur þó sök þeirra reiknim-
eistara sem gefa einkabflnum of
mikinn forgang og veita umferð
úr úthverfum borgarinnar með
skipulögðum hætti inn í Kvosina.
Það er hins vegar önnur saga og
verður nánar rakin síðar.
Við skulum að lokum fá fram
álit fjögurra einstaklinga á þessu
nýja Kvosarskipulagi um leið og
við hvetjum aðra til að segja sitt
álit. Hver fer að verða síðastur í
þeim efnum því ef að líkum lætur
verður skipulagið samþykkt á
borgarstjórnarfundi 4. desemb-
er. Fljótlega á næsta ári munu
skurðgröfurnar taka til óspilltra
málanna.
-v.
VALÞÓR
HLÖÐVERSSON
Svona kemur horn Austurstrætis og Lækjartorgs til með að líta út. Sumir kalla þetta málamiðlun, aðrir hollívúddtjöld.
engu að síður 4 1/2 hæð að jafn-
aði. Eldri húsirí háu, sem áður
v?r minnst á, marka hæð nýju
húsanna sem reisa á. Það gera
einnig önnur hús sem síðar
komu, t.d. viðbyggingin við Nýja
bíó sem reist var upp úr seinni
heimstyrjöld og geta menn þá
þakkað guði fyrir að húsið varð
ekki eins og í upphafi stóð til, en
það átti að vera 6-7 hæðir. Annað
hús í götumynd Lækjargötu er
einnig haft til viðmiðunar, en það
er auðvitað Iðnaðarbankahúsið
frá árunum 1959-64, 5 hæða
steinhús.
Vissulega benda arkitektarnir
réttilega á að markmið skipulags-
tillögunnar hafi verið að skapa
samstæða byggð. Það virðist hafa
tekist að nokkru þótt menn geti
svo deilt um markmiðið í sjálfu
sér. Hvað Lækjargötuna varðar
hefði t.d. vel mátt lækka þessi tvö
háu hús og knýja hina nýju götu-
mynd niður í 3-4 hæðir. Erfiðara
var hins vegar um vik í Austur-
stræti þar sem eru fyrir mörg há
hús eins og Eymundson, Silla og
Valda húsið og Búnaðarbankinn.
Hins vegar má segja að hönnuðir
Iáti sér misjafnlega annt um að ná
þessu markmiði og má benda á
Aðalstræti 10, sem kúrir á milli
tveggja stórbygginga. Ef menn
fallast á að hafa misræmi á þess-
um stað, hvers vegna þá ekki á
öðrum? Menningarsögulegt gildi
Aðalstrætis 10 er vissulega mikið,
en slíkt gildi hafa fleiri hús. Hvað
með Aðalstræti 16, Austurstræti
8 (ísafold) eða Aðalstræti 7?
Engin heiðarleg tilraun hefur
verið gerð til að fella nýja byggð
að þessum húsum.
Misheppnuð tilraun
Á einum stað í öllu þessu mikla
Kvosarskipulagi hefur verið gerð
málamiðlun, en það er á horni
Austurstrætis og Lækjargötu.
Trúlega er hann vandfundinn sá
arkitekt sem myndi láta slíka til-
lögu frá sér fara - í alvöru. Það er
greinilegt að hinir ágætu arkitekt-
ar, Guðni og Dagný, hafa teygt
sig býsna langt í þá átt að lægja
öldur sem voru farnar að rísa þeg-
ar mönnum varð ljóst að þetta
sögulega horn ætti að hverfa. Og
því miður virðist sú tilraun ætla
að mistakast. Menn benda á að
mjög erfitt ef ekki útilokað sé að
byggja nýja húsið á bak við þau
gömlu, nema að rífa þau fyrst en
byggja síðan nýtt úr gömlum við.
Geta menn þá velt fyrir sér menn-
Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt:
Fráleitt að ætla sér að rækta tré í
Lækjargötunni. Ljósm. E.ÓI.
byggja. Stærð þeirra og form eru
ekki yfirþyrmandi".
„Það alvarlegasta í öllum þess-
um áætlunum um þróun byggðar
í gamla miðbænum eru þó þær
hugmyndir sem menn ætla sér að
framkvæma í umferðarmálunum.
Reiknimeistarar og aðrir snilling-
ar láta stjórnast af tölvuspám og
umferðarlíkönum en hyggja ekk-
ert að því mannlífi sem við viljum
að dafni í miðborg höfuðstaðar-
ins. Kvosin endar því sem eins-
konar umferðareyja með Tjörn-
ina sem smá gosbrunn ef ekki
verður að gáð,“ sagði Auður að
lokum.
-v.
Dagný Helgadóttir höfundur Kvosar-
skipulags: reynum að sætta ólík sjón-
armið
hennar. Allt er þetta gert til að
skapa manneskjulegra umhverfi í
þessu hjarta borgarinnar", sagði
Dagný að síðustu.
-v.
Tjörnin skorin frá
miðbœjarkvosinni
Auður Sveinsdóttir: Verið að drepa Kvosina
með mikilli umferð um Hlíðarfót inn
Sóleyjargötu og Sœtún meðfram höfninni
,,Ég er alls ekki sátt við þessa
skipulagstillögu og finn henni
margt til foráttu. Þar fínnst mér
verst að Tjörnin verður skorin úr
tengslum við Kvosina með
aukinni umferð um Vonarstræti.
Einnig verður gífurlegri umferð
veitt um Sólcyjargötu og Frí-
kirkjuveg inn í þessa viðkvæmu
byggð,“ sagði Auður Sveinsdóttir
landslagsarkitekt þegar hún var
spurð álits.
„Mér finnst tómt mál að tala
um Kvosina sem einangrað fyrir-
bæri. Menn verða að huga að því
hvað er að gerast í umferðarmál-
unum og nú á greinilega að fram-
fylgja 20 ára gömlu skipulagi eftir
úreltum hugmyndum með lagn-
ingu hraðbrautar, svokallaðs
Hlíðarfótar um útivistarsvæðið í
Öskjuhlíð og inn á Sóleyjargötu
með tilheyrandi einangrun Þing-
holta frá Hljómskála og Tjörn.
Með aukinni umferð um Sætún
verða svo tengslin milli hafnar-
innar og Tjarnarinnar rofin. Á
sama tíma leggja höfundar Kvos-
arskipulags mest upp úr því að
reiturinn vestan Lækjargötu eigi
að vera göngusvæði. Þetta stenst
engan veginn,“ sagði Auður enn-
fremur.
„Ég sakna markvissra athug-
ana á úrtivistarskilyrðum í Kvos-
inni, hvar gróðurskilyrði og skjól
er best. Há beinstofna krónu-
milkil tré eru raunhæfust á vel-
teiknuðum útlistmyndum skipu-
lagshöfunda. Hvaða tré eru þetta
eiginlega eða hafa menn aldrei
lent í norðanstrengnum á Lækj-
argötu? Hvað Austurstrætið
varðar þá er ljóst að háu húsin
þýða að gatan verður dimm hola
þar sem aldrei nær að skína sól.
Og svo tala menn um fleiri græn
svæði og aukna trjárækt í Kvos-
inni! Það væri kannski hægt að
bjarga sér út úr því klúðri með því
að byggja gler yfir alla götuna og
rækta þar bananaplöntur. En þá
skulu menn bara stíga það skref
til fulls en ekki vera að koma aft-
an að hlutunum.“
„Eini kosturinn við nýja hug-
mynd að Austurstrætishorninu
við Lækjartorg tel ég vera að
spegilhúsið á bak við gömlu húsin
verði aldrei byggt og hornið haldi
sér óbreytt því gömlu húsin á
auðvitað að varðveita og endur-
Sunnudagur 23. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5.