Þjóðviljinn - 23.11.1986, Síða 7
Gúnther Walraff: Vansælt er það samfélag sem er hætt að lesa, því það hefur misst minnið...
til nema sem undantekning, þau
eru yfirleitt þrælháð viðskipta-
hagsmunum eða stjórnmála-
flokkum, ekki síst þau sem aug-
lýsa það með fyrirgangi að þau
séu óháð! (Ein undantekningin
er vikublaðið Spiegel). Og því
hefði ég aldrei getað unnið á
blaði til langframa. Meðal annars
vegna þess að jafnvel á skástu
blöðum er alltof lítið svigrúm til
að vinna úr þemum með þeim
hætti sem ég hefi gert. Og ekki er
allt sem sýnist þegar blöð segja
frá t.d. fjármálahneykslum (Flic-
kmálið, byggingafélagið Neue
Heimat osfrv.) - þar er ekki um
eiginlega rannsóknarblaða-
mennsku að ræða, heldurþað, að
einhverjir innanhússmenn selja
vitneskju fyrir peninga.
Það er mjög lærdómsríkt að
fara í annars ham, sagði Gúnther
Walraff ennfremur. Til dæmis
hafði ég vissa fordóma gagnvart
Tyrkjum - ég áttaði mig ekki á
því, hve næmir menn og við-
kvæmir þeir eru fyrr en ég fór að
vinna með þeim. Rithöfundurinn
er oft einmana, en t.d. í hlutverki
Alís þá upplifði ég aftur sam-
kennd, samstöðu sem lifir meðal
þeirra sem lakar eru settir. Með
því að ganga í hlutverk annarra
gat ég með nokkrum hætti orðið
ég sjálfur aftur.
Skáldskapur
og heimildaverk
- Eru heimildabókmenntir og
ádrepur þínar einskonar svar við
því sem kallað hefur verið mátt-
leysi hins skrifaða orðs, kannski
um leið vantraustsyfirlýsing á
fagurbókmenntir, á skáldverk?
- Ég tel að bók eins og Niður-
lægingin sanni, að bókin hefur
ekki glatað áhrifamætti sínum.
Vandi margra rithöfunda er hins-
vegar sá, að þeir þekkja ekki
vandamál og hvunndag venjulegs
fólks, þeir lokast inni í þeim víta-
hring að skrifa bókmenntir fyrir
bókmenntafólk. Eitt sinn - eftir
fyrra stríð, voru til í Þýskalandi
verkalýðsbókmenntir sem voru
ágætar og um margt áhrifamikl-
ar, þær voru síðan eyðilagðar af
nasismanum og sá þráður hefur
ekki verið tekinn upp aftur.
Kannski er ég að reyna að gera
það.
Ég geri fleira en skrá það sem
ég sé og heyri. Ég er með nokkr-
um hætti leikstjóri, ég set veru-
leikann á svið. Stundum tekst
það, stundum ekki. Einu sinni
ætlaði ég að ganga inn í IBM og
skrifa um þennan tölvuheim,
þennan framtíðariðnað, en það
tókst ekki. Ég var ekki rétta
manngerðin - það sést langar
leiðir hverjireru IBM-menn, þeir
eru orðnar hálfgerðar tölvur
sjálfir. Þetta eru sokallaðir
hundrað prósent menn, sem
alltaf eru eldhressir og kátir, og ef
einhver þeirra er svo óheppinn að
eiga konu, sem sálfræðingur
fyrirtækisins telur ekki passa í
kramið („þú ert ekki IBM-
kona“) þá er hún tekin til endur-
hæfingar. Nei þetta var ekkert
fyrir mig, segir Gunther og hlær.
Upp á
Vatnajökul
Önnur ráðgerð sem ég varð að
hætta við var að fara sem aðstoð-
arfararstjóri í ferðalag með for-
stjórum og liðsforingjum og öðr-
um mektarmönnum - ferðinni
var heitið til íslands, upp á Vatn-
ajökul. Þar ætluðum við að láta
allt fara úrskeiðis, spila af fingr-
um fram einskonar „grimmdar-
leikhús“. Það var vel frá öllu
gengið - við höfðum meira að
segja haft vaðið fyrir neðan okk-
ur lögfræðilega vegna þess að
ferðaskrifstofan auglýsti „ævin-
týraferð'"! En því miður varð
þátttaka ekki nóg - ef þetta hefði
komið upp núna hefði það ekki
orðið til trafala, ég hefði barasta
bætt við farþegum úr mínum
hópi.
Bókln
og framtíðin
Þessi bók mín er byggð bæði á
hljóðupptökum og myndbands-
upptökum. Ég mundi reyndar
ráðleggja byrjandi blaða-
mönnum að ná sem bestum
tökum á myndbandinu, því að
möguleikar þess eru hvergi nærri
upp luktir. Ég sé það fyrir mér,
að bækur framtíðarinnar verða
gefnar út með kassettum, sem
verða þá fyrirferðarminni en þær
sem nú eru notaðar og líklega á
allra færi að skoða þær heima.
Myndbandið getur verið góð
prófun á bókina. En vitanlega er
það bókin sem blífur, það er hægt
að fletta henni fram og aftur, lesa
hana með misjöfnum hraða og
svo framvegis. Vansælt er það
samfélag sem er hætt að lesa, því
það hefur misst minnið.
Menn hafa reyndar verið að
tala mikið um það upp á síðkastið
að lestur væri að verða séreign æ
þrengri hóps, að það væri mynd-
ast einskonar klerkastétt bók-
anna, en dæmi eins og Niðurlæg-
ingin benda í aðra átt, sem betur
fer.
Til íslands?
- En hvers vegna skyldi Gunt-
her Walraff hafa komið til ís-
lands?
- Ég hafði gaman að því að
koma að Bessastöðum, sagði
hann, sjá að utan þennan látlausa
forsetabústað, engir hermenn,
enginn fyrirgangur... ísland er
lítið samfélag, þar er hægt að hafa
yfirsýn yrír það sem gerist, það
getur að mínu viti orðið merkileg
vin, ekki aðeins náttúruvin í iðn-
væddum heimi, heldur og merki-
leg tilraunastöð með lýðræði. Ég
tel að hvort sem litið er í austur
eða vestur skipti það mestu máli
fyrir samfélögin að rífa niður
miðstýringu, að koma á sjálfs-
stjórn smærri eininga í sem lýð-
ræðislegustu formi - án þess get-
um við ekki færst nær nýjum sam-
býlisháttum. Og má vera að ís-
land geti komið þar við sögu...
HÚSGAGNASÝNING
laugardag kl. 2-4
sunnudag kl. 2-5
Nýjar húsgagnasendingar
Hreyfilshúsinu á horni Grensásvegar og IVIiklubrautar. Sími 686070.