Þjóðviljinn - 23.11.1986, Blaðsíða 12
Við erum ekki hermenn,
en beijumst til að
verja land okkar
í júní síðastliðnum samþykkti bandaríska þingið
beiðni stjórnarinnar um 100 miljóna dala framlag til
svokallaðra contra-skæruliða sem berjast gegn
stjórnvöldum í Nicaragua. Málaliðar þykir þó mörg-
um meira réttnefni á þessa stríðsmenn sem margir
hverjir voru áður í þjóðvarðliði einræðisherrans
Somoza. Að undanförnu og einkum eftir að banda-
ríska þingið samþykkti þessa fjárveitingu, hefur verið
talað um „víetnamíseringu11 stríðsins við Nicaragua,
og er þá vísað til þess hvernig Víetnam-stríðið þróað-
ist.
Héráeftirferfrásögn úrtímaritinu Intercontinental
Press, sem gefið er út í New York, af árás málalið-
anna á samyrkjubú síðastliðið vor. Frásögnin er eftir
fréttamenn tímaritsins í Nicaragua, Harvey McArthur
og Ruth Nebbia.
Kontra skæruliðar birgja sig upp af vopnum.
„Við erum ekki hermenn, en
við berjumst til að verja land
okkar,“ sagði Isaiás Espinoza
Velásquez, einn þeirra sem
lifði af morðárás á Daniel Téll-
er samyrkjubúið 31. maí. Þar
voru að verki gagnbyltingar-
sinnuðu hryðjuverkamennirn-
ir (contras) sem Bandaríkja-
mennhaldauppi.
í fjóra klukkutíma börðust 35
bændur úr varnarsveit búsins við
200 þungvopnaða kontramála-
liða þar til liðsauki frá sandínista-
hernum kom. Fimmtán menn úr
varnarsveitinni voru drepnir og
eitt barn.
Þetta var fyrsta árás kontra-
málaliðanna á Téller samyrkju-
búið, sem er langt inni í fjallahér-
uðunum í norðurhluta Nicarag-
ua, nálægt 65 kílómetra norð-
austur af bænum Matagalpa. Það
var stofnað fyrir tveimur árum.
íbúarnir, sem eru 280, fengu
þetta land, um 1100 ha, vegna
áætlunar stjórnar Nicaragua um
uppskiptingu jarða. Þeir búa með
nautgripi og rækta kakó sem þeir
selja í bænum og korn og græn-
meti til eigin þarfa.
Isabel Valenzuela, sem hefur
umsjón með framleiðslu og vörn-
um búsins, sagði að þeim hefði
vegnað vel fyrir árásina. Þau
höfðu selt 600 kálfa í apnl og voru
að endurgreiða lán og höfðu ráð-
gert endurbætur á búinu.
Með hjálp sjálfboðaliða frá
Sviss höfðu verið reist 40 íbúar-
hús á búinu og svissneskir verka-
menn lögðu fram fé til verksins.
Þetta eru lítil timburhús með
steyptu gólfi og blikkþaki. í
hverju húsi eru þrjú herbergi og
verönd undir þaki sem nýtist sem
eldhús og fyrir hvers kyns heima-
vinnu. Á búinu er einnig skóli og
lítil heilsugæslustöð með einum
hj úkrunarfræðingi.
Sjálfsvarnarbú
Þetta er sjálfsvarnarbú þar sem
bændurnir skipuleggja sjálfir
varnir gegn árásum kontramála-
liðanna.
Húsin kúra á smáhæð milli
fjallanna. í vestri gnæfir yfir þau
nokkur hundruð metra hár fjalla-
kambur. Uppi á honum er niður-
grafið varðskýli. Aðrar varð-
stöðvar eru á lægri hæðum
norðan og austan við þorpið.
Niðri við þorpið eru þrjú niður-
grafin byrgi sem konur og börn
geta leitað í ef gerð er árás.
„Við erum bara vopnaðir
bændur,“ sagði Valenzuela.
„Hér eru engir hermenn. Við
reynum ekki að ráðast á neinn.
Við grípum aðeins til vopna ef
óvinurinn ræðst á okkur.“ Bænd-
urnir 35 sem eru í heimavarnar-
liðinu eru aðeins vopnaðir AK-47
rifflum.
30. maí var mæðradagurinn í
Nicaragua. „Það voru hátíðahöld
víða í nágrenninu þennan dag,“
sagði Daniel Prado. Hann vinnur
á Héller-búinu og er fulltrúi
bændasamtakanna, UNAG.
„Kontrarnir notfærðu sér það til
að laumast hingað óséðir. Við
giskum á að 200 manns hafi tekið
þátt í árásinni."
Að sögn Valenzuela komu
kontramálaliðarnir um fjögur-
leytið morguninn eftir. Þeir réð-
ust fyrst á varðstöðina vestan við
búið og drápu fjóra af fimm
bændum sem voru á vakt.
Þegar málaliðarnir höfðu náð
hæðunum á sitt vald hófu þeir
skothríð á þorpið með fallbyss-
um, RPG- sprengjuflaugum og
M-79 sprengjuvörpum. Hundruð
sprengigíga mynduðust á jörð-
inni. Ibúarnir giska á að um 600
sprengjur hafi fallið.
Þegar skothríðin hófst forðuðu
Konur og börn sér í neðanjarðar-
byrgin eða leituðu skjóls niðri við
ánasem rennurhjá þorpinu. Átta
ára gömul stúlka, Xiomara Flor-
es Ortiz, var drepin á leiðinni í
byrgið.
Málaliðarnir létu fallbyssukúl-
um og sprengjum rigna yfir þorp-
ið en réðust síðan inn í það úr
suðri. Heimavarnarliðið varðist
af mætti, en var yfirbugað. Níu
bændur féllu eða hlutu alvarleg
sár áður en málaliðarnir náðu til
þorpsins. Holdtægjur og hár-
flygsur lágu enn í skurði nærri
þorpinu fjórum dögum eftir árás-
ina.
„Pilar Ortiz var særður en lifði
þó enn þegar óvinirnir komu að
skólanum," sagði Isaiás Espinoza
okkur. „Þeir pynduðu hann, lem-
struðu andlit hans og skáru hann
síðan á háls.“ Ortiz var félagi í
Þjóðfrelsisfylkingu sandínista
(FSLN) og forystumaður á sam-
yrkjubúinu.
Kontramálaliðarnir kveiktu
skipulega í skólanum og 14 íbúð-
arhúsum; ekkert stendur eftir
nema steyptur grunnurinn og
undnar blikkplötur. Átta ára
gömul stúlka sagði við okkur:
„Þeir brenndu fötin okkar og
heimili mitt. Við vorum mjög
hrædd.“
Málaliðarnir réðust einnig að
neðanjarðarbyrgjunum þar sem
konur og börn höfðu leitað
skjóls. „Þeir köstuðu M-79
sprengju að einu byrginu," tjáði
Valenzuela okkur. „Hún sprakk
uppi við þakið og særði marga
sem voru inni.“ Kona hans og sex
ára gamall sonur voru meðal
hinna særðu.
Hann hélt áfram að segja frá;
„Ein af konunum hljóp út úr
byrginu. Hún hrópaði: „Skjótið
ekki! Skjótið ekki! Það eru engir
hermenn hér, aðeins konur og
börn.“ Kontrarnir kölluðu til
baka: „Þið eru konur hunda og
eigið skilið að deyja." Þeir fóru
inn í skýlið og sögðu konunum að
yfirgefa samyrkjubúið strax, ella
kæmu þeir aftur og dræpu þær
allar. „FDN ræður hér,“ æptu
þeir um leið og þeir miðuðu byss-
um sínum að börnunum." FDN
er skammstöfun fyrir Lýðræðis-
fylkingu Nicaragua, hina stærstu
af málaliðasveitunum sem
Bandaríkin reka.
Bardaginn stóð í hér um bil
fjóra klukkutíma. Það var ekki
fyrr en liðsauki hersins kom
klukkan hálfníu að málaliðarnir
komu sér burtu. „Það bjargaði
okkur,“ sagði Valenzuela. „Við
vorum að verða uppiskroppa
með skotfæri og óvinirnir voru
komnir inn í þorpið. Þeir hefðu
brennt allt og drepið okkur öll ef
hermennirnir hefðu ekki kom-
ið.“
Bœndurnir
krefjast vopna
Auk varðliðanna 15 og litlu
stúlkunnar hlutu 22 sár, aðallega
konur og börn. 38 börn misstu
föður sinn í árásinni.
„Við komum líka höggi á óvin-
ina þótt við hefðum aðeins
riffla," sagði Valenzuela. „Að
minnsta kosti átta, ef ekki fleiri,
voru óvígir úr liði kontranna."
Valenzuela og aðrir sem kom-
ust af lögðu áherslu á lélegan
vopnabúnað sinn. „Kontrarnir
eru vel búnir vopnum en við
höfðum aðeins riffla. Ef við hefð-
um haft fallbyssu eða sprengju-
vörpu eða þó ekki væri nema eina
vélbyssu fyrir hverja varðstöðu
hefðu óvinirnir aldrei komist inn í
þorpið.“
Þörfin fyrir fleiri vopn er æ
meir til umræðu í Nicaragua, sér-
staklega síðan málaliðarnir fóru
að beina spjótum sínum meir að
einstökum bóndabæjum eða
samyrkjubúum í stað þess að ráð-
ast beint til atlögu við sandínista-
herinn. Alcides Rodríguez, for-
ystumaður í UNAG, sagði að
meira en 1000 manns biðu eftir
vopnum á samyrkjubúum í þessu
héraði. Þungavopn eru hvergi
þótt UNAG hafi beðið stjórnina
að sjá samyrkjubúunum fyrir
betri vopnum. „Og þeir eru líka
margar konur sem biðja um
vopn,“ bætti Rodríguez við.
Roskin kona sem hafði misst
eiginmann sinn og tvo syni í árás-
inni sagði okkur að dóttir hennar,
fimmtán ára göntul, vildi ganga í
herinn. „Ef ég væri nógu hraust
tæki ég líka upp vopn,“ sagði
móðirin. „Ellefu ára gamall
sonur minn vill líka fara.“
Bændurnir sem við töluðum
við voru staðráðnir að vera um
kyrrt og endurbyggja samyrkju-
búið, þótt Valenzuela segði að
sumir væru óttaslegnir og vildu
undir niðri fara.
„Á tímum Somoza-veldisins,"
sagði Isaiás Espinoza, „höfðum
við ekkert; ekkert land, enga
heilsugæslu, ekkert húsnæði,
enga menntun. Með byltingunni
höfum við bændurnir eignast
land. Síðan 1984 höfum við verið
að byggja upp þetta samyrkju-
bú,“ hélt hann áfram. „Það er
framtíð okkar. Og nú kemur
óvinurinn og eyðilegur það. Við
börðumst til að börn okkar öðl-
uðust framtíð - svo að ekki yrði
traðkað á þeim eins og var
traðkað á okkur."
UNAG ætlar að reyna að fá
fleiri fjölskyldur á búið strax og
búið er að endurbyggja íbúðar-
húsin. Á meðan senda önnur
samyrkjubú menn til að aðstoða
við þau störf sem hinir föllnu
sinntu. Svissneskir sjálfboðaliðar
hafa komið aftur til að hjálpa til
við endurbygginguna og Rauði
krossinn hefur útvegað aðstoð.
Reagan og
heimsvaldastefnan
ábyrg
Francisco Zeledón, forystu-
maður í svæðisdeild UNAG,
sagði okkur að slíkar stórárásir
væru óvenjulegar nú. „Á þessu
svæði er um 80 samyrkjubú,“
sagði hann. Á árunum 1983 til
1985 „var ráðist á 40 bú, tvisvar
eða þrisvar á sum þeirra. En við
styrktum varnirnar á þessu svæði
12 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. nóvember 1986