Þjóðviljinn - 23.11.1986, Síða 13
Hermaður úr heimavarnaliði bænda.
1985 og kontramir hafa ekki gert
margar árásir síðan. Þeir leggja
nú aðaláherslu á að leggja
sprengjur í vegi eða sitja fyrir eða
ræna einstökum bændum.“
Að sögn forystumanna UNAG
voru lagðar sprengjur í veginn
milli Matagalpa og Dalia tvisvar
þessa fjóra daga sem við dvöldum
á þessum slóðum. í bæði skiptin
urðu bændur varir við málaliðana
og létu vita af þeim svo hægt var
að gera sprengjurnar óvirkar.
Zeledón, Valenzuela og aðrir
sem við ræddum við kváðust álíta
að með árásinni 31. maí hefðu
málaliðarnir ætlað að sýna hæfni
sína áður en Bandaríkjaþing tæki
fyrir tillöguna um 100 milljóna
dala fjárveitingu til stríðsrekst-
ursins (þingið samþykkti þessa
fjárveitingu í lok júní). „Þessar
þjáningar, þessi tár, eru afleið-
ingar þessara 100 milljóna daia,“
sagði Espinoza við okkur. „Það
er Reagan sem ber ábyrgðina. í
hans augum er það glæpur að
FSLN skuli hjálpa okkur að reisa
hús yfir fjölskyldur okkar. í
augum Reagans og kontranna er
það glæpur að bændurnir eigi
kost á einhverjum framförum.“
Hinn tvítugi Silvio Dávila Pica-
do, sem missti föður sinn og þrjá
bræður í árásinni á samyrkjubú-
ið, var á sama máli. „Það er Re-
agan og heimsvaldastefnan sem
bera ábyrgðina." Dávila er í
hernum. Hann kom heim eftir á-
rásina og þá voru aðeins móðir
hans, systir og lítill bróðir á lífi.
hann hefur nú sótt um lausn úr
hernum svo hann geti verið með
fjölskyldu sinni á búinu. „Og ég
vona að þeir láti mig hafa eina
M-60 (vélbyssu) þegar ég fæ
lausn til að styrkja varnir okkar,“
sagði hann við okkur.
Sem bandarískir fréttamenn í
heimsókn á samyrkjubúinu rétt
eftir árásina fengum við hlýlegar
og vinsamlegar móttökur. Þótt
Valenzuela, Dávila, Espinoza og
aðrir sem við hittum væru aug-
ljóslega örþreyttir voru þeir fúsir
til að ræða við okkur tímunum
saman um það sem hafði gerst -
og til að senda íbúum Bandaríkj-
anna skilaboð.
„Við höfum heyrt um sam-
stöðuna og mótmælin í Banda-
ríkjunum,“ sagði Espinoza. „Við
vitum að fólkið er ekki sammála
Reagan. Við biðjum ykkur að
halda áfram að mótmæla. Við
viljum frið hér og um alla Mið-
Ameríku."
Einar Ólafsson þýddi
Sunnudagur 23. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Aðgangsharðir
bílstjórar
Annar úr leigubílabransanum,
sannur eða loginn. Leigubíl-
stjórar á Keflavíkursvæðinu
ku víst gerast nokkuð að-
gangsharðir á stundum við
flugvallarmóttökuna í Kefla-
vík, til að ná sér í kúnna. Ein
sagan er á þá leið aö í eitt
skiptið sem farþegar voru að
koma frá útlöndum og voru
um það bil að stíga upp í
Reykjavíkurrútuna, hafi
keflvískir bílstjórar hreinlega
kippt fólki inn í bíla sína, spurt
um farangur þess, gripið hann
og brennt í bæinn. An þess að
spyrja frekar...
Gapuxi með
þykka skel
Lesanda varð eftirfarandi að
orði eftirað Jón Baldvin hafði
afgreitt jafnaðarstjórn með því
að biðla til íhalds:
Þó maður beri rauða rós
ropi hátt og sperri stél
gerist aldrei gáfulegur
gapuxi með þykka skel
Feitur biti
Hinir fjölmörgu leigubílstjórar
sem voru skráðir í vinnu hjá
hinu opinbera meðan á
leiðtogafundinum stóð eru
heldur betur ánægðir þessa
dagana enda var þar feitur
biti, oft fyrir litla vinnu. Vinnan
varð víst svo lítil hjá sumum
þeirra að þeim fannst nóg um,
látnir bíða klukkustundum
saman fyrir utan eitthvert hót-
elið eða sendiráðið. Fengu þó
15.000 fyrir daginn...
St. Jósefsspítali
Landakoti
HAFNARBÚÐIR
Þurfum á góöu fólki aö halda, bæöi í býtibúr og
við ræstingar. Upplýsingar í síma 19600-259 alla
virka daga frá kl. 10-14.
Reykjavík 18.11. 1986.
St. Jósefsspítali, Landakoti
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraiiðar, langar
ykkur ekki til aö starfa á 22 legurýma lyflækninga-
deild, ll-A? Stefnt er að sérhæfðri hjúkrun. Að-
lögunarprógramm sniðið eftir þörfum starfsfólks.
Góður starfsandi.
Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra
í síma 19600-220 alla virka daga.
Fóstrur
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsireftirtaldar
stöður lausar til umsóknar.
1) Staða fóstru á dagvistarheimilinu Grænatúni.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
46580.
2) Einnig er um að ræða lausar stöður á öðrum
dagvistarheimilum bæjarins.
Nánari upplýsingar gefur dagvistarfulltrúi í
síma 45700.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggjaframmi á Félagsmálastofnun,
Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun
Kópavogs
SJÓNVARPIÐ, INNLEND DAGSKRÁRDE/LD, ÓSKAR
EFT/R TILBOÐUM í GERÐ STUTTRAR KVIKMYNDAR
FYRIR SMÁBÖRN. PESS/KV/KMYND VERÐUR SÝND
/í ÖLLUM NORÐURLÖNDUNUM OG ER HLUT/ AF
SAMNORRÆNUMMYNDAFLOKKL PARSEMHVER
KVIKMYND ER SJÁLFSTÆTT VERK MYND/N PARF
AÐ VERA T/LBÚ/N 1. DESEMBER 1987 OG LENGD
HENNAR UM 20 MÍNÚTUR.
í T/LBOÐ/NU FELST ENDANLEGUR KOSTNAÐUR
V/Ð GERÐ MYNDAR/NNARÁSAMT HANDR/T/ SEM
VERKTAK/ SEMUR EÐA VELUR SJÁLFUR
T/LBOÐUM PARFAÐ SK/LA T/L SJÓNVARPS/NS
FYR/R 1. MARS 1987.
NÁNAR/ UPPLÝS/NGAR VF/T/R LE/KL/STARRÁÐU-
NAUTUR SJÓNVARPS/NS OG DAGSKRÁRFULLTRÚ/
R/K/SUTVARP/Ð