Þjóðviljinn - 23.11.1986, Side 14
Þau Bryndís Petra Bragadóttir og Ellert A. Ingimundarson krossfesta Þröst Guðbjartsson.
Frú Emilía
á Mercedes
Nýtt leikhús, Frú Emilía, frumsýnir í kvöld leikritið Mercedes,
eftirThomas Brasch
Guðjón Pedersen, leikstjóri. Myndir E.ÓI.
„Hversvegna hét maurinn
Emil?“ spuröi Guðjón Pe-
dersen, þegar hann var
spurður um nafngiftina á Frú
Emiiíu, nýjasta leikhúsi höfuð-
borgarinnar.
Frú Emilía frumsýnir í dag,
laugardag, sitt fyrsta verk, en það
er leikritið Mercedes, eftir Thom-
as Brasch. Guðjón er ein helsta
sprautan á bak við Frú Emilíu, en
hann starfaði áður með leikhópn-
um Svart og sykurlaust.
„Frú Emilía er ekki beint fram-
hald af Svart og sykurlaust, en
vissulega störfuðu sum okkar
þar. Þessi hópur sem hér er sam-
ankominn samanstendur af fólki
sem hefur lengi langað til að
vinna saman og við tókum því þá
ákvörðun að taka þennan tíma
frá í Hlaðvarpanum til að vinna
þessa sýningu.
Mercedes fjallar um utan-
garðsfólk hvar sem er. Persónur
Brasch eiga hvergi heima nema í
leikhúsi enda skrifaðar fyrir
leikhús. Brasch hefur sagt að
hann skrifi textann en það sé svo
leikhússins að vinnan úr honum.
Hann minnist hvorki á stað né
stund og því verða tvær uppfærsl-
ur á leikverkum hans aldrei
eins.“
Það eru þrír leikarar í Merce-
des, Bryndís Petra Bragadóttir,
Ellert A. Ingimundarson og
Þröstur Guðbjarnarson. Guðjón
Pedersen leikstýrir verkinu en
þýðinguna gerði Hafliði Arn-
grímsson.
„Ef guð lofar ætlum við okkur
að setja upp aðra sýningu í kjöl-
far þessarar. Þá langar okkur
einnig að gefa út leikverkin og
verður Mercedes prentað í
leikskránni. Leikritið höfðar
sterkt á okkur sem vinnum að því
vegna þess að það fjallar um per-
sónur á okkar aldri og er tiltölu-
lega nýtt af nálinni, skrifað 1983.
Það er mjög happa og glappa
hvernig leikhúsin standa að
kynningu á nýjum verkum. Það
er þó gleðiefni að Litla sviðið er
Brynja Petra og Ellert A. í sígildum gleðileik á gólfi Hlaðvarpans.
komið í nýtt húsnæði og að fimm
ný íslensk leikverk verða kynnt
þar í vetur er æði.
Við höfum sjálf velt því fyrir
okkur að fá íslenskan höfund til
að skrifa leikrit fyrir okkur,
þ.e.a.s. ef leikhúsinu vegnar það
vel að það lifi af. Við höfum ekki
sett saman neina tíu ára áætlun.
Það var neyðarkostur að þurfa
að setja verkið upp hér í Hlað-
varpanum. Þessi salur er ekki
leikhús, þó hægt sé að setja upp
sýningu hér. Lýsingin er til að
mynda afar slæm.
Jú það er kominn frumsýning-
arskjálfti í okkur, að minnsta
kosti í mig. Ég er mjög spenntur.
Hlakka mikið til enda er þetta
fyrsta sýningin sem ég leikstýri
með atvinnumönnum og því
spenntur að sjá hvernig viðtök-
urnar verða.
Ég er menntaður leikari en hef
verið svo lánsamur að starfa sem
aðstoðarleikstjóri hjá þeim Þór-
hildi Þorleifsdóttur og Brynju
Benediksdóttur og lærði heil-
mikið af þeim. Ég vona bara að
ég fái fleiri tækifæri tii að fást við
leikstjórn, hún er það heillandi
og skemmtileg.“
Mercedes verður frumsýnt kl.
20.30 íkvöld, laugardag ogerætl-
unin að sýna verkið alls tíu sinn-
um og verður það sýnt á hverju
kvöldi næstu tíu daga.
-Sáf
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. nóvember 1986